Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR TUGÞÚSUNDIR FÓRUST Stjórnvöld í Pakistan sögðu í gær að staðfest væri að minnst 20.000 manns hefðu látið lífið í jarðskjálft- anum mikla á laugardag. Væri jafn- vel óttast að talan gæti farið í 30.000. Yfir 600 manns fórust auk þess í ind- verska hluta Kasmír en langflest voru fórnarlömbin í pakistanska hluta héraðsins umdeilda. Pakist- anar báðu í gær þjóðir heims um að- stoð vegna hamfaranna og voru björgunarsveitir þegar lagðar af stað í gær. Einnig var heitið hjálp- argögnum og fé. Mest mun þörfin vera á stórum þyrlum vegna þess að samgöngukerfið er víða lamað. Fimmtán tillögur felldar Fimmtán af sextán sameiningar- tillögum voru felldar í kosningum um sameiningu sveitarfélaga á laug- ardag. Kjörsókn þótti dræm en að- eins um þriðjungur af þeim sem voru á kjörskrá gengu til kosninga. Hundruð deyja í Guatemala Óttast er að nær tvö þúsund manns hafi látið lífið í skriðuföllum í Guatemala síðustu daga. Aurskriður féllu yfir tvö þorp á miðvikudag og er þar um 1.400 manns saknað. Stað- fest er að yfir 500 eru látnir í landinu en hitabeltislægðin Stan hefur vald- ið gríðarlegu úrfelli og mann- skæðum skriðum í Mið-Ameríku. Spilafíklum fjölgar Samtök áhugafólks um spilafíkn hafa óskað eftir því að fá gömlu mið- bæjarstöð lögreglunnar við Tryggvagötu undir starfsemi sína og segja vandann hafa aukist mikið á undanförnum árum. Kjósa þarf aftur Enginn fékk hreinan meirihluta í pólsku forsetakosningunum á sunnudag og verður kosið aftur eftir tvær vikur milli tveggja efstu. Starfsemi hefst að nýju Vinna í Slippstöðinni á Akureyri hefst að öllum líkindum aftur á morgun, en hún varð gjaldþrota fyr- ir rúmlega viku. Óvíst er þó hvort allir starfsmenn verða endurráðnir en um 100 manns höfðu þar starf fyrir gjaldþrot. Söfnunarfé afhent Björn Hafsteinsson vagnstjóri, sem missti báðar fætur í alvarlegu bílslysi í ágúst sl. fékk afhenta ávís- un upp á 1,3 milljónir króna um helgina, sem er afrakstur söfnunar- átaks. Einnig fékk hann blómvönd frá framkvæmdastjóra Strætó bs. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Myndasögur 36 Fréttaskýring 8 Dagbók 36/39 Vesturland 12 Víkverji 36 Viðskipti 13 Staður og stund 39 Erlent 14/15 Velvakandi 37 Daglegt líf 16/18 Leikhús 40 Umræðan 20/28 Bíó 42/45 Forystugrein 24 Ljósvakamiðlar 62 Bréf 28 Staksteinar 63 Minningar 29/34 Veður 63 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is SAMFYLKINGIN telur að lækka eigi virðisaukaskatt á matvæli úr 14% í 7% og hækka persónuafslátt í skattkerfinu í stað tekjuskatts- og hátekjuskattslækkunar ríkisstjórn- arinnar um áramót, þar sem þessar aðgerðir komi öllum til góða, en mest þeim sem hafi lágar eða meðaltekjur, auk þess sem slíkar aðgerðir vinni gegn verðbólgu. Þetta kom meðal annars fram í ávarpi Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur, formanns Samfylkingarinn- ar, á fundi í Samfylkingarfélaginu í Reykjavík á laugardag. Hún sagði einnig að auka ætti aðhald í ríkisfjár- málum og stefna að því að reka rík- issjóð með afgangi sem næmi 2% af vergri landsframleiðslu og taka til athugunar hækkun á fjármagns- tekjuskattinum. Ingibjörg sagði að tillögur Sam- fylkingarinnar hefðu það að mark- miði að draga úr spennu í hagkerfinu, ynnu gegn verðbólgu og bættu kjör þeirra sem lægst hefðu launin og það væri þeirra inn- legg í þær kjaraviðræð- ur sem framundan væru. Fram kom að lækk- un virðisaukaskatts á matvæli kostar um fjóra milljarða króna og lækkar vísitölu neysluverðs um tæpt 1% og hefur þannig áhrif á verðbólguna til lækkunar. Lagt er til að um tveimur milljörð- um til viðbótar verði varið til hækk- unar persónuafsláttarins, en kostn- aður vegna skattalækkana ríkis- stjórnarinnar er talinn nema um sex milljörðum króna. Ingibjörg sagði að ójöfnuðurinn hefði aukist hröðum skrefum í tíð ríkisstjórnarinnar og nefndi sem dæmi að líf- eyrisgreiðslur hefðu verið aftengdar lægstu launum 1995. Hefði það ekki verið gert væru þær 14 þúsund kr. hærri á mánuði í dag. Þá hefðu skattleysis- mörkin ekki verið látin fylgja verðlagi og benti á að samkvæmt GINI- stuðlinum svonefnda hefðu ráðstöfunar- tekjur ríkasta fimmt- ungs þjóðarinnar auk- ist tvöfalt meira en ráðstöfunartekjur fá- tækasta fimmtungsins. Verðbólga gífurlega íþyngjandi Ingibjörg gerði einnig skuldir þjóðarinnar að umtalsefni og benti á að þær hefðu aukist gífurlega á und- anförnum árum. Hreinar skuldir þjóðarbúsins væru þannig verulega meiri heldur en í nokkru öðru ríki innan Efnahags- og framfarastofn- unarinnar OECD. Þannig hefðu skuldir heimilanna hækkað úr 4 milljónum að meðaltali í 9 milljónir. Þessar skuldir væru vísitölutryggð- ar og því væru áhrif verðbólgu gíf- urlega íþyngjandi. Á tímum eins og nú ætti ríkisstjórnin ekkert að gera sem gæti stuðlað að aukinni verð- bólgu og hækkandi gengi. Allar að- gerðir ríkisstjórnarinnar ættu að miða að því að draga úr þenslu og halda aftur af einkaneyslu. Ingibjörg sagði einnig að miklar sveiflur væru í íslensku hagkerfi og margt benti til þess að sjálfstæður gjaldmiðill á litlu gjaldmiðilssvæði væri orsakavaldurinn. Það væri tímabært að þeir sem vildu halda í sjálfstæðan gjaldmiðil færðu rök fyr- ir því að það væri gott fyrir Íslend- inga að halda í íslensku krónuna í stað þess að þeir sem vildu taka upp evruna sætu uppi með sönnunar- byrðina. Vilja lækka matarskattinn í 7% og hækka persónuafslátt Ójöfnuður hefur aukist hröðum skrefum, segir formaður Samfylkingarinnar Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is Ingibjörg Sólrún Gísladóttir NORRÆNA lýðheilsuráðstefnan, sú áttunda í röðinni, var sett á Nordica hóteli í Reykjavík í gærkvöldi. Er þetta í fyrsta sinn sem ráðstefnan er haldin hér á landi. Hún hófst með ávörpum Önnu Elísabetar Ólafsdóttur, forstjóra Lýðheilsustöðvar, og Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra. Ráðstefnunni lýkur á morgun en hún ber yfirskriftina Lýðheilsa – sameiginleg ábyrgð. Rætt verður m.a. um hvernig sveitarfélög á Norður- löndum hafa ásamt ýmsum aðilum tekið höndum saman í lýðheilsuverkefnum. Meðal fyrirlesara eru doktorarnir Geir Gunn- laugsson, Guðjón Magnússon og Ólafur Páll Jónsson. Auk þeirra flytja erindi dr. Penny Howe frá Kanada og Svíarnir Bosse Petterson og Johan Jonsson. Morgunblaðið/Sverrir Við setningu ráðstefnunnar á Nordica hóteli í gærkvöldi voru léttir drykkir á boðstólum og þáðu þau Guðjón Magnússon, Anna Elísabet Ólafsdóttir og Jón Kristjánsson ferskan epladrykk, svona í tilefni dagsins. Norræn lýðheilsuráðstefna sett FASTEIGNABLAÐI Morgun- blaðsins er í fyrsta sinn í dag dreift til allra heimila á höfuð- borgarsvæðinu og er því heild- arupplag blaðsins rúmlega 90 þúsund eintök. Fasteigna- blaðinu er að sjálfsögðu áfram dreift til allra kaupenda Morg- unblaðsins út um allt land. „Með þessari auknu dreifingu gefst nú fasteignasölum tæki- færi til að ná til fleiri sem eru í fasteignahugleiðingum og efla þannig starfsemi sína enn frek- ar. Við höfum í gegnum tíðina átt gott samstarf við alla helstu fasteignasala landsins og von- umst auðvitað eftir áframhald- andi góðu samstarfi þegar þess- ar breytingar eru gerðar. Nú erum við með samspil tveggja mjög öflugra miðla, annars veg- ar vinsælasta fasteignavef landsins á mbl.is og hins vegar stórt fasteignablað sem fer inn um allar þessar lúgur,“ segir Margrét Kr. Sigurðardóttir, forstöðumaður sölu- og mark- aðssviðs Morgunblaðsins. Sú nýbreytni er einnig í dag að Fasteignablaðið er heft til að auðvelda lesendum að með- höndla og geyma blaðið. mánudagur 10. október 2005 mbl.is Fasteignablaðið // Vallahverfi Mikil uppbygging á sér stað í Vallahverfi í Hafnarfirði. Nú eru til kynningar tillögur að deiliskipulagi fyrir 4. og 5. áfanga Valla. Lóðir verða byggingarhæfar í vor.  34 // Bessastaðir Margir þættir þjóðarsögunnar renna saman á Bessastöðum. Bessastaðastofa og kirkjan voru reistar á síðari hluta 18. aldar og eru með elstu steinbyggingum landsins.  46 // Utanhússviðgerð Fyrirtækið Hólmsteinn Pjetursson ehf. hefur nýverið hafið framkvæmdir við stórt fjöl- býlishús, sem er stærsta viðgerðarverkefni sem fyrirtækið hefur ráðist í.  60 // Lagnir Það er þörf á nýjum lagnaleiðum og nýrri út- færslu í fjölbýlishúsum. Frá inntaksklefa mætti leggja stofnlagnir um blokkina með einu inntaki inn í hverja íbúð.  62 Stjórnstöðvar fyrir hitakerfi Engin skilyrði um önnur bankaviðskipti Lánin eru verðtryggð og bera fasta 4,15% vexti sem eru endurskoðaðir á fimm ára fresti. Hægt er að greiða upp án uppgreiðslugjalds þegar vextir koma til endurskoðunar. Engin hámarksupphæð og er lánstími allt að 40 árum. Krafa er gerð um fyrsta veðrétt íbúðarinnar. Lánshlutfall er allt að 80% við endurfjármögnun fasteigna (engin hámarksupphæð) og 100% við kaup fasteignar (hámarksupphæð 25 milljónir króna). Hægt er að nota lánin til íbúðarkaupa, til að stokka upp fjármálin eða í eitthvað allt annað. www.frjalsi. is H im in n o g h a f- 9 0 4 0 5 9 1 Nína Arnbjörnsdóttir lánafulltrúi á viðskiptasviði Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is Lánstími 5 ár 25 ár 40 ár 4,15% vextir 18.485 5.361 4.273 *Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.* Frjáls íbúðalán vextir 100 % veð set nin gar hlu tfa ll                                                                                            !        " #  $          ! !      % % % %  & &   &                ! !        ! ' ( ) * '+  ,  "" " ' (  " )) * + "  ,  " ! " #$ %      -. / *     0 1 23 45 0 6 7 1 1 6 8  23 9 :556  ; <  = &'  )$   ; <  = &'  * +   , ; <  = &'      !  -     -! 8 /6 >    ! -" ! "! -   %          !            Gamla frystihúsið í Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ hefur fengið nýtt hlut- verk eftir að hafa staðið ónotað í mörg ár. Kjartan Ragnarsson húsa- framleiðandi flutti húsaverksmiðju sína, Nýtt hús ehf., af Dalvegi í Kópavogi suður í Reykjanesbæ í sumar og er hægt og rólega að koma allri starfseminni í gang í frystihús- inu og öðrum húsum þar sem áður var saltfisk- og skreiðarverkun. Fyrri hluta síðustu aldar keypti annar athafnamaður, Eggert Jóns- son frá Nautabúi í Skagafirði, helm- ing jarða bæjarins Innri-Njarðvík ásamt fleiri jörðum á svæðinu og hóf umfangsmikinn rekstur á staðnum, m.a. íshús og saltfiskverkun. Árið 1940 byggði hann frystihúsið sem enn stendur og þótti það mjög veg- legt á þeim tíma, en þá var upp- gangstími í frystingu á stríðsárunum og nokkur ár á eftir. Jón Karlsson frá Norðfirði keypti frystihúsið 1971 og stofnaði Brynjólf hf. en fyrirtækið byggði mest rekst- ur sinn á saltfiskverkun, einkum á vetrarvertíðum, til ársins 1990 en síðan þá hefur verið stopull rekstur þar til nú að þessi gömlu hús fá nýtt hlutverk. Nýtt hús ehf. var stofnað 2002 er Kjartan Ragnarsson fékk Kristin Ragnarsson arkitekt og Emil Þór Guðmundsson byggingartæknifræð- ing til samstarfs um útfærslu hug- mynda sem hann hafði um smíði ein- ingahúsa úr timbri. Frá byrjun hafa verið seld 78 hús, þar af 25 einbýlishús sem reist voru við Smárarima í Reykjavík fyrir tveimur árum. Nú eru í smíðum á vegum fyrirtækisins og fyrir einka- aðila hús í Grindavík, Reykjanesbæ, Sandgerði og Garðinum, og fleiri verkefni í bígerð. Sökkul- og sperru- verksmiðjan eru komnar í gang á nýja staðnum en verið er að koma fyrir einingasmíðinni og fleiri þátt- um framleiðslunnar og verður því lokið á næstu vikum ef allt gengur eftir. Gamalt frystihús fær nýtt hlutverk Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Fasteigna- blaðið í rúmlega 90 þúsund eintökum SKRIFAÐ hefur verið undir nýjan kjarasamning á Akranesi og hefur verkfalli Starfsmannafélags Akra- ness, sem hefjast átti á miðnætti í nótt, verið frestað til miðnættis fimmtudaginn 13. október næstkom- andi. Samningurinn verður kynntur fé- lagsmönnum í dag og atkvæði verða greidd um hann á þriðjudag og mið- vikudag, en atkvæðisrétt eiga um 240 bæjarstarfsmenn. Valdimar Þorvaldsson, formaður Starfsmannafélagsins, varðist allra frétta af efnisatriðum þar til samn- ingurinn hefði verið kynntur fé- lagsmönnum. Verkfalli frestað FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sendi í gær forseta Pak- istans, Pervez Musharraf, forseta Indlands, Abdul Kalam, og forseta Afganistans, Hamid Karzai, einlæg- ar samúðarkveðjur sínar og íslensku þjóðarinnar vegna jarðskjálftanna og áréttaði nauðsyn þess að alþjóða- samfélagið kæmi til hjálpar á slíkum neyðartímum. Í samúðarkveðjunum víkur forseti Íslands að reynslu Íslendinga af náttúruhamförum á sviði jarð- skjálfta og eldgosa. Sú reynsla hafi skapað sterka samkennd í hugum Ís- lendinga og stuðlað að þróun hjálp- arstarfs, bæði nýrrar tækni og þjálf- unar björgunarfólks. Í kveðjunni til forseta Indlands rifjar forseti Íslands upp að í opin- berri heimsókn forseta Indlands til Íslands sl. sumar hafi Indverjar leit- að eftir því að Íslendingar myndu miðla þekkingu og tækni sem hér hefur orðið til varðandi viðvaranir og rannsóknir á aðdraganda meirihátt- ar jarðskjálfta. Nýlega hafi verið lögð drög að því að sú samvinna hæf- ist á skipulagðan hátt. Vonandi geti hún í framtíðinni dregið úr hörm- ungum íbúanna og hættum á mann- falli. Forseti Íslands send- ir samúðarkveðjur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.