Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Lok, lok og læs og allt í stáli. Samkvæmt fjárlaga-frumvarpi fyrir árið2006 er gert ráð fyrir 508 milljóna króna fjárveitingu til Veðurstofu Íslands. Er það hækkun um 11,6 milljónir frá fjár- lögum yfirstandandi árs en að frátöldum launa- og verðlagsbótum lækkar fjárveitingin um 14,5 millj- ónir króna. Þá er lögð til 4,5 milljóna króna lækkun á fjárveitingu vegna hag- ræðingar í rekstri. Í frum- varpinu er lögð til 10 millj- óna króna fjárveiting til kaupa á veðurspárlíkani fyrir ná- kvæmari veðurspár og til að koma upp fullkomnum sjálfvirkum veð- urathugunarstöðvum. Í greinar- gerð með frumvarpinu segir að gera megi ráð fyrir að uppbygging tækjabúnaðarins muni vara í „all- mörg ár“ þar sem veðurspárlíkan- ið kosti 17 milljónir króna og hver sjálfvirk veðurathugunarstöð kosti 15 milljónir króna. Í samtali við Magnús Jónsson veðurstofustjóra kemur fram að þessar tölur í frumvarpinu eru ekki alls kostar réttar. Hann segir hverja veðurathugunarstöð kosta um 5 milljónir króna. Óskað hafi verið eftir 17 milljónum króna til að koma upp og reka veðurspár- líkan í hárri upplausn og 15 millj- ónum til kaupa á þremur sjálfvirk- um stöðvum. Brýn þörf sé á tækjum sem mæli skyggni, veður, skýjahulu, skýjahæð og fleira til viðbótar við það sem sjálfvirkar stöðvar geri í dag. Hann segir Veðurstofuna mörg síðustu ár hafa óskað eftir fjár- munum til uppsetningar veður- spárlíkans og sjálfvirkra stöðva, en ekki fengið fyrr en nú á fjár- lögum. Hins vegar hafi Veðurstof- an leitað liðsinnis hjá Vegagerð- inni, Flugmálastjórn og Siglinga- stofnun við að koma upp slíku spálíkani. Magnús segir ganga hægt að koma því áleiðis að hægt sé að veita betri veðurþjónustu en gert sé í dag. Þótt nú séu í fyrsta skipti settir í þetta fjármunir á fjárlög- um megi mun betur ef duga skuli. „Þá viljum við setja þessar veð- urupplýsingar fram með þeim hætti að þær nýtist hverjum sem er, hvenær sem er og hvar sem er. Mikið vantar uppá að við höfum fjárhagslegt bolmagn til þess. Veðurþjónustan gæti verið með allt öðrum hætti, ekki síst í fram- setningu og miðlun,“ segir Magn- ús og bendir á að víða í Evrópu hafi veðurstofur komið sér upp mun fullkomnari veðurspárlíkön- um og búnaði en Veðurstofa Ís- lands búi við. Hins vegar megi ekki gleyma því að Veðurstofan hafi til margra ára notað útreikn- inga úr erlendum veðurspálíkön- um og muni halda því áfram, eink- um spár til nokkurra daga. „Við sækjumst nú eftir líkani til að keyra á fínum skala, þar sem miklu meira tillit er tekið til land- fræðilegra aðstæðna á Íslandi en áður, þannig að við getum fengið spár sem sýni til dæmis muninn á veðrinu á Seltjarnarnesi og í Graf- arvogi, og sýni auk þess þróun veðurs frá klukkustund til klukku- stundar fyrsta sólarhringinn.“ Veðurstofustjóri vill að spárnar geti orðið að stórum hluta sjálf- virkar og gagnvirkar. Ef einhver þurfi á að halda spá fyrir lítið af- markað svæði eða stað á ákveðnum tíma þá geti viðkom- andi slegið þá beiðni inn á Netið og fengið svörun um hæl. Spurður hvort þetta sé draumur Veður- stofunnar segir Magnús: „Ef þetta rætist ekki fyrr en síðar verður það martröð Veðurstof- unnar. Ef Veðurstofan, sem ætlað er að þjóna almenningi, fær ekki þau tæki og tól, svo og fjármuni sem til þarf þá mun einhver annar koma til, hvort sem það yrði inn- lendur eða erlendur aðili. Ég er ekki að segja að hér standi ein- hverjir í biðröðum eftir að þjóna okkur og sú þjónusta yrði almenn- ingi ekki ókeypis.“ Mannaðar stöðvar á undanhaldi Með aukinni tækni kemur mannshöndin sífellt minna nálægt veðurathugunum, enda hefur mönnuðum stöðvum fækkað á síð- ustu árum og hinum sjálfvirku fjölgað. Mannaðar stöðvar eru víðast hvar á undanhaldi í Evrópu. Þannig var síðustu mönnuðu stöð- inni í Danmörku lokað á þessu ári. Í Finnlandi stendur til að loka síð- ustu mönnuðu stöðvum á næstu tveimur árum og hið sama er að gerast í Svíþjóð. Að sögn Magn- úsar tekur það 3-5 ár að borga sig upp fjárhagslega að loka mann- aðri stöð og setja upp sjálfvirka stöð í staðinn. Sjálfvirkar veður- stöðvar Veðurstofunnar eru nú orðnar hátt í 100 um allt land og annar eins fjöldi er kominn upp á vegum annarra stofnana, einkum Vegagerðarinnar. Magnús býst ekki við að fjár- lagafrumvarpið taki miklum breytingum í meðförum Alþingis. Þó er reiknað með aukaframlagi vegna starfseminnar á Keflavík- urflugvelli, þar sem bandaríski herinn hefur nýlega ákveðið að hætta framlagi til háloftastöðvar- innar á Vellinum. Nú eru ársverk á Veðurstofunni um 125, þar af utan Reykjavíkur liðlega 50, þannig að um 40% árs- verka eru utan stofnunina sjálfa. Fréttaskýring | Framlög til Veðurstofunnar Meira fé í betri spár 32 milljóna óskað í veðurspárlíkan og sjálfvirkar stöðvar en 10 millj. fengust Gera á veðurspárnar nákvæmari. 36 mannaðar veðurathug- unarstöðvar eru starfandi  Starfandi eru í dag 36 mann- aðar veðurathugunarstöðvar á vegum Veðurstofu Íslands en flestar voru þær 45, að sögn veð- urstofustjóra. Um síðustu ára- mót lögðust niður sex stöðvar en ákvarðanir hafa ekki verið tekn- ar um fleiri lokanir. Fyrir liggur að þeim mun fækka um leið og sjálfvirkum stöðvum fjölgar. Mannaðar veðurfarsstöðvar eru 14 talsins og mannaðar úrkomu- stöðvar alls 53. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is LOKSINS, eftir ellefu ára ræktunarvinnu, hefur fengist fyrsta uppskeran af birkifræi sem í framtíðinni verður uppistaðan í endurheimt hinna fornu Brimnesskóga í Skagafirði. Uppskeran er kannski ekki gríðarstór, eða tveir til þrír hnefar af fræi, en því verður sáð á næsta ári og ætti að verða að gróðursetningarhæfum plöntum árið 2007. Hér er um að ræða árangur af kynbóta- og ágræðslustarfi með birki sem á ættir sínar að rekja til bestu trjánna í Geirmundarhólaskógi hinum skagfirska og þannig verður skagfirskum trjágæðum áfram haldið í héraðinu þegar birkinu verður plantað út í Brimnes- skóga. Nú þegar er hafin útplöntun á trjám á svæðinu, en þar er um að ræða plöntur þar sem aðeins er vitað um annað foreldrið sem er skagfirskt. Steinn Kárason, framkvæmdastjóri Brimnesskóga, segir fræuppskeruna mjög mikilvæg tímamót í trjárækt- arverkefninu en hann hefur nýtt aðstöðu í gróðrarstöð- inni Mörk á undanförnum árum með miklum velvilja eig- enda stöðvarinnar. „Nú höfum við fengið fræ sem gefur vonandi allt að nokkur þúsund plöntur en þó vitum við ekki hve mikið af fræinu mun spíra,“ segir Steinn. „Nú þarf að þurrka fræ- ið og geyma það í kæli í vetur uns því verður sáð næsta vor. En það er alveg ljóst að gæðin á fræinu eru það mik- il að við munum fá nokkur hundruð plöntur.“ Fyrsta fræuppskeran fyrir Brimnesskóga Steinn Kárason við skagfirska birkið sem gefur fræið. NÝLEGA fannst heitt vatn í miklum mæli í Hrollleifsdal í austanverðum Skagafirði, svo mikið að vænta má þess að bið íbúa á Hofsósi og ná- grenni eftir hitaveitu sé brátt á enda. Boranir á vegum Skagafjarðar- veitna í austanverðum Skagafirði hafa staðið yfir frá því í byrjun sept- ember, fyrst í Deildardal en síðar í Hrollleifsdal, nánar tiltekið í landi jarðarinnar Bræðraár, um 18 km frá Hofsósi. Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR, höfðu annast rannsóknir vegna leit- arinnar, undir stjórn Kristjáns Sæ- mundssonar jarðfræðings. Ræktun- arsamband Flóa og Skeiða boraði holuna. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu er haft eftir Sigrúnu Öldu Sighvats, stjórnarformanni Skagafjarðar- veitna, að fundist hafi um 20-30 sek- úndulítrar af allt að 90° heitu vatni. Er það meira en vonir stóðu til. Borholan er 900 metra djúp og í henni tvær heitar æðar. Nánari mælingar á nýju borhol- unni fóru fram um helgina á vegum ÍSOR og fyrr er ekki hægt að slá neinu föstu um málið. 10% landsmanna með rafhitun Á vef ÍSOR segir að með hitaveitu á Hofsósi fækki þeim byggðarlögum á landinu sem enn hafi ekki fengið heitt vatn. Nú njóti nærri 90% lands- manna þeirra gæða. Árlega ver ríkið um 1 milljarði króna til að niður- greiða rafmagn til húshitunar hjá þeim 10% landsmanna sem búa við rafhitun. „Því eru það augljóslega miklir hagsmunir ríkissjóðs og viðkomandi byggðarlaga að haldið sé áfram markvissum jarðhitarannsóknum á þeim stöðum sem enn hafa ekki fengið hitaveitu og fjármagn til þeirra verði tryggt,“ segir á vef Ís- lenskra orkurannsókna. Heitt vatn finnst við Hofsós Íbúar Hofsóss mega nú búast við að fá heitt vatn til sín á næstu árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.