Morgunblaðið - 28.08.2005, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 45
MINNINGAR
Elsku stóra systir
er dáin. Þú sem varst
í fullu fjöri, ham-
ingjusamari en oft áð-
ur. Fyrsta sem ég
man er þegar við bjuggum á Rauð-
arárstígnum. Mamma sagði mér að
þú hefðir verið lítil hnáta með dökkt
hár og svo miklar krullur að ná-
grannakonurnar hefðu kallað þig
Shirley Thempel, sem var amerísk
barnastjarna. Svo kom að því að þú
áttir að læra að segja nafnið þitt.
Þá kom í ljós að þú hafðir þínar
meiningar og kallaðir þig sjálf
Diggý en aðeins innan fjölskyld-
unnar, annars Siggu.
Mikið leit ég upp til þín þegar þú
og Didda vinkona þín fóruð til Eng-
lands, hafið líklega verið 18-19 ára.
Það átti sko að forframast í útlönd-
um. Þú réðst þig sem stofustúlku
eins og það var kallað þá. Ég hafði
mínar hugmyndir um það, þú í
hvítri blússu og svörtu pilsi með
hvítan kappa að dusta ryk með
fjaðrakústi, hafði séð það í bíó.
Veruleikinn var nú annar, þér var
✝ Sigríður Elísa-bet Tryggva-
dóttir fæddist í
Reykjavík 30. nóv-
ember 1933. Hún
lést á LSH í Fossvogi
19. júlí síðastliðinn
og fór útför hennar
fram í kyrrþey.
þrælað út. Með aðstoð
Diddu fékkstu fljót-
lega annað starf á
öðru heimili og þar
varstu ánægð.
Það kom fyrir að við
pössuðum ungana
hvor fyrir aðra. Sér-
staklega gleymi ég
aldrei þegar ég átti
von á Tryggva mínum,
en hann er fæddur í
desember. Þú komst á
hverjum degi með þín
börn og sást um allan
hópinn á meðan Er-
lingur var í vinnunni. Þegar ég svo
kom heim, hver var þá búin að gera
jólahreingerninguna, baka smákök-
ur og lagatertur nema þú? Því
gleymi ég aldrei.
Einu sinni fengum við svo mikla
dellu í að mála keramik að ég er
viss um að enginn á annað eins safn
af englum, jólasveinum, lömpum og
styttum að ógleymdum jólatrjám
sem öll barnabörnin okkar fengu að
taka þátt í að mála. Svo dreif ég þig
í kvennadeild Rauða krossins og við
unnum lengi saman í búðinni á
Borgarspítalanum. Einnig vorum
við saman í félagsmálanefnd sem
við höfðum báðar gaman af.
Útför þín fór fram í kyrrþey að
þinni ósk. Ég vil leyfa mér að þakka
Rauða kross konum fyrir þann
sóma sem þær sýndu þér þann dag.
Börnunum, ömmubörnunum og
tengdabörnunum þínum bið ég
guðsblessunar.
Engin gat elskað þau öll meira en
þú.
Hvíl í friði, elsku systir.
Þín systir
Ásta.
SIGRÍÐUR
ELÍSABET
TRYGGVADÓTTIR
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj,
s. 691 0919
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Kæru vinir!
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og
útför okkar ástkæra,
KRISTJÁNS GUÐMUNDSSONAR,
Gullsmára 11.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Land-
spítalans í Kópavogi fyrir hlýja og góða umönnun
sem veittu okkur styrk á erfiðum stundum.
Elskulegum börnum mínum og fjölskyldum þeirra þakka ég ómetanlega
aðstoð og stuðning.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir mína hönd og sona hins látna,
Guðrún Danelíusdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát elskulegs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
JAKOBS MAGNÚSSONAR
bónda,
Samtúni,
Reykholtsdal.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Akraness fyrir hlýhug og góða
umönnunn.
Jarðsett var í kyrrþey að ósk hins látna.
Þorbjörg Svava Auðunsdóttir
og fjölskylda.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir og amma,
ALDA SIGURVINSDÓTTIR,
Barðastöðum 11,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn
29. ágúst kl. 13.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlega
bent á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins.
Kristín S. Vilhelmsdóttir, Atli Edgarsson,
Guðmundur J. Vilhelmsson, Jóndís Einarsdóttir,
Ragna G. Vilhelmsdóttir, Rudolf K. Rúnarsson,
Linda B. Vilhelmsdóttir, Óskar G. Óskarsson,
Halldór G. Vilhelmsson, Íris Ólafsdóttir,
Alda Guðlaug, Bryndís Ósk,
Ragnar Björn, Hanna Lív,
Guðný Ása og Vilhelm Frank.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HÉÐINN JÓNSSON
skipstjóri,
Mýrum 14,
Patreksfirði,
andaðist mánudaginn 22. ágúst.
Útförin fer fram frá Patreksfjarðarkirkju þriðju-
daginn 30. ágúst kl. 14.00.
Guðrún Jónsdóttir,
Elín Magnea Héðinsdóttir, Bolli Ólafsson,
Jón Már Héðinsson, Rósa Líney Sigursveinsdóttir,
Inga Mirjam Héðinsdóttir, Kristján Hermannsson,
Jóhannes Héðinsson, Styrgerður Fjeldsted,
Freyr Héðinsson, Steinunn Finnbogadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín og amma,
RAGNHILDUR JÓNSDÓTTIR,
Norðurbrún 1,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtu-
daginn 18. ágúst, verður jarðsungin frá Hafnar-
fjarðarkirkju mánudaginn 29. ágúst kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Pétur R. Jónsson,
Bára Kristín Pétursdóttir,
Gunnar Pétursson.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐFINNU ÁRNADÓTTUR,
Faxatúni 27,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir viljum við færa hjúkrunarþjón-
ustu Karitasar og starfsfólki St. Jósepsspítala í Hafnarfirði fyrir góða
og hlýlega umönnun Guðfinnu.
Atli Örn Jensen,
Árni Valur Atlason, Eydís Lúðvíksdóttir,
Markús Þór Atlason, Katrín Yngvadóttir,
Jens Pétur Atlason, Kristín Sigurbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til ykkar allra, sem sýnduð okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæra sonar og bróður,
HJARTAR SVEINSSONAR,
Grænatúni 6,
Kópavogi.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét Samúelsdóttir, Sveinn Sveinbjörnsson,
Sveinbjörn Sveinsson,
Grétar Már Sveinsson.
Ástkær sonur okkar og bróðir,
BRAGI HALLDÓRSSON,
Vesturgötu 50a,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju þriðju-
daginn 30. ágúst kl. 15.00.
Birna Björgvinsdóttir, Halldór Bragason,
Andri Freyr Halldórsson.
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is