Morgunblaðið - 28.08.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 57
inn. Og Daisy Duke líka. Það er
ástæðan fyrir að ég fylgdist með
hverjum einasta þætti,“ segir hann
en Daisy þessi er skutla þáttanna
og myndarinnar, þar sem nýgifta
söngkonan Jessica Simpson túlkar
hennar löngu stuttbuxnaleggi. Ein-
tóm nostalgía varð þó ekki þess
valdandi að hann ákvað að taka
þátt í myndinni. „Ég falaðist ekki
eftir hlutverkinu vegna þess að ég
var gamall aðdáandi heldur því ég
hélt það gæti verið gaman að gera
þessa mynd. Ég hélt það yrði gam-
an að leika þessa persónu og mig
langaði að keyra bílinn. En svo
sagði ég að ég vildi ekki gera
myndina nema þeir fengu Johnny
Knoxville,“ segir Seann sem varð
að ósk sinni. Seann og Johnny
leika frændurna Bo og Luke Duke,
sannkallaða grallara, sem komast
ótal oft í kast í við lögin í mynd-
inni.
Honum fannst gaman að vinna
með kjánaprikinu og segist sjálfur
hafa verið enginn engill fyrir
myndina. „Svo ég var viss um að
við myndum skemmta okkur sam-
an. Hann er einn af þeim strákum
á mínum aldri sem mér þykja
fyndnir. Hann er mjög sjarm-
erandi. Ég var mjög spenntur að
vinna með honum og hefði ekki
tekið þátt í myndinni annars. Það
sést á myndinni hvað við skemmt-
um okkur vel við gerð hennar,“
segir hann en margt sem Bo og
Luke taka uppá minnir á Jackass.
„Já, við vildum það. Johnny á
svo stóran aðdáendahóp að við
vildum láta þetta vera svolítið villt
og frekar líkamlegt.“
Áhættuökukennsla í mánuð
Eitt er víst að eltingaleikirnir
eru margir. „Já! það var skemmti-
legt. Ég vann með áhættuöku-
manni í mánuð, sem áður starfaði
sem atvinnukeppnismaður í ökuí-
þróttum. Í myndinni geri ég um 15
áhættuatriði og til viðbótar taka
þátt nokkrir af bestu áhættuöku-
mönnum heims,“ útskýrir hann
stoltur en það er hægt að taka
undir það að atriðin eru mögnuð.
„Í svo mörgum myndum er bara
notast við tölvubrellur en í þessari
mynd eru allar ökubrellurnar
ekta,“ ítrekar hann.
Skyldi hann hafa orðið hræddur?
„Eiginlega ekki. Þetta var „adr-
enalínrush“. Ég hafði æft mig
mjög mikið og var spenntur að fá
að gera þessi áhættuatriði. En ef
ég hefði klúðrað þessu hefði ég
getað keyrt á myndavél eða eitt-
hvað af tökuliðinu. Ég gleymdi því
ekki en varð ekkert stressaður,“
segir hann svalur enda fékk hann
toppeinkunn hjá rallíökukenn-
aranum.
Ástfanginn af bíl
Kappakstursbíllinn General Lee
nálgast það að vera persóna í
myndinni. Hann er vissulega glæsi-
legur og má segja að Bo sé ást-
fanginn af honum.
Seann grínast með að verða ást-
fanginn af bíl á hverjum einasta
degi. Hann bakkar þó með yfirlýs-
inguna og segir þetta ástarsam-
band bíls og manns vera byggt á
nokkrum gömlum vinum hans úr
heimaríkinu Minnesota. Þar átti
hann vini sem huguðu að bílnum
sínum hverja helgi, alltaf að betr-
umbæta. „Ég tók þessa hugmynd
aðeins lengra og lét Bo vera í raun
ástfanginn af bílnum. Það er smá
vitleysislegt en það er fyndið.
Þetta er vitleysisleg mynd, hún á
að vera það!“
Minnesota er talsvert öðruvísi en
Hazzard County. „Ég ólst upp í
frekar dæmigerðu úthverfi. Þetta
var frekar nálægt sveit en samt
öðruvísi en Hazzard County.“
Jessica Simpson smellpassar í
stuttbuxur Daisy Duke. „Mér
fannst hún standa sig vel. Það var í
raun ekki krafist mikils af okkur,
við áttum bara að skemmta okkur
og taka hlutunum ekki of alvar-
lega. Hún skemmti sér vel og lagði
sig mikið fram við að líta eins vel
út og hægt var. Henni tókst vel
upp.“
Hægt er að segja að The Dukes
of Hazzard sé meiri strákamynd og
tekur Seann með semingi undir
það. „Ég hugsa að hún höfði eitt-
hvað meira til stráka. En ég held
að bæði strákar og stelpur nenni
að fara á grínmynd til að horfa á
tvo stráka fíflast.“
Tveir heldri menn skipa stór
hlutverk í myndinni, þeir Willie
Nelson og Burt Reynolds. „Það var
frábært að vinna með þeim. Þessir
menn hafa verið goðsögn svo lengi.
Þeir hafa enn gaman af því að vera
í bransanum.“
Grínistar í dramahlutverkum
Seann er þekktastur fyrir
gamanhlutverk. „Ég hef núna mjög
gaman af því að gera grínmyndir
en ég hafði engan áhuga á því þeg-
ar ég flutti fyrst til Los Angeles.
Ég hélt að það væri ekki mín
sterka hlið. En ég er kominn út á
þessa braut og mig langar að gera
fleiri grínmyndir. En einmitt núna
er ég að gera mynd með leikstjóra
Donnie Darko, Richard Kelly. Svo
er ég í dramatísku hlutverki eftir
það og því næst tekur viðgam-
anhlutverk. Ég held að það væri
best ef ég gæti skipt á milli slíkra
hlutverka, þá yrði ég ánægður.
Myndin hans Kelly heitir South-
land Tales og með The Rock, Sö-
ruh Michelle Gellar, Will Ferrel og
Mike Myers. „Leikstjórinn ákvað
að fá fullt af gamanleikurum og
setja þá í mjög svarta mynd,“ segir
hann og verður spennandi að sjá
útkomuna.
Línudansinn er mikill í Holly-
wood. „Þegar þú ert orðinn þekkt-
ur fyrir gamanhlutverk verður
maður að fara varlega í dramað því
aðdáendur geta komist í uppnám
og halda að þú sért að yfirgefa þá,“
útskýrir Seann.
Hann hefur búið í tíu ár í Los
Angeles. „Núna bý ég eiginlega úti
í sveit, næstum klukkutíma frá
borginni. Mér finnst ekkert gaman
að vera í borgum, a.m.k. ekki í
LA,“ segir hann.
Þó er það hentug staðsetning
fyrir kvikmyndagerð. „Þar fara all-
ir fundir fram en flestar myndir
eru reyndar teknar upp utan borg-
arinnar eða landsteinanna. Stund-
um er tekið upp í myndveri en
frekar á stöðum eins og Louisiana,
eins og Dukes, Kanada eða enn
lengra í burtu.“
Seann hefur áhuga á því að gera
aðra mynd með Johnny. „Já, það
væri frábært. Þetta var mjög
skemmtilegt. Ég held að það sem í
raun standi uppúr í myndinni er
hvað við erum góðir saman.“
Jessica Simpson smellpassar í stutt-
buxur Daisy Duke.
ingarun@mbl.is