Tíminn - 28.05.1970, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 28. maí 1970.
TIMINN
21
LA NDFA R/ < )
HVERT STEFNA SVÍAR?
Hrafnkell Grímsson sendir
mér eftirfarandi bréf:
„Góði Landfari.
Hvert stefna Svíar? Þannig
hygg ég, að mörgum hafi orð-
ið á að spyrja ,þegar frétt birt-
ist fyrir skemmstu í einu ís-
lenzka dagblaðinu um nýjasta
umræðuefnið í sænska þing-
inu. Nokkrir þingmenn eru að
streitast við að fá leitt í lög,
gð jafnvel kynmök og saurlífi
«kuli menn fá að iðka á al-
mannafæri. Satt að segja hafa
margir S'VÍþjóðarvinir vonað í
lengstu lög, að fréttirnar af
siðferðisupplausninni í Sví-
þjóð ættu aðeins við vissa
hópa eða jafnvel aðeins
ákveðna brodda, eins og suma
rithöfunda og kivikmyndasmiði.
Alkunna er, að sumir þeir síð-
arnefndu, sérílagi, eru spekú-
lantar, sem kunna að hagnýta
sér mannlega náttúru í fjár-
gróðaskyni, hvað sem líður af-
leiðingunum. En nú er ljóst,
að jafnvel háttvirtir þing-
menn eru meðal forkólfa hins
nýja siðferðis. Er tnikið álita-
mál, hvort „menningarþjóð“
getur yfirleitt sokkið dýpra en
nú er orðið í Svíþjóð. Ekki
einu sinni villimenn telja sér
sæma að halda sýningar á kyn
iriökum sinum. Allt hefur
þetta vakið þvílíka furðu er-
lendis, að útlendingar hafa
toomið til Svífþjóðar gagngert
tál þess að kynna sér furðu-
fréttirnar af siðferðiiSvía.
Vér förum að skilja betur þá
•övía, sem horfa með ugg og
ótta á þessa óheillaþróun og
eru jafnvel farnir að kalla sitt
eigið land Sódómu og tala um.
að dómurinn hljóti að koma,
fyrr en vari. Sænskur rith'öf-
'Undur ræddi fyrir nokkru við
blaðamenn um helztu einkenni
áratugsins, sem er að líða. Seg
ir hann, að á þessu tímabili
hafi verið framin róttækasta
eyðilegging menningarinnar _ í
sögu sænsku þjóðarinnar. „Ég
er lektor og hef haft gott tæki
færi til þess að virða fyrir mér
þessa eyðingu á menningarleg
um, andlegum og siðferðileg-
um arfi vorum“. Segir hann
stjórnleysingja og upplausnar-
menn gnæfa hæst, hvert sem
litið sé. Rithöfundurinn kveð-
ur það lífsnauðsyn að veita
nýjum kröftum inn £ þjóðlíf-
ið, vekja nýja ábyrgðartilfinn-
ingu, já. þetta verði að þvinga
fram, því áð þjóðin sé mjög
illa á vegi stödd og ella kunni
svo að fara, að afvegaleidd æska
leiði yfir þjóðina ógnaröld
í ætt við Stalins-tímaíbilið í
Rússlandi. — Það er athyglis-
vert, að hér talar Svíi, en ekki
óviðkomandi áhorfandi.
Upplausn nútímans á marg-
ar rætur. Ein er eflaust sú, að
æskan þekkir ekki orsakir og
hörmungar tveggja heimstyrj-
alda, sem hafa hrjáð oss, er
eldri erum. Frelsi og friður
eru talin sjálfsögð gæði, svo
og það, að vér búum í velferð-
arþjóðfélagi. Æstounni er ekki
Ijóst, hvað ferlsið og gæðin
toostuðu og fórnir liðinna
ára, barátta og hörmungar
hafa gleymzt, og nú færist
heimtufrekja í aukana, gagn-
rýni alls konar, mótmæli og
háværar kröfur um „réttarbæt
ur“ á stundinni. Mörg grund-
vallarverðmæti eru látin fyrir
róða í fljótræðinu. Það dylst
mörgum, að þá erum vér áð
saga greinina, sem vér sitjum
á. „Fxeisi, frelsi, frelsi", hvað
sem það kóstar. Lítum aftur
til nágrannanna. í frelsi sfnu
eru Danir óðum að affla sér
heimsfrægðar fyrir sorpfram-
leiðslu, enda ‘heimtaði frelsið,
að klámframleiðsla yrði heim-
iluð í lögum. Svíar geta m.a.
státað af því að eiga klámhund
sem enginn kemst £ hálfkvisti
við, eins og einn isl. kvik-
myndagagnrýnandi komst að
orði um sænskan framleiðanda
sem setti saman einhverja sora
fengnustu mynd, sem um get-
ur.
KLÁM í KVIKMYNDUM
Einnig hér i einangruninni
á íslandi eru menn, sem reyna
að láta oss fylgjast með, svo
að vér getum líka notið menn
ingarblómanna. Ég hef lengi
spurt sjálfan mig, hvort kvik-
myndaihúsaeigen'dur hafi enga
ábyrgðartilfinningu gagnvart
æskunni — og menningunni.
Hér koma aftur og aftur til
sýninga hinar óhugnanlegustu
klámmyndir, sem jafnvel kvik-
myndagagnrýnendur geta ekki
stillt sig um að gefa hæfi-
lega einkunn, og kalla þeir þó
ekki allt ömmu sina. Einn
sagði nýlega um slíka mynd,
sem þá var til sýnis, að hún
væri öll siðlaus. Samt virtist
mér sá maður etoki gera mikl-
ar kröfur varðandi siðgæði
kvikmynda. Eiga kvikmynda
húsaeigendurnir unglinga —
og telja þeir þetta gott sálar-
fóður handa þeim? Varðar þá
ekkert um baráttu vorra hinna
sem reynum að leiðbeine ung
lingunum fram hjá boðum og
skerjum? — Á leið úr vinnu
fer ég fram hjá fataverzlun,
sem einkum kállar á ungt fólk
til viðskipta. Ilún skreýtir
glugga sína með mjög svo ó-
viðeigandi myndum, sem
hljióta að vertoa ertandi é ungt
fólto. Er eins og verið sé að
leggja beitu fyrir fólto og stoír-
skotað til kynhvatarinnar. Þá
er lágt lagzt.
Þess er ekki að vænta, að
vér fslendingar njótum neinna
forréttinda umfram aðrar þjóð
ir. Vér hljótum að uppstoera
eins og vér sáum til. Margar
þjóðir liðinna alda eiga þá
sö'gu, að þær misstu reisn sína,
dug og sjálfstæði, þegar dyggð
ir voru smáðar, kröfur til anri-
arra efldar og reynt var að
eyða tómleika i'nnihaldslauss lífs
með klámi, saurlffi og taum-
lausum skemmtunum. Þetta
skyldu einnig þeir rithöfund-
ar athuga, sem velta sér upp úr
saumum í stað þess að vera
oss hinum fyrirmynd og leið-
arljós. Þeir eru að grafa und-
an sjálfstæði þjóðarinnar,
eyða kjölfestu hennar, og
verða þá orð sumra þeirra um
frelsi þjóðarinnar og sjálfstæði
markleysa eða hræsni.
HLUTUR KRISTIN-
FRÆÐ2NNAR
Ég vil að lokum víkja að
skólamálum. Skólakerfið er í
endurskoðun og þar með náms
skráin. Boðað hefur verið, að
nýjar greinar bætist við f
barnaskólanu'm í haust, t.d. eðl
isfræði. Er þetta mögulegt,
nema aðrar grcinar verði að
gjalda þess? Ég vona, að hlut-
ur kristnifræðinnar verði ekki
rýrður, Kristinfræðin eru und-
irstaða siðgæðisins. Já, guðs-
trú og siðgæði hljóta áð hald-
ast í hendur. Siðíræðin verður
tæpast skuldbindandi fyrir ein
staklinginn, nema í samvizku
hvers manns megi skírskota til
guðs. sem hýður og fcannar og
hefur í sinni hendi heill og
Óhamingju. Boðorðin tíu eru
sígild, af því að þau eru frá
guði runnin og af bví að þau
hafa fengið staðfestingu sögu
þjóða og einstaklinga í rás ald
anna, til heilla þeim er halda
þau, e.n til ófarsældar, ef þau
éru, virt áð' ’ véttugi. Það. er
gleðilegt, að í hópi kennara er
trúað fólk. sem vænta má, að
vilji kenna kristinfræði með
alúð og áhyrgð. En ég veit, að
einnig fólk, sem treystir sér
etoki til áð gera játningar í trú-
arefnum, er margt einiægt og
Framhald á bls. 22.
anmiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiniiniiiiiiHHiiiiiiiiiiiiiiiiiSiiiiiiiiiifaBiiiiiHiiiiiiatiiimiiiiimiiiiiiuiijiiiiiniiHiniiitiiiiiiKimiiiiiiiimiiimisiimimiiiiiiiiitpE
LÓNÍ
ESS
F££UHG TMr
£ POSEP -AS
'M£ torob rm
£TAG£/0/?WG / ( .
/Þ ,B£77K£ St/m/ •
77/fS MSSl//S£ / I
WO/?£ ýY££////YAS
T//AT S7AGE/
roA/ro com£FO£ you a//s> fof
FFOOF mAr/CFMO SABAVMOr
//OW í/PMA/L GMG£/
=53
hs
Tontó, ég held að Henry Harte hafi leik-
ið mig og rænt vagninn, farðu og sæktu
hann.
Úfff!
. PHANTOM MOVES I
HAPD — ... .
Bráðlega . . . Ég ætti vist að brenna
gervið sem ég klæddist þegar ég var
neyddur tH að ræaa vagniun!
STOPP!
TnepmmoM
REEIS BACK—
STUNNEDÍ
UKE WTTfN®
^ SIQNE'
Hv . . . hvað?
Tontó kemur að sækja þig, og til að sanna
að Kemo Sabay (I.óni) hafi ekki rænt
vagninn!
! UKE STONE? /S
| STONE, rC’OUSH
,! MAN. ^
=3
Dreki slær hann fast .
Með eða án vopna . ..
skiptir engu!
Dreki hrekkur frá . . . eins og að berja
grjót! Braut næstum höndina á mér!
Eins og grjót? Það er grjót, heimski
maður!
Fimmtudagur 28. maú.
J.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir. Tónleikar. 7.30
Fréttir. Tónleikar. 7.55 Bæn.
8.00 Morgunleikfimi. Tón-
leikar. 8.30 Frettir og véð-
urfregnir. 9.00 Fréttaágrip
og útdráttur úr forustu- ,
greinum dagbiaðanna. 9.15 ,
Morgunstund hsrnanna: Þor
lákur Jónsson endar lestur
þýðingar sinnar á sögunni
„Nalli strýkur" eftir Gösta
Knutsson (9). 9.30 Tilkynn-,
ingar. Tónleikar. 10.00 Frétt •
ir. Tónleikar. 10.1Í0 Veður-
fregnir. Tónleikar. 11.00
Fréttir. Tónleikar .
12.00 Hódegisútvarp.
Dagskráin. Tilkynningar.
Tónleikar. 12.25 Fréttir og'
veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.0C Á frívaktinni.
Eydís Eyþórsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.40 Við, sem heima sitjum.
Svava Jakobsdóttir segir frá
Evgeníu Ginzburg.
1.00 Miðdegisútvarp.
Frétttir. Tilkynningar. Sígild
tónlist: Fílharmoníusveit
Berlínar leikur Leonórufor-
leikinn nr. 2 op. 72 eftir
Beethoven. Eugen Jochum
stjórnar.
Fílharmoníusveitin í Vin
leikur Sinfóníu nr. 4 í c-
moll eftir Schubert. Karl
Miinchinger stj.
Elisabeth Schwarzkopf. Irm
gaard Seefried, Erich Kunz-
o. fl. syngja atriði úr „Brúð
kaupi Fígarós" eftir Moz-
art, Herbert von Karajan
stjórnar. 1
16.15 Veðurfregnir. ætt lög.
(17.00 Fréttir).
.'5.30 Tilkynningar.
18.45 Veðuíferghir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar. .
19.30 Leikrit: „Charley frændi“
eítir Ross Cockriil.
Áður útv. 23. sept. 1967.
Þýðandi: Áslaug Árnadóttir.
Leikstjóri: Ævar R. Kvar-
an.
Persónur og leikendur:
Pétur Dallas: Arnar Jónss.,
Janey Dallas: Sigríður Þor-
valdsdóttir,
Charley frændi: Þorstéinn
O. Stephensen,
Frú Piichard: Guðbjörg
Þorbjarnardóttir.
Tamía, Gregorovitch: Krist-
björg Kjeld,
Bill Manders: Gísli Alfreðs-
son.
Efemía: Edda Kvaran.
21.00 Sinfó -íuhljómsveit fslands
heldur hljómleika í Háskóla
bíói.
Etjói ..andi: Bohdan Wodicko.
Einlíikari á fiðlu: Gyorgy
Pauk frá Ungverjalandi.
Fiðlukonsert eftir Ludwig
van Beethoven.
21.45 Endurtekin orð.
Vilborg Dagbjartsdóttir Ies
ljóð eftir Guðberg Bergs-
son.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Kvöldsagan: „Regn á rykið“
eftir Thor Vilhjálmsson.
Höfundurles (24).
22.35 Létt músik á síðkvköldi.
Flytjendur: SinfóníuMjóm-
sveit Kaupmannahafnar, Giu
seppe Valdengo söngvari,
Cristina Deutekom söng-
kona og Sinfóníuhljómsevit
Lundúna.
23.15 Fréttij- í stuttu máli.
Datoskrárlok.
nuiniuiuuiimiuiuiimmiusiifs
xB