Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 28.08.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.08.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 15 betri borg - saman Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna Þorbjörg Helga Guðlaugur Þór Benedikt Hanna Birna Marta Gísli Marteinn Jórunn Björn in hafa náð sér eftir aðgerðirnar fara þau aftur inn í hið hefðbundna kínverska kerfi fyrir mun- aðarleysingja. Sjálfboðaliðar á munaðarleysingjaheimilum Anna Sveinsdóttir hefur starfað sem sjálf- boðaliði á vegum BICCO og dóttir hennar og Magnúsar Bjarnasonar, fyrrverandi sendifull- trúa í Peking, Erla Karen Magnúsdóttir, sem stundar nám við Peking-háskóla, er sjálfboða- liði hjá Blue Sky. Anna sagði í samtali við Morgunblaðið fyrr í sumar að á hverjum mán- uði væru mörg börn skilin eftir á víðavangi og enduðu á munaðarleysingjahælum. Þessi börn þyrftu örvun og hreyfingu, sem BICCO var stofnað til að veita. Markmið samtakanna er að bæta líf kínverskra munaðarleysingja. Sjálf- boðaliðar samtakanna annast börnin með því að fara reglulega í munaðarleysingjahæli og halda á þeim, gefa þeim að borða og tala og leika við þau. Að auki gefa samtökin munaðar- leysingjahælum barnaföt, leikföng, námsgögn og húsmuni eftir þörfum. Þá afla þau fjár til að borga fyrir læknishjálp fyrir börnin og greiða skólagjöld í sérskólum og greiða og þjálfa fag- fólk til umönnunar.Anna er leikskólakennari og þekking hennar kom henni að góðum notum í Peking. Hún sagði að konurnar í samtökunum skiptu með sér verkum. „Yfirleitt er sjálfboðaliðsstarfið einfaldlega fólgið í að halda á börnunum og snerta þau,“ sagði hún. „Börnin leika sér, teikna og mála, fara út þegar gott er veður - rétt eins og leik- skólabörn á Íslandi.“ Hún sagði að það væri misjafnt hvernig sjálfboðaliðunum væri tekið og því þyrfti að fara varlega. Oft mættu konurnar í BICCO hlýju, en einnig kæmi fyrir að litið væri svo á að þær væru að trufla það starf, sem fer fram inni á munaðarleysingjahælunum. Hún lýsti í samtalinu ástandi á gömlu elli- heimili þar sem börn höfðu verið skilin eftir fyrir utan. Aðbúnaðurinn var slæmur, brotnir gluggar og málningin flögnuð af. Samtökin hefðu lagt að erlendum fyrirtækjum að koma til hjálpar. Álrisinn Alcoa hefði komið til skjal- anna og gefið peninga til að reisa nýtt húsnæði, barnaheimilið í Shuny , sem að hluta er rekið af ríkinu. Mikil þörf er á fjármagni til að hjálpa munaðarlausum börnum í Kína og Anna skorar á þá, sem geta, að leggja málstaðnum lið. Ekki var hægt að bjóða blaðamanni að skoða munaðarleysingjahæli á vegum kínverskra stjórnvalda. Blue Sky-heimilið er hins vegar ekki opinber stofnun, þótt það starfi í sam- vinnu við opinberu heimilin og börnin, sem komi inn á Blue Sky, fari aftur inn í opinbera kerfið og því fór samtalið við Önnu fram þar. Hér eru börnin hamingjusöm „Hér eru börnin svo hamingjusöm og hrein,“ sagði hún. „Hér er hugsað vel um þau.“ Anna sagði að oft væri sorglegt að sjá hvernig færi fyrir börnum á munaðarleysingjahælum í Kína vegna þess að nauðsynleg umönnun væri ekki til staðar eða væri ekki veitt fyrr en of seint. Þetta ætti til dæmis við um spastísk börn, sem aldrei munu geta gengið, en hefðu getað það ef þau hefðu fengið rétta meðferð í tæka tíð. „Það þarf svo lítil fötlun að vera til staðar til að börnin eigi enga möguleika,“ segir Anna. „Bara það að laga klofna vör getur gefið barni möguleika sem átti enga áður.“ Morgunblaðið/kbl Mæðgurnar Erla Karen Magnúsdóttir og Anna Sveinsdóttir ásamt börnum og starfsfólki í barnaheimilinu Blue Sky í Peking. kbl@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.