Morgunblaðið - 28.09.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.09.2005, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Geir H. Haarde tók viðembætti utanríkisráð-herra af Davíð Oddssyniá ríkisráðsfundi á Bessa- stöðum í gær. Davíð lét af ráðherra- dómi eftir rúmlega fjórtán ára sam- fellda setu í ríkisstjórn. Árni M. Mathiesen tók við embætti fjár- málaráðherra af Geir og Einar K. Guðfinnsson tók við embætti sjáv- arútvegsráðherra. Einar hefur ekki áður setið í ríkisstjórn og undirritaði því eiðstaf á fundinum. Tveir ríkisráðsfundir voru haldn- ir í gær. Á fyrri fundinum lét Davíð Oddsson af ráðherradómi. Eftir það yfirgaf hann fundinn og inn á næsta ríkisráðsfund kom Einar K. Guð- finnsson. Á þeim fundi féllst forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, á tillögu Halldórs Ásgrímssonar for- sætisráðherra um skipan annars ráðuneytis hans. Halldór og Geir hafa gert samkomulag um að þeir leysi hvor annan af, líkt og þeir Hall- dór og Davíð gerðu. Á fundunum í gær var ákveðið að Halldór Ásgrímsson yrði jafnframt hagstofuráðherra í stað Davíðs og að Sigríður A. Þórðardóttir um- hverfisráðherra yrði samstarfsráð- herra Norðurlandanna í stað Val- gerðar Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Þá var gengið frá því að þjóðskráin, sem hefur ver- ið hluti af Hagstofunni, fari til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. Davíð sagði við fréttamenn er hann gekk út af fundi að hann væri þakklátur fyrir að hafa fengið jafn- lengi og með jafnafgerandi hætti að hafa áhrif á þróun lands og þjóð- mála. Hann sagði aðspurður að mjög margt væri eftirminnilegt af ferli sínum. Ferillinn væri fjöl- breyttur; ekki bara í landsmálum heldur einnig í borgarmálum. „Ég hef haft fleiri ráðherra en flestir aðrir í samstarfi með mér í ríkis- stjórn,“ sagði hann. „Þó þetta séu ráðherrar úr þremur flokkum held ég að ég eigi góða vináttu þeirra allra sem þar hafa setið. Það er mik- ið ánægjuefni og ég held reyndar að skýringin sé sú að vel hafi tekist til í ýmsum efnum – sem ég leyfi mér á þessari stundu að halda fram að hafi verið – þó að sjálfsagt hafi menn eins og gengur misjafna skoðun á því hvort ég hafi komið góðu til leið- ar eða ekki.“ Davíð kvaðst aðspurður treysta vel sínum eftirmönnum. „Þetta er vel lærður mannskapur, hann hefur fengið góða þjálfun. Allt þetta fólk vill vel.“ Hann bætti því við að hann vildi nota tækifærið og þakka stjórnarandstöðunni. Hann sagðist hafa átt ágæt samskipti við stjórn- arandstæðinga þótt tekist hefði ver- ið á. „Þar er líka margt gott fólk þótt ég sé ekki að biðja um að það fari endilega í stjórn.“ Verst að eyðileggja hárkolluna Þegar Davíð var spurður hvort hann óttaðist að vera settur í geymslu fyrir gamla seðlabanka- stjóra eins og kom fram í Spaugstof- unni, sagði hann. „Það er nú alltaf gaman að Spaugstofunni og verst að vera búinn að eyðileggja hárkolluna fyrir Erni. Ég held reyndar að það sé ekkert að því þó að seðlabanka- stjórar hafi látið lítið fyrir sér fara og séu ekki mikið á þönum. Þess vegna held ég að ég fái frí frá Spaugstofunni nokkurn veginn. Nema ég verði eins og Örn sagði einhvers staðar: yfirgengilegur, þá væntanlega tekur hann mig fyrir aftur.“ Davíð sagðist hlakka til þeirra verkefna sem biðu hans í Seðla- bankanum og kvaðst vona að hann myndi standa sig. Hann óskaði einn- ig Halldóri alls hins besta. „Ég veit að hann vill vel og að hann muni valda sínu hlutverki vel.“ Þá þakk- aði Davíð fjölmiðlamönnum mikil- væg samskipti. Sakna Davíðs Þegar síðari ríkisráðsfundinum lauk sagði Halldór aðspurður við fréttamenn að Davíð hefði verið góður samstarfsmaður og dug Hans yrði því saknað úr ríkis inni. „Honum fylgja mjög óskir frá okkur öllum sem starfað með honum,“ sagði Ha Inntur eftir því hvort e stefnubreyting yrði við þess herraskipti sagði Halldór: engin sérstök stefnubreytin störfum á grundvelli sama arsáttmála. Við munum að sögðu starfa áfram á þeim grunni. Það er góð staða í þjó inu, efnahagsástandið er got má kannski segja að það sé, e sumir segja of gott, því þa miklar framkvæmdir og n þensla, en við lítum björtum a til framtíðarinnar.“ „Falleg orð í minn gar Fyrr um daginn hafði Daví sinn síðasta ríkisstjórnarf Stjórnarráðinu. Á fundinum allir ráðherrar mættir að Ágústssyni frátöldum sem v lendis. Davíð lagði tvö mál f fundinum, annars vegar um m Hagstofu Íslands og hins veg indi tengt samningi Íslands og Ráðherraskipti í ríkisstjórninni í gær og annað r Engin sérstö ing við ráð Halldór og Geir leysa hvor annan af líkt og þeir Halldór og Davíð gerðu Ný ríkisstjórn Halldórs Ásgrímssonar á Bessastöðum. Frá vinstri Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, Árni Magnússon félagsmálaráðherra, Halldór Ásgrímsson fo málaráðherra, Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra, Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og trygginga Eftir Örnu Schram og Örlyg Stein Sigurjónsson Davíð Oddsson gengur úr u komin var upp á vegg af nýj RÁÐHERRASKIPTI Mesta breytingin, sem varð áríkisstjórn Íslands í gærer sú, að Davíð Oddsson lætur af ráðherraembættum og hættir innan tíðar afskiptum af stjórnmálum. Ekki er þó ólíklegt að eftir honum verði tekið, þegar hann hefur hafið störf sem formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands. Forystumenn bankastjórna seðla- banka eru víða áhrifamiklir. Augljóst er að embætti utanrík- isráðherra er vel skipað með Geir H. Haarde. Hinn nýi utanríkisráð- herra hefur yfirburða þekkingu á alþjóðamálum og talar mörg tungu- mál. Hann mun vekja athygli í nýju hlutverki sem fulltrúi Íslands í sam- skiptum við aðrar þjóðir. Ganga má út frá því sem vísu, að Geir H. Haarde muni fylgja hefðbundinni utanríkisstefnu Sjálfstæðisflokks- ins. Líkurnar á því að hann muni breyta um stefnu gagnvart hugsan- legri aðild Íslands að Evrópusam- bandinu eru ekki miklar. Augljóst er að skiptar skoðanir hafa alltaf verið innan Sjálfstæðisflokksins um það mál. Geir H. Haarde mun ekki taka áhættuna af því, að sams konar ástand skapist innan Sjálfstæðis- flokksins vegna Evrópumála eins og gerzt hefur í brezka Íhalds- flokknum. Lokafrágangur á samn- ingum við Bandaríkjamenn vegna framtíðar Keflavíkurflugvallar er í öruggum höndum þar sem Geir H. Haarde er. Morgunblaðið er ekki sammála hinum nýja utanríkisráðherra í af- stöðu hans til framboðs Íslands til Öryggisráðsins en að öðru leyti má gera ráð fyrir að leiðir Morgun- blaðsins og Geirs H. Haarde muni liggja saman í utanríkismálum. Árni M. Mathiesen tekur nú við stjórn fjármálaráðuneytisins, tæp- lega 30 árum eftir að faðir hans Matthías Á. Mathiesen yfirgaf það sumarið 1978. Árni M. Mathiesen hefur reynzt farsæll sjávarútvegs- ráðherra. Hann hefur ekki verið há- vaðasamur ráðherra en traustur. Meira mun mæða á honum sem fjár- málaráðherra og veður að mörgu leyti válynd á þeim vígstöðvum. En með þá reynslu, sem hann er kom- inn með af ráðherrastarfi má búast við að honum farnist vel. Einar K. Guðfinnsson tekur nú við ráðherraembætti í fyrsta sinn. Hann hefur unnið vel á Alþingi og leyst hvert verkefnið á fætur öðru vel af hendi. Hann stendur djúpum rótum í íslenzkum sjávarútvegi. Saga afa hans og alnafna og raunar fjölskyldu hans allrar í Bolungarvík er ein af ævintýrasögunum í upp- byggingu atvinnulífs á Íslandi á 20. öldinni. Einar Guðfinnsson hóf út- gerð og fiskvinnslu með tvær hend- ur tómar og vann hörðum höndum alla tíð. Sonarsonur hans kemur til starfa sem sjávarútvegsráðherra með meiri þekkingu á íslenzkum sjávarútvegi en flestir þeirra, sem hafa komið við sögu þess ráðuneytis á seinni árum. Það verða því gerðar til hans miklar kröfur. Ráðherraskiptin í gær hafa í för með sér mikla breytingu fyrir Hall- dór Ásgrímsson. Samstarf þeirra Davíðs Oddssonar hefur gengið vel í rúman áratug. Jafnframt hefur Davíð verið kjölfestan í ríkisstjórn- inni. Nú verður horft til þess, að Halldór Ásgrímsson verði sú kjöl- festa. Þá reynir á. Forsætisráð- herra hefur nú meira svigrúm til að sýna hvað í honum býr en jafnframt verður ætlast til meira af honum. Velgengni Framsóknarflokksins á næstu tveimur árum fram að kosn- ingum fer eftir því hvernig Halldóri Ásgrímssyni tekst til. HEILBRIGÐ SAMKEPPNI Davíð Oddsson greindi frá því ígær þegar hann hvarf úr stóli utanríkisráðherra að hann hefði áhyggjur af heilbrigðri samkeppni í landinu með því að ákveðnir að- ilar sölsuðu allt undir sig og allt of mikið færðist yfir á of fáar hendur. Það er athyglisvert að heyra þessi ummæli frá Davíð sem í forsætis- ráðherratíð sinni kom á því frelsi, sem nú ríkir í íslensku athafnalífi, og leiðir þann flokk, sem helst hef- ur staðið gegn höftum í viðskipta- lífinu. Minna þessi ummæli á það þegar Dwight D. Eisenhower varaði við ítökum hersins og hergagnafram- leiðenda í lok forsetatíðar sinnar með eftirminnilegum hætti fyrir tæplega hálfri öld. Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem Davíð vekur máls á áhyggjum sín- um. Hann hefur áður talað um áhyggjur sínar af samþjöppun og talað um að allt benti til að „sam- runi fyrirtækja og einokunartil- burðir í kjölfarið [væru] að verða meinsemd í íslensku viðskiptalífi“. Áður hefur verið ítrekað í leið- urum Morgunblaðsins að nauðsyn- legt sé að setja lög við hringa- myndun á Íslandi. Heilbrigð samkeppni er forsenda þess að at- hafnalífið dafni. Það er ekki hægt að bjóða heilli þjóð að örfáir menn sölsi allt undir sig. Það getur vissulega verið erfitt að setja lög, sem ætlað er að vinda ofan af ástandi, sem þegar er orðið, og það þarf að gefa þeim, sem þyrftu að laga sig að slíkum reglum, gott svigrúm og sanngjarnan aðlögun- artíma. Hinn kosturinn er aftur á móti að gera ekki neitt og hann er óboðlegur. Aðrar þjóðir hafa getað tekið á hringamyndun og jafnvel brotið upp starfandi fyrirtæki vegna þess að umsvif þeirra voru farin að standa viðskiptalífinu í viðkomandi landi fyrir þrifum. Fordæmin eru næg og ekkert í vegi fyrir því að setja lög um hringamyndun á Íslandi. Varnað- arorð Davíðs Oddssonar eru ekki að ástæðulausu og á þau ber að hlýða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.