Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 9 FRÉTTIR Full búð af öðruvísi vörum Lomonosov postulín, rússneska keisarasettið, í matar- og kaffistellum. Handmálað og með 22 karata gyllingu. Frábærar gjafavörur. Opið virka kl. 11-18, lau. 11-15. Sigurstjarnan, bláu húsin Fákafeni, sími 588 4545, netfang: postulín.is Alltaf besta verðið Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Nýir stakir ullarjakkar Fermingarmyndartökur Fjölskyldumyndatökur Tilboðsmyndatökur Pantið tímanlega Mynd, Hafnarfirði sími 565 4207 Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 3020 sími www.ljósmynd.is EF HUGMYND bandarísku lista- konunnar Roni Horn gengur eftir verður núverandi bókasafnsbygg- ingu Stykkishólmsbæjar breytt í Vatnssafn og rithöfundaíbúð. Sam- kvæmt heimildum blaðsins hefur Roni Horn, í samvinnu við breska listaumboðsfyrirtækið Artangel, bæjaryfirvöld Stykkishólmsbæjar, menntamálaráðuneytið og sam- göngumálaráðuneytið sl. rúmt ár verið að skoða möguleikann á upp- setningu slíks Vatnssafns, en hug- mynd listakonunnar var kynnt á opn- um fundi með bæjarbúum Stykkishólms nú í sumar og mæltist þar afar vel fyrir að sögn Erlu Frið- riksdóttur bæjarstjóra. Vona að hugmyndin verði að veruleika „Okkur líst afar vel á þessa hug- mynd og vonum að þetta geti orðið að veruleika,“ segir Erla og bendir á að enn eigi eftir að ganga frá formlegu samkomulagi samningsaðila, jafn- framt því sem eftir sé að ákveða hvernig rekstur safnsins verði fjár- magnaður. „Bæjarfélagið er mjög áhugasamt um þetta verkefni og það hefur fengið mjög góðan hljómgrunn bæði meðal stjórnenda og bæjarbúa. Uppsetning Vatnssafnsins myndi styrkja landsvæðið hér og kemur til með að vekja athygli á því á heims- vísu,“ segir Erla og tekur fram að bú- ast megi við listáhugafólki hvaðan- æva að úr heiminum. „Þetta er frábært verkefni og gaman að geta komið að því,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, í samtali við Morgunblaðið. „Aðkoma Roni Horn er náttúrlega einstök, en ekki síður Artangel-manna sem eru tilbúnir að leggja heilmikið á sig til þess að verk- efnið geti orðið að veruleika, ekki að- eins fjárhagslega, heldur, sem skiptir ekki síður máli í þessum alþjóða- heimi listanna, eru þeir tilbúnir að koma hingað með sína miklu þekk- ingu og tengsl inn í listaheiminn sem er algjörlega ómetanlegt fyrir okk- ur,“ segir Þorgerður og bendir á að Artangel muni, verði verkefnið að veruleika, skuldbinda sig til að kynna verkefnið í Stykkishólmi á alþjóða- vettvangi sem eitt af meginverkefn- um sínum. Samkvæmt heimildum blaðsins felur hugmyndin um Vatns- safn í sér að Horn muni afhenda ríki og Stykkishólmsbæ innsetninguna Vatnssafn til eignar til a.m.k. næstu tuttugu og fimm ára með möguleika á framlengingu, með því skilyrði að almenningi sé heimill aðgangur að verkinu, en staðsetning innsetning- arinnar yrði í húsnæði núverandi bókasafns Stykkishólmsbæjar uppi á Þinghúshöfða. Til þess að hugmynd- in geti orðið að veruleika þarf fyrst að flytja bókasafn bæjarins í annað húsnæði og að sögn Þorgerðar Katr- ínar hefur hún sem ráðherra verið reiðubúin að beita sér fyrir því sem hægt er að gera af hálfu ríkisvaldsins til að greiða fyrir verkefninu. Vísar hún þar til þess að ríkið hyggst leggja til fjármagn með því að kaupa hluta núverandi bókasafnsbyggingar af bænum, en þá fjármuni geti bær- inn síðan notað til að fjármagna flutning bókasafnsins í nýtt húsnæði. Samkvæmt upplýsingum frá Erlu hefur lengi verið í umræðunni að finna bókasafni bæjarins nýjan stað í hentugra húsnæði meðal annars m.t.t. stærðar, staðsetningar og að- gengis. Eftir því sem blaðamaður kemst næst hefur verið rætt um að stefnt sé að því að Vatnssafnið verði opnað árið 2006. Aðspurð segir Erla það vel geta tekist, en fyrst þurfi að ganga frá samningum allra þeirra að- ila sem að málinu koma. Roni Horn mun, samkvæmt heim- ildum blaðsins, gefa alla vinnu sína við verkið og verkið sjálft, en áætlað verðmæti framlagsins er metið á 200 þúsund bandaríkjadala eða sem svar- ar tæpum 12,5 milljónum íslenskra króna. Fyrirtækið Artangel tekur að sér allan kostnað í tengslum við hönnun, uppsetningu og viðhald á verki Horn, þar með talið kostnað við ferðir og uppihald starfsmanna sem hingað þurfa að koma vegna verks- ins, en allar breytingar sem Roni Horn kann að vilja gera á innsetn- ingu sinni á samningstímanum verða á ábyrgð og kostnað Artangel. Framlag Artangel metið á 19 milljónir Samtals er framlag Artangel met- ið á 300 þúsund bandaríkjadala eða hátt í 19 milljónir íslenskra króna. Jafnframt gengur hugmyndin út á að Artangel taki að sér að skipuleggja að bæði íslenskum og erlendum rit- höfundum verði boðið að dvelja á neðri hæð bókasafnsbyggingarinnar í sérstakri rithöfundaíbúð sem þar verði útbúin. Gert er ráð fyrir að Artangel muni halda utan um þann þátt, en hugmyndin er að bjóða ár- lega einum rithöfundi að dvelja í íbúðinni í sex til níu mánuði í senn. Í samtali við Þorgerði Katrínu sagði hún ljóst að Artangel væri stórt nafn í listaheiminum og benti á að verði verkefnið í gamla bókasafninu að veruleika megi segja að Stykkis- hólmur sé að mörgu leyti dottinn í lukkupottinn hvað menningartengsl varðar. „Því miðað við reynslu Artangel-manna og frægðarsól Roni Horn þá er það nokkuð ljóst að það verður auðvelt að koma Stykkishólmi á heimskortið á menningarsviðinu,“ segir Þorgerður Katrín og tekur fram að hún vonist til þess að samn- ingar séu á lokaspretti og þeir takist von bráðar. Roni Horn með stórtækar hugmyndir um breytt hlutverk bókasafnsbyggingarinnar í Stykkishólmi Kæmi Stykkishólmi á heims- kortið á menningarsviðinu Morgunblaðið/Sverrir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Erla Friðriksdóttir Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Bandarísku listakonuna Roni Horn dreymir um að gera núverandi bóka- safnsbyggingu Stykkishólmsbæjar að Vatnssafni. Með því vill hún, að sögn James Lingwood, annars forstjóra Artangel, gefa landi og þjóð eitthvað þýðingarmikið að launum fyrir þann mikla innblástur sem íslensk náttúra hefur verið henni í gegnum tíðina. „Í RAUN snýst þetta um að gefa íbúum Stykkishólmsbæjar kost á tveimur bókasöfnum, þ.e. annars vegar nýju safni í öðru húsnæði og hins vegar Vatnssafni í núverandi húsnæði,“ segir James Lingwood, annar forstjóri breska listaumboðs- fyrirtækisins Artangel í samtali við blaðamann Morgunblaðsins, en Artangel hefur síðastliðin ár unnið að undirbúningi listaverks Roni Horn hérlendis. „Allir þeir sem þekkja til lista- konunnar Roni Horn vita hversu mikil áhrif Ísland og íslensk nátt- úra hefur haft á list hennar. Með verki sínu Vatnssafn langar hana að gefa landi og þjóð eitthvað þýð- ingarmikið til baka að launum,“ segir Lingwood og segist lítið geta sagt um sjálfa innsetninguna þar sem hún snúist ekki hvað síst um staðinn sjálfan. Segir hann hug- myndina vissulega fela í sér að inn- viðum hússins verði breytt og sér- stöku gólfi þar komið fyrir. En fyrst og fremst snúist hugmyndin um það að staðurinn sjálfur verði lifandi vettvangur sem verði í senn listaverk sem veiti fólki kost á að hugleiða um veðrið, náttúruna og vatn samtímis því sem þetta verði húsnæði sem nýst geti samfélaginu, því listakonan sjái fyrir sér að hægt verði að halda vinnustofur í hús- næðinu, standa fyrir skákmóti eða jafnvel bara koma þangað til að lesa. Partur af útrás Artangels Eftir því sem blaðamaður kemst næst er breska umboðsfyrirtækið Artangel brautryðjandi í fjár- mögnun listaverka á Bretlands- eyjum. En á sl. áratug hefur fyr- irtækið tekið þátt í uppsetningu listaverka sem vakið hafa mikla at- hygli jafnt almennings sem og inn- an listaheimsins, en verkin hafa oft verið staðsett á afar óvenjulegum stöðum, jafnvel úr alfaraleið, sem hefur síður en svo haft áhrif á að- sóknina. Artangel vinnur jafnt með myndlistarmönnum, rithöfundum, tónlistarfólki, kvikmyndagerð- armönnum og danshöfundum svo fátt eitt sé nefnt, en meðal þeirra listamanna sem Artangel hefur unnið með eru Matthew Barney, Brian Eno, William Forsythe, Steve McQueen, Rachel Whiteread og Ro- bert Wilson. „Við höfum það að stefnumarki að gera listamönnum það kleift að skapa verk sem aðrir listtengdir staðir, hvort heldur það eru söfn eða leikhús, geta ekki boð- ið upp á,“ segir Lingwood. Aðspurður hvernig forsvars- menn Artangel velji verkefni sín segir James Lingwood það frekar vera svo að verkefnin velji þá. „Fyr- ir tveimur til þremur árum ákváðum við að við vildum útfæra starfsemi okkar og vinna verk ann- ars staðar en á Bretlandseyjum. Um svipað leyti leituðum við til Roni Horn með samstarf í huga og hún stakk samstundis upp á því að vinna verk á Íslandi,“ segir Lingwood og tekur fram að verði Vatnssafn að veruleika sé það fyrsta verkefnið sem fyrirtækið standi að utan Bretlandseyja sem sé afar þýðingarmikið í huga forsvars- manna Artangel og partur af mik- ilvægri útrás fyrirtækisins. Vatnssafnið verði lifandi vettvangur Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason James Lingwood og Roni Horn hafa áhuga á að koma á fót menningar- miðstöð í húsnæði Amtbókasafns Stykkishólms.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.