Morgunblaðið - 10.10.2005, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 10.10.2005, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. DÆLUR FYRIR FISKELDI Sími 568 6625 4.SÆTIÐ www.jorunn.is BIRNI Hafsteinssyni vagnstjóra, sem missti báða fætur í alvarlegu bílslysi 19. ágúst sl. á mótum Laugavegar og Kringlumýrar- brautar, var um helgina afhent ávísun upp á 1,3 milljónir króna. Það er afrakstur söfnun- arátaks sem félagar hans í vagnstjórastétt- inni stóðu að í kjölfar slyssins. Jafnframt efndu þeir til styrktartónleika sem haldnir voru í byrjun september þar sem þeir fjöl- mörgu listamenn sem komu fram gáfu vinnu sína og rann ágóðinn beint til Björns. „Björn átti 55 ára afmæli á laugardag og okkur þótti við hæfi að afhenda upphæðina þá,“ segir Ásgeir Eiríksson, framkvæmda- stjóri Strætó bs., en að auki gaf Olís bensín- kort upp á 250 þúsund og þá hafa starfsmenn Hagvagna einnig staðið að söfnun að und- anförnu. Telur Ásgeir að búast megi við því að upphæðin nemi um tveimur milljónum þegar upp er staðið, sem hann vonar að Björn geti nýtt sér til að gera lífið aðeins auðveld- ara í raunum sínum. Björn fékk að fara til síns heima á miðviku- dag í síðustu viku og bíður nú eftir að geta hafið endurhæfingu. Í samtali við Morgun- blaðið sagðist hann vera himinlifandi með söfnunina. Peningarnir komi sér vel og vill hann koma á framfæri þökkum til allra sem að söfnuninni stóðu. Björn segist allur vera að koma til og bíður nú eftir að geta hafið end- urhæfingu von bráðar. Afhentu Birni Hafsteinssyni vagnstjóra afrakstur söfnunarfjár Himinlifandi og þakklátur Morgunblaðið/Ómar Birni vagnstjóra afhent söfnunarfé er hann fagnaði jafnframt 55 ára afmæli sínu. Fyrir aftan hann er eiginkonan Hjördís Pétursdóttir og sonur þeirra, Aðalgeir. Davíð Sigurðsson um- boðsmaður afhenti Birni ávísunina ásamt Áslaugu Kristinsdóttur, gjaldkera söfnunarinnar, Ásgeiri Eiríkssyni, framkvæmdastjóra Strætó bs., og André Bachmann vagnstjóra. JÚLÍUS Þór Júlíusson, formaður samtaka áhugafólks um spilafíkn, hefur sóst eftir því að samtökin fái inni í gömlu miðbæj- arstöð lögreglunnar í Reykjavík og hefur rætt hugmyndina við Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra. Segir hann ráðherrana hafa tekið vel í málið. „Að vera miðsvæðis í borginni með starfsemina myndi gera okkur sýnilegri en áður, enda er mjög mikilvægt að um- ræðan um þennan vanda komist upp á yf- irborðið svo hægt sé að vinna í því að eyða fordómum í garð spilafíkla,“ segir Júlíus. „Fólk er að tapa aleigunni sinni á yf- irgengilegum hraða, ekki bara í spila- kössum, heldur í vaxandi mæli heima hjá sér á Netinu.“ Júlíus segir spilafíknina ekki fara í manngreinarálit og nú sé svo komið að fólk úr öllum stigum þjóðfélagsins glími við þennan vanda. | 4 „Fólk er að tapa aleigunni“ BÍLVELTA varð austanmegin í Víkur- skarði um áttaleytið á laugardagskvöld. Fjórir voru í bílnum og sluppu allir ómeidd- ir. Bíllinn valt nokkrar veltur og endaði um 60 metra frá veginum og segir lögreglan að svo virðist sem hann hafi flogið yfir girð- ingu án þess að snerta hana. Það var lán í óláni að fyrsti bíll á vett- vang eftir útafaksturinn var sjúkrabíll sem var á leið frá Þórshöfn til Akureyrar með sjúkling og fengu mennirnir fjórir far með honum á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Fengu far á FSA eftir bílveltu EINUNGIS ein af sextán tillögum um sameiningu sveitarfélaga var samþykkt í kosningum á laugar- daginn en kjósa þarf aftur um tvær tillögur innan sex vikna. Alls kusu 22.271 af þeim 69.144 sem voru á kjörskrá og var kjör- sókn því 32,2%. Yfir landið allt felldu 56,2% kjósenda sameiningar- tillögur en 43,8% samþykktu. Kom ráðherra á óvart Árni Magnússon, félagsmálaráð- herra, segir að niðurstöður kosn- inganna hafi komið nokkuð á óvart en ekki sé um að ræða áfall fyrir sig. Hann segist búast við því að svipað ferli taki nú við og eftir kosn- ingarnar árið 1993 þar sem sveit- arstjórnarmenn taki upp viðræður að eigin frumkvæði og sameining sveitarfélaganna haldi þannig áfram. Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, segir að aðferðin sem beitt hafi verið dugi ekki til, en sameining sveitarfélaga við Eyja- fjörð var felld allsstaðar nema á Siglufirði og Ólafsfirði. Upptökin komi frá fólkinu Kristján segir að með kosningum sem þessum sé verið að reyna að keyra miðstýrt kerfi yfir alla íbúa landsins í annað skipti á tólf árum og í bæði skiptin hafi árangurinn af því orðið að aðeins ein tillaga hafi verið samþykkt. Upptök samein- inga verði að koma frá fólkinu. Það voru sveitarfélög á Austur- landi sem samþykktu sameiningu en Austurbyggð, Fáskrúðsfjarðar- hreppur, Fjarðabyggð og Mjóa- fjarðarhreppur renna saman í eitt sveitarfélag í júní á næsta ári. Verða sveitarfélögin í landinu þá orðin 89 en voru 103 þegar átaki um eflingu sveitarstjórnarstigsins var ýtt úr vör árið 2003. Alls hefði sveit- arfélögunum fækkað niður í 47 ef sameiningin hefði verið samþykkt allsstaðar. Almennt var kjörsókn á laugar- daginn minni í stærri sveitarfélög- um og sem dæmi má nefna að í Hafnarfjarðarbæ kusu 14,1% þeirra sem voru á kjörskrá og í Reykjanesbæ var kjörsókn 12,9%. Best var kjörsóknin hins vegar í Áshreppi, eða 91,5%. Þar búa 73 íbúar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður Sambands íslenskra sveitar- félaga, segir að hann hefði viljað sjá meiri árangur af þessu starfi. Hann bendir hins vegar á að frá árinu 1990 hafi sveitarfélögum fækkað úr 204 í 89 eftir kosningarnar á laug- ardaginn, þannig að töluverður ár- angur hafi náðst. Hann tekur í sama streng og félagsmálaráðherra og segist reikna með því að viðræð- ur um sameiningu muni halda áfram milli sveitarfélaga á næstu árum. „Aðferðin dugði ekki til“ Aðeins ein tillaga af 16 samþykkt í sameiningarkosningu sveitarfélaganna  Kosningar | 10–11, miðopna Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is ÞÓTT enn sé tæpur hálfur mánuður í fyrsta vetrardag er snjór víða kominn og hafa ung- ir Akureyringar fagnað komu hans. Töluvert hefur snjóað í bænum um helgina og voru börnin fljót að taka við sér og iðka sígilda vetrarskemmtun sem engir tölvuleikir geta keppt við. En vetrarveðrum fylgir verri færð á vegum en á öðrum árs- tímum. Hálka og hálkublettir eru víða á Norðausturlandi og á Vestfjörðum og sumstaðar á Austurlandi og búist er við vetrarveðrum með norðanáttum fram eftir vikunni. Búist var við stormi í nótt allra austast á landinu og norðaustan 8–15 síð- degis. Vetur sækir snemma að Morgunblaðið/Kristján Hressar stúlkur á Akureyri drifu sig út í snjóinn um helgina og bjuggu til snjókarla. DAUÐI herra Lazarescus eftir Cristi Puiu var valin besta myndin á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík en lokahóf hátíðarinnar var haldið í gærkvöldi. Dóm- nefndin veitti líka myndinni Heilaga stúlk- an eftir Lucreciu Martel sérstaka heiðurs- viðurkenningu. Dauði herra Lazarescus fékk mjög góða umsögn hjá dómnefnd há- tíðarinnar sem sagði hana m.a. tvinna saman þjóðfélagslega ádeilu og vangavelt- ur um sammannleg yrkisefni. | 45 Dauði herra Laz- arescus besta myndin JÓHANNES B. Skúlason, framkvæmda- stjóri Skúlasonar ehf., segist vonast til þess að í vikunni fái hann útskýringar á mála- vöxtum í tengslum við viðskiptahætti er- lendra aðila sem teygja anga sína hingað til lands og breska lögreglan grunar um stór- felld svik. Hann segir hlutabréf í Skulason Limited hafa verið til sölu enda hafi verið reynt að fá inn hluthafa í Skulason með sölu bréfa á vegum Skúlasonar ehf. „Hugmyndin er að vera með vinnustöð á Íslandi og bjóða þjón- ustuna í Bretlandi,“ segir hann. „Bretar þekkja þá hugmynd vel, að vera með úthýs- ingu milli landa,“ segir hann, spurður hvers vegna 120 Bretar hafi viljað kaupa hlut í símsvörunarfyrirtæki á Íslandi. Jóhannes segir það hafa staðið til að fé- lagið færi á markað líkt og öll félög sem ætl- uðu sér eitthvað meira en vera fjölskyldu- fyrirtæki. Hins vegar hafi hann aldrei falið spænsku fyrirtæki að selja hluti í Skulason Limited. „Við höfum aldrei átt nein sam- skipti við félög á Spáni,“ segir Jóhannes. Vonast eftir útskýr- ingum í vikunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.