Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 36
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
MAÐUR VERÐUR AÐ
ÞEKKJA SÍN TAKMÖRK
ÉG GET TIL DÆMIS BARA
BORÐAÐ SVO OG SVO MIKIÐ
EFTIR ÁKVEÐINN
TÍMA ER ALLUR
MATURINN BÚINN
SLÆMAR
FRÉTTIR!
VIÐ GETUM ÞVÍ MIÐUR
EKKI SPILAÐ VIÐ YKKUR Í
DAG. ÞAÐ ERU OF
MARGIR LEIKMENN
HJÁ OKKUR VEIKIR
VIÐ GEFUM
LEIKINN SVONA NÚ, VIÐ VERÐUMAÐ HALDA ÞESSU ÁFRAM VIÐ
ERUM KOMIN Í FULLAN GANG
MAMMA, HVAR
ER JAKKINN MINN?
HANN ER Á GÓLFINU,
ÞAR SEM ÞÚ SKILDIR
HANN EFTIR
„REGLUGERÐ UM BANN
VIÐ ÞRÆLKUNARVINNU“
AF HVERJU HENGDIRÐU
HANN EKKI UPP?
ÞESSI FISKUR VIRÐIST VERA ÁLÍKA STÓR OG FISKURINN SEM
BJÖSSI VAR AÐ MONTA SIG YFIR AÐ HAFA VEITT!!
NEI, EN SÚ
TILVILJUN! HEIMA-
HAGAR MÍNIR ERU
LÍKA LENGST FYRIR
NEÐAN OKKUR!
MAMMA, MÁ
ÉG FÁ ÞESSAR?
NEI! ÉG TEK ÞAÐ EKKI Í MÁL AÐ
DÓTTIR MÍN GANGI Í FÖTUM
MEÐ EGGJANDI SLAGORÐUM
ÞETTA VAR
MÁLAMIÐLUN
EN
MAMMA!
UGLAN VARÐ
ALVEG BRJÁLUÐ ÚT
AF ÞESSARI HURÐ
ÉG VIL
EKKI VINNA
FYRIR
BRJÁL-
ÆÐING
ÉG ER FARINN ÚR BÆNUM.
ENGINN GETUR STOPPAÐ MIG
Dagbók
Í dag er mánudagur 10. október, 283. dagur ársins 2005
Víkverji dagsins ermiðaldra, slitinn
karlmaður, af vinum
og óvinum sagður með
eindæmum fýldur og
þrasgjarn. Hann rýk-
ur oft upp af litlu til-
efni. Hann er þjak-
aður af alls kyns
líkamlegum og and-
legum meinsemdum
sem valda honum
miklum áhyggjum.
Fátt gerist í kringum
hann án þess að hann
sjái þar samsæri
vondra manna sem
vilji koma honum end-
anlega á kné enda vafalaust ekki
skortur á fólki sem lætur sig dreyma
um slíka lausn.
Þetta er tekið fram til að koma í
veg fyrir misskilning: nöldraraliðið
sem ásamt öðrum kallar sig stund-
um Víkverja, er á ýmsum aldri, af
báðum kynjum. Hinir sem ekki
nöldra skipta engu máli og hefur
Víkverji forðast eftir mætti að kynn-
ast því fólki enda vafalaust eitthvað
undarlegt.
En nýlega fékk Víkverji staðfest
að hann gegnir mikilvægu hlutverki.
Gömul vinkona hans, þær eru nú
flestar af æskuskeiði enda ungar
konur alltaf að verða yngri og yngri,
sagðist alltaf lesa vel
rökstutt nöldur hans.
Best væri það þegar
hugað væri að hlutum
sem allt of sjaldan
væri minnst á. Hún
nefndi sem dæmi
skort á snjóruðningi í
ákveðnum götum höf-
uðborgarinnar, dýra
osta, ömurlega þætti í
sjónvarpinu og ókurt-
eisi unga fólksins.
Þetta síðasta væri vísa
sem aldrei væri of oft
kveðin. Enginn vafi
væri á því að unga
fólkið læsi þessa gagn-
rýni Víkverja af mikilli ákefð, tæki
hana til sín. Helsta áhugamál dóna-
legra unglinga væri að lesa gagnrýni
um sig frá miðaldra fólki.
Víkverja, sem var kominn á
fremsta hlunn með að segja af sér
eins og það heitir víst núna, snerist
hugur. Hann sér núna að magaveik-
in, sinaskeiðabólgan, náttblindan,
kvefið, gigtin í hægri stórutá, morg-
ungeðvonskan og suðið fyrir eyrun-
um, allt er þetta nauðsynlegt til að
hann geti sinnt starfi sínu. Ef hann
þyrfti ekki að stríða við þetta allt
saman myndi hann ekki hafa nægan
skilning á ýmsum þjóðfélagsmeinum
og vera allt of jákvæður.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Rokk | Hljómsveitin Sign efndi til útgáfutónleika um helgina en geisla-
diskurinn Thank God for Silence kom út á dögunum. Platan er þriðja
breiðskífa hljómsveitarinnar en áður hefur Sign sent frá sér Vindar og
breytingar (2001) og Fyrir ofan himininn (2002). Zólberg söngvari og gít-
arleikari fer hér mikinn á tónleikunum en aðrir liðsmenn Sign eru Addi
G. sem einnig leikur á gítar, Silli sem spilar á bassa og Egill Örn sem
trommar.
Ljósmynd/Gísli Baldur Gíslason
Guði sé lof fyrir þögnina
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Ég elska þig, Drottinn, þú styrkur minn. Drottinn, bjarg mitt og vígi og
frelsari minn. (Sálm. 18, 1.–2.)