Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 60
60 F MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIRTÆKIÐ Hólmsteinn Pjet-
ursson ehf., sem um árabil hefur sér-
hæft síg í húsaviðgerðum, hefur haf-
ið framkvæmdir við stórt
fjölbýlishús við Kleppsveg, en sam-
kvæmt áætlun mun verkinu ljúka í
ágústlok 2007. Að sögn Hólmsteins
Pjeturssonar, múrarameistara, sem
rekur fyrirtækið ásamt bróður sín-
um Lýði, er hér um að ræða stærsta
verkefni sem fyrirtækið hefur ráðist
í og líklega eitt stærsta viðgerðar-
verkefni sem ráðist hefur verið í í
Reykjavík frá upphafi.
„Við þurfum að byrja á að leysa
upp alla málningu að utan. Síðan
þarf að gera við allar steypu-
skemmdir og skipta um alla glugga í
húsinu, múra síðan að nýju hjá
gluggunum og setja því næst nýja
múrkápu utan á allt húsið. Loks þarf
að mála allt húsið, en við eigum að
skila verkinu 31. ágúst 2007,“ sagði
Hómsteinn og bætti því við að Línu-
hönnun hf. hefði annast útboð og
hefði eftirlit og umstjón með verkinu
fyrir hönd verkkaupa. „Ég held að
þetta sé stærsta útboð í húsaviðgerð-
um sem þeir hafa annast og sýnir
það hversu viðamikið verkefni hér er
á ferðinni. Við höfum tekið mörg stór
verkefni að okkur í gegnum tíðina,
en ekkert í líkingu við þetta,“ sagði
Hólmsteinn, sem starfað hefur við
múrverk allan sinn starfsaldur.
„Ég byrjaði sem strákur hjá föður
mínum, Pjetri Kr. Árnasyni múrara-
meistara, og síðan lærði ég sjálfur
iðnina, eins og við gerðum fimm
bræðurnir. Við útiviðgerðir hef ég
unnið samfellt frá árinu 1984, er ég
stofnaði fyrirtæki ásamt öðrum, en
árið 1987 stofnaði ég eigið fyrirtæki
og Lýður bróðir minn kom svo inn í
þetta árið 2000. Við höfum lengst af
verið í utanhúsviðgerðum, en á
seinni árum höfum við einnig tekið
að okkur inniviðgerðir af ýmsu tagi,“
sagði Hólmsteinn og bætti því við að
mikið hefði verið að gera í húsavið-
gerðum á undanförnum árum og
raunar alla tíð frá því hann byrjaði.
„Ég hef aldrei þurft að kvarta undan
því að hafa ekki haft nóg að gera.
Það er frekar á hinn veginn.“
Hólmsteinn sagði að yfirleitt hefði
verið auðvelt að fá góða starfsmenn í
vinnu og flestir hefðu þeir verið 43
eitt sumarið. „Þá vorum við meðal
annars með fjórar blokkir við Háa-
leitisbraut og slóðin teygði sig alla
leið norður í land, að Húnavalla-
skóla. Það er fyrst núna í sumar sem
hefur verið dálítið erfitt að manna í
verkin, því það er svo mikil þensla í
þjóðfélaginu að það vantar alls stað-
ar menn. En þetta hefur bjargast og
ég hef ekki yfir neinu að kvarta,“
sagði Hólmsteinn Pjetursson múr-
arameistari.
Hólmsteinn Pjetursson ehf. gerir við stórt fjölbýlishús við Kleppsveg
Eitt stærsta viðgerðarverkefni í borginni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bræðurnir Lýður og Hólmsteinn Pjeturssynir hjá fjölbýlishúsinu við Kleppsveg.Háþrýstiþvotti með heitu vatni beitt til að ná málningu af fjölbýlishúsi í Árbæ.
Unnið að viðgerð á fjölbýlishúsi í Ljósheimum í fyrrasumar.
Unnið við fínhúðun á fjölbýlishúsi í Árbæ sumarið 2004.
svg@mbl.is