Morgunblaðið - 10.10.2005, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 10.10.2005, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 33 MINNINGAR ✝ Reynir Ríkarðs-son fæddist í Reykjavík 9. nóvem- ber 1942. Hann lést á Líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 30. september síð- astliðinn. Foreldrar hans eru Ríkarður Long Ingibergsson húsasmíðameistari í Reykjavík, f. í Reykjavík 5. ágúst 1912, og Guðríður Árný Sigmunds- dóttir, f. í Norðfirði 21. nóvember 1909, d. í Reykjavík 7. mars 1993. Bróðir Reynis er Al- bert, f. 29. október 1944, maki Elín Vigfúsdóttir, f. 20. mars 1952, son- ur þeirra Vigfús Bjarni prestur í Reykjavík, f. 10. febrúar 1975. Reynir kvæntist Dagnýju Þórð- ardóttur húsfreyju, f. á Stokkseyri 10. mars 1945, d. í Reykjavík 12. mars 1982. Foreldrar hennar eru hjónin Þórður Ólafsson, sjómaður og verkamaður í Grindavík, síðar í Reykjavík, f. 24. maí 1906, d. 18. maí 1975, og Sigrún Guðmunds- dóttir húsfreyja, f. 23. janúar 1915. Fósturfaðir Dagnýjar var Jón Bjarnason, póstmaður í Reykjavík, f. 4. september 1911. Börn Reynis og Dagnýjar eru: 1) Ríkarður tré- smiður, f. 22. ágúst 1966, sambýlis- kona Berglind Þorbergsdóttir leiðbeinandi, f. 25. mars 1970. 2) Sigrún nemi í KHÍ, f. 1. mars 1968, maki Gunnar Hrafn Jónsson tæknifræðingur, f. 2. ágúst 1968, börn þeirra eru Dag- rún Sara, f. 1. mars 1998, Kristófer Ar- on, f. 25. september 2001, og Alexander Elís, f. 27. janúar 2003. 3) Árný, f. 16. desember 1972, dótt- ir hennar er Tara Líf Franksdóttir, f. 27. desember 2002. Reynir kvæntist 16. júní 1984 Jó- hönnu Finnborgu Magnúsdóttur sjúkraliða, f. í Reykjavík 6. mars 1957. Þau skildu 1995. Foreldrar hennar eru hjónin Magnús Finnbogason verkamaður í Reykjavík, f. 5. októ- ber 1926, og Sesselja Sigríður Jó- hannsdóttir húsfreyja, f. 27. júlí 1929. Dætur Reynis og Jóhönnu eru: 1) Stefanía, f. 8. nóvember 1983, sambýlismaður Pétur Ingi- berg Smárason, f. 30. janúar 1976, börn þeirra eru Katrín Tinna Pét- ursdóttir, f. 12. júní 2003 og Máni Freyr Pétursson, f. 17. júní 2005. 2) Inga Rós, f. 12. maí 1988. Sambýliskona Reynis er Hall- dóra Einarsdóttir sjúkraliði, f. 14. september 1957. 5ynir hennar eru Kjartan Kjartansson, f. 4. desem- ber 1979, Stefán Kjartansson, f. 26. september 1983, og Einar Tryggvi Kjartansson, f. 27 nóvem- ber 1991. Reynir verður jarðsunginn frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elskan mín. Aldan hnígi til að mæta þér, vindurinn sé í bak þér, sólin vermi andlit þitt, regnið falli milt að jörðu. Og allt til þess að við sjáumst á ný, varðveiti þig Guð í örmum sínum. Amen. (Írsk blessun.) Þín Halldóra. Mig langar að minnast með nokkr- um orðum föður míns, sem lést úr ill- vígum sjúkdómi langt fyrir aldur fram. Þú gafst aldrei upp og barðist hetjulega við sjúkdóminn sem hafði þó að lokum betur. Þegar ég hringdi til þín eða kom vildirðu aldrei að ég eða aðrir hefðum áhyggjur af þér. Þannig maður varst þú, sterkur, sjálfstæður og umhyggjusamur. Ég minnist allra útileganna sem við fjölskyldan fórum í þegar mamma var á lífi, eins minnist ég kappsemi og vinnusemi, því duglegri maður til vinnu var vandfundinn. Lífið var þér ekki alltaf dans á rós- um, en þú horfðir alltaf fram á við og dvaldir ekki við það sem liðið var. En það er með trega og söknuði sem ég kveð þig, pabbi minn, og ég veit að þér líður betur núna, þinn son- ur Ríkarður Reynisson. Ég aldrei hef lofað að brautin sé bein, né blómstígar gullskrýddir alla leið heim. Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar, á göngu til himinsins helgu borgar. En eg hefi lofað þér aðstoð og styrk, og alltaf þér birtu þó leiðin sé myrk. Mitt ljúfasta barn ég lofað þér hef, að leiða þig sjálfur hvert einasta skref. (Staðf. Hjálmar Jónsson.) Nú ert þú farinn og kveð ég þig hér, með þessum orðum til þín. Ég veit að sjúkdómurinn þurfti að berjast af öllu afli til að vinna þig, þar sem að þú varst alltaf svo sterkur og hraustur. En mikið var gott að geta verið hjá þér þegar að þú kvaddir þennan heim. Það var eins og þú værir að bíða eftir því að við öll værum inni hjá þér svo þú gætir farið. Trú mín á eitt- hvað annað líf varð sterkari fyrir vik- ið. Sú trú mun hjálpa mér að komast yfir missinn, þó ég viti að aldrei er hægt að jafna sig alveg eftir ástvina- missi. Sorgin kemur alltaf í bakið á manni öðru hverju allt lífið. Ég veit þú hefur það betra núna, með saknaðarkveðju ég kveð þig. Þín dóttir, Sigrún. Elsku Reynsi. Það er svo sárt að kveðja þig á þennan hátt sem varst svo kraftmik- ill og eftir öll þessi ár og allt það sem við höfum gert saman. Mér er helst í huga öll ferðalögin sem við fórum í með mömmu og þegar ég fékk að vera með þér í vinnunni þegar ég var lítill. Það fannst mér frábært. Ég ætl- aði mér alltaf að verða smiður eins og þú. Það var alltaf svo gott að leita til þín þegar mann vantaði hjálp við eitt- hvað, alveg sama hvað það var því þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa. Þú varst svo hugmyndaríkur og hafðir nánast lausnir við öllu. Ég er bara svo þakklátur að hafa fengið að kynn- ast svona frábærum manni eins og þér sem var tilbúinn að gera allt fyrir mann þótt maður gerði ekki eitthvað á móti. Einar Tryggvi Kjartansson. Í starfinu dróstu þig hvergi í hlé þín hugsun að geta mest látið í té þar geislaði í gegnum vik hvert. Að flýja af hólmi var fjarri þér æ og fáum var stundunum kastað á glæ og verkin þín votta það bert. (Á.H.) Eftir langa og hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm hefur þú fengið hvíld, kæri Reynir. Það er svo þung- bært að þurfa að kveðja þig. Gangan var löng og strembin en eins og þú sagðir svo oft. „Fyrstu hundrað árin eru erfiðust.“ Það er frá svo mörgu að segja og er okkur efst í huga allar innihaldsríku stundirnar með ykkur mömmu sem eru enn verðmætari nú. Það má með sanni segja að þú hafir verið gull af manni, hjálpfús og alltaf reiðubúinn að deila vitneskju þinni til okkar sem minna vissum. Þvílíkur viskubrunnur varstu og gott til þín að leita. Þú á þinn heiðarlega hátt hafðir svo góð áhrif á líf okkar og vaktir okkur til umhugsunar um svo margt og kenndir okkur svo margt. Aldrei heyrðist þú hrósa sjálfum þér og á hógværan hátt tókstu við hrósi okkar sem áttum ekki orð yfir dugnað þinn og hugkvæmni. Okkur er minnisstætt í fyrsta sinn sem við hittumst. Móðir okkar vildi kynna okkur og bauð okkur að borða saman. Það kvöld var mikið hlegið og við skynjuðum hvað okkur leið öllum vel saman. Okkur duldist ekki að góð- menni var hér á ferð sem gæti um- borið okkur bræðurna. Reynir var ötull maður og iðinn, enda sjást verk hans um víðan völl. Hann hafði næmt auga fyrir fegurð og í honum blundaði listamaður sem naut þess að skapa fallega hluti bæði á pappír og í tré. Við erum þér innilega þakklátir fyrir hvernig þú hugsaðir til okkar bræðranna og hvað þú virtir og elsk- aðir mömmu okkar. Við kveðjum þig í bili og hittumst við hliðið. Kjartan og Stefán Kjartanssynir. Elsku bróðir, þegar ég horfi til baka og lít yfir bernskuna, koma ýmsar myndir upp. Ein er afar ljós, við vorum á leið í KFUM, ég lagði til að við slepptum samkomunni og fær- um að leika okkur, en tillagan náði ekki fram að ganga. Staðfesta var þitt einkenni, fyrirmælum móður okkar skyldi fylgt í einu og öllu. Ég hygg að dugnaður sem einkenndi þig, og að vera trúr þeim verkum sem þér voru falin, hafi verið þinn styrkur. Reynir bróðir minn andaðist á líknardeild Landspítalans eftir langa baráttu við illvígan sjúkdóm. Það er meira en erfitt fyrir mig að skilja, að hann sem var allra manna hraustast- ur skuli vera dáinn frá öllum verkum sínum og draumum. Ég vissi um þín harma, sem þú deildir ekki með öðrum heldur kaust að bera í hljóði og horfa heldur fram á veginn, hafa vonina að leiðarljósi. Það voru ekki margir sem vissu um sterkan listrænan hæfileika sem birt- ist í mannamyndum þínum, gerðar með blýantinum einum saman og persónuleikinn leyndi sér ekki. Þú sagðir mér stundum að það hefði ver- ið gaman að rækta þenna hæfileika sem þér var svo ríkulega gefinn. Annað vil ég minnast á sem var sterkur eiginleiki í þínu fari, að tala ekki illa um fólk, sem lýsir trú og þroska og öllum til eftirbreytni. Ég sendi að lokum Halldóru konu þinni og börnum samúðarkveðjur og öldruðum föður sem sárt syrgir son sinn og þakka að endingu öllum sem komu að hjúkrun Reynis, heima og á líknardeild. Þinn bróðir, Albert Ríkarðsson. Það var á fallegu ágústkvöldi fyrir átta árum sem Dóra systir mín hitti Reyni í fyrsta sinn. Fljótlega kom í ljós að þarna var einstakt samband á ferðinni og Reynir var orðinn hluti af fjölskyldunni án þess að maður tæki eftir því sérstaklega, það var eins og hann hefði alltaf verið þarna. Þau urðu strax einstaklega samrýnd og þegar við systur gerðum eitthvað saman þá var Reynir yfirleitt með í för. Ég á góðar minningar um marg- ar skemmtilegar stundir sem við átt- um saman, oft með yngstu strákana með okkur. Eitt haustið forum við til London. Í minningunni finnst mér við hafa hlegið allan tímann. Í vax- myndasafninu, Dóra með myndavél- ina. Reynsi minn, stattu þarna við hliðina á Einstein ég ætla að taka mynd af ykkur félögunum, þið eruð svo líkir… Portobello Road þar sem við mátuðum pelsana. Ég sé þau grúfa sig yfir antíkmuni og bjóða í forláta kertastjaka. Þau voru svo samstíga í því að vanda til allra hluta eins og þau gerðu í öllu sínu lífi saman. Reynir var mjög listrænn og hafa myndirnar hans sterkan karakter, einnig útskurðurinn sem er stórkost- legur. Þetta er skrýtið líf. Í fyrra greindist Reynir með krabbamein. Þau voru þá nýflutt inn í Fellsás þar sem Reynir byggði þeim framtíðar- heimili. Helgina áður en hann fór í aðgerð skruppu þau til Þingvalla eins og svo oft áður. Þau fóru í langan göngutúr. Ég mátti hafa mig alla við að fylgja honum eftir, sagði Dóra mér. Slíkur var krafturinn í honum. Ég mun sakna samræðna okkar um lífið og tilveruna. Við þrjú sátum svo oft við kertaljós og krufðum bæk- ur sem við vorum að lesa eða rædd- um lífsins mál sem voru okkur óþrjótandi umræðuefni. Einu skiptin sem ég heyrði Reyni hækka röddina var þegar við ræddum pólitík. Þá urðum við oft ansi hávær því hvorugt okkar vildi gefa eftir þegar við vorum ósammála. Þá hristi systir mín höf- uðið og hellti upp á meira kaffi handa þessu æsta fólki sínu eða kom þjót- andi með bakkelsi til að dreifa athygli okkar. Reynir var maður augnabliksins. Hann lifði í núinu og ræddi lítið for- tíðina. Samt veit ég að hann varð fyr- ir miklu áfalli sem ungur maður þeg- ar hann missti fyrstu konu sína í bílslysi frá þremur ungum börnum. Í þau spor geta þeir einir sett sig í sem hafa misst. Þegar hann hafði heilsu til þá var hann strax byrjaður á ein- hverju verki. Það eru aðeins nokkrar vikur síðan ég fór með þeim að versla skápa sem hann var að setja upp. Þegar ég hélt fjölskylduveisluna fyr- ir stuttu þá bauð hann mér að halda hana í Fellsási. Fyrir það verð ég allt- af þakklát. Nú hefur hann kvatt lífið þessi góði maður. Við sem þekktum hann munum sakna hans en einnig gleðjast yfir þeim góðu minningum sem við eigum um hann. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Guð blessi og styrki Ríkarð föður hans og vaki yfir öllum hans ævispor- um, ég bið algóðan guð að styrkja börnin hans og barnabörn og Albert bróður hans. Dóra mín, Reynir var sálufélagi þinn og besti vinur. Þú verður að anda í gegnum sorgina, því mundu að á eftir myrkri birtir alltaf til, það er lífsins gangur. Við systkinin og fjöl- skyldur okkar sendum ástvinum Reynis innilegar samúðarkveðjur og biðjum góðan guð að styrkja þá í sorginni og vernda þá á lífsgöngunni. Guðmundína Einarsdóttir. REYNIR RÍKARÐSSON Elskuleg mágkona mín, KAMILLA BRIEM frá Melstað, Grettisgötu 74, Reykjavík, sem andaðist laugardaginn 1. október sl., verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 11. október 2005 kl. 11.00. Soffía S. Briem. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, bróðir, mágur, afi og langafi, ERLENDUR LÁRUSSON fyrrverandi forstöðumaður Vátryggingaeftirlitsins, Krosshömrum 11, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju miðviku- daginn 12. október kl. 11.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Amnesti International á Íslandi. Anna Sigurðardóttir, Lárus Erlendsson, Síta Rúna Haraldsdóttir, Stefán Erlendsson, Vilborg Helgadóttir, Pálmi Erlendsson, Kristín Jónsdóttir, Pálmi Lárusson, Elsa Vilmundardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, KARVEL ÖGMUNDSSON, fyrrv. útgerðarmaður, Bjargi, Ytri-Njarðvík, andaðist 30. september á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði. Kveðjuathöfn verður haldin í Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 14. októ- ber og hefst kl. 14.00. Útförin fer fram frá Ingjaldshólskirkju, Hellissandi, laugardaginn 15. októ- ber kl. 14.00. Sætaferð verður til Hellissands frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 9.00 á laugardagsmorgun. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Slysavarnafélagið Lands- björg. María Karvelsdóttir, Guðlaug Svanfríður Karvelsdóttir, Þórunn Karvelsdóttir, Ögmundur Karvelsson, Sigurlína Björgvinsdóttir, Sólveig Karvelsdóttir, Sigurður Pálsson, Eggert Karvelsson, Sædís Hlöðversdóttir og fjölskyldur. Systir mín og mágkona, JÓHANNA MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR ljósmóðir, sem lést 4. október, verður jarðsunginn fimmtu- daginn 13. október kl. 15.00 frá Áskirkju. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknar- stofnanir. Fyrir hönd aðstandenda. Arnfríður Þorsteinsdóttir, Jónas Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.