Tíminn - 10.06.1970, Blaðsíða 14
14
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 10. júní 1970.
Fólk stelur....
Framhald at B síðu
þetta, nema ef vera skyldi, að
hann hefði langað í ökuferð!
Neyðarlegast
Að lokum segjum við frá
veslings þjófunúm, sém urðu
fyrir svo sárum vonbrigðum.
Þeir voru þaulvanir og tókst
að næla sór í brynvarðan pen-
ingaflutningabíl. Allt gekk vel
og þjófarnir hlökkuðu ósköp-
in öll til að hræra í peningum.
þegar þeir Xögðu af stað á bíln
um, sem innihélt 2 milljónir
dollara í 20 dollara seðlum,
fallega búntuðum.
LISTAHÁTÍÐ í
REYKJAVÍK
LED ZEPPELIN -
HUÓMLEIKAR
Miðasala hefst á föstudagsmorgun kl. 8.00.
Engar pantanir.
Aðeins er unnt að afgreiða hvern um 5 miða (há-
mark).
Sjá nánar í heildarauglýsingu Listahátíðar varð-
andi tímasetningu og miðaverð.
LÍSTAHÁTÍÐ í
REYKJAVÍK
Ánamaðkur t§B söBu
Upplýsingar í síma 12504 og 40656.
Rafgeymir
— ger'ð 6WT9, með
óvenjumikinn ræsikraft,
miðað við kassastærð.
12 volt — 64 ampt.
260x170x204 m/m.
SÖNNAK rafgeymar í úrvali
S M Y R I L L, Ármúla 7 — sími 84450.
FORNMUNIR
Nú er vorhugur 1 efnahagslífi þjóðarinnar. Þess
vegna megum við ekki blunda á verðinum. En
taka virkan þátt í efnahags- og viðskiptalífinu.
Eitt atriði af svo mörgum er að hagnýta þá gömlu
muni sem við ennþá eigum. Ég skal kalla til ykkar
hvar á landinu sem þið eruð og eigið gamla
muni. Talið við okkur sem allra fyrst. Munirnir
verða greiddir við móttöku.
Fornverzlun og gardínubrautir,
Laugavegi 133 - Sími 20745 — 10059.
Innilegar þakkir sendum við ölium, nær og fjær, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug vlð andlát og jarðarför
Valdímars Guðmundssonar,
Skagfirðingabraut 12, Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir færum við Kirkjukór, Leikfélagi, Samkór og
Lúðrasveit Sauðárkróks, sem heiðruðu minningu hans.
Margrét Gísladóttir,
GuðmundOr Valdimarsson, Sigurbjörg Sigurðardóttir,
Margrét Guðmundsdóttir, Guðlaug Guðmundsdóttir.
Það eina, sem slæmt var
við þetta allt saman, var að
búntin voru öll klippt sundur
í miðjunni. Lög mæla svo fyr-
ir, að innkallaða seðla skuli
eyðileggja með því að kiippa
þá í sundur. Þessar 2 milljón-
ir voru á leiðinni í brennslu-
ofninn!
Orlof húsmæðra
Framhald af bls. 3.
sögð laun, geta borið ríkulegan
ávöxit, bæði til starfs og gleði.
í Reyikjavík starfar orlofsnefnd
á yegum Bandalags kvenna og
mun hún í sumar í samvinnu við
orlofsnefndirnar í Kópavogi og
Hafnarfirði hafa Orlofsheimili að
Lauigum í Dalasýslu, júlí—ágúst
eins og s.l. sumur, þar sem húsa-
kynni og góð sundlaug til ofnota
fyrir dvalargesti.
Að Laugutn er veSarsæld mikil
og náttúrufegurð, auk þess er um
hverfi Lauga þrungið sögulegri
rómantí'k.
Sex hópar kvenna munu dvelja
þar í sumar, sá fyrsti fer frá
Reykjavík þann 1. júlí og dvelur
þar I 10 daga, annar hópurinn
verður einnig frá Reykjavík, en
þriðji frá Kópavogi og fjórði frá
Hafnarfirði — en tveir þeir síð-
ustu í ágúst verða frá Reykja-
vík.
í hverjum hópi eru um 50 konur
og fylgir þeim fararstjóri er dvel
ur með þeim allan tímann.
Orlofsnefnd húsmæðra í Reykja
\ hefur opna skrifstofu að Hall-
veigarstöðum, Túngötu 14, í hús-
næði Kvennréttindafélags fslands
á mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum kl. 4—6—edfc, sícni
18156.
Þár verður tekið á móti umsókn
um frá og með 8. júní til 8. júlí
n.k.
Orlofsnefnd húsmæðra í
Reykjavík býður gesti sína hjart
anlega velkomna.
Verkfallið....
Framhald af ois 1.
falli og finnst bændum á Suður
landi þeir þvj verða enn meira
fyrir banðinu á verkfallinu, en
bændur í öðrum landshlutum.
GAMALT OG NÝTT KAL.
Mikiil vinna er við að skilja
mjólkina heima á bæjunum. enda
eikki fyrir hendi afkastamikil
áhöld í því sambandi. Á búum
þar sem falla til 150 — 200 lítrar
á dag, fara um fjórir tímar í að
skilja, og er þá eftir að strokka.
Hafa einhverjir brugðið á það ráð
að nota þvottavélar til að strokka
í. en ekki þó sjálfvirkar, neldur
af eldri gerðurn.
Þá lyftir það ekki undir við bú
skapinn, að gamalt og nýtt kal er
mjög áberandi víða í .túnum, og
í uppsveitum Árnessýslu, sumstao
ar eru ekki horfur á að tún verði
slfegin í sumar vegna öskufalls
ins, sem þar hefur verið.
Drukkinn
ökumaður
sBasaðist
OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Harður árekstur varð á Suður-
landsbraut á móts við Múla í
kvöld. Óku þar saman tveir bílar
og stórskemmdust þeir báðir.
Ökumaður annars bílsins var
fluttur á Slysavarðstofuna og er
hann mikið slasaður. Er hann tal
inn hafa verið undir áhrifum
áfengis.
Verkir, þreyfa í baki ?
DOSI belfin hafa eytt
þraufum margra.
Rcynið þau.
.EMEDIA H.E
LAUFÁSVEGI 12 - Sími 16510
Bifreiðaeigendur
ATHUGIÐ-
Nú er rétti tíminn til a3
panta tíma og láta þétta
rúður og hurðir.
1. fl. efni og vönduð vinna.
Upplýsingar í síma 51383
eftir kl. 7 á kvöldin og j
um helgar.
MALVERK
i
j Gott úrval Afhorgunar-
! kjör. Vöruskipti. — Um-
boðssala.
Gamlar bækur og antik-
vörur.
Önnumst inrömmun mál- |
verka.
MÁLVERKASALAN
. TÝSGÖTU 3.
Sími 17602.
VELSMIÐI
Tökum að okkur alls konar
RENNISMÍÐI,
FRÆSIVINNU
og ýmis konar viðgerðir.
VélaverkstæSi
Páls Helgasonar
Síðuniúla 1A Sími 38860.
Bifreiðaeigendur
Getum aftur tekið bifreið-
ar yðar til viðgerða með
stuttum fyrirvara. .
Réttingar, ryðbætingar,
grindaviðgerðir, yfir-
byggingar og almennar
bílaviðgerðir.
Ilöfum sílsa í flestar gerð-
ir bifreiða.
Fljót og góð afgreiðsla. —
Vönduð vinna.
BÍLASMIÐJAN KYNDILL
Súðavogi 3. Sími 32778.
Bændum veitt aðstoð
Framhald af bls. 2
sjúkdiómseinkennum í búfé, sér-
staklega á sauðfé, sem beif.t var
fyrst eftir gosið. Tekizt hefur að
lækna fjölda af Því fé, sem veikzt
toetfur með lyfjagjöf, þó hafa
mjög tilfinnanleg vanhöld orðið á
ám á sumum bæjum og lamba-
dauði víða mjög mikill oo enn er
fé að drepast, einkum lömb. Nú
er ástandið alvarlegt og fé í gró-
andanum kvikdregið, dauft og las
legt.
Lýst var fyrir bændum að hin
ar langvarandi afleiðingar flour
eiitrunar gætu orðið mun alvar-
legri en þær verkanir, sem þegar
hafa komið í Ijós. Hinar langvar-
andi verkanir koma fyrst og
fremst frafn á ungviði og í þeim
skepnum, sem enn hafa ekki
fellt tennur. Flourin safnast í bein
og tennur og veldur slíkum
skemmdum og missmíði á þeim,
að skepnum verður tregt um át.
Slí'kar skemmdir eru þekktar frá
fyrir eldgosum og eru nefndar
gaddur og gostönn. Auk þess
koma fram sárir hnútar á fót-
leggjum, svokallaðar fætlur, sem
valda helti. Getur svo farið að
skepnur verði ófærar til gangs.
Þetta getur valdið afurðarýrnun
og dauða síðar, e.t.v. eftir lang-
an tíma.
Mjólkurkýr eru mjög viðkvæm-'
ar fyrir floureitrun og var því
brýnt fyrir bændum að gefa þeim
enn um skeið inni, og sjá til, hvort
fluormagn í gróðri minnkaði ekki
verulega á næstunni. Verði ekki
hjá þvi komizt að beita kúm á
mengað land var ráðlagt að nota
kal'krík fóðursölt 010 ennfremur
hafa verið gerðar ráðstafanir til
að flytja inn sérstaka kjarnfóður-
blöndu, sem gerð er eftir fyrir-
sögn norskra sérfræðinga til þess
að draga úr fluoreitrun í grennd
við álver.
Bændum, sem möguleika hafa
á því, var ráðlagt að flytja búfé
sitt á ómengað land í sumar, eft-
ir því sem kostur er á. Sunnlend-
ingar á öskufallssvæðinu eiga þess
bost með ærniujtn tilkostnaði og
fyrirhöfn að flytja sauðfé og geld
neyti á ómengað land. Öðru máli
gegnir í Húnaþingi. Húnvetningar
austan Blöndu eiga þó að geta
flutt geldneyti á ómengað land.
í Austur-Húnavatnssýslu, vestan
Blöndu er e.t.v. möguleiki á að
flytja geldneyti í Svinavatns-
hrepp og geldfé á Auðkúluheiði.
Vestur-Húnvetningar eiga engra
fcosta völ með búfé nema beita
því á hi'ð mengaða land, jafnt á
heimalönd og á afrétt. Þó var sá
möguleiki rædtjur að flytja kvíg-
ur úr Vestur-Húnavatnssýslu á
eyðijarðir við Breiðafjörð.
Tjón, sem bændur verða fyrir
af völdum þessa goss úr Heklu
er af náttúruhamförum og fellur
því lögum samkvæmt undir verk-
svið hinnar almennu deild'ar Bjarg
ráðasjóð íslands, en Bjargráða-
/sjóður hefur verið efldur mjög
að undanförnu til þess að geta
fremur risið undir að veita að-
stoð í tilfellum eins og þessum.
Tjónið af völdum gossins er enn-
þá tilfinnanlegra, þar sem það
lendir á bændum, sem urðu fyrir
tjóni vegna óþurrkanna s.l. sumar
og kals á árunucn þar áður í
Húnavatnssýslum. Hafa þessir
bændur kostað miklu til fóður-
bætiskaupa, en sáu fram á góðan
árangur, er sæmilega voraði, hefði
ekki þetta óhapp dunið yfir. Hafa
þessir bændur orðið fyrir miklu
tjóni, umfram alla aðra stéttar-
bræður sína, enda hafa þeir þeg-
ar orðið að fóðra fé sitt mun leng
ur en aðrir bændur og venjulegt
cr. Af þessum ástæðum telur
Harðærisnefnd óhjákvæmilegt, að
veitt verði aðstoð vegna þessa
í .ellis.“