Morgunblaðið - 10.10.2005, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 10.10.2005, Qupperneq 20
20 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN GEÐRÆKTARKASSINN ætti að vera til á hverju heimili rétt eins og sjúkrakassi. Innihald kassans er einstaklingsbundið. Í kassann á að leita þegar neikvæðar hugsanir skjóta upp kollinum. Geðræktarkassinn notast líkt og sjúkra- kassinn, við minni- háttar áföll, rifrildi eða skammir. Hann má líka nota ef við er- um undir álagi, leiðist, erum einmana eða vantar stuðning. Til þess að gefa hugmynd að innihaldi slíks kassa má nefna góða bók, tónlistardisk sem hefur jákvæð áhrif, ástarbréf, mynd- bandsspólu sem fær okkur til að hlæja, símanúmer hjá vini eða ættingja sem gott er að tala við, ljóð, myndir sem vekja upp jákvæðar minningar eða blað og blýant til að skrifa okkur frá neikvæðum hugs- unum. Að ná tökum á eigin hugsun er eitt af markmiðum geðrækt- arinnar. Að þjálfa upp hugsun má líkja við líkamsrækt. Ef þú hreyfir þig lítið og notar ekki vöðvana þá rýrna þeir smám sam- an, úthald og þrek dvína og að endingu treystir þú þér varla að fara úr rúminu. Það sama á við hugsun. Við getum yfirfært hreyfingarleysi á neikvæðar hugsanir. Dæmi um at- riði sem hafa áhrif á hugsun eru áföll, sorg, einelti og líkamleg eða andleg samskipti þar sem farið er yfir persónuleg mörk. Neikvæðar hugsanir í langan tíma brjóta niður sjálfstraustið sem síðan hefur áhrif á geðheilsuna. Því er upplagt að byrja á því að aðstoða ungviðið eða hvern þann sem okkur þykir vænt um við að útbúa sinn eigin geðrækt- arkassa. Ræða svo það sem hefur áhrif á hugsun, viðbrögð við nei- kvæðum hugsunum og hvernig við getum skipt þeim út fyrir jákvæðar. Hugmyndin að geðræktarkassanum kom upp í tengslum við for- varnaverkefnið Geðrækt sem Lýð- heilsustöðin hýsir nú. En hvernig fæðist slík hugmynd? Í barnæsku var mér sagt frá fjöl- skyldu sem lenti í hremmingum. Þetta var um 1900, fjölskyldan bjó í litlu húsi við sjóinn og pabbinn dró að fisk í soðið. Börnin voru tíu. Langt fyrir aldur fram deyr pabb- inn svo mamman stendur ein uppi með tíu börn. Hún gat engan veginn alið önn fyrir þessum stóra barna- hópi svo hún varð að láta frá sér átta elstu börnin. Í þá daga voru engir sjóðir né sameiginlegar trygg- ingar til að leita í svo hún var upp á góðsemi nærsveitarmanna komin. Sorgin við föðurmissinn var sann- arlega næg en börnin misstu líka móður sína og hvert annað. Þau tvístruðust milli bóndabæja. Móð- irin þurfti því að finna ráð til að hjálpa börnunum að halda voninni og útbjó lítið skrín handa hverju þeirra. Í það setti hún hluti sem voru þeim kærir og efnisbút úr flík sem hún notaði mikið. Þeg- ar hún kvaddi þau í túnfætinum sagði hún eitthvað á þessa leið: Í hvert skipti sem ykkur líður illa og saknið okk- ar skulið þið fara út undir fjósvegg eða eitt- hvert sem þið getið verið ein og ótrufluð. Þar takið þið hlutina upp úr skríninu til að minna ykkur á góðu stundirnar sem við höf- um átt þegar við vorum öll saman. Skrínið á að einnig að minna ykkur á að ég mun koma aftur og sækja ykkur. Það liðu mörg ár áður en fjölskyldan sameinaðist á ný, en það tókst. Ég tengdist þessari fjölskyldu í gegnum pabba minn. Fjöl- skyldan tók hann að sér vegna þess að amma mín varð að láta hann frá sér. Ég fékk að heyra mismunandi sögur um gildi kassans og hvernig hann hjálp- aði þeim að halda von- inni um betri tíð. Öll systkinin urðu dugn- aðarforkar, héldu góð- um tengslum hvert við annað á full- orðinsárum, lifðu við góða heilsu og urðu háöldruð. Geðorðin tíu eru orð sem minna þig á hvað þú getur gert á hverjum degi til að efla geðheilsuna. Það hentar vel þeim sem eiga auðvelt með að sjá fyrir sér orð og tengja við lífið. Kassann getur þú aftur á móti handleikið, snert og í hann get- ur þú sett ýmsa hluti sem höfða til mismunandi skynfæra. Efnisklútur móðurinnar var t.d. mikilvægur því þau gátu séð hann, lyktað af honum og snert og náð þannig betri teng- ingu við minninguna um móður sína. Íslendingar hafa komið sér upp sjóðum til að fyrirbyggja að fólk lendi í slíkum hremmingum. Við höfum sannarlega komist langt mið- að við upphaf 20. aldar og megum aldrei gleyma hvað tryggingakerfi okkar er dýrmætt þótt það sé langt frá því að vera gallalaust. Sam- trygging má þó aldrei verða þannig að við missum hugvitið og sjálfs- bjargargetuna því það að vera skap- andi og hafa áhrif, eflir getu okkar til að rækta geðheilsuna. Í tilviki móðurinnar sem útbjó skrínin fyrir börn sín hjálpaði það ferli henni jafnframt að sinna eigin geðheilsu. Geðræktarkassinn ætti að minna okkur á að sjálf getum við gert ým- islegt án tilkostnaðar. Hann á að minna okkur á að tíminn sem við nýtum til samveru eflir tengsl manna á milli. Því vil ég benda á að gildi kassans verður miklu meira ef þið gefið ykkur tíma með þeim sem á að njóta hans. Getur nútímamann- eskjan snúið til baka, gefið hluti sem kosta ekkert og varið meiri tíma með þeim sem eru henni kær- ir? Lýðheilsustöðin ætlar að mark- aðssetja geðræktarkassann sem jólagjöfina í ár, svo það er tímabært að hver og einn geri upp hug sinn um það hver fær geðræktarkassann frá þér næstu jól. Geðræktar- kassinn Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar í tilefni af Alþjóðlegum geðheilbrigðisdegi Elín Ebba Ásmundsdóttir ’Geðræktar-kassinn ætti að minna okkur á að sjálf getum við gert ým- islegt án til- kostnaðar. Hann á að minna okkur á að tíminn sem við nýtum til samveru eflir tengsl manna á milli.‘ Höfundur er forstöðuiðjuþjálfi geðsviðs LSH og lektor við HA. Jónína Benediktsdóttir: Sem dæmi um kaldrifjaðan sið- blindan mann fyrri tíma má nefna Rockefeller sem Hare telur einn spilltasta mógúl spilltustu tíma… Sturla Kristjánsson: Bráðger börn í búrum eða á afgirtu svæði munu naumast sýna getu sína í verki; þeim er það fyr- irmunað og þau munu trúlega aldrei ná þeim greindarþroska sem líffræðileg hönnun þeirra gaf fyrirheit um. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar FULLTRÚARÁÐ og landsþing sambandsins samþykktu með víð- tækum stuðningi á árinu 2002 að sambandið skyldi vinna að stækkun og eflingu sveitarfélag- anna með frjálsri sam- einingu sveitarfélaga á yfirstandandi kjör- tímabili sveitarstjórna. Forsvarsmönnum sambandsins var gert að fylgja þeirri sam- þykkt eftir og því var hrint af stað sam- starfsverkefni rík- isstjórnarinnar og sambandsins um efl- ingu sveitarstjórn- arstigsins. Tillögugerð sameiningarnefndar um sameiningu sveitarfélaga var einn afrakstur þess verkefnis og nú liggur fyrir að einungis ein af 16 til- lögum nefndarinnar var samþykkt sl. laugardag og á tveimur svæðum verður atkvæðagreiðslan end- urtekin. Eflaust veldur niðurstaðan ýms- um sveitarstjórnarmönnum von- brigðum en öðrum ekki og liggja til þess ýmsar ástæður. Lítil kosn- ingaþátttaka og áhugaleysi íbúanna í stærri sveitarfélögunum um sveit- arfélagaskipanina í landinu veldur sveitarstjórnamönnum þó almennt vonbrigðum. Tillögur sameining- arnefndar voru settar fram eftir ít- arlega yfirvegun að undangengnum viðræðum við sveitarstjórnarmenn hlutaðeigandi sveitarfélaga. Eftir að þær komu fram var ljóst að sveit- arstjórnarmenn höfðu á þeim skipt- ar skoðanir. Einstaka sveitarstjórnir mæltu í heild sinni með samþykkt þeirra en aðrar í móti. Þar með er ekki sagt að sveitarstjórnarmenn al- mennt séu ekki samþykkir því að sveitarfélögin verði stækkuð og efld með sameiningu eins og þeir hafa ályktað um á vettvangi sambands- ins. Íbúarnir hafa nú með lýðræðislegum hætti lýst vilja sínum og í mörgum sveit- arfélögum hefur meiri- hluti þeirra komist að þeirri niðurstöðu að sameining þeirra sveit- arfélags við annað eða önnur sveitarfélög í samræmi við samein- ingartillöguna væri ekki til hagsbóta fyrir þeirra sveitarfélag. Slík sameining styrkti ekki stjórnsýslu þess né möguleika þess til að veita íbúun- um þjónustu miðað við núverandi hlutverk og skyldur sveitarfélag- anna. Ýmsar aðrar ástæður kunna einnig að liggja að baki svo sem óánægja með tillöguna, sem þeir hefðu viljað hafa öðruvísi og ótti þeirra sem búa á jaðarsvæðum um að verða afskiptir í stærra sveitarfé- lagi. Hliðstætt árinu 1993 Niðurstaða þessarar víðtæku at- kvæðagreiðslu er lík hliðstæðri at- kvæðagreiðslu á árinu 1993 en þá eins og nú var einungis ein tillaga sameiningarnefndarinnar sam- þykkt. Í kjölfar þess hélt sameining- arumræðan áfram heima í héraði og leiddi í framhaldinu til þess að fjöldi sveitarfélaga sameinaðist á eigin forsendum og sveitarfélögunum fækkaði um rúman helming. Stærri og meðalstór sveitarfélög hafa ríkan vilja til að taka við fleiri verkefnum frá ríkinu að því tilskildu að tryggir tekjustofnar fylgi og sá vilji er á ýmsum sviðum gagn- kvæmur af þess hálfu. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar nú breytir engu þar um og umræða um verk- efni og skyldur sveitarfélaganna, breytt verkaskipti ríkis og sveitarfé- laga og tekjustofna sveitarfélaga verður áfram viðvarandi. Með sama hætti verður framhaldið þeirri miklu umræðu sem fram hefur farið í tengslum við sameiningarátakið, um stöðu sveitarfélaganna, staðarmörk þeirra og samvinnu, verkefni, ábyrgð og skyldur. Áfram verða þau mál rædd bæði heima í héraði og einnig á vettvangi sambandsins. Þeim fjölmörgu sveitarstjórn- armönnum sem unnu að framsetn- ingu kynningu og umfjöllun um til- lögur sameiningarnefndar eru hér með færðar bestu þakkir fyrir þá gríðarlegu vinnu sem þeir hafa á sig lagt, svo og félagsmálaráðherra, verkefnisstjóra, starfsmönnum fé- lagsmálaráðuneytisins og alþing- ismönnum í verkefnisstjórn og sam- einingarnefnd. Að afloknum sameiningarkosningum Þórður Skúlason skrifar um útkomu úr kosningu um sameiningu sveitarfélaga ’… nú liggur fyrir aðeinungis ein af 16 til- lögum nefndarinnar var samþykkt sl. laugardag og á tveimur svæðum verður atkvæðagreiðsl- an endurtekin.‘ Þórður Skúlason Höfundur er framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga. NOKKRAR umræður hafa spunnist út af því framtaki Lands- virkjunar að leggja fram verkefni um orku og orkumál fyrir grunn- skólana og efna til samkeppni meðal grunnskólanema þar sem verðlaun- in eru þátttaka í að leggja hornstein að Kárahnjúkavirkjun næsta vor. Ástæða er til að kynna almenn- ingi verkefnin. Landsvirkjun hefur beðið Yrsu Sigurð- ardóttur verðlaunaðan barnabókarithöfund og verkfræðing við Kára- hnjúkavirkjun að skrifa myndræna sögu fyrir 1. til 4. bekk grunnskólans sem lýs- ir því hvað rafmagn er. Yngstu nemendum grunnskólans verður boðið að myndskreyta þá sögu. Nemendum í 5. til 7. bekk verður boðið að fjalla um raforkuvinnslu þar sem einhverjir eftirfarandi þátta skulu teknir fyrir:  Hvaðan kemur raforka, hvernig er hún framleidd?  Hvaða hlutverki gegnir raf- orkuframleiðslan?  Hvernig væri Ísland án raf- magns?  Hvað getur komið í stað raforku? Nemendum í 8. til 10. bekk verður boðið að gera kynningu um Kára- hnjúkavirkjun þar sem einhverjir eftirfarandi þátta skulu teknir fyrir:  Lýsing á helstu mannvirkjum og raforkuframleiðslunni.  Stærðir og magntölur virkjunar- innar sem og framleiðsla hennar settar í samhengi daglegs lífs.  Umfjöllun um umhverfismál og umhverfisáhrif virkjunarinnar.  Umfjöllun um samfélagsumræð- una varðandi virkjunina. Vonast er til að verkefnin geti nýst við kennslu í sem flestum námsgreinum, en þau eru enn í mót- un í samráði við skólafólk sem sinnt hefur fræðslu um orkumál. Verk- efnin eru höfð sem opnust til þess að kennarar geti nýtt þau eins og þeir telja að komi nemendum best. Þeir sem aðstoða Landsvirkjun við þetta verkefni eru Þóranna Rósa Ólafs- dóttir, deildarstjóri við Norðlingaskóla og vef- stjóri Orkuvefjarins, Meyvant Þórólfsson, lektor við Kennarahá- skóla Íslands, og Ari Ólafsson, dósent við Háskóla Íslands. Með í ráðum eru einnig ein- staklingar sem unnið hafa með þeim, m.a. í samstarfshópi um efl- ingu náttúruvísinda í skólum og að svo- nefndu Nordlab- verkefni. Forseti Íslands hefur lagt horn- stein að öllum virkjunum sem Landsvirkjun hefur byggt, þetta á við um þau Ásgeir Ásgeirsson, Kristján Eldjárn, Vigdísi Finn- bogadóttur og Ólaf Ragnar Gríms- son. Við munum að þessu sinni gefa börnum sem standa sig vel við að leysa verkefnin kost á að taka þátt í slíkri athöfn. Landsvirkjun kannaði það hjá Skrifstofu menntamála í Mennta- málaráðuneytinu og hjá skólafull- trúa Sambands íslenskra sveitarfé- laga hvort sækja þyrfti um leyfi fyrir framtak af þessu tagi en svo er ekki og tóku þeir frumkvæði Lands- virkjunar vel. Skólastjórnendum um land allt var í framhaldinu sent kynningarbréf um áformin. Þeir ásamt kennurum ákveða hvort þeir nýta sér verkefni Landsvirkjunar til fræðslu um orku og orkumál á grundvelli aðalnámskrár grunn- skóla. Framtak Landsvirkjunar hefur gefið tilefni til umhugsunar og skoð- anaskipta um samspil atvinnulífs og skóla. Umræðan stuðlar að því að skólayfirvöld móti starfsreglur um samskipti þessara aðila. Mikilvægt er að treysta skólastjórnendum og kennurum til að meta það sem berst að þeim utanað og ákveða í sam- starfi við heimilin hvað af því er þegið. Frumkvæði fjölda fyrirtækja sem og skólamanna um samvinnu á sviði fræðslumála hefur aukist á und- anförnum árum og mætt mikilli vel- vild skóla, atvinnulífs og heimila. Glæsileg dæmi um slíkt má sjá hjá t.d. mjólkurframleiðendum og hjá Marel sem á í margþættri samvinnu við Garðabæ um uppbyggingu raun- greinakennslu og kostar nýsköp- unarsamkeppni meðal grunn- skólanema landsins. Á undanförnum árum hefur Landsvirkjun tekið skólafólki vel sem hefur leitað til fyrirtækisins um samvinnu og þeir sem hug hafa á geta kynnt sér af- rakstur af því starfi, t.d. á orkuvef Nordlab-hópsins og fræðsluvef Landsvirkjunar, sjá www.lv.is og tengla þar. Samstarf atvinnulífs og skóla Þorsteinn Hilmarsson fjallar um fræðsluverkefni á vegum Landsvirkjunar fyrir grunn- skólabörn ’Vonast er til að verk-efnin geti nýst við kennslu í sem flestum námsgreinum, en þau eru enn í mótun í sam- ráði við skólafólk sem sinnt hefur fræðslu um orkumál.‘ Þorsteinn Hilmarsson Höfundur er upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.