Tíminn - 10.06.1970, Qupperneq 9
MnmKUDAGUR 10. júní 1970.
Ots*fan<fl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Frnmflcvæmdastjórí: Kriatján Benedtktsaon. Ritstjórar. ÞórartaJi
Þórartnsson (áb). Andéa Krlstjánsson, Jón Helgason og T&maa
Karlsson. Auglýaingastjórl: Stetagrlmur GUiaaon Ritatjómar-
akrifstofur f Edduhúainu, slmar 18300—18308 Skrtfatofur
Bankastrætl 7 — AfgreiðsluslnU: 12323 Auglýsingaaimi: 19823
AOrar sbrifstofur sfmi 18300, Áskrifargjald kr 16S.00 á mán-
uW, innanlanda — ! lausasðlu kx. 10.00 eint Prentam Edda hf.
Heyverkun og veðurfar
Meðal þeirra frumvarpa Framsóknarmanna, sem dag-
aði uppi á síðasta þingi, var frv. Stefáns Valgeirssonar
o. fl. um að tryggja Framleiðnisjóði landbúnaðarins ár-
legt framlag, sem næmi a.m.k. 20 millj. króna. í frv.
var tekið fram, að tilraunir með innlenda fóðuröflun og
heyverkun skyldu sitja fyrir öðrum verkefnum um fyr-
irgreiðslu.
í greinargerð frv. var það rakið, að glöggt hafi kom-
ið fram á síðastl. sumri, hve bændur væru vanbúnir að
mæta slíku veðurfari, sem var þá um mestan hluta
landsins. Þess vegna þurfi að kanna allar tiltækar leið-
ir til að koma í veg fyrir, að slík saga endurtaki sig.
Fara þurfi fram rannsóknir á því, hve vatnsmikið hey
megi taka í súgþurrkun og við hvaða skilyrði. Rann-
saka þurfi votheysgerð á svipaðan hátt. í þriðja lagi
þurfi að fá hraðþurrkunartæki og gera athuganir á þeirri
verkunaraðferð. Þá þurfi að gera samanburð á þessum
mismunandi aðferðum. Vegna kalskemmdanna að undan-
förnu, þurfi að gera tilraunir með ræktun einærra jurta,
og ræktun á ýmiss konar grænfóðri. Þá er minnzt
á ýmis fleiri verkefni, sem vinna þurfi að.
Lögin um Framleiðnisjóðinn eru þannig nú, að sjóð-
urinn fær síðasta framlag úr ríkissjóði á þessu ári, en
alls hefur hann fengið um 30 millj. króna til ráðstöf-
unar. Því fé er nú að sjálfsögðu ráðstafað að mestu.
Þess vegna er það brýnt.verkefni að auka fjárráð*fíáns.
Það er áreiðanlega hægt með breyttri ræKíun' og
hættri heyverkun að sigrast bæði á kalinu og óþurrkun-
um að mestu. Slíkt myndi gerbreyta aðstöðu bænda og
stórauka öryggi landbúnaðarins. Þetta mark næst þó
ekki, nema kappsamlega sé unnið að þeim rannsóknum,
sem áðurnefnt frv. fjallar um. Vonandi nær það fram
að ganga á næsta þingi.
Kolgrímur
Alþýðublaðið birtir í fyrradag mikla hólgrein um
Gylfa Þ. Gíslason sem menntamálaráðherra. Ekki vill
þó greinarhöfundur láta nafns síns getið, heldur kallar
hann sig Kolgrím.
Greininni lýkur með þeim orðum um Gylfa, að „eng-
inn hafi reynzt íslenzkum námsmönnum heima og erlend-
is eins jákvæður í störfum og hann.“!
Þeir, sem hafa heyrt Gylfa lýsa á Alþingi ágætum
sínum sem menntamálaráðherra, geta vel ráðið það af
framangreindum ummælum, hver Kolgrímur er!
Verk, sem geta dregizt
Mikil íundahöld hafa verið hjá Alþýðuflokknum að
undanförnu og segir Alþýðublaðið, að rætt hafi verið
um kosningaúrslitin. Annar ritstjóri blaðsins, Kristján
Bersi, segir þó, að ekki hafi fundirnir leyst úr þeirri
spurningu, hverjar væru meginorsakir fylgishrunsins
í bæjarstjórnarkosningunum. Þó telur Kristján Bersi, að
Sigvaldi Hjálmarsson hafi komizt næst því, sem væri
kjarni málsins, þegar hann benti á, að eftir áratugs
stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum, væri ekki
neinn skýr greinarmunur á stjórnarflokkunum. Þetta
verður Alþýðuflok.kurinn að leiðrétta. segir Kristján
Bersi, ekki aðeins með orðum, heldur líka með verkum.
Enginn efar, að forustumenn Alþýðuflokksins munu
gera s.itt bezta til þess að reyna að leiðrótta þetta með
orðum. En hætt er við, ef Gylfi og Benedikt fá að ráða,
að nokku” bið verði á verkunum. Þ.Þ.
TIMINN
9
ERLENJ YFIRLIT
Fellur stjórn Brandts í fylkis-
kosningunum á sunnudaginn?
Sú hætta er veruleg, að Frjálslyndi flokkurinn þurrkist út
SÍÐASTLIÐINN fimmtudag
urðu á þiraginu í Bonn einar
hörðustu umræður, setn þar
hafa farið fram, ea fjárlögin
fyrir nœsta fjárhagsár voru þar
til afgreiðslu. Það gerðist m.a.
undir umræðunum, að allir við
staddir þingmenn kristilega
floklksins gengu út úr þingsaln-
um, um 200 talsins, þegar Her-
bert Wehner, leiðtogi þing-
floikks jafnaðannanna, ásak-
aði foringja kristil. flokksins
■um, að þeir stynktu ofbeldis-
stefnu hægri sinnaðra öfga-
manna með málflutningi sín-
um. Aðalsókn sinni beindu þó
talsmenn kristilega flokksins
gegn Willy Brandt kanslara.
Helzta árásarefni þeirra var
það, að Brandt hafði daginn áð
ur haldið ræðu í Bielefeld, þar
sem hann hélt því fram, að
foringjar kristilega flokksins,
m. a. Rainer Barzel og Ger-
hard Stoltenberg, hefðu átt
leynilegar viðræður við at-
vinnrekendur og hvatt þá til
að vera óvægna í skiptum við
verkamenn og reyna þannig að
ýta undir ólögleg verkföll.
Þeir Barzel og Stoltenberg mót
mæltu þessu kröftuglega í
þinginu og kröfðu Brandt um
sannanir. Brandt sagðist hafa
upplýsingar um þetta frá
Wischnewsky, framkvæmda-
stjóra jafnaðarmannaflokksins.
Wisohnewsky, sem á sæti í
þinginu, neitaði að segja hverj
ir heimildarmenn hans væru,
en féllst á eftir að umræður
höfðu staðið í fjóra tíma, að
kynna sér heimildir sínar bet-
ur og gefa þinginu skýrslu, ef
þær reyndust rangar.
Enn mun ekki hafa heyrzt
neitt frá Wisdhnewsky um
þetta. Samkvæmt síðustu frétt-
um hafa leiðtogar kristilega
flokksins ákveðið að höfða mál
gegn Brandt fyrir ummæli
hans og reyna að fá þau
ómeikt af dómstólunum.
ÁSTÆÐAN til þess, að
kristilegi flokkurinn notaði
fjárlagaafgreiðslima til að gera
hríð að stjórninni, mun eink-
um sú, að stjórnin er veikari
fyrir á sviði innanlandsmála en
utanríkismála. Tilraupir
Brandts til að bæta sambúðina
við Austur-Evrópu virðast eiga
miklu fylgi að fagna. Hins veg-
ar gætir nokkurrar óánægju
vegna verðhækkana og kaup-
hækkana innanlands, því að
gengishækkunin virðist ekki
hafa náð því marki, sem stefnt
var að í þessum efnum. Schill-
er fjármálaráðherra svaraði
gagnrýni kristilega flokksins
varðandi þetta efni á þann veg,
að Þjóðverjar hefðu aldrei áð-
ur búið við eins góð lifskjör.
Þá hélt hann þvi fram, að
þjóðarframleiðslan myndi auk-
ast um 6% á árinu og fram-
leiðni atvinnuveganna myndi
einnia aukast urr. 6%. Þá
nefndi hann tölur, sem sýndu,
að gjaldeyrisstaðan hefði batn-
að að nýju síðan í janúar, en
lL. 1 l "
WALTER SCHEEL
hún versnaði fyrst eftir gengis
hækikunina.
LOKAATKVÆÐAGREIÐSL-
AN um fjárlögin fór á þann
veg, að þau voru samþykkt
ingunum siðast 49.5% atkvæða
og 9^ fulltrúa, kristilegi flokk-
urinn 42.8% og 86 fulltrúa og
Frjálslyndir 7.4% og 1S full-
trúa. Þar er nú stjórnarsam-
vinna jafnaðarmanna og frjáls-
með 247 gegn 241 atkvæði. 4yndra.
Þessi úrslit gáfu glöggt til Niedersachsen, sem, hefur
um sjö milljónir íbúa. Þar fengu
jafnaðarmenn í síðustu fylkis-
kosningum 43.1% atkvæða og
65 fulltrúa, kristilegi floibkur-
inn 41.7% og 67 fulltrúa, ný-
nazistar 7% og 7 fulltrúa og
Frjálslyndi flokkurinn 6.7% og
7 fuiltrúa. Þar er nú sam-
brœðslustljórn jafinaðarmanna
og kristilega flokksins.
Saar, sem hefur um 1.1
millj. íbúa. Þar fékk Kristilegi
flokkurinn í siðustu fylkiskosn-
imgum 42.7% atkvæða og 24
fulltrúa, jafnaðarmenn 40.7%
og 21 fulltrúa og Frjálslyndi
flokkurinn 5.2% og 5 fulltrúa.
Siðustu fyikiskosningar voru
Frjálslynda flokknum mun hag
stæðari en þingkosningarnar á
síðastl. ári. Flofckurinn er því
engan veginn öruggur um að
ná 5% markinu í fcosningunum
á sunnudaginn.
kynna, bve veikur þingmeiri-
hluti stjórnarinnar er. Stjórnin
hefur aðeins tólf atkvæða
meirihluta á þingi, en við
þessa öriagaríku atfcvæða-
greiðslu vantaði sjö stjórnar-
þingmenn, en ekki nema einn
stjórnarandstæðing. Stjórnin
hafði því efcki nema sex at-
kvæða meirihluta að þessu
sinni.
Vafalaust verður þessi nið-
urstaða til að herða enn bar-
áttu kristilega flokksins gegn
stjórninni. Það er vitað mál, að
hægri armur Frjálslynda
flokksins er í hjarta sínu and-
vígur samvinnunni við jafnað
armenn. Margir telja, að efcki
þurfi mikið að gera tii þess,
að stuðningur hans bresti.
Kristilegir demófcratar gera
sér því miklar vonir um fylfc-
iskosningarnar, sem fara fram
á sunnudaginn. Ef Frjálslyndi
flokkurinn verður fyrir áfalli
þar, getur það riðið stjórn
Brandts að fullu.
KOSNINGAR fara fram á
sunnudaginn kemur til þriggja
fylkisþinga. Til þess að fá
fulltrúa kjörinn á fylkisþing,
þarf flokkur að fá minnst
5% greiddra atkvæða. Stjórn-
arsinnar óttast nú verulega, að
Frjálslyndi flofckurinn nái ekki
þessa 5% marki. Fari svo, að
hann þurrkist út í þessum fylk
isþingum, getur það orðið til
þess, að hægri armur hans snú-
ist gega Brandt, þvi að hann
mun þá kenna stjórnarsam-
vinnunni um ófarir flokksins.
Kosningar fara fram í þess-
um fylkjum:
Nordrhein-Westfalen, sem
er stærsta fylkið með 17.1
millj. íbúa. Þar fékk Jafnaðar-
mannaflokkurinn í fylkiskosn-
Innan flokksins hefur nokk-
uð borið á óánægju vegna
þess, að Brandt hefur tekið ut
anríkismálin svo mjög í sínar
hendur, að Scheel utanríkisráð
herra, formaður Frjálslynda
flokksins, hefur að mestu horf
ið í skuggann. Fyrir nokkrum
vikum var rætt um, að Scheel
yrði bætt þetta upp á þann
hátt, að hann færi til Moskvu
og tæki þátt í samningagerð-
inni um vœntanlegan griðasátt-
mála milli landanna. Við nán-
ari athugun var horfið frá
þessu, þar sem svo gæti farið,
að litið yrði á þetta sem mis-
heppnað áróðursbragð fyrir
fylkiskosningarnar. Sá, sem
mun hafa ráðið mestu um, að
hætt var við þessa fyrirætlun,
var Geneher innanríkisráð-
herra, en almennt er nú litið á
hann sem hinn „sterka" mann
Frjálslynda flofcksins. Þ.Þ.