Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN SELTJARNARNES er þekkt fyrir barnvænt samfélag, ósnortna náttúru og rok – þó Seltirningar vilji nú lítið kannast við hið síðast- nefnda. Það er einmitt þetta sem laðaði okkur fjölskyld- una að Seltjarnarnesi þegar við fluttum frá útlöndum fyrir þremur árum. Seltjarnarnesið hefur staðið undir væntingum okkar að flestu leyti og börnum okkar fjórum hefur farnast afar vel hér. Möguleikarnir eru margir til íþrótta- og tónlistariðkunar og skólarnir góðir. Auk þess geta skólabörnin auðveldlega komið sér sjálf á milli og því þarf ekki að keyra á milli staða með börn í leigu- bílaleik. Það er ljóst að hér eru börnin í fyrirrúmi og fjölskyldum líður vel hér á Nesinu. Það voru því mikil vonbrigði í fyrra þegar bæjarstjórnin ákvað einhliða að sameina grunnskólana án nokkurs samráðs við skóla né foreldra. Margir foreldrar trúðu varla að satt væri því þetta var í al- gjörri andstöðu við hið barnvæna samfélag sem við erum svo stolt af hér á Nesinu. Rök fyrir sameiningu voru ósannfærandi og ekki var tillit tekið til mótmæla foreldra og skóla í þessu máli. Okkur foreldrum til mikillar ánægju tilkynnti bæjarstjórinn stuttu eftir sameiningu skólanna að haldið yrði skólaþing á Seltjarn- arnesi. Þar yrði lögð áhersla á að fá fram sjónarmið for- eldra og skóla um stefnu og framtíð skólastarfs á Seltjarn- arnesi. Það er því ljóst að bæjarstjórnin hefur ákveðið að breyta um stefnu og vill nú auka samráð við íbúa Sel- tjarnarness. Þessi stefnubreyting er mik- ið gleðiefni enda er það margsannað hve mikilvægt það er að leita álits íbúa við upp- byggingu góðs sam- félags. Þannig nást fram mismun- andi sjónarmið, stuðningur, upplýsingar og ekki síst hugmyndir sem geta gert góðar áætlanir enn betri. Útkoman verður betri ákvarðanir, betra samfélag og ánægðari íbúar. Nú hefur verið ákveðið að halda skólaþing í Valhúsaskóla miðviku- daginn 12. október kl. 17:15–21. Þar gefst öllum íbúum og starfsmönnum skólanna og íþróttastarfsins kostur á að taka virkan þátt í stefnumótun fyrir leikskóla, grunnskóla, tónlist- arskóla og íþróttastarf á Seltjarn- arnesi. Skólaþingið ber yfirskriftina „Íbúalýðræði og borgaravitund – lifandi þátttaka – leið til aukinna lífsgæða“. Nánari dagskrá er að finna á vefsíðu bæjarins, www.sel- tjarnarnes.is. Nú er því komið að okkur for- eldrum að segja hvað okkur finnst um skólamál á Seltjarnarnesi. Hvernig skóla viljum við? Hvernig viljum við sjá þróun leikskólanna, grunnskólans, tónlistarskólans og íþróttastarfsins? Möguleikarnir eru óþrjótandi og nú höfum við tæki- færi til að láta í ljós sjónarmið okk- ar í þessum málum, sem skipta börnin okkar svo miklu máli. Við höfum alla möguleika og burði til að þróa skólastarfið áfram og byggja upp framúrskarandi skólastarf. Foreldrar á Seltjarnarnesi – fjöl- mennum öll á skólaþingið og tökum þátt í að móta framtíð barnanna okkar! Seltirningar – hvernig skóla viljum við? Birna Helgadóttir skrifar um skólaþing á Seltjarnarnesi ’Nú er því komið aðokkur foreldrum að segja hvað okkur finnst um skólamál á Seltjarn- arnesi.‘ Birna Helgadóttir Höfundur er líffræðingur og móðir fjögurra barna á Seltjarnarnesi. HÉR Á landi þykir það sjálfsagt mál að öll börn í grunnskóla fari út í frímínútur og er ætlast til þess að þar fái þau þá hreyfingu sem þeim er nauðsynleg. Þetta er af hinu góða og ég vona að þessi siður muni haldast um ókomna tíð. Offita er vaxandi vandamál meðal barna og ung- linga á Íslandi og nálgumst við hratt Ameríku hvað það varðar og því er brýnt að spyrna við fótum. Hvetjandi leik- skólalóðir Á leikskólum fara börnin út á hverjum degi og leika sér við öruggar aðstæður, þar er nóg við að vera og mikið af hvetjandi leiktækjum. Þar er passað upp á að allir séu með og skipst á leiktækjum svo að allir sem vilja komist að. Sums staðar er það jafnvel svo að börnin eru sjaldnast öll úti í einu svo þau hafi sem mest pláss og sem mest við að vera. Þegar börnin koma síðan í grunnskóla er hlutunum öðruvísi varið. Í flestum grunnskólum fara allir nemendur út á sama tíma og allt í einu eru yngstu börnin, sem eru nýhætt á leikskólanum, úti á skólalóðinni ásamt jafnvel mörg hundruð öðrum börnum. Til eft- irlits eru kannski nokkrir full- orðnir, en það er misjafnt eftir skólum hversu margir það eru, enda skólalóðirnar misjafnar og yf- irsýn yfir leiksvæðið misgott. Ef einhver leiktæki eru, er allt eins víst að þau séu upptekin og ekki komast yngstu börnin á boltavell- ina nema þá í fylgd fullorðinna, því- lík er ásóknin í þá. Það er auðvelt að sjá fyrir sér að mörg barnanna standi einfaldlega afskipt einhvers staðar og láti lítið fara fyrir sér í skarkalanum og bíði þess að frí- mínúturnar líði svo þau geti komist inn í öruggt skjól. Mik- ilvægt er að allir nem- endur fái hreyfingu í frímínútunum, þau hreyfa sig lítið í skóla- starfinu nema í leik- fimi einu sinni til tvisv- ar í viku sem er alls ekki nóg. Betri skólalóðir Skólalóðirnar við marga af grunnskólum borgarinnar eru okkur til skammar. Það hefur verið byggt við marga skóla, en skólalóðirnar hafa algerlega setið á hakanum. Börnin okk- ar leika sér utandyra í frímínútum við oft á tíðum ömurlegar aðstæður. Skóla- lóðirnar þurfa að vera öruggar og hvetjandi svo börnin geti leikið sér í hinum ýmsu hreyfileikjum. Það er ótrúlegt að hér skuli, árið 2005, enn vera skólalóðir þar sem eru nánast engin leiktæki, götótt mörk og bil- aðar körfur. Það er engin nauðsyn að leika við börnin en það getur verið nauðsynlegt að kenna þeim leiki sem henta vel á skólalóðunum og við eigum að passa uppá það að allir séu með. Ég held að með því að huga betur að hreyfingu grunn- skólabarna í skólunum getum við komið í veg fyrir heilsufarsleg vandamál margra þeirra seinna meir á lífleiðinni. „Heilbrigð sál í hraustum líkama“ Jórunn Frímannsdóttir fjallar um hreyfingu barna Jórunn Frímannsdóttir ’Skólalóðirnarþurfa að vera öruggar og hvetjandi…‘ Höfundur er varaborgarfulltrúi og hjúkrunarfræðingur. TÓNLISTARFÓLK er tilfinn- ingaríkar manneskjur, það liggur í augum uppi. Þess vegna er það fljótt að rjúka upp og verða reitt og ekkert við því að segja. Ég var í hópi þeirra sem kom sam- tökum um byggingu tónlistarhúss af stað fyrir tæpum ald- arfjórðungi og veitti þeim samtökum for- stöðu í tæp tíu ár. All- an þann tíma var ver- ið að deila um salarstærð, óperu og staðsetningu. Nú þegar þessi frá- bæra tillaga hefur séð dagsins ljós og menn eru meira að segja farnir að vona að hún verði að veruleika er enn verið að agnúast. Nú vantar bráðnauð- synlega lítinn sal fyrir þá sem ekki trekkja og svo náttúrlega eru mál óperunnar óleyst. Ekki ætla ég að blanda mér í deilur um salarstærð en ég vil leyfa mér að láta það álit í ljós að tónlist- arhús af þessari stærðargráðu og af þessum listræna metnaði mun stór- auka aðsókn að tónleikum þegar það verður tekið til starfa. Fróðlegt væri svo sem að bera saman heildaraðsókn að tónleikum síðasta ár og t.d. 1983 þegar við stofnuðum SBTH. Ætli framboð tónleika hafi ekki a.m.k. þrefaldast og aðsókn aukist enn meir á aðeins tuttugu ára bili. Það má ekki gleyma því að tónlistarhús er ekki byggt til nokkurra ára eða áratuga. Það mun standa um næstu aldir og bera menningarstigi okkar í byrjun tutt- ugustu og fyrstu aldar vitni. Óperan er ekki sam- býliskona eins né neins. Það olli mér ómældum erfiðleikum hve fast ákveðnir vinir mínir sóttu það að troða óperunni inn í fyrirhugað tónlistarhús hér á árum áður þegar ég var að basla við að koma þessu saman. Nú þegar hillir undir að Tónlistarhús verði að raunveruleika byggjum við auðvitað Óperuhús í Kópavogi eins og að drekka vatn. Við erum á fáum árum orðin svo rík þjóð að það sem fyrir tveimur áratugum þótti óhugsandi þ.e. að unnt yrði að byggja tvö hús, eitt yfir óperu og annað fyrir annars konar tónlistarflutning, er nú orðið smámál. Ég vil leyfa mér að óska okkur öllum innilega til hamingju með framkomnar og samþykktar til- lögur um Tónlistarhús. Það er þjóð- inni til sóma. Nýtt tónlistarhús – sjónarmið Ármann Örn Ármannsson fjallar um byggingu tón- listarhúss Ármann Örn Ármannsson ’…tónlistarhúsaf þessari stærð- argráðu og af þessum listræna metnaði mun stórauka aðsókn að tónleikum…‘ Höfundur er viðskiptafræðingur og var formaður SBTH frá 1983–1991. EINS og komið hefur fram í fjöl- miðlum er Slippstöðin orðin gjald- þrota. Slippstöðin hefur verið einn stærsti vinnuveitandi á Akureyri síðan frá stofnun fyrirtækisins. Komið hefur fram að um 120 manns missa atvinnu sína og Hafnarsjóður Akureyrar missir leigutekjur að upphæð sem milljónum skiptir. Fyrir utan birgja og aðra verktaka sem hljóta að verða einnig fyrir stórkostlegum skaða. Slippstöðin hef- ur verið í augum fólks stórfyrirtæki sem óhætt var að stóla á. Fyrir 120 manns sem eiga inni laun upp á 20 milljónir hlýtur það að skjóta skökku við þeg- ar aðstæður fyrirtæk- isins eru skoðaðar. 120 manns eiga að sætta sig við að fá launin úr ábyrgðarsjóði launa sem borgar bara föstu launin, enga yfirvinnu. Allt frá stofnun Slippstöðvarinnar 1953 til 1967 var hagnaður af rekstri hennar undir fram- kvæmdastjórn þáverandi eigenda. Eigendur voru starfsmenn stöðv- arinnar og ÚA og fleiri. Gengisfell- ingar og aðrar stjórnvaldsaðgerðir léku fyrirtækið illa þegar fyrirtækið tók að sér nýsmíði Heklu og Esj- unnar. Um 1970 taka síðan nýir stjórnendur við rekstrinum og ríkið kemur inn ásamt Akureyrar- kaupstað að rekstrinum. Síðan hef- ur stöðin verið meira og minna að tapa og græða. Öll nýsmíði hefur ekki gengið þrautalaust fyrir sig þar þar sem samkeppnisaðstaða fyrirtækisins hefur verið slæm bor- ið saman við niðurgreiddan skipa- iðnað erlendis frá. Og undanfarin ár eftir miklar endurskipulagningar á rekstri hefur fyrirtækið verið í eigu núverandi forráðamanna. Það er at- hyglisvert við núverandi stöðu að fyrirtækið er gjörsamlega orðið eignalaust. Allar byggingar á lóð Slippstöðvarinnar eru í eigu Stál- taks úr Reykjavík. Stáltak er eign- arhaldsfélag í eigu Stálsmiðjunnar í Reykjavík. Skipalyftubúnaður Slippstöðvarinnar er í eigu Hafn- arsjóðs Akureyrarkaupstaðar. Sem sagt á 30 árum hefur stjórnendum Slippstöðvarinnar tekist að gera fyrirtækið eignalaust með öllu. Það leigir af eigendum sínum Stáltaki eignirnar á lóðinni. Það er ekki skrýtið að viðskiptabanki fyrirtæk- isins stöðvi rekstur fyrirtækisins. Það er alveg deginum ljósara að Slippstöðin hefur verið fyrirmynd fyrir íslenskan skipaiðnað og þá verkkunnáttu sem þörf er á að hafa hér í land- inu á meðan útgerð er stunduð. Spjall iðnaðarráð- herra og formanns iðnaðarnefndar Valgerður Sverr- isdóttir iðnaðarráð- herra var gestur Kast- ljóssins hér um daginn. Þar var hún spurð um gjaldþrot Slippstöðvarinnar meðal annars. Ekki stóð á svari hennar frekar en fyrri daginn. Slippstöðin verður end- urreist. Og ekki batnaði það þegar Birkir Jónsson, nýstirnið úr Siglu- firði og formaður iðnaðarnefndar, tjáði sig við Rúv á Akureyri. Fyr- irtækið verður endurreist. Nú lang- ar mig að spyrja ofangreinda stjórnmálamenn hvernig þeir sjái þetta gerast? Nýir rekstraraðilar yrðu nefnilega að semja um leigu á allri aðstöðu við núverandi eigendur sem er ekki þrotabú Slippstöðv- arinnar. Er ætlun Valgerðar og Birkis að láta ríkissjóð koma að málinu? Birkir lætur þess getið að hækka t.d. endurgreiðslu aðflutn- ingsgjalda. Ég held að svona pólítísk um- ræða og innantóm loforð gangi ekki lengur. Slippstöðin er einkafyr- irtæki í eigu einkaaðila en ekki rík- istryggt atvinnubótafyrirtæki. Það er eðli viðskipta að græða eða tapa. Það er ekki eðlilegt að mínu mati að fulltrúar Alþingis taki sig upp og gerist boðberar ríkisforsjónar á sama tíma og ríkissjóður er nýbúin að selja eitthvert stærsta gróðafyr- irtæki sitt Símann. Það var einnig athyglisvert í spjalli Valgerðar að heyra að sökum þess að svo mikil útgerð væri stunduð á svæðinu væri nauðsynlegt að hafa Slippstöðinna. Það væri nú í lagi fyrir ráðherrann að kynna sér að útgerðaraðilar á svæðinu þ.e. þeir stærstu láta ekki mála skip öðruvísi en um tilboð sé um að ræða. Oftast hafa þeir látið skip sín sigla utan þar sem þeir hafa fengið mun lægra verð en hér á landi og um leið ódýrari olíu sök- um samráðs okkar olíufélaga. Tím- arnir eru breyttir og þeir sem til þekkja í útgerð vita að ef þeir sjá skip frá útgerðum á Akureyri í Slippstöðinni vita þeir um leið að arðsemi er ekki mikil af því verk- efni. Öldin var önnur í gamla daga þegar ÚA var einn af eigendum og forráðamenn ÚA lögðu metnað sinn í að láta skip sín líta vel út. Enda í raun eigandi að styrkja sitt fyr- irtæki þar sem ÚA var Bæjar- útgerð Akureyrarkaupstaður. Það er ljóst að það hefur ekki gefið góða raun fyrir ríkissjóð að koma að rekstri iðnaðar í landinu. Við höfum mörg dæmi þar sem opinbert fé okkar landsmanna hefur verið mis- notað. Mér finnst þess vegna skjóta skökku við þegar fulltrúar Fram- sóknarflokksins ætla sér með ábyrgðarlausu spjalli að blekkja kjósendur sína með jafnómerkileg- um hætti og raun ber vitni. Það er oft betra að hugsa fyrst, kynna sér málin og komast svo að niðurstöðu. Það er almannaheill. Akureyringar eiga það skilið að fulltrúar á Alþingi séu raunsæir og hafi hag kjördæmis síns að leiðarljósi til lengri tíma lit- ið. Áhugavert væri nú að vita hvers vegna iðnaðarráðherra greip ekki inn í málefni Slippstöðvarinnar fyrr en eftir gjaldþrot. Gleymdist Slipp- stöðin? Slippstöðin á Akureyri Haukur Þorvaldsson fjallar um Slippstöðina á Akureyri ’Áhugavert væri nú aðvita hvers vegna iðn- aðarráðherra greip ekki inn í málefni Slippstöðv- arinnar fyrr en eftir gjaldþrot.‘ Haukur Þorvaldsson Höfundur er sölumaður og áhuga- maður um minnkandi ríkisafskipti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.