Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 31 MINNINGAR arkerfi um landið. Fyrstu störf Vil- hjálms, eins og hann hefur sjálfur skýrt frá, voru því skiljanlega fólgin í því að koma fjármálum félagsins í viðunandi horf og eins og með alla framkvæmdastjórn hans og öll störf er hann innti af hendi á langri starfs- ævi tókst það fljótt og vel með sam- komulagi við stjórnendur viðskipta- banka félagsins. Ekki dróst heldur á langinn að koma bækistöðvum fé- lagsins í góð horf; fljótlega gerði hann samning um leigu á nýju og glæsilegu húsnæði við Klapparstíg fyrir skrifstofur félagsins og innan tveggja ára hafði birgðastöð félags- ins, verkstæði og mötuneyti verið flutt úr Öskjuhlíðinni að Gelgjutanga hér í borg, þegar keyptar höfðu verið þar ágætar skemmur af Húsafelli, og síðar athafnasvæði Keilis, og viðbót- arbyggingar höfðu verið reistar á svæðinu fyrir dreifingarskrifstofu og vörugeymslur. Bílaflota félagsins endurnýjaði hann fljótlega á eins hagkvæman hátt og unnt var eftir viðvarandi tímabil innflutningshafta en frjáls innflutningur þessara tækja var um þessar mundir að taka gildi. Olíufélagið hf. óx og dafnaði í traustum höndum Vilhjálms. Fjár- hagur félagsins styrktist smám sam- an en jafnt og þétt undir styrkri stjórn hans og félagið, ávallt alís- lenskt olíufélag, varð brátt leiðandi á sínu sviði. Árið 1975 voru skrifstofur félagsins fluttar í hið nýja og mynd- arlega hús félagsins við Suðurlands- braut, sem Vilhjálmur lét teikna og byggja, og eru þær þar enn þann dag í dag. Forsjálni og framsýni ein- kenndu allar hans framkvæmdir. Athafna- og gæfumaðurinn, Vil- hjálmur Jónsson, verður nú kvaddur hinstu kveðju í dag eftir 86 ára far- sæla ævi og mikilvægt ævistarf. Það var lærdómsríkt og eftirminnilegt að fá að hafa starfað um langa hríð hjá þessum heiðarlega og dugmikla at- vinnurekanda og forstjóra og það veldur sannri gleði er maður aldinn að árum rifjar upp kærar endurminn- ingar frá mörgum liðnum árum undir stjórn slíks afbragðsmanns sem Vil- hjálmur var. Hann vildi ekki aðeins hag fyrirtækisins og viðskiptavina þess vel á öllum sviðum, heldur var honum einnig og ekki síður annt um hag og velferð starfsfólksins sem hann reyndist í hvívetna einstaklega vel; bera t.d. sumarbúðir starfs- mannafélags Olíufélagsins, sem nutu styrkjar hans og stuðnings alla tíð, ásamt mörgu öðru, ágætt vitni um hlýtt hugarfar hans og velvilja til starfsfólksins. Við ferðalok þakka ég Vilhjálmi fyrir allt og allt og um leið og ég kveð hann votta ég börnum hans og öðrum ástvinum dýpstu samúð og bið Guð að blessa minningu góðs drengs sem nú er genginn og er sárt saknað af vin- um og samferðafólki. Framundan bíða hans ný störf og háleit verkefni í landi ljóss og friðar en hann var viðbúinn hinni hinstu ferð og vel und- ir hana búinn. Árni Kr. Þorsteinsson. Vorið 1939 birtust nokkrir ný- sveinar víðs vegar að af landinu í Menntaskólanum á Akureyri til þess að þreyta þar gagnfræðapróf utan- skóla. Allir voru þeir vasklegir menn og atorkumiklir, enda flestir þeirra nokkuð hertir í baráttu lífsins og nokkru eldri en við hin, sem fyrir vor- um í 3. bekk, svo að þeir hlutu að vekja athygli okkar og virðingu við fyrstu sýn. Einn þessara pilta var skagfirskur Siglfirðingur, glaðlegur og vingjarnlegur, djarflegur og dugn- aðarlegur, tápmikill og traustlegur og féll strax inn í hópinn. Sá hét Vil- hjálmur Jónsson. Þetta var í skemmstu máli upphaf vináttu okkar, sem staðið hefir óhögguð síðan. Hann var bekkjar- bróðir minn í MA í þrjá vetur (að vísu var hann í stærðfræðideild, en ég í máladeild), og samstúdentar urðum við í nákvæmlega miðri heimsstyrj- öldinni síðari vorið 1942. Um haustið lá leið beggja í Háskóla Íslands (þó ekki í sömu deild frekar en fyrri dag- inn), og þar lukum við einnig námi sama árið (1947) og héldum þá út á þjóðlífsakurinn, hvor á sínu lands- horni. Segja má, að við yrðum aldrei mjög samrýndir eða nánir félagar, en allt um það var okkur mjög hlýtt hvorum til annars og glöddumst inni- lega, í hvert skipti, sem við hittumst. Vilhjálmur var í hópi þeirra bekkj- arsystkina, sem völdust til forystu í hvert sinn, er blásið var til samfunda til þess að minnast einhverra tíma- móta, ráða þurfti fram úr einhverjum vanda eða taka einhverjar ákvarðanir fyrir hönd bekkjarheildarinnar. Hann þótti einfaldlega sjálfsagður til að sinna slíku, því að honum var alltaf treyst manna best til að finna bestu lausn hvers vanda, enda í senn ötull, hygginn og ráðsnjallur. Þegar hóp- urinn hittist á stúdentsafmælum, var Vilhjálmur allra manna glaðastur og léttastur í lund, og þegar einhver úr hópnum féll frá, var hann að sama skapi einlægur og hjartahlýr á kveðjustund. Fyrir kom, að ég rakst óvænt á Vilhjálm á förnum vegi. Þá ljómaði allt andlit hans upp af gleði og góðvild, og léttfleygri stund var varið til að rifja upp skemmtileg atvik úr fortíðinni, eftir að farið hafði verið hratt yfir stuttar skýrslur um líðan og lífshlaup. Síðan var kvaðst aftur, hvor bað hinum bestu virkta og farn- aðar og hélt leiðar sinnar. Og nú er enn komið að gatnamót- um, leiðir skiljast í bili. Ég kveð góð- an vin og drenglundaðan mann með hlýrri þökk og farsældaróskum. Við Ellen biðjum honum blessunar á nýj- um slóðum og sendum fólki hans öllu einlægar samúðarkveðjur. Sverrir Pálsson. Á vordögum árið 1959 var Vil- hjálmur Jónsson ráðinn forstjóri Olíufélagsins og þá var starfsemi Starfsmannafélags Olíufélagsins ekki margbrotin, en félagið hafði þá starfað í nokkur ár. Hinn nýráðni for- stjóri Olíufélagsins sýndi málefnum Starfsmannafélagsins strax í upphafi mikinn áhuga og sá einstakt tækifæri til að stuðla að góðum starfsanda á vinnustað. Vilhjálmur studdi sem for- stjóri alla starfsemi Starfsmanna- félagsins með ráðum og dáð, enda fór svo að þegar hann lét af störfum var Starfsmannafélag Olíufélagsins afar öflugt og að teknu tilliti til starfs- mannafjölda trúlega það öflugasta á landinu. Skömmu eftir að Vilhjálmur hóf störf hjá Olíufélaginu keypti Starfs- mannafélagið land í Mýrarskógum við Laugarvatn. Á næstu árum risu þar sumarhús starfsmanna og hefur starfsfólkið í gegnum árin átt þar miklar ánægjustundir. Árið 1969 höfðu verið byggð fjögur hús á land- inu og í dag er svæðið gróðursæll un- aðsreitur. Framtak þetta þótti þá svo mikið nýmæli, að sumarbústaðirnir voru kallaðir „sumarbúðir“ manna á meðal. Uppbygging þessara sumarbúða var nýjung og því sögulega merk, vegna samstarfs Olíufélagsins og starfsmanna, þar sem Olíufélagið að- stoðaði fjárhagslega með lánafyrir- greiðslu, en á móti lögðu starfsmenn á sig ómælda sjálfboðavinnu við þessa uppbyggingu. Starfsandinn var aldeilis frábær. Vilhjálmur Jónsson taldi alltaf starf Starfsmannafélagsins afar mik- ilvægt liðsanda starfsmanna. Sem dæmi um samheldni starfsmanna og stuðning forstjórans, þá gerðist það einn veturinn á þremur mánuðum að starfsmenn smíðuðu þrjá fjörutíu og fimm fermetra sumarbústaði á kvöld- in og um helgar undir umsjón smiða félagsins á verkstæði þess. Þarna komu saman bensínafgreiðslumenn, smiðir, vélvirkjar, skrifstofumenn og flugafgreiðslumenn, sem kynntust utan hefðbundins vinnutíma í svita og striti, og úr varð, sem þá var næsta óþekkt, sterk liðsheild starfsmanna og ákaflega merkilegur bragur á fyr- irtæki. Þó sumarbústaðirnir hafi verið nefndir hér sem dæmi náði leiftrandi áhugi Vilhjálms á starfi Starfs- mannafélags Olíufélagsins til alls fé- lagsstarfsins og gilti einu hvað um var að ræða. Vilhjálmur stjórnaði Olíufélaginu með festu og engri meðalmennsku. Hann gat verið snöggur og fljótur til svara, ef því var að skipta. Hann var fljótur að átta sig á hlutunum og óhemjutalnaglöggur og snöggur til ákvarðana, orð Vilhjálms stóðu og þétt handtak hans var innisiglið. Vil- hjálmur var oft mjög skemmtilegur í svörum, stutt var í kímnina og fólk sem starfaði með honum man enn margar fleygar setningar. Vilhjálmur var raungóður hús- bóndi á umbrotatímum í lífi starfs- manna, þess minnast margir í hljóði með þakklæti. Fallinn er nú frá einstakur heið- ursmaður, sannarlega þrautseigur og viljasterkur, fulltrúi þeirrar kyn- slóðar sem mestan þátt hefur átt í að undirbyggja það þjóðfélag sem við búum í. Vilhjálmur Jónsson var dreng- skaparmaður og naut virðingar alls staðar og hlaut þau ummæli bæði frá samherjum sem mótherjum í hinum ýmsu málum. Starfsmannafélag Olíufélagsins þakkar hinum látna heiðursmanni velvilja og samferð á liðnum árum. Starfsmenn Olíufélagsins munu um ókomin ár njóta brautryðjendahug- sjóna Vilhjálms. Starfsmannafélag Olíufélagsins og starfsmenn þess votta fjölskyldu Vil- hjálms Jónssonar innilega samúð. Fyrir hönd Starfsmannafélagsins Jóhann P. Jónsson, Magnús Ásgeirsson. Það eru rétt tæp 50 ár síðan sá sem þessar línur ritar fór á fyrsta fund sinn með þáverandi lögmanni Sam- vinnutrygginga með sitt fyrsta alvar- lega uppgjör bifreiðatjóns til að ræða væntanlegar niðurstöður þess við lögmanninn og mikil var í fyrstu undrun tjónauppgjörsmannsins, þeg- ar í ljós kom að lögmaður trygging- arfélagsins reyndist í upphafi fundar vera flytjandi og túlkandi raka tjón- þolans, en ekki raka tryggingar- félagsins. Niðurstaðan í fundarlok var eftir nokkuð skörp skoðanaskipti okkar í millum sanngjörn og vel rökstudd ákvörðun, sem ég man vel að tjónþoli sætti sig alveg við, þótt honum hafi vafalaust fundist að sinn hlutur hefði mátt vera meiri. Þessi litli fundur var upphaf kunn- ingsskapar og síðar góðrar vináttu okkar Vilhjálms Jónssonar meðan báðir lifðu, en fundurinn lýsti á marg- an hátt mjög vel vinnubrögðum og vandvirkni Vilhjálms í störfum sín- um. Þar þurfti alltaf að sjá allar hliðar málsins, rökin með og ekkert síður á móti til að öðlast þá heildarsýn, er leiddi til grundaðrar, sanngjarnrar og ef kostur var endanlegrar niður- stöðu þess máls sem til umfjöllunar var hverju sinni. Hann Vilhjálmur var rökfastur og sanngjarn, en einnig bæði einarður og ef þörf var á harðskeyttur mála- fylgjumaður, en ætíð mannlegur og raungóður, sérstaklega þeim sem honum þóttu standa höllum fæti. Ýmsir mistóku sig á því að halda að þessi grannvaxni og oft fátalaði mað- ur væri næsta meðfærilegur og ekki viðnámsmikill, en fóru þar verulega villir vegar, því að þar fór maður með „stálfjöður í baki“ og mikinn vilja- styrk. Ég átti þess kost að eiga samstarf við Vilhjálm Jónsson á hinu fé- lagslega sviði, bæði meðan við enn áttum pólitíska samleið, sem og innan Reglu frímúrara til fjölda ára. Hann var alls staðar eftirsóttur til starfa, öflugur framkvæmdamaður, en jafnframt varfærinn og fyrir- hyggjusamur, mannasættir, þegar honum þótti þess við þurfa, maður yf- irgripsmikillar þekkingar á sviðum hins venjulega mannlífs og margvís- legra viðskipta auk sérþekkingar sinnar um lögfræðileg efni. Það var enginn einsamall eða fáliðaður, sem átti Vilhjálm Jónsson að samverka- manni eða fylgismanni, þess sá víða stað og mun enda lengi í minnum haft. Vilhjálmur Jónsson vann nær allan starfsævi sína á vegum félaga sam- vinnumanna. Honum trúði hreyfing- in fyrir forsjá í sumum sinna erfið- ustu mála og síðar varð Olíufélagið hf. undir hans stjórn eitt stærsta og umsvifamesta fyrirtæki landsins og meðan hans naut við alveg vandræða- laust. Ég vissi vel að þegar svo bar við í seinni tíma þrengingum ýmissa fé- laga samvinnuhreyfingarinnar að fyrir komu þau atvik að honum þótti ekki nægileg aðgát eða yfirvegun við- höfð gagnvart langreyndum starfs- mönnum, að hann tók til sinna ráða og leysti þau mál. Það var honum líkt og drengilega gert. Samvinnuhreyfingin sýndi Vil- hjálmi Jónssyni mikinn trúnað við margs konar stjórnun stofnana og fyrirtækja og Framsóknarflokkurinn treysti honum fyrir forsjár- og trún- aðarstörfum í fjölda ára og innan Frí- múrarareglunnar á Íslandi voru hon- um falin öll þau trúnaðarstörf, sem hann taldi sig hafa tíma til að sinna, en allt þetta leysti hann með þeim ágætum að til þess var og er oft tekið og tilvitnað. Vilhjálmur Jónsson barst ekki mikið á né flutti langar ræður á mannfundum, en þegar hann tók til máls hafði hann skoðun, átti tillögur og/eða ábendingar og það var alltaf á hann hlustað, þótt auðvitað eins og verða vill kunnu menn ekki alltaf að nýta sér gagnlegar tillögur. Ég veit að mörgum, sem lítt þekktu Vilhjálm fannst hann fálátur og ekki of aðgengilegur. Raunin var nú samt sú, að þar sem hann var, eins og ég þekkti hann, var hann glaðvær, launfyndinn og hlýlegur maður, að- gætinn, e.t.v. nokkuð dulur, en ráða- góður og ráðhollur. Vilhjálmur þekkti íslenskt mannlíf vel, hann var uppvaxinn í íslenskri sveit og hafði starfað við sjávarútveg til að afla sér námskostnaðar á sínum ungu árum og hann þekkti atvinnu- vegi landsins út í hörgul. Það þarf því engan að undra að svo gerhugull maður væri víða aufúsugestur til ráðslags og stjórnunar. Ég þykist vita að aðrir muni gera lögfræðistörfum Vilhjálms og öðrum áhugamálum hans skil, sem og fjöl- skylduhögum, en það er á þessum tímamótum gott að minnast sam- skipta við Vilhjálm og konu hans, Katrínu S. Egilsdóttur, á vegum þeirra stofnana og félagasamtaka, sem við áttum samleið um, enda voru þau hjón samhent um þægilegt við- mót, laust við mannamun, en ríkt af fágun og kurteisi. Vilhjálmur missti konu sína árið 2001 og varð síðan fyrir því áfalli á heilsu sína er nú hefur leitt hann til dauða, en hvoru tveggju áföllin bar hann af hugarró og skapfestu, sem honum var svo lagin. Ég veit að ég mæli fyrir munn fjöl- margra bræðra hans og félaga innan Reglu okkar, þegar ég þakka honum samveruna og samstarfið og alla hans framgöngu á þeim vegum. Fjölskyldu Vilhjálms flyt ég ein- lægar samúðarkveðjur og sjálfum honum þakka ég áratuga samskipti og vináttu og óska honum guðsbless- unar á þeim vegum sem við báðir trúðum að hann eigi nú leið um. Einar Birnir. Þegar undirritaður hafði lesið frétt og tilkynningu um lát Vilhjálms Jóns- sonar hvarflaði hugur minn strax mörg ár aftur í tímann og ég minnist hans sem góðs húsbónda og sam- starfsmanns. Fyrrverandi starfsmenn og eftir- launaþegar Olíufélagsins hf. hafa í nokkur ár komið saman og minnst gamalla og góðra daga. Fyrir hönd þeirra kem ég á framfæri besta þakk- læti fyrir það sem Vilhjálmur var okkur. Vil ég sérstaklega minnast á eftirfarandi. Þegar Starfsmannafélag Olíufé- lagsins hf., 1963, keypti land undir sumarbúðir og hóf stuttu síðar bygg- ingu sumarhúsa var það Vilhjálmur sem kom því til leiðar að við fengum ríflegan styrk til framkvæmda. Og alla sína forstjóratíð studdi hann og fyrirtækið mjög vel við allt það sem starfsmannafélagið tók sér fyrir hendur. Þá vil ég minnast á og þakka sér- staklega fyrir eftirlaunasjóð, sem Vil- hjálmur gekkst fyrir að stofnaður var, til að drýgja eftirlaun þeirra sem unnið höfðu í tíu ár eða lengur hjá Ol- íufélaginu hf. Já, það er margs að minnast og þakka fyrir. Fyrir hönd okkar fyrrverandi starfsmanna og maka okkar kem ég á framfæri bestu þökkum um leið og við heiðrum minningu Vilhjálms Jónssonar og færum ættingjum hans öllum innilegar samúðarkveðjur. Teitur Jensson. Elsku afi, þegar ég horfi um öxl vakna margar minningar um orku- mikinn og staðfastan mann sem bar hag og velferð fjölskyldunnar fyrir brjósti. Minningar um mann sem kenndi mér að nota fluguveiðistöng í einni af mörgum veiðiferðum sem hann tók mig með í. Strák sem stalst til að leggja sig með afa án þess að hann vissi af því. Ég undir sófanum, afi í sófanum. Mann sem ég horfði á með aðdáunaraugum er hann klæddi sig í skrúðann á fimmtudögum áður en hann fór á frímúrarafund. Mann sem hvatti okkur bræður áfram í námi. Minningar um afa og ömmu dansandi suður-ameríska dansa á skemmtistað í Barcelona. Minningar um mann sem ég gat síðar á ævinni rökrætt við um hagfræði og stjórn- mál og þegið ráð um rekstur fyrir- tækja. Manns sem ég gat alltaf leitað til. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Elsku afi, þakka þér fyrir allt sem við áttum saman. Arnar Sch. Thorsteinsson. Þær voru fjórar vin- konurnar, Haddý, Unna Dóra, Ninna og mamma (Gugga), sem héldu hópinn árum saman. Allar eru nú látnar, nú síðast Haddý sem skrifaði þó minningar- grein fyrir skömmu um Ninnu sem lést fyrir stuttu. Haddý var heimagangur á heimili foreldra minna þegar þau hófu bú- skap sinn í Stórholti 27 og bernskuár mín eru samofin henni og öllum vin- konunum. Þá var oft glatt á hjalla og vinskapurinn var þeim alltaf dýr- mætur hvort sem þær hittust í saumaklúbbnum eða annars staðar. Á unglingsárum mínum flutti fjöl- skyldan út á land og tengslin rofn- HALLDÓRA ELÍASDÓTTIR ✝ Halldóra Elías-dóttir fæddist á Ísafirði 6. júní 1927. Hún andaðist á Landspítalanum í Fossvogi 30. sept- ember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Háteigs- kirkju 7. október. uðu. Ég hefði getað verið duglegri að rækta sambandið eftir að ég flutti suður, en því miður er það svo að það fórst fyrir að mestu leyti þótt við fréttum alltaf af hvor annarri. Það er samt svo undarlegt þetta líf að nokkrum dögum áður en Haddý fór á sjúkra- hús fékk ég sterkt hugboð um að hafa samband við hana. Við áttum langt og gott samtal og höfð- um ákveðið að hittast þegar hún kæmi aftur heim. Það verður ekki. Fyrir mig var það líka undarleg til- viljun að Haddý skyldi kveðja þetta líf á afmælisdegi móður minnar sem hefði orðið 80 ára þann dag. Ég kveð elskulega konu sem ávallt sýndi mér mikla hlýju og vin- konurnar allar með virðingu og þökk. Aðstandendum sendi ég einlægar samúðarkveðjur. Hildigunnur Lóa Högnadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.