Morgunblaðið - 28.09.2005, Síða 42
KLIPPINGARNAR í vetur undir-
strika andlitsfallið og hárið er á
hreyfingu samkvæmt Intercoiffure,
alþjóðlegum samtökum hár-
greiðslumeistara. Eitt af því sem
samtökin leggja áherslu á þennan
veturinn er sítt hár með miklum
styttum en litirnir eru frá súkku-
laðibrúnum og ljósum yfir í rauða-
og kopartóna. Fjólutónar eru einn-
ig á leiðinni inn.
Línurnar voru nýverið lagðar í
París og var Arnar Tómasson hjá
Salon Reykjavík viðstaddur. Til við-
bótar útfærir Intercoiffure á Ís-
landi þessar línur og kemur fram
með eigin útgáfur af haust- og vetr-
artískunni. Meðfylgjandi myndir
sýna bæði erlendu og innlendu lín-
una og varð Arnar fyrir svörum.
Hvað finnst þér helst einkenna
línuna í vetur?
„Fyrst og fremst er það hvað það
er mikil áferð í hárinu, textúr bæði
frá efnum og efnisvinnu. Ekki leng-
ur þetta flata, slétta heldur áferð í
öllu sem við sjáum. Klippingarnar
eru lifandi. Glamúrinn er orðinn
meiri og þar af leiðandi er lúxusinn
meiri.“
Hvernig sker erlenda línan sig
frá þeirri íslensku?
„Mismunurinn felst fyrst og
fremst í því að fólk býr á mismun-
andi stöðum. Við þurfum alltaf að
taka tillit til veðráttunnar. Það er
kaldara hér og hvassara. Klipping-
arnar eru léttari hjá okkur, erlendu
klippingarnar eru formfastari. Það
má samt ekki gleyma því að þetta
eru allt tillögur um útlit og við
þurfum að klippa eftir þeim að-
stæðum sem við lifum við.“
Tíska | Alþjóðlegu samtökin Intercoiffure leggja línurnar fyrir veturinn
Tillögur um útlit
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
42 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sprenghlægileg gamanmynd!
Sýnd kl. 6 b.i. 14 ára
FRÁBÆR GRÍN OG
SPENNUMYND
FRÁBÆR GRÍN OG
SPENNUMYND
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
kl. 5.45, 8 og 10.15
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sprenghlægileg gamanmynd!
kl 4 og 6 í þrívídd
Sýnd kl. 8 og 10Sýnd kl. 6, 8 og 10
Göldrótt
gamanmynd!
Göldrótt gamanmynd!
Sýnd kl. 8 og 10
Harðasta löggan í bænum er þann mund
að fá stórskrýtinn félaga!
VARÚÐ: Þú gætir
farið úr kjálkaliðum
af hlátri
BETRA
SEINT EN
ALDREI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 16 ára
Ó.H´T RÁS 2
Sýnd kl. 4 ísl talSýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 14 ára
Night Watch is F***ING COOL!
Quentin Tarantino
Sími 564 0000í i
Miða sala opn ar kl. 15.15i l l. .
H.J. MBL
S.V. MBL
S.V. MBL
ÍSLENSKA rokkhljómsveitin Shima hefur
verið tilnefnd til verðlauna á tónlistarhátíð-
inni Toronto Independent Music Awards í
Kanada, sem haldin verður þann 5. október
næstkomandi.
Hljómsveitin er fulltrúi Íslands í flokkn-
um „besta erlenda hljómsveitin“ og keppir
þar við fjórar aðrar hljómsveitir og tónlist-
armenn frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Eist-
landi og Íran.
Shima er rúmlega eins árs gömul hljóm-
sveit sem spilar framsækna rokktónlist og
er um þessar mundir að leggja lokahönd á
sína fyrstu breiðskífu sem mun bera heitið
... And for a moment all fell silent.
Jón Dal Kristbjörnsson gítarleikari Shima
segir að hljómsveitin hafi komist inn í þessa
keppni einfaldlega með því að senda inn
prufuupptöku af einu lagi sveitarinnar.
„Stuttu seinna fengum við tilkynningu um
að við hefðum verið tilnefndir og að lagið
sem við sendum færi á einhvern hátíðardisk
sem verður dreift til gesta.
Eins og nafn hátíðarinnar gefur til kynna
er hún ætluð óháðum og ósamnings-
bundnum listamönnum og því má ætla að
þarna verði fjölmargir útsendarar plötufyr-
irtækja.
„Við erum ekki að búast við neinu og það
er kannski bara verið að lokka okkur þang-
að út með þessu. Við reiknum ekki heldur
með að spila og förum þess vegna græju-
lausir til Vesturheims.“
Tónlist | Íslenska hljómsveitin Shima heldur til Kanada
Tilnefnd til tónlistarverðlauna
Hljómsveitin Shima heldur til Kan-
ada í næsta mánuði.
www.worldofshima.com