Morgunblaðið - 28.09.2005, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.leikhusid.is
Kortasölunni lýkur á föstudag.
Tryggðu þér sæti!
ÚTFÖR Björns Hallgrímssonar, fyrrverandi forstjóra,
var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Sr. Valgeir
Ástráðsson jarðsöng, organisti var Jón Stefánsson og
karlakórinn Fóstbræður sungu. Líkmenn voru Gunnar
Sch. Thorsteinsson, Sólveig Pétursdóttir, Emilía Björg
Sigurðardóttir, Björn Hallgrímur Kristinsson, Krist-
inn Björn Sigfússon, Haraldur Gísli Sigfússon, Björn
Sch. Thorsteinsson og Sigurður Sigfússon.
EINN maður fórst en annar bjarg-
aðist eftir að bandarísk skúta fékk á
sig brotsjó á Grænlandssundi, um
160 kílómetra norðvestur af Straum-
nesi um miðnætti í fyrrinótt. Þyrla
Landhelgisgæslu Íslands bjargaði
manninum við erfiðar aðstæður, en
ekkert amaði að honum.
„Það skall alda á bátnum og lagði
hann á hliðina, og við það brotnaði
mastrið,“ sagði skipbrotsmaðurinn,
Adam Lalich, þegar hann steig út úr
þyrlu landhelgisgæslunnar í Reykja-
vík. Lalich, sem er Bandaríkjamaður
á fimmtugsaldri, og eigandi skútunn-
ar, sagði að skoskur félagi sinn hefði
farið fyrir borð þegar brotsjórinn
reið yfir skútuna rétt eftir miðnætti,
en síðan hefur ekkert til hans spurst.
Ekkert amaði að Lalich og þurfti
hann ekki að gangast undir læknis-
skoðun.
Jakob Ólafsson, flugstjóri á TF-
LÍF, þyrlu Landhelgisgæslunnar,
sagði að veður hefði verið erfitt, mik-
ill mótvindur á leið á staðinn, 25-30
m/s. Veðrið var aðeins skárra á slys-
stað, um 20-25 m/s en mikill öldu-
gangur og snjóél.
Þaulreyndur sjómaður
Jakob segir að tekin hafi verið
ákvörðun um að láta björgunarlykkju
síga mannlausa til skipbrotsmanns-
ins, enda vitað að maðurinn sé alvan-
ur sjómaður.
„Þeir létu vírinn síga og ég setti
lykkjuna utan um mig. Þetta var auð-
velt,“ sagði Lalich um björgunina.
Sigmanni hefði verið talsverð hætta
búin ef hann hefði þurft að síga niður
þar sem siglutré skútunnar, sem þó
hafði brotnað ofanaf, sveiflaðist mik-
ið, auk þess sem hætta getur skapast
af vírum og köðlum. Lalich er þaul-
reyndur skútusjómaður frá Alaska,
sem siglt hefur um heimsins höf, m.a.
til Suðurskautsins, að sögn Gunn-
laugs Hólm Sigurðssonar, félaga La-
lich, sem beið hans í landi. Gunnlaug-
ur segir Lalich vel kunnugan
siglingum við erfiðar aðstæður. Hann
hafi siglt skútu sinni frá Íslandi til
Grænlands í byrjun ágúst, og verið á
leið til baka til Reykjavíkur þegar
brotsjórinn reið yfir. Lalich vinnur
sem krabbasjómaður í Alaska hluta
úr ári, og siglir þess á milli um á
skútu sinni, Vamos, sem er um 36 fet.
Landhelgisgæslunni barst neyðar-
kall kl. 2:17 í fyrrinótt um gervihnött,
og var þegar farið að kanna skipa-
ferðir á svæðinu og athuga hvort skip
þar væru í nauðum. Þær upplýsingar
fengust svo frá björgunarstjórnstöð-
inni í Norfolk í Bandaríkjunum að
skútan Vamos hefði sent frá sér
neyðarkallið, og að um borð væru
tveir menn.
Samband náðist við norskan línu-
veiðara á svæðinu, en hann gat ekki
aðstoðað skútuna vegna veðurs, og
átti fullt í fangi með að halda sjó sjálf-
ur, enda 10-15 metra ölduhæð og afar
lélegt skyggni. Var þá ákveðið að
senda TF-LÍF, þyrlu Landhelgis-
gæslunnar, á staðinn og var lagt af
stað kl. 5:40 frá Reykjavík. TF-SYN,
Fokker-flugvél gæslunnar, flaug með
til að tryggja öryggi áhafnar þyrl-
unnar, og til að reyna að finna skút-
una áður en þyrlan kæmi á vettvang.
Auðunn F. Kristinsson, stýrimað-
ur á flugvélinni, segir að þeir hafi
fundið skútuna um fimm mínútum
eftir að þeir komu á staðinn, kl. 8:07,
og hafi leiðbeint þyrlunni síðasta
spölinn, enda hafði þyrlan einungis
flugþol til að vera um 30 mínútur á
svæðinu áður en hún þurfti að snúa
heim, hver mínúta skipti máli. Tókst
að ná sambandi við skipbrotsmann-
inn sem sagði ekkert ama að sér, en
að félagi sinn hefði farið fyrir borð.
Þyrlan kom svo að skútunni um
8:30 og sást Lalich strax í skut báts-
ins. Það tók aðeins um fimm mínútur
að bjarga manninum um borð, og leit-
aði þyrlan að því loknu skamma
stund að félaga hans áður en haldið
var til baka. Þyrlan tók eldsneyti á
Rifi, en lenti svo með manninn á
Reykjavíkurflugvelli skömmu eftir
kl. 11 í gærmorgun.
TF-SYN hélt leit áfram í um
klukkustund eftir að manninum var
bjargað, en án árangurs. Félagi hans
er talinn af, enda var hvorugur mað-
urinn í flotgalla og sjávarhiti ekki
hár.
Flugvélin tryggir öryggi
Auðunn segir að miklu skipti við
aðstæður sem þessar að geta sent
flugvél með þyrlunni. Hlutverk flug-
vélarinnar sé tvíþætt. Annars vegar
að leita á svæðinu, enda flugvélin með
mun meira flugþol en þyrlan og auk
þess fljótari að komast á vettvang.
Því sé hægt að nota flugvélina til að
finna skipbrotsmenn og beina þyrl-
unni á réttan stað til að spara tíma.
Hitt hlutverk flugvélarinnar sé svo að
tryggja öryggi þyrluáhafnarinnar,
t.d. með því að taka niður nákvæma
staðsetningu farist þyrlan, og varpa
út björgunarbátum.
Mann tók útbyrðis þegar bandarísk skúta fékk á sig brotsjó á Grænlandssundi í fyrrinótt
Einn fórst
en öðrum
var bjargað
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björgunarmenn: Guðmundur Sigurðsson, Hafsteinn Heiðarsson, Auðunn Kristinsson, Páll Geirdal, Pétur Stein-
þórsson, Hörður Ólafsson, Reynir Brynjarsson, Björn Brekkan Björnsson, Magnús Einarsson og Jakob Ólafsson.
!
"#
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Ljósmynd/Sigurður Helgi
Útför Björns Hallgrímssonar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ADAM Lalich hafði viðkomu á Siglufirði í sumar áður en hann hélt til
Grænlands þann 8. ágúst, og segir Sigurður Helgi Sigurðsson, hafn-
arvörður á Siglufirði, sem tók meðfylgjandi mynd, að Lalich hafi rætt um
að sigla eins langt norður meðfram austurströnd Grænlands og hann kæm-
ist áður en hann sneri við og kæmi aftur til Íslands.
Sigurður segir að fyrir tveimur árum hafi Lalich komið hingað til lands
á skútunni, og þá áformað að sigla til Jan Mayen.
Kom við á Siglufirði í sumar