Morgunblaðið - 28.08.2005, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 43
MINNINGAR
an af að spila á spil, lagðir kapla og
vannst okkur systkinin oft í rommí
og varst snillingur í hraðaspilum
eins og t.d. kleppara og kvikk, föður
okkar til mikillar gremju vannst þú
til að mynda alltaf í kvikk.
Í augum okkar var lífsskeið þitt
sveipað ævintýraljóma. Að eðlisfari
varst þú létt í lund en jafnframt
ákveðin og hispurslaus. Allt fram á
síðasta dag var ekki annað hægt en
dást að þínum líkamlega styrk. Án
þín verður lífið tómlegra og und-
arlegt til þess að hugsa að eiga aldr-
ei eftir að sjá þig aftur, heimsókn-
irnar til þín um helgar hafa verið
fastur liður í tilveru okkar í mörg ár.
Við búum að því alla okkar ævi að
eiga ótalmargar minningar um þig
sem engin leið er að setja allar niður
á blað. Okkur langar sérstaklega að
þakka öllu því indæla fólki sem
hugsaði um þig af mikilli alúð á Elli-
heimilinu Grund.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku amma, við kveðjum þig nú
með söknuði og sorg. Minning þín
mun ávallt lifa í hjörtum okkar.
Ingunn, Markús og Sigríður.
Löngu og ströngu veikindastríði
er lokið. Sissa var tveimur árum
eldri en ég og hafði því yfirhöndina
þegar við vorum börn, hún var táp-
mikil og fann upp á ýmsu sem stúlk-
unum á heimilinu þótti fyndið og
skemmtilegt enda var hún uppá-
haldið þeirra, það má segja að hún
hafi ráðið ferðinni. Sú saga var sögð
af henni og Markúsi bróður, sem var
tveimur árum eldri en hún, að þau
voru úti að leika sér þar sem sást til
Sissu reka hann á undan sér, ýta á
hann og segja: „Svona, áfram.“
Þetta margendurtók hún þar til
Markús stoppaði og sagði ,,Veistu
ekki að ég er bróðir þinn.“ Þetta
þótti fyndið. Hún var sterkust allra
og þegar strákarnir voru að hrekkja
okkur var kallað á Sissu og strák-
arnir urðu bljúgir sem lömb. Þegar
við uxum úr grasi áttum við mjög
góðar stundir saman þar sem gleðin
ríkti og hlátrasköllin glumdu um
húsið, Sissa var orðheppin og
skemmtileg, hún spilaði vel á píanó,
hreifst mjög af franskri tungu og
lærði matargerð í Frakklandi. Hún
gerðist matráðskona á Bessastöð-
um, hjá frú Dóru Þórhallsdóttur og
Ásgeiri Ásgeirssyni forseta, vann
árum saman á talsambandi við út-
lönd. Hún átti við vanheilsu að
stríða árum saman.
Gæfa hennar í lífinu var sonur
hennar Sigurjón og fjölskylda hans.
Nú er öllu þessu lokið, sárast
finnst mér til þess að hugsa hvað
hún mátti líða og að fá ekki að njóta
efri áranna eins og þau geta verið
gefandi og veitt manni mikla
ánægju. Far þú í friði, elsku Sissa
mín.
Þín systir
Jóhanna (Adda).
Kæra systir. Það væri hægt að
skrifa langa bók um þig. Mér fannst
allt svo fyndið sem þú sagðir og
gerðir. Ég sá ykkur fyrst í Banka-
stræti 2 þegar ég var sextán ára
gömul. Það var fullt af fólki að skoða
gripinn og ég var að deyja úr feimni.
En þegar ég fór að venjast ykkur og
sjá á hverjum degi voruð þið öll svo
elskuleg og ég þakka það.
Þú varst alla tíð svo kát og glöð og
meira að segja þegar þú sagðir mér
sorgarsögur af sjálfri þér var alltaf
hlegið í endann. Þú spilaðir vel á
píanó og varst æðislegur kokkur. Þú
lærðir að kokka í París og varst svo
bæði á forsetasetrinu hjá Dóru og
Ásgeiri og hjá Flugfélagi Íslands.
Ég gleymi því aldrei að þú áttir
elskulegan son sem þú gerðir allt
fyrir. Og ég þakka þér samfylgdina,
allt þetta líf sem við áttum saman.
Þín systir og vina
Hlíf.
Hún Sissa frænka mín er látin í
hárri elli. Það eru mörg brot minn-
inga sem brjótast fram í hugann á
þessari kveðjustund, fyrstu minn-
ingar mínar um Sissu tengjast nýj-
um straumum í matargerð, en hún
hafði menntað sig í Frakklandi í
þeirri grein og er mér sérstaklega
minnisstætt þegar hún var að kenna
móður minni og flerrum að búa til
majónes, útskýringarnar voru á
móðurmálinu en allar handahreyf-
ingar voru upp á franskan máta.
Hún öðlaðist nokkurn frama í sínu
fagi, stjórnaði meðal annars allri
matargerð á Bessastöðum um tíma.
Hún var eins og allt fólkið í
Bankastræti 2, mikill húmoristi og
tók sjálfa sig ekkert sérstaklega al-
varlega, hún átti auðvelt með að
hlæja að eigin mistökum. Ein sagan
sem hún sagði oft var eitthvað á
þessa leið. Kvöld eitt fór hún á dans-
leik ásamt glæsilegum herramanni, í
miðjum dansinum segir herrann að
hann haldi að kjóllinn sem hún er í
sé rifinn frá hálsmáli og niður eftir
baki, það skipti engum togum Sissa
snýr sér eldsnöggt við og þrýstir sér
upp að herranum og segir ,,nú
göngum við svona fram í fatahengi“
vesalings maðurinn átti alls ekki von
á þessu, en lét sig hafa það að mars-
era með dömuna þétt að sér niður
stigann og fram eftir löngum gangi
að fatahenginu. Það var einstök
skemmtun að heyra og sjá Sissu
segja þessa sögu með tilheyrandi
látbragði.
Ég þakka Sissu fyrir allar góðu
stundirnar. Ef ég léti tónlistina tala,
væri lagið ,,We’ll meet again“ við-
eigandi. Við Sigurdís vottum Nonna,
Stellu, Ingunni, Markúsi, Siggu og
fjölskyldum þeirra samúð okkar.
Blessuð sé minning hennar.
Magnús Harðarson.
Elsku tengdapabbi, í þau hartnær
tuttugu ár sem við höfum þekkst eru
þessi upphafsorð mín lýsing á þér og
það er besta veganesti sem nokkur
getur fengið í lífinu. Ég hef og mun
eftir fremsta megni reyna að temja
mér það síðan ég kynntist þér. Þú
kenndir mér hið jákvæða, það besta
sem nokkur getur gert.
Börnunum okkar Guðjóns varst þú
góð fyrirmynd og góður afi sem alltaf
varst svo glaður og allt vildir fyrir þau
gera.
Samband ykkar Guðjóns var þann-
ig að það leið ekki dagur án þess að
þið töluðuð saman sem sýndi hversu
samrýndir og góðir vinir þið voruð.
Við áttum margar góðar stundir
saman sem svo gott er að hugsa til
þegar þú með svo stuttum fyrirvara
veikist og hverfur á braut.
Þrautseigja þín og styrkur varð til
þess að sjúkdómur þinn var það langt
genginn að ekkert varð að gert.
Elsku tengdapabbi, takk fyrir allt.
Guð veri með þér. Minning þín lifir og
brosið þitt lifir.
Guð blessi þig.
Þín tengdadóttir
Sigríður (Sigga).
Elsku afi, ég trúi ekki að þú sért dá-
inn. Þú kenndir mér margt eins og
vera alltaf jákvæður og glaður.
Takk fyrir allar góðu stundirnar
okkar saman, alla bíltúrana á bílasöl-
urnar. Þú gafst mér hlut sem mér
þykir mjög mikið vænt um, það var
hljómborðið þitt sem ég sit við dag-
lega og sem lög til þín. Elsku afi, takk
fyrir hvað þú varst góður og jákvæð-
ur við mig, vildir alltaf gera allt fyrir
mig. Einn atburður sem ég gleymi
aldrei er þegar ég, þú og Sigurður
fórum á bílasýninguna í Laugardals-
höll.
Takk fyrir allt sem þú hefur gert
fyrir mig.
Þinn
Hjörleifur.
„Einstakur“ er það orð sem kemur
upp í hugann þegar rifjuð eru upp
samskiptin við Sigurð Sívertsen í
gegnum tíðina. Siddi, eins og við
vinnufélagarnir kölluðum hann, hefur
nú kvatt þennan heim eftir snarpa
baráttu við illvígan sjúkdóm.
Við erum mörg sem höfum verið
Sidda samferða á vinnustað meira og
minna hátt á þriðja áratug. Í launa-
deildinni hjá Hagvirki hlaut hann
starfsheitið „sendiherra“ sem okkur
fannst hæfa honum vel því hann var
reddari og vinur okkar allra. Öllu
sinnti hann af jafnmikilli samvisku-
semi og ljúfmennsku, hvort sem það
var að skjótast í bankann eða fara
með fullan bíl af kosti og varahlutum
á virkjanasvæðin þar sem fyrirtækið
var með starfsemi um árabil. Þær
voru ófáar ferðirnar sem farnar voru
á milli Hafnarfjarðar og Þjórsársvæð-
isins hvort heldur var á nóttu eða
degi. „Biðjum Sidda að redda þessu“
var viðkvæðið, hvort sem hengja
þurfti upp mynd eða laga eitthvað
sem úrskeiðis fór á stórum vinnustað.
Ekki munaði hann heldur um að taka
heilu skrifstofurnar og mála þær ef
svo bar undir, svona með öðru.
Þó svo að formlega tilheyrði hann
meira verkstæðinu heldur en skrif-
stofunni var það nú þannig í gegnum
tíðina að við vildum eiga hann, bæði í
vinnunni og utan, því ekki mátti halda
skrifstofupartý án þess að Sidda væri
boðið að vera með. En það voru ekki
bara við á skrifstofunni sem nutum
þess að hafa hann til að þjónusta okk-
ur, því að enn meira var hann í návígi
við strákana á verkstæðinu, bæði á
Skútahrauninu og síðar á Melabraut-
inni. Það var jafnsjálfsagt og að birti
af degi, að Siddi væri búinn að hella
upp á kaffi þegar aðrir mættu til
vinnu, og mikið hefur hans verið
saknað daglega síðan hann þurfti frá
að hverfa.
Um helgar og á frídögum var hann
líka mættur en þá meira til að sinna
áhugamáli sínu, þ.e. að gera Bensann
kláran. En Siddi átti forláta Bens-
sendibíl sem hann var búinn að
breyta í húsbíl, en alltaf mátti betur
gera og mörg handtök voru eftir til að
gamli úrsmiðurinn yrði sáttur við sitt
verk og ekki var hann ánægður með
að geta ekki lokið verkinu áður en
kallið kom.
Siddi var tónelskur mjög og hafði
yndi af að hlusta á klassíska tónlist og
aðra góða tónlist. Ekki þótti honum
alltaf mikið til þess koma hvers konar
„tónlist“ strákarnir á verkstæðinu
kusu að hlusta á, en það var ekkert
rusl á diskunum sem hlustað var á í
bílnum þegar hann var einn á ferð.
Eitt var áberandi í fari Sidda en það
var hversu mikill húmoristi hann var.
Hann gat alltaf komið auga á spaugi-
legu hliðarnar á hlutunum og lífið
hafði kennt honum að það er ekki
þess virði að eyða tíma og orku í leið-
indi og ergelsi. Það er einmitt það
sem margir mættu hafa í huga þegar
við minnumst þessa góða vinar og fé-
laga.
Ekki fór á milli mála að börnin hans
Sigurðar, tengdabörn og barnabörn
voru honum afar kær. Þeim sendum
við okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur um leið og við kveðjum góðan
dreng.
Vinnufélagar hjá Hagvögnum,
Hópbílum og Hagtaki.
Elsku afi.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Takk fyrir allt, afi minn.
Ég sakna þín.
Kristbjörg Þöll.
HINSTA KVEÐJA
ATVINNA mbl.is
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Sími 588 4477
ÓSKUM EFTIR EIGNUM
Höfum verið beðnir um að útvega eftirtaldar eignir fyrir
trausta kaupendur.
Vantar einbýlishús í Garðabæ, Kópavogi eða á Álftanesi. Verðhugmynd 35-48 millj.
Óskum eftir, fyrir fólk að norðan, góðri 3ja herb. íbúð í Grafarvogi, Breiðholti, Selási
eða Háaleitishverfi. Verðhugmynd 15-18 millj.
Vantar íbúð fyrir eldri konu utan af landi í góðu lyftuhúsi þar sem einhver þjónusta
er. Engin verðhugmynd.
Vantar 2ja og 3ja herb. í Fellum eða Hólahverfi. Verðhugmynd 11-15 millj.
Vantar 4ra herb. íbúð í 101 eða 107. Verðhugmynd allt að 30 millj. Má þarfnast lag-
færingar.
Staðgreiðsla fyrir 2ja herbergja íbúð í miðborginni eða vesturbænum.
Allar upplýsingar veita sölumenn okkar, Bárður í síma 896 5221, Þórarinn í síma
899 1882 eða Ingólfur í síma 896 5222, eða sendið okkur tölvup. á ww.valholl.is eða
á bardur@valholl.is, ingolfur@valholl.is, thora@valholl.is eða á
thorarinn@valholl.is.
Traust og örugg þjónusta í áratugi.
Láttu traust fyrirtæki sem hefur verið ein af stærstu fasteignasölum landsins í áratug.
Ingólfur Gissurarson, lögg. fasteignasali,
Þórarinn Friðgeirsson, lögg. fasteignasali og
Kristinn Kolbeinsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali.
Bergstaðastræti 50
Frábær staðsetning
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Í einkasölu 3ja herb. íbúð á 1. hæð (ofan götuhæðar) í vönduðu steinhúsi. Þingholt-
in eru skjólsæll og góður staður og þessi hluti Bergstaðastrætisins er í brekku sem
snýr á móti sólu í suðvestur. Mikið er búið að endurnýja húsið á undanförnum árum,
m.a. járn á þaki. Húsið var viðgert og málað 1997, gler og gluggar voru endurnýjað-
ir einnig 1997. Parket á gólfum frá 1996. Einnig er rafmagn endurídregið.Þetta er
vel skipulögð íbúð á frábærum stað í göngufæri við miðborgina en þó staðsett fjarri
glaumi miðborgarlífsins. Verð 18,3 millj.
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Sverrir
Einarsson
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason