Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 28.08.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.08.2005, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali SELÁS - HEIÐARÁS Glæsilegt tvílyft 288,5 fm einbýlishús (með aukaíbúð á jarðhæð) og glæsilegu útsýni yfir Borgina. Á jarðhæð er forstofa, stórt forst.herb., 54 fm bílskúr og tveggja herb. íbúð. Á efri hæð er hol, stórar stofur, eldhús, þvh., baðh., hjónah. og 3 barnaherbergi en tvö þeirra hafa verið sameinuð í eitt. V. 50 m. 5228 HRÍSMÓAR - MEÐ 45 FM ÞAKSVÖLUM 4ra-5 herb. glæsileg um 113 fm íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í bílageymslu og með 45 fm þaksvölum, en þaðan er glæsilegt útsýni. Íbúðin skiptist í stóra stofu, eldhús, baðh., 3 herb. þar af er eitt í risi og sér þvottahús í íbúð. Sérgeymsla fylgir í kjallara og sameiginleg hjólageymsla. Húsið er einangrað að utan og klætt m. varanlegri klæðningu. Bílskýlið er snyrtilegt, upphitað með þvottaaðstöðu. V. 25,6 m. 4794 OPIÐ HÚS - ÁLFTAMÝRI 6 - LAUS STRAX Vorum að fá í sölu mjög fallega og mikið standsetta 5 herb. um 100 fm íbúð á 2. hæð í fjölbýli. 8 íbúðir eru í stigagangi. Íbúðin skiptist m.a. í tvær rúmgóðar og bjartar stofur og þrjú herbergi. Tvennar svalir. Þvottahús í íbúð. 18 fm bílskúr með hurðaopnara. Opið hús milli kl. 13.00 og 15.00 þann 28.08. 2005 (sunnudag). Rannver og Sólveig á bjöllu. V. 21,0 m. 5068 OPIÐ HÚS - BREIÐAVÍK 35 - 2. H. H. Glæsileg 3ja herbergja 88 fm íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli með sérinngangi af svölum. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, hjónaherbergi, barnaherbergi, eldhús, baðherbergi, stofu og sérþvottahús/geymslu í íbúð. Stórar suðursvalir og fallegt útsýni. Opið hús milli 13.00 og 15.00 þann 28.08. 2005 (sunnudag). Sigurður og Ragnheiður á bjöllu. V. 20,4 m. 5135 YSTASEL - EFRI HÆÐ Í TVÍBÝLI - ALLT SÉR Falleg og vel skipulögð sex herbergja efri 156,1 fm sérhæð í tvíbýlishúsi á eftirsóttum stað í Seljahverfinu, ásamt tvöföldum 52 fm bílskúr. Birt stærð heildareignarinnar er 208,1 fm. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, tvær stofur, borðstofu, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Sérþvottahús er innaf eldhúsi. 60 fm svalir eru út af stofu og 30 fm afgirt timburverönd til suðurs. V. 34 m. 4407 Stórglæsilegt 280 fm einbýlishús auk 33 fm stakstæðs bílskúrs í hjarta miðborgar- innar, teiknað af Gunnlaugi Halldórssyni. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum á vandaðan og smekklegan hátt og fengu endurbæturnar sérstaka viðurkenningu borgarstjórans í Reykjavík. Eignin skiptist m.a. í stórt hol með arni, samliggjandi, rúmgóðar stofur, eldhús með innréttingum úr peruviði, sjónvarpshol, þrjú herbergi auk fataherbergis, stórt vinnu- og fjölskylduherbergi með arni og tvö baðherbergi. Mjög góðar geymslur. Þrennar svalir. Ræktuð lóð, hiti í innkeyrslu og stéttum að hluta. EIGN Í SÉRFLOKKI. Verð 75,0 millj. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali. Smáragata Glæsilegt einbýlishús í Þingholtunum Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG Einstaklega falleg 108 fm íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi við Klapparstíg. Íbúðin skiptist m.a. í mjög stóra stofu, ca 60 fm, með tvennum svöl- um til suðurs og vesturs, tvö herbergi, eldhús, bað- herbergi og forstofu. Sam- eiginlegt þvottahús á hæð- inni. Sérgeymsla í kjallara. Íbúðinni fylgir stæði í bíla- geymslu. Snyrtileg sam- eign, m.a. verðlaunalóð. Húsvörður. V. 28,8 m. 6628 KLAPPARSTÍGUR - 101 REYKJAVÍK AKRALIND - KÓPAVOGI Nýlegt 156 fm atvinnuhúsnæði auk ca 25 fm millilofts. Húsnæði skiptist m.a. í vinnslusal, móttöku, kaffistofu, snyrtingu, geymslu ofl. Tilvalin eign fyrir léttan iðnað eða heildsölu ofl. Verð 17 millj. Laust strax. 110225 DALSHRAUN - HAFNARFIRÐI Okkur hefur verið falið að selja ca. 120 fm. neðri hæð í iðnaðarhúsi við Dalshraun í Hafnarfirði, mjög snyrtilegt húsnæði en þar er rekið í dag lít- ið trésmíðaverkstæði með almennum tækjakosti. Tilvalið sem smíðaað- staða fyrir verktakafyrirtæki. Söluverð húsnæðis án tækja kr. 8.850.000,- með tækjum kr. 10.550.000,- Upplýsingar veitir Helgi Jón hjá Hraun- hamri fasteignasölu í síma 520 7500. FLATAHRAUN - KIA HÚSIÐ - HF. Nýkomið í sölu glæsilegt atvinnu-, verslunar- og skrifstofuhúsnæði á besta stað í Hafnarfirði. Eignin er samtals 877,9 fm og stendur á sér- lóð. Húsið hýsir m.a. KIA bifreið- aumboðið o.fl. FÉLAGSFUNDUR Sambands ís- lenskra auglýsingastofa lýsir mikl- um efasemdum um þá hugmynd að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði. Í tilkynningu frá SÍA er bent á að RÚV er öflugur fjölmiðill sem höfði til stórs hóps neytenda með dag- skrá sinni í útvarpi og sjónvarpi. „Á meðan svo er málum komið, er það andstætt hagsmunum neytenda og auglýsenda að ekki sé möguleiki á að auglýsa í Ríkisútvarpinu. Í nú- tímaupplýsingaþjóðfélagi ætti það að vera réttur og skylda hvers fjöl- miðils að eiga kost á að birta aug- lýsingar, óháð því hver eignasam- setning miðilsins er. Slíkt er sjálfsögð þjónusta við neytendur, að þeir eigi kost á sem breiðustu upplýsingamagni í þeim miðli sem þeir nota.“ Félagsfundur SÍA tekur ekki af- stöðu til þess hvort rétt eða rangt sé að hið opinbera standi í rekstri fjölmiðla sem reknir eru að hluta til með auglýsingafé. Minni samkeppni getur leitt til hækkunar á auglýsingaverði Vakin er athygli á þeim aðstæð- um sem koma upp ef RÚV hverfur af auglýsingamarkaði: „Aðgangur auglýsenda að stórum hópi lands- manna takmarkast mjög og að- gangur almennings að nauðsynleg- um upplýsingum verður þar af leiðandi mun takmarkaðri. Þá er ekki ólíklegt að minni samkeppni á auglýsingamarkaði geti leitt til hækkunar á auglýsingaverði sem aftur geti leitt til hækkunar vöru- verðs. Hlutverk auglýsinga er fyrst og fremst að vera upplýsingaveita; að veita upplýsingum til neytenda, hvort sem um er að ræða upplýs- ingar um verð og gæði vöru og þjónustu eða almennar upplýsingar sem snerta beint bættan hag al- mennings og almannaheill. Þær eru því mikilvægur hluti nútímasam- félags. Brotthvarf RÚV af auglýsinga- markaði myndi því almennt séð skerða þessa sjálfsögðu þjónustu, bæði við almenning og auglýsend- ur. Því er það skoðun félagsfundar SÍA að hagsmunum auglýsenda og almennings sé betur fyrir komið með óheftu leyfi miðla til auglýs- inga sem aftur myndi þýða að RÚV yrði áfram á auglýsingamarkaði.“ Efasemdir um að RÚV hverfi af auglýsinga- markaði UMHVERFISRÁÐ Akureyr- ar hefur samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að hún sam- þykki breytta tillögu að deili- skipulagi flugvallarsvæðis á Akureyri. Breytingar á tillögunni eru einkum þær, að nú er gert ráð fyrir að flugsafn flytjist af nú- verandi stað og verði í nýrri byggingu sunnan núverandi flugskýla næst flugvelli. Nú- verandi bygging flugsafns verði gerð að flugskýli. Fjórar athugasemdir bárust við upphaflegu tillöguna og sneru m.a. að færslu flug- safnsins, vegartengingu flug- vallarsvæðisins, svæði fyrir einkaflug og öryggisgirðingu. Umhverfisráð bendir á að með færslu flugsafnsins hafi verið fundin framtíðarlausn fyrir safnið sem bæði falli að sjón- armiðum sem sett eru fram í athugasemdum og sé jafn- framt í góði sátt við forráða- menn safnsins. Færsla safns- ins leiði einnig til þess að rýmri aðstaða verði fyrir einkaflug. Flugsafnið á Akureyri verður flutt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.