Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 40

Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 40
40 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ BENJAMIN BRITTEN the turn of the screw ef t i r 25 ára og yngri: 50% afsláttur af miða- verði í sal Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400 21. okt. kl. 20 - Frumsýning 23. okt. kl. 20 - 2. sýning - 30. okt. kl. 20 - 3. sýning 4. nóv. kl. 20 - 4. sýning - 6. nóv. kl. 20 - 5. sýning 12. nóv. kl. 20 - 6. sýning - Lokasýning www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Kynning fyrir sýningar á Tökin hert , 2. - 6. sýning Kl. 19.15 – Stutt kynning á verkinu og uppsetningu þess. Kynningin fer fram á sviðinu og er innifalin í miðaverði. HALLDÓR Í HOLLYWOOD Frumsýning fös. 14/10 uppselt, 2. sýn. lau. 15/10 örfá sæti laus, 3. sýn. fim. 20/10 örfá sæti laus, 4. sýn. fös. 21/10 örfá sæti laus, 5. sýn. lau. 22/10 örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 27/10 örfá sæti laus, 7. sýn. fös. 28/10 örfá sæti laus. KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR Sun. 16/10 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 23/10 nokkur sæti laus, lau. 29/10 kl. 20:00. EDITH PIAF Sun. 16/10 uppselt, sun. 23/10 uppselt, aukasýning sun. 6/11 STÓRA SvIðIð KL. 20.00 MIÐASALA Á NETINU ALLAN SÓLARHRINGINN - WWW.LEIKHUSID.IS AFGREIÐSLA ER OPIN FRÁ KL. 12:30-18:00 MÁN.-ÞRI. AÐRA DAGA KL. 12:30-20:00. MIÐASÖLUSÍMI: 551 1200. SÍMAPANTANIR FRÁ KL. 10:00 VIRKA DAGA. KODDAMAðURINN Sun. 16/10 nokkur sæti laus, þri.18/10 uppselt, mið. 19/10 uppselt, sun. 23/10, mið. 26/10 uppselt. Sýningum lýkur í október. LITLA SvIðIð KL. 20.00 eftir Thomas MEEHAN, Charles STROUSE & Martin CHARNIN Sun. 16/10 kl. 14 Laug. 22/10 kl. 15 Laug. 30/10 kl. 14 Miðasala í síma 551 4700 alla daga frá kl. 13-17 í gamla AUSTURBÆJARBÍÓI www.annie.is • www.midi.is  - DV Frábær fjölskylduskemmtun! - Fréttablaðið Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is Fullkomið brúðkaup - forsala hafin Fim 20.okt kl. 20 UPPSELT Fös 21. okt kl. 20 UPPSELT Sun 23. okt kl. 20 Örfá sæti Fim 27. okt kl. 20 Nokkur sæti fös 28. okt kl. 20 Örfá sæti lau 29. okt kl. 20 UPPSELT fös 4. nóv kl. 20 Nokkur sæti lau 5. nóv kl. 20 UPPSELT Síðustu dagar korta- sölunnar! Stóra svið Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is ÞAÐ BORGAR SIG AÐ GERAST ÁSKRIFANDI HÍBÝLI VINDANNA Aðeins þessar 2 aukasýningar eftir Su 16/10 kl. 20 Su 23/10 kl. 20 LÍFSINS TRÉ Fi 27/10 kl. 20 - FRUMSÝNING - UPPSELT Fö 28/10 kl. 20 - UPPSELT Fö 4/11 kl. 20 Lau 5/11 kl. 20 Fö 11/11 kl. 20 Lau 5/11 kl. 20 Fi 10/11 kl. 20 Fö 11/11 kl. 20 MANNTAFL Fö 14/10 kl. 20, Lau 15/10 kl. 20 Forðist okkur - Aðeins sýnt í október Nemendaleikhusið/CommonNonsense Höf. Hugleikur Dagsson Mi 12/10 kl. 20 Fi 13/10 kl. 20 Lau 15/10 kl. 20 Mi 19/10 kl. 20 SALKA VALKA Lau15/10 Frumsýning UPPSELT Mi 19/10 kl. 20 Styrktarsýning-MND Félagið á Íslandi Fö 21/10 kl. 20 Gul kort Lau 22/10 kl. 20 Rauð kort Su 30/10 kl. 20 Græn kort Fi 3/11 kl. 20 Blá kort WOYZECK Í samstarfi við Vesturport og Barbican Center í London Frumsýnt í London 12. október Fi 27/10 kl.20 Forsýning UPPSELT Fö 28/10 kl. 20 Frumsýning UPPSELT Lau 29/10 kl. 20 Gul kort Lau 5/11 kl. 20 Rauð kort Fi 10/11 kl. 20 Græn kort Fö 11/11 kl. 20 Blá kort KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Su 16/10 kl. 14 Su 23/10 kl. 14 Su 30/10 kl. 14 Nýja svið/Litla svið ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Su 16/10 kl. 20 UPPSELT Su 23/10 kl. 20 UPPSELT Þr 25/10 kl. 20 AUKASÝNING Lau 29/10 kl.20 UPPSELT Su 30/10 KL. 20 AUKSÝNING Tvennu tilboð Ef keyptur er miði á Híbýli vindanna og Lífsins tré fæst sérstakur afsláttur 9. SÝN. FÖS. 14. OKT. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI 10. SÝN. LAU. 15. OKT. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI AUKASÝNING FIM. 20. OKT. KL. 20 11. SÝN. FÖS. 21. OKT. kl. 20 NOKKUR SÆTI 12. SÝN. LAU. 22. OKT. kl. 20 NOKKUR SÆTI 13. SÝN. FÖS. 28. OKT. kl. 20 14. SÝN. LAU. 29. OKT. kl. 20 ÉG Á stefnumót við þrjár konur á laugardagsmorgni og er seinn fyrir. Mér liggur á að komast til fundar við þær í Gallerí 100°, húsi Orkuveitu Reykjavíkur, enda getur maður ekki látið konur á borð við Guðrúnu Kristjánsdóttur, Guðbjörgu Lind Jónsdóttur og Kristínu Jónsdóttur bíða. Í Orkuveituhúsinu að Bæj- arhálsi 1 hafa þær Guðrún, Guð- björg og Kristín sett upp sýningu sem þær kalla Straumar. Sameiginlegur tónn Eftir örlítið pex ákveða Guðrún og Guðbjörg að aldursforsetinn Kristín fái að svara hvernig leiðir þeirra lágu saman: „Við höfðum tekið þátt í nokkrum samsýningum, meðal ann- ars á sýningum sem FÍM, Félag ís- lenskra myndlistarmanna, stóð fyr- ir. Þó að verkin okkar væru kannski ekki lík, þá vorum við á sömu bylgju- lengd – einhvers konar sameig- inlegur tónn í verkum okkar. Ég held, Guðrún, að þú hafir átt hug- myndina.“ Guðrún setur upp furðusvip og segir svo hlæjandi: „Var það? Asskoti er maður hugmyndaríkur!“ Frá Íslandi til Spánar Fyrstu sýninguna, Vetrarmynd, héldu þær stöllur í Galleríi Man á Skólavörðustíg í desember og janúar 2001–2002. „Okkur fannst eins og þessi grunur Guðrúnar væri réttur, að verkin okkar rímuðu saman og fórum að velta vöngum yfir meira samstarfi,“ segir Kristín. Það var síðan menningarborg- arárið að almennilegur skriður komst á samstarfið. Opnuð var í Listasafni ASÍ sýningin Andrá, en Guðbjörg segir frá: „Við settum okk- ur í samband við Kristínu Guðna- dóttur, forstöðumann Listasafns ASÍ, með það í huga að búa til stærri samsýningu sem myndi ferðast út fyrir landsteinana. Úr varð stór sýning í fjórtándualdar-kirkju í Santiago de Compostela á Spáni sem hafði verið afhelguð og breytt í sýningarsal.“ Komin var mynd á listahópinn og nafn: „Fínt nafn,“ segir Guðrún: „Andrá á íslensku, Moment á ensku og ’momaan’ á frönsku,“ bætir hún við hlæjandi. Þær grínast og bæta við að þær kalli sig stundum Gjörn- ingaklúbbinn hinn eldri. Sterkari saman Listakonurnar þrjár eru vitaskuld allar sjálfstætt starfandi listamenn: „Með þessu samstarfi erum við að skapa okkur verkefni sem gera okk- ur kleift að þróa okkur áfram sem listamenn og þroskast,“ segir Guð- björg. „Við búum okkur til þennan vettvang,“ bætir Guðrún við. „Og við nálgumst þetta á annan hátt en ef við værum að vinna hver fyrir sig,“ segir Kristín. Þó mikill samhljómur sé í verkum Andrár-hópsins koma þær Guðrún, Guðbjörg og Kristín úr ólíkum átt- um og spanna nærri þrjár kynslóðir: sú elsta fædd 1933 og yngsta 1961. „Frá því við hófum samstarf höfum við náttúrlega unnið hver sín verk en við höfum haft afskaplega gott sam- band innbyrðis, hist oft og borið saman bækur okkar,“ segir Kristín. Guðbjörg bætir við: „Og á þessari sýningu nutum við leiðsagnar Odd- nýjar Eirar Ævarsdóttur sem tók að sér verk sýningarstjóra. Hún leiddi með okkur nokkra góða fundi og hélt utan um okkur í þessu.“ Þær stöllur eru einróma í hrifn- ingu sinni á Oddnýju en hún mun einnig verða sýningarstjóri á næsta verkefni Andrár-kvenna: „Ef hún verður ekki búin að gefast upp á okkur,“ bætir Guðbjörg við kímin. Verkefnið sem um ræðir er sýning í Bogasal Þjóðminjasafnsins á næsta ári: „Við stefnum á að vinna okkar myndlist út frá verkum sem við verðum fyrir áhrifum af í safninu,“ upplýsir Guðbjörg. Vinnuheiti er komið á sýninguna, Fléttur: „Við ætlum að flétta okkur saman og fléttast saman við gömlu munina í safninu,“ útskýrir Guðrún. Gott þegar hlúð er að listum Á sýningunni í Galleríi 100° vinna listakonurnar þrjár með þema sem tengist óneitanlega starfseminni sem fer fram í húsinu. Eins og fyrr sagði kallast sýningin Straumar og vinna Guðrún, Guðbjörg og Kristín hver á sinn einstaka máta út frá vatni, flæði, farvegi og náttúru. „Það er öðrum fyrirtækjum til eft- irbreytni hvernig Orkuveitan hlúir að myndlistinni,“ segir Guðrún. „Já, það er til fyrirmyndar að í svona stóru og fallegu húsi hafi frá upphafi verið lögð áhersla á listina,“ tekur Kristín undir, en strax á hönn- unarstigi voru listamenn fengnir til að vinna verk inn í húsið. Umræðan spinnst út í sýning- armál á Íslandi og berst í tal að t.a.m. er ekki óalgengt fyrirkomulag í New York að fyrirtæki og stofnanir nýti rými sem annars færu til spillis með því að opna litla sýningarsali, en njóta um leið skattfríðinda fyrir: „Þetta hefur verið talsvert í um- ræðunni hér,“ segir Guðbjörg um þetta mál. „Ágúst Einarsson lagði fram frumvarp fyrir mörgum árum sem gekk út á það að fyrirtæki sem legðu fram fé til menningarmála fengju skattafslátt, en því miður tókst ekki að koma því í gegn.“ Kristín segir: „Í Bandaríkjunum gat jafnvel hinn almenni kaupandi feng- ið skattafslátt fyrir listaverkakaup. Þetta jók mjög á söluna, heyrði ég hjá listamönnum í New York. Eitt- hvað þessu líkt gæti orðið mikil lyfti- stöng fyrir listalíf hér á landi.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Kristín Jónsdóttir, Guðbjörg Lind Jónsdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir í húsi Orkuveitunnar. Sýning Gjörninga- klúbbsins hins eldri Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is Sýningin Straumar stendur í Gall- eríi 100°, sýningarsal Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1, til 25. október. Sýningin er opin mánu- daga til föstudaga frá 8.30 til 16. Myndlist | Straumar, sýning þriggja kvenna í Galleríi 100° Hjá Máli og menn- ingu er komin út bókin, Risaeðlu- tíminn eftir Ingi- björgu Briem með myndskreytingum Maribel Gonzalez Sigurjóns. „Einu sinni var jörðin full af risaeðlum. Sumar voru gríðarstórar og átu blöðin af trjánum, aðrar voru með hættuleg vopn eins og gadda og horn, enn aðrar höfðu beittar tennur og réðust á aðrar risa- eðlur. Í þessari spennandi bók er í máli og myndum sagt frá sautján risa- eðlutegundum sem allar voru til fyrir milljónum ára – á risaeðlutímanum. Risaeðlutíminn er fyrsta íslenska bók- in sem kemur út um risaeðlur og ómissandi á öll heimili þar sem búa börn með áhuga á þessum gríð- arstóru skepnum,“ segir útgefandinn. Bókin er 49 bls. Verð: 2.990 kr. Risaeðlur Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.