Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 28.08.2005, Side 31

Morgunblaðið - 28.08.2005, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 31 MENNING Ítalía 1. eða 8. september frá kr. 29.990 Heimsferðir bjóða frábært sértilboð til Rimini 1. og 8. september. Njóttu lífsins á þessum vinsælasta sumarleyfisstað Ítalíu. Gisting á hinum vinsælu íbúðahótelum Residence Fellini og Residence Astoria á einstökum kjörum. Upplifðu einstaka ítalska stemningu á Rimini í byrjun september. Munið Mastercard ferðaávísunina Stökktu kr. 29.990 í viku Stökktu kr. 39.990 í 2 vikur Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í 1 eða 2 vikur. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Stökktu tilboð 1. eða 8. september. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri sími 461 1099 • www.heimsferdir.is Sértilboð á Rimini Stökktu kr. 34.990 í viku Stökktu kr. 44.990 í 2 vikur Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíó/íbúð í 1 eða 2 vikur. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Stökktu tilboð 1. eða 8. september. Residence Fellini Verð kr. 32.095 í viku Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2- 11 ára, í íbúð á Residence Fellini í viku, 1. eða 8. september. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Stökktu tilboð 1. eða 8.september. Residence Fellini Verð kr. 43.690 í viku Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíó á Residence Fellini í viku, 1. eða 8. september. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. VIRTUR breskur leikstjóri og ný- ráðinn leikhússtjóri Globe-leik- hússins í London lýsti verkinu sem hér er til umfjöllunar sem „ljótu bíslagi“ utan í snilldarverkinu Beðið eftir Godot. Og vissulega eru sam- kenni með verkunum. Tveir trúðs- legir fáráðar eyða tíma sínum í bið í báðum verkunum og eru næsta óvissir um stöðu sína í heiminum og tilganginn með þessu jarðlífi. Reyndar kemur á daginn að tilvist Rósinkranz og Gullinstjarna hefur svo sannarlega tilgang, þó ekki sé hann af því taginu sem blæs mönn- um eldmóð í brjóst. Þeir eru nefni- lega aukapersónur í annarra manna lífsdrama. Kannski erum við það öll. Merking verksins er ekki meira á hreinu en svo að þegar höfundurinn var spurður um hvað það væri skömmu eftir frumflutning þess svaraði hann: „Um … það bil að gera mig forríkan, sem reyndist rétt vera. Sú staðreynd á sér náttúrlega rætur í að verkið er bráðskemmti- legt á svolítið menntaskólalegan hátt, blandar saman vitsmunum og fíflalátum í góðan kokkteil sem bæði er hægt að hugsa um og flissa yfir. Báðum þáttunum er svo haldið til skila í sýningu Fátæka leikhússins. Fyrri hluta sýningarinnar er slag- síðan heldur gríninu í hag, stundum svo að fíflalætin bera lífið á sviðinu ofurliði. En í síðari hlutanum ná að- alleikararnir, þeir Hannes Óli Ágústsson og Friðgeir Einarsson, í skottið á sönnum tilfinningum og mæta örlögum sínum fallega. Leik- arar eru í heildina ágætir, en auk tví- menninganna má nefna Snorra Hergil sem hafði mikinn myndug- leika sem stórleikarinn, auk þess að þýða verkið lipurlega og stundum ánægjulega frjálslega. Sýningin er víst unnin á skömm- um tíma, sem skilar henni áreiðan- lega þeim ferskleika og krafti sem í henni býr. En svoleiðis vinnubrögð kosta líka. Hér koma þau niður á samleik og þróun persónanna, en þó sérstaklega í því hve flausturslega er unnið með skemmtilega grunn- hugmynd sýningarinnar, að nota mismunandi leikstíl til að draga fram muninn á „lífi tvímenninganna“ og „hlutverki þeirra í verkinu um Hamlet Danaprins“. Nákvæmari og betur útfærð skopstæling á óhemju- leik hefði bætt heilmiklu við áhrifin, þó oft væri gaman að fyrirganginum í aðalsmönnunum á Helsingjaeyri og tilraunum Rósa og Gulla til að halda í við þau. Eins saknaði ég að þriðji stíllinn, stíll farandleikaranna, væri útfærður þannig að hann varpaði enn einu ljósinu á hugmyndina. Annað sem verður dálítil lýti á sýningunni er hve rýmisnotkunin er ómarkviss. Umgjörðin býður upp á skemmtilega hluti í einfaldleik sín- um, en of margir möguleikar nýttust ekki og má trúlega kenna þar um fyrrnefndu tímahraki og mögulega reynsluleysi leikstjórans. En hvað um það: þetta er skemmtileg sýning hjá Fátæka leik- húsinu, sköpunarfjörið er ósvikið og svo eiga þau heiður skilinn fyrir að standa fyrir einni af alltof fáum tækifærum sem við höfum hér til að sjá verk þessa galgopalega alvöru- manns. Leikarar: andstæðan við fólk LEIKLIST Fátæka leikhúsið Höfundur: Tom Stoppard. Þýðandi: Snorri Hergill. Leikstjóri: Karl Ágúst Þorbergs- son. Leikendur: Hannes Óli Ágústsson, Friðgeir Einarsson, Snorri Hergill, Hinrik Þór Svavarsson, Bjartur Guðmundsson, Ástbjörg Rut Jónsdóttir, Þorbjörg Helga Dýrfjörð, Atli Sigurjónsson, Jón Stefán Kristjánsson, Halldór Marteinsson, Hjalti Kristjánsson og Leifur Þorvaldsson. Tónlistarþróunarmiðstöðin sunnudaginn 14. ágúst 2005. Rósinkranz og Gullinstjarna eru dauðir Þorgeir Tryggvason SAMTÍMALISTASAFNIÐ í Sydney í Ástr- alíu sýnir þessa dagana myndbandsinnsetn- inguna „Tólf“ eftir tyrkneska listamanninn Kutlug Ataman. Verkið samanstendur af sex skjám þar sem sýnd eru viðtöl við tyrkneska borgara sem rifja upp sögur úr fyrra lífi, ótímabær dauðsföll og endurholdgun. Á myndinni virðir gestur á safninu verkið fyrir sér. Frásagnir úr fyrra lífi Reuters

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.