Morgunblaðið - 28.09.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.09.2005, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Bagdad. AFP, AP. | Íraskir og banda- rískir hermenn felldu einn af helstu foringjum al-Qaeda í Írak, hreyfing- ar uppreisnarmanna í landinu, í árás á fjölbýlishús í Bagdad um helgina, að sögn íraskra yfirvalda og banda- ríska hersins í gær. Hryðjuverkaforinginn Abu Azz- am, sem er talinn vera Palestínu- maður, var skotinn til bana eftir ábendingu frá Bagdad-búa um að hann dveldi í fjölbýlishúsinu. Talið er að Abu Azzam hafi stjórnað fjármál- um hreyfingarinnar og starfsemi hennar í Bagdad. Þjóðaröryggisráðgjafi írösku stjórnarinnar, Muwaffaq Rubaie, sagði þetta mikilvægan áfanga í bar- áttunni gegn uppreisnarhreyfing- unni. „Okkur tókst að vega næst- æðsta mann al-Qaeda í Írak. Við teljum að hann hafi látið drepa 1.200 Bagdad-búa.“ Al-Qaeda í Írak kvaðst ekki geta staðfest að Abu Azzam hefði fallið og neitaði því að hann væri næstæðsti foringi hreyfingarinnar. Abu Azzam var á lista Bandaríkja- hers yfir 29 menn sem hann leggur mesta áherslu á að handsama eða fella í Írak. Herinn hafði lagt 50.000 dollara, sem samsvarar rúmum 30 milljónum króna, til höfuðs honum. Abu Azzam hafði lýst á hendur sér drápum á mörgum stjórnmálamönn- um, þeirra á meðal Izzadine Saleem, forseta framkvæmdaráðs sem bandarísk yfirvöld skipuðu, í sprengjutilræði í maí í fyrra. Al-Qaeda í Írak hefur staðið fyrir mörgum sprengjutilræðum sem hafa kostað hundruð manna lífið. Leiðtogi hreyfingarinnar, Jórdaninn Abu Musab al-Zarqawi, hefur lýst yfir „allsherjarstríði“ á hendur sjítum í Írak. NATO opnar þjálfunarstöð Að minnsta kosti tíu manns biðu bana í sjálfsmorðsárás á hóp nýráð- inna lögreglumanna í bænum Baq- uba, norðan við Bagdad, í gær þegar þeir mættu til vinnu í fyrsta skipti. Um 26 til viðbótar særðust. Þá fundust lík 22 manna nálægt landamærunum að Íran. Mennirnir voru með hendur bundnar fyrir aft- an bak og bundið var fyrir augun áð- ur en þeir voru skotnir til bana fyrir um það bil viku. Jaap de Hoop Scheffer, fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins, var í Bagdad og opnaði formlega þjálfunarmiðstöð þar sem stefnt er að því að þjálfa um 1.000 liðsmenn öryggissveita á ári. Gert er ráð fyrir því að 500 til viðbótar verði þjálfaðir utan Íraks. Stefnt er að því að fyrir lok ársins verði írösku öryggissveitirnar skip- aðar um 200.000 mönnum og að um 30% þeirra hafi fengið fulla þjálfun. Segjast hafa fellt al- Qaeda-foringja í Írak Talinn hafa stjórnað fjármálunum og starfsemi samtakanna í Bagdad STARFSMENN veitingahúss í Hangzhou í Zhejiang- héraði í Kína sýna listina við að bera fram te eins og hún hefur verið iðkuð um aldaraðir á þessum slóðum. Haldin var tedrykkjuhátíð í Hangzhou í gær á veg- um Alþjóðlegu tevísinda- og menningarstofnunar- innar til að kynna tedrykkjumenningu Kínverja og stuðla að því að hún varðveitist, að sögn kínverskra fjölmiðla. Reuters Aldagömul list að bera fram te FLENSUVEIRA hefur borist í hunda frá hestum í Bandaríkjunum og greinst í veðhlaupahundum í að minnsta kosti ellefu sambandsríkj- um. Ennfremur hefur verið staðfest að hún hafi borist í heimilishunda í þremur ríkjum, Flórída, New York og Massachusetts, að sögn The Washington Post. Áður hafði veiran aðeins fundist í hestum og ekkert hefur bent til þess að hún geti borist í menn. Skýrt er frá veirunni í vísinda- tímaritinu Science. Fyrstu rann- sóknir benda til þess að 5–8% hundanna sem smitast drepist af völdum veirunnar. Langflestir hundanna, eða um 80%, fá aðeins mildu einkenni og ná fullum bata. Veiran er af A-stofni og nefnist H3N8. Rannsóknir á veirunni gætu aukið skilning vísindamanna á fugla- flensuveirunni, sem hefur valdið 65 dauðsföllum í Asíu og óttast er að geti valdið heimsfaraldri. Flensuveira hefur borist úr hrossum í hunda ;"(':""(-#':$:%+,+99% :%(:%#<#9 %0%-* 2=(%-: $(-0>-:"8+(-#:":(-%099:"9+% "%'#(8,%',-':?--,%!%0                 4)  . &  #    # <  &*   ,! ,!# !  . =,!    .   >  ) 3)! ,  ! 5!#  , 3J  ,  2 =,! #  ) =!. ) 8.   '066>   ) .)*C!   # ! 6 ,  >  .  ! -! #   0! J ,9 &86*. . )6  =! =* J =* 6  ! *=   @! =*  , : 2 # !!  ,!. 6 . , .  6 ! >*!  . 8 .  , 0! # C6 =!          !" # " $$ $ %&      '     ! (  $ " # )   (  * + ,- %$ .      J )6  FÓLK, sem þjáist af sóríasis eða blettaskán, getur nú kannski farið að gera sér vonir um betri líðan. Svo er fyrir að þakka náttúrulegu eiturefni í baðmullarrunnanum. Vísindamenn við Sunder- land-háskóla í Bretlandi hafa uppgötvað, að efnið gossypol hefur góð áhrif á sóríasis að því er fram kemur á fréttavef BBC, breska ríkisútvarpsins. Vonast þeir til, að uppgötvunin geti leitt til betri meðferðar en í Bretlandi er að minnsta kosti ein milljón manna haldin þess- um arfgenga kvilla. Gossypol er líklega eitt af varnarefnum baðmullarrunn- ans gegn skordýrum og hefur verið kannað nokkuð sem hugs- anleg getnaðarvörn fyrir karl- menn. Lítið hefur þó út úr því komið. Það hefur hins vegar þau áhrif á sóríasis, að það heldur aftur af útbreiðslunni og dregur úr bólgum. Einkenni sóríasis eru þau, að húðfrumum fjölgar úr hófi fram og við það þykknar hörundið, sem verður rautt og þrútið. Von fyrir sóríasis- sjúklinga Peking. AFP. | Kínverskir og banda- rískir dýrafræðingar ætla að beita hátæknilegum aðferðum til að reyna að afhjúpa leyndardóma kynlífs risapanda. Risapöndur eru óvenju varar um sig og dýrafræðingarnir hafa því þurft að nota GPS-staðsetning- artæki til að reyna að komast að því hvað gerist á bak við bambusreyrinn þegar pöndurnar halda að enginn sjái til þeirra, að sögn kínversku fréttastofunnar Xinhua. „Það er ekki hægt að komast að risapöndunum á löngum tímabil- um,“ sagði Wei Fuwen, dýrafræð- ingur við Kínversku vísindaakadem- íuna. „Með því að beita háþróaðri eftirlitstækni og fylgjast með kynlífi þeirra getum við ef til vill fundið leiðir til að afstýra því að risapönd- urnar deyi út.“ Kínverskir vísindamenn ætla að „standa á gægjum“ í þrjú ár í sam- starfi við dýrafræðinga í San Diego í Bandaríkjunum. Hugsanlegt er þó að þeir komist að því að pöndurnar geri ekkert þegar þær halda að enginn sjái til þeirra. Risapöndurnar hafa sýnt lít- inn áhuga á kynlífi og er það ein af helstu ástæðum þess að þær eru í út- rýmingarhættu. Vísindamennirnir hafa reynt ýmislegt, svo sem sérstök viagra-lyf, til að ráða bót á þessu en án árangurs. Talið er að nær 1.600 risapöndur lifi í náttúrunni í kínversku hér- uðunum Sichuan, Shaanxi og Gansu. Njósnað um risapöndur Belfast. AFP. | Ian Paisley, leiðtogi stærsta stjórnmálaflokks mótmæl- enda á Norður-Írlandi, neitaði í gær að setjast í stjórn með Sinn Fein, stjórnmálaarmi IRA, Írska lýð- veldishersins, þótt alþjóðlegir eftirlitsmenn hefðu staðfest, að hann hefði eytt öllum sínum vop- nabirgðum. „Það er vit- leysa, að öllum vopnunum hafi verið eytt,“ sagði Paisley eftir fund með John de Chastelain, kanadískum hershöfðingja á eftirlaunum og for- manni eftirlitsnefndar með eyðingu vopnanna. „Við munum ekki fara í stjórn með Sinn Fein,“ bætti Paisley við Vonast var til, að vopnaeyðingin, sem mótmælendur á N-Írlandi hafa lengi krafist, myndi greiða fyrir sátt- um og myndun samsteypuríkis- stjórnar en viðbrögð harðlínumanns- ins Paisleys vekja litlar vonir um það. Paisley hafnar samstjórn Ian Paisley ♦♦♦ Varsjá. AFP. | Dagblöð í Póllandi spá því að stjórnarmyndunarviðræður tveggja hægriflokka, sem sigruðu í þingkosningum á sunnudag, verði erfiðar. „Félagslegi kosturinn varð of- an á,“ sagði blaðið Rzeczpospolita, og skírskotaði til þess að íhalds- flokkurinn Lög og réttur, PiS, boðaði ríkisað- stoð við þá sem minnst mega sín og ríkisafskipti af efnahagnum. Hinn hægriflokkurinn, PO, lagði meiri áherslu á markaðshyggju og boðaði flatan 15% tekjuskatt. Úrslit kosninganna voru birt í gær og var fylgi PiS tæp 27% og PO 24%. Flokkur sem er andvígur Evrópu- sambandinu, kom næstur með 11,4% og stjórnarflokkurinn Vinstrabanda- lagið (SLD) varð fjórði með 11,3%. Líkur á erfiðum viðræðum Jaroslaw Kacz- ynski, leiðtogi og forsætisráð- herraefni PiS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.