Morgunblaðið - 28.08.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 31
MENNING
Ítalía
1. eða 8. september
frá kr. 29.990
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð til Rimini 1. og 8. september. Njóttu lífsins
á þessum vinsælasta sumarleyfisstað Ítalíu. Gisting á hinum vinsælu
íbúðahótelum Residence Fellini og Residence Astoria á einstökum kjörum.
Upplifðu einstaka ítalska stemningu á Rimini í byrjun september.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu kr. 29.990 í viku
Stökktu kr. 39.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, í íbúð í 1 eða 2 vikur. Flug,
skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Stökktu tilboð 1. eða 8. september.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri
sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Sértilboð á Rimini
Stökktu kr. 34.990 í viku
Stökktu kr. 44.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíó/íbúð í
1 eða 2 vikur. Flug, skattar, gisting og
íslensk fararstjórn.
Stökktu tilboð 1. eða 8. september.
Residence Fellini
Verð kr. 32.095 í viku
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-
11 ára, í íbúð á Residence Fellini í viku,
1. eða 8. september. Flug, skattar, gisting
og íslensk fararstjórn.
Stökktu tilboð 1. eða 8.september.
Residence Fellini
Verð kr. 43.690 í viku
Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíó á Residence
Fellini í viku, 1. eða 8. september. Flug,
skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
VIRTUR breskur leikstjóri og ný-
ráðinn leikhússtjóri Globe-leik-
hússins í London lýsti verkinu sem
hér er til umfjöllunar sem „ljótu
bíslagi“ utan í snilldarverkinu Beðið
eftir Godot. Og vissulega eru sam-
kenni með verkunum. Tveir trúðs-
legir fáráðar eyða tíma sínum í bið í
báðum verkunum og eru næsta
óvissir um stöðu sína í heiminum og
tilganginn með þessu jarðlífi.
Reyndar kemur á daginn að tilvist
Rósinkranz og Gullinstjarna hefur
svo sannarlega tilgang, þó ekki sé
hann af því taginu sem blæs mönn-
um eldmóð í brjóst. Þeir eru nefni-
lega aukapersónur í annarra manna
lífsdrama. Kannski erum við það öll.
Merking verksins er ekki meira á
hreinu en svo að þegar höfundurinn
var spurður um hvað það væri
skömmu eftir frumflutning þess
svaraði hann: „Um … það bil að gera
mig forríkan, sem reyndist rétt vera.
Sú staðreynd á sér náttúrlega
rætur í að verkið er bráðskemmti-
legt á svolítið menntaskólalegan
hátt, blandar saman vitsmunum og
fíflalátum í góðan kokkteil sem bæði
er hægt að hugsa um og flissa yfir.
Báðum þáttunum er svo haldið til
skila í sýningu Fátæka leikhússins.
Fyrri hluta sýningarinnar er slag-
síðan heldur gríninu í hag, stundum
svo að fíflalætin bera lífið á sviðinu
ofurliði. En í síðari hlutanum ná að-
alleikararnir, þeir Hannes Óli
Ágústsson og Friðgeir Einarsson, í
skottið á sönnum tilfinningum og
mæta örlögum sínum fallega. Leik-
arar eru í heildina ágætir, en auk tví-
menninganna má nefna Snorra
Hergil sem hafði mikinn myndug-
leika sem stórleikarinn, auk þess að
þýða verkið lipurlega og stundum
ánægjulega frjálslega.
Sýningin er víst unnin á skömm-
um tíma, sem skilar henni áreiðan-
lega þeim ferskleika og krafti sem í
henni býr. En svoleiðis vinnubrögð
kosta líka. Hér koma þau niður á
samleik og þróun persónanna, en þó
sérstaklega í því hve flausturslega
er unnið með skemmtilega grunn-
hugmynd sýningarinnar, að nota
mismunandi leikstíl til að draga
fram muninn á „lífi tvímenninganna“
og „hlutverki þeirra í verkinu um
Hamlet Danaprins“. Nákvæmari og
betur útfærð skopstæling á óhemju-
leik hefði bætt heilmiklu við áhrifin,
þó oft væri gaman að fyrirganginum
í aðalsmönnunum á Helsingjaeyri og
tilraunum Rósa og Gulla til að halda
í við þau. Eins saknaði ég að þriðji
stíllinn, stíll farandleikaranna, væri
útfærður þannig að hann varpaði
enn einu ljósinu á hugmyndina.
Annað sem verður dálítil lýti á
sýningunni er hve rýmisnotkunin er
ómarkviss. Umgjörðin býður upp á
skemmtilega hluti í einfaldleik sín-
um, en of margir möguleikar nýttust
ekki og má trúlega kenna þar um
fyrrnefndu tímahraki og mögulega
reynsluleysi leikstjórans.
En hvað um það: þetta er
skemmtileg sýning hjá Fátæka leik-
húsinu, sköpunarfjörið er ósvikið og
svo eiga þau heiður skilinn fyrir að
standa fyrir einni af alltof fáum
tækifærum sem við höfum hér til að
sjá verk þessa galgopalega alvöru-
manns.
Leikarar:
andstæðan við fólk
LEIKLIST
Fátæka leikhúsið
Höfundur: Tom Stoppard. Þýðandi: Snorri
Hergill. Leikstjóri: Karl Ágúst Þorbergs-
son. Leikendur: Hannes Óli Ágústsson,
Friðgeir Einarsson, Snorri Hergill, Hinrik
Þór Svavarsson, Bjartur Guðmundsson,
Ástbjörg Rut Jónsdóttir, Þorbjörg Helga
Dýrfjörð, Atli Sigurjónsson, Jón Stefán
Kristjánsson, Halldór Marteinsson, Hjalti
Kristjánsson og Leifur Þorvaldsson.
Tónlistarþróunarmiðstöðin sunnudaginn
14. ágúst 2005.
Rósinkranz og Gullinstjarna eru dauðir
Þorgeir Tryggvason
SAMTÍMALISTASAFNIÐ í Sydney í Ástr-
alíu sýnir þessa dagana myndbandsinnsetn-
inguna „Tólf“ eftir tyrkneska listamanninn
Kutlug Ataman.
Verkið samanstendur af sex skjám þar
sem sýnd eru viðtöl við tyrkneska borgara
sem rifja upp sögur úr fyrra lífi, ótímabær
dauðsföll og endurholdgun.
Á myndinni virðir gestur á safninu verkið
fyrir sér.
Frásagnir
úr fyrra lífi
Reuters