Morgunblaðið - 28.08.2005, Blaðsíða 48
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
ÞAÐ STENDUR HÉR AÐ
ÞEGAR BÖRN HAFA NÁÐ
SEX ÁRA ALDRI...
ÞÁ HAFA ÞAU SÉÐ YFIR
MILLJÓN MORÐ Í
SJÓNVARPINU
ÞETTA ER
ALVEG HREINT
HRÆÐILEGT!
VIÐ HÖFUM GREINILEGA
EKKI VERIÐ AÐ HORFA Á
RÉTTAR STÖÐVAR
Risaeðlugrín
NEI SKO ... GÖNGUR RISASNIGLANNA
VIRÐAST VERA BYRJAÐAR ...
© DARGAUD
Dagbók
Í dag er sunnudagur 28. ágúst, 240. dagur ársins 2005
Víkverji er að íhugahúsakaup enn
einu sinni en Víkverji
hefur þegar mikla
reynslu af flutningum.
Alltaf svíður Víkverja
sú þóknun sem fast-
eignasalar rukka enda
hefur nær undantekn-
ingarlaust gengið
mjög greiðlega hjá
Víkverja að selja sínar
íbúðir og sjaldan að
honum virðist mikil
vinna lenda á fast-
eignasölunum við þau
sölustörf.
Raunar þykja Vík-
verja margir þeir fasteignasalar,
sem hann hefur haft viðskipti við,
ekki hafa reynst vel þegar vandamál
hafa komið upp við og eftir húsa-
kaup. Á það þó blessunarlega ekki
við um alla og nokkrir fasteignasalar
sem Víkverji getur vel borið söguna.
Pínlegt þykir Víkverja að fast-
eignasölurnar skuli taka fasta pró-
sentuþóknun af söluverði húsnæðis.
Þar eru fasteignasalarnir mis-
ósvífnir og taka sumir þeirra að auki
sérstakar umsýsluþóknanir, rukka
aukalega fyrir birtar auglýsingar og
þar fram eftir götunum.
Gott er og blessað að fá borgað
fyrir vinnu sína, en Víkverja þykja
söluþóknanirnar sem
hann hefur greitt í sín-
um viðskiptum á eng-
an hátt endurspegla
vinnu, ábyrgð, kostnað
og áhættu fasteigna-
salanna. Lausleg
könnun Víkverja leiddi
í ljós að algjör lág-
markssöluþóknun er
1% af söluverði en það
merkir að fyrir að
selja 20 milljóna íbúð
fær sölumaðurinn tvö
hundruð þúsund. Virð-
ist því í grófum drátt-
um að ekki þurfi að
selja fleiri en tvær
sæmilegar íbúðir mánaðarlega til að
hafa mjög góðar tekjur.
Ergir það Víkverja sérstaklega að
engin marktæk breyting hefur orðið
á þóknun fasteignasala í því fast-
eignabrjálæði sem riðið hefur yfir
landið síðustu misseri þar sem hald-
ast í hendur stórhækkað verð fast-
eigna og stóraukin sala.
Skilur Víkverji vel að á skiptast
skin og skúrir í lífi fasteignasala og
ekki seljast allar eignir jafn-
greiðlega og eignir Víkverja. Þykir
Víkverja samt að hann sjái sönnun
þess að ekki er allt með felldu nú
þegar á öðrum hverjum strætisvagni
er auglýsing frá fasteignasölu.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Heimur | Á myndinni hér að ofan sýnir indversk fyrirsæta brúðarskrúða.
Sýndi hún ásamt öðrum á tískusýningu sem haldin var í sérstakri versl-
unarmiðstöð algjörlega helgaðri brúðkaupum sem opnuð hefur verið í
Kolkata, sem hét Calcutta þar til í janúar 2001. Er þetta fyrsta versl-
unarmiðstöð sinnar tegundar á Indlandi.
Reuters
Í brúðarskrúða
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Gjaldið engum illt fyrir illt. Stundið það sem fagurt er fyrir sjónum
allra manna. (Róm. 12, 17.)