Morgunblaðið - 28.08.2005, Qupperneq 38
virkni með þeim. Þannig er hægt
að birta krabbameinsvef í höf-
uðkúpu með rauðum lit og annan
beinvef hvítan. Einnig má sýna
mismunandi beinþéttni með mis-
munandi litum.
Í tannlækningum er þessi tækni
einnig notuð til að búa til bor-
skapalón fyrir borun í kjálka þar
sem skrúfa á í gervitennur.
Skapalónið fellur þá nákvæmlega
að kjálkanum og vefnum utan um
hann og hægt er að stýra borun
holunnar mjög nákvæmlega. Lík-
anið er einnig notað við smíði
gervitannarinnar.
Í bæklunarlækningum má nota
þessa tækni til að hanna ígræð-
anlega málmhluti og láta þá passa
nákvæmlega í viðkomandi sjúk-
ling. Í tölvunni er tekin „afsteypa“
af plássinu sem málmhluturinn á
Inngangur – yfirlit
Leiðir til að skoða mannslíkam-
ann að innan eru stöðugt að verða
fjölbreyttari og full-
komnari. Aðferðir til
að gera tölvusneið-
myndir urðu til 1973
þegar Englending-
urinn Houndsfield
kom fram með aðferð
sína sem hann hlaut
Nóbelsverðlaunin fyr-
ir og síðan þá hafa
menn fullkomnað þá
tækni þ.a. nú má
skoða þversniðs-
myndir af líkamanum
í mikilli upplausn.
Hver myndpunktur er
aðeins brot úr milli-
metra að stærð og
þannig má skoða jafn-
vel fínar taugar. Með
því að raða hverri
þversniðsmyndinni of-
an á aðra má fá fram
þrívíddarmynd af lík-
amanum og með því
að einangra einstakar
vefjagerðir úr mynd-
inni má sýna sérstök
líffæri eins og bein,
vöðva, æðar, taugar
o.s.frv.
Byltingin sem nú gengur yfir,
og fjallað er stuttlega um í þessari
grein, felst í því að nota þessi
gögn til að gera þrívíddarlíkön af
hinum ýmsu vefjum og líffærum.
Líkönin eru þá ýmist úr gifsi,
plasti eða öðrum efnum og eru
notuð af læknum til að skipuleggja
aðgerðir, gera rúmfærðilegar mæl-
ingar, fylgjast með meðferð
o.s.frv. Stærðfræðileg líkön eru
einnig gerð úr þessum gögnum og
má nota þau til að reikna krafta,
seigju, styrk, rafleiðni og aðra eig-
inleika vefjanna.
Læknisfræðileg not
Líkönin eru unnin í tölvu og
birtast til að byrja með sem mynd-
ir á skjá. Sé búið að einangra
ákveðna vefi, t.d. beinvef höfuðs,
má skoða höfuðkúp-
una sérstaklega, snúa
og velta henni og
skoða hana frá ýms-
um hliðum. Einnig má
taka hluta úr henni
og skoða það sem að
baki er. Bæta má síð-
an við myndina öðrum
vef, t.d. taugavef og
birta hann í rauðum
lit. Þannig verður
auðvelt að sjá hvar
taugarnar liggja mið-
að við beinin og t.d.
hvar þær fara í gegn-
um beinvefinn. Með
nýju tækninni má láta
sérstakar vélar smíða
líkanið í plasti, gifsi
eða öðrum efnum. Að-
ferðin er kennd við
hraða frumgerðasmíð
eða einnig er talað
um að prenta hlutinn
út í þrívídd þar sem
líkangerðarvélarnar
vinna líkt og lit-
sprautuprentarar.
Líkönin eru einnig í
lit þ.a. bein eru hvít
og taugar t.d. rauðar. Við skipu-
lagningu skurðaðgerðar getur nú
læknirinn tekið nákvæmlega tillit
til hvar taugin liggur. Hægt er að
bera tæki og tól sem nota á í að-
gerðinni við líkan beinvefsins.
Skrúfur, spelkur og önnur tól er
hægt að hafa í réttri stærð og lög-
un áður en byrjað er á aðgerðinni.
Þetta sparar tíma í aðgerðinni
sjálfri og gerir hana öruggari.
Önnur notkun á þessum líkönum
er að birta vefjabreytingar eða
Læknisfræðileg líkana-
gerð og þrívíddarprentun
Þórður Helgason og Geir
Guðmundsson fjalla um
læknisfræðilega líkanagerð
Þórður Helgason
Geir Guðmundsson
CT-mynd.
Líkan.
38 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
HOFGARÐAR - EINBÝLI Á EINNI HÆÐ
Mjög skemmtilegt og vel staðsett u.þ.b. 220 fm einbýli á einni hæð ásamt tvöföldum bílskúr. Húsið
er steinsteypt og múrað en síðar klætt með Redwood viðarklæðningu, sem gefur húsinu mjög hlý-
legt og sérstakt yfirbragð. Umhverfis húsið er mjög fallegur og skjólsæll garður með fjölbreyttum fal-
legum gróðri. Aðkoma að húsinu er einstaklega falleg með stóru hellulögðu bílaplani umluktu gróðri.
Til suðurs og vesturs eru góðar timburverandir ásamt hellulagðri verönd á bak við húsið. Nýr heitur
pottur af fullkomnustu gerð. Í húsinu er mikil lofthæð sem eykur mjög rýmistilfinningu hússins. Rúm-
góðar stofur, garðstofa, 4 svefnherb., þvottahús, baðherb. og gestasnyrting.
Verð 59 millj.
Upplýsingar
gefur Brynjar
Harðarson
í síma 840 4040
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Húsakaupa.
Guðrún Árnadóttir, lögg. fasteignasali.
RAUÐALÆKUR 52 - JARÐHÆÐ
OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁI KL. 17-19
Íbúðin snýr að mestu leyti út að frið-
sælum og fallegum sameiginlegum
garði. Teiknaður hefur verið útgang-
ur úr annarri stofunni út á verönd í
garðinum. Stórar stofur, stórt eld-
hús með stórri og rúmgóðri upp-
runalegri eldhúsinnréttingu. Stórir
og góðir innbyggðir skápar eru í
báðum svefnherbergjum en þau eru
bæði stór og björt. Lagt fyrir þvotta-
vél á baði sem er með baðkari.
Geymsla innan íbúðar.
Verð 19,5 millj. Laus fljótlega.
Sími 533 1060
hrl.,
HÁRSNYRTISTOFA Í FULLUM REKSTRI
Í MOSFELLSBÆ FYRIR 800 ÞÚS. KR.
Hér er einstakt tækifæri til að hefja rekstur eigin hársnyrti-
stofu. Núverandi eigandi er reiðubúinn til að kynna nýjan
kaupanda fyrir viðskiptavinum sínum. Stofan er á vinsælum
stað með góðan og vaxandi hóp viðskiptavina. Afar notaleg
stofa með innréttingum ásamt öllum tækjum og tólum fyrir
langt innan við kostnaðarverð. Lager er seldur á kostnaðar-
verði, ca 150-200 þús. kr. Upplýsingar gefur Valdimar Jó-
hannesson í s. 897 2514. Verð 800.000 kr.
Sími 533 1060
hrl.,
Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson í síma 588 4477 eða 822 8242
www.valholl.is -
Opið virka daga
frá kl. 9-17.30
Eigum eftirfarandi til ráðstöfunar í þessu glæsilega húsi.
● 6. hæðin samtals 400 fm.
Glæsilegar skrifstofur, mjög góð staðsetning. Gott lyftuhús, glæsilegt
útsýni yfir höfuðborgina.
Húsnæðið uppfyllir allar kröfur til nútíma skrifstofureksturs
Glæsilegt útsýni.
Eignin er í eigu Landsafls sem er öflugt sérhæft fasteignafélag.
www.landsafl.is
Höfðabakki - Til leigu
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Vel staðsett 230 fm einbýlishús á einni hæð á mjög skjólgóðum stað neðst í
Fossvogsdalnum. Húsið skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, þvottahús, geymslu,
hol, stofu, borðstofu, eldhús, sjónvarpshol, 4 herbergi, baðherbergi, og bílskúr.
Húsið stendur á stórri lóð og má stækka húsið tölvert og liggja fyrir drög af
stækkun. 5235
ÁRLAND - NEÐST Í FOSSVOGI