Tíminn - 01.09.1970, Side 14
14
TIMtNN
ÞRIÐJUDAGUR 1. septcmber 1970.
Stéttarsamband
Framhakl af bls. 1
enda minnlcaði smjörsala um rúm
10%.
Kjötmagn var nokkru minna en
árið áður en meira flutt út af
kjöli en nokkru sinni fyrr. Bænd-
ur fengu grundvallarverð fyrir
mjólk. Þá .ræddi formaður verð-
lagsmál' og undirbúning að nýjum
verðlagsgrundvelli og fór loks
nokkrum orðum um framtíðarhorf-
ur. Vérður ræða formannsins, rak-
in ítarlegar hér í blaðinu síðar,
enda er í henni geysimikill fróð-
leikur um afkomu ,’andbúnaðarins.
Að Íokinni ræðu formanns flutti
Árni Jónsson erindpeki skýrslu um
hclztu störf sín og ræddi m.a. at-
hugun sína á skattframtölum
bænda og efnahag. Sæmundur
Friðriksson, framkvæmdastjóri,
las reikninga sambandsins. Eignir
þess eru nú 51,8 millj. kr. þar af
42 í Bændahöllinni.
Að loknum þessum skýrslum,
flutti Ingólfur Jónsson, landbúnað
arráðherra, ávarp ,og ræddi um
búnaðarmál og lífskjör bænda.
Hann rakti fjárstuðning við
bændur í harðæri síðustu ára. —
Hann sagði, að verja þyrfti stórfé
til kalrannsókna og fá þolnari
grastegundir, eins o-g bændur í
Kanada hafa fengið. Hann sagði,
að framleiðslumagn búvöru hefði
haldizt ótrúlega vel. Síðan ræddi
hann dýrtíðar- og verðbólgumál
og sagði að nú yrði að stöðva
vísitöluskrúfuna og reyna að
tryggja kaupmátt launa, og um
það ræddi ríkisstjórnin nú við
launþega.
Að loknu ávarpi landbúnaðar-
ráðherra, kvaddi Stefán Valgeirs-
son. alþirigismaður sér hljóðs og
kvaðst vilja leggja eftirfarandi
þrjár spurnin-gar fyrir ráðherrann:
1. Fá bændur gefin eftir Bjarg-
ráðasjóðslán, eða þeir sem verst
eru staddir?
2. Má ekki vænta forgöngu ríkis-
stjórnarínnar um svonefnda hey
miðlun?
3. Mega þeir. sem þurfa að skera
niður, ekki eiga von á upp-
eldisstyrk?
Ráðherrann taldi e-kki ástæðu
til að bíða, unz Stefán hafði lok-
ið ræðu sinni, hvað þá svara spurn
ingunum.
Síðan urðu allmiklar umræður
fram eftir kvbldi og tóku margir
til máls. Verður nánar greint
frá þeim síðar.
Á sunnudag störfuðu nefndir
fram eftir degi, en síðdegis hófst
fundur og skiluðu nefndir tillög-
um, sem ræddar voru og afgreidd
ar. Stóðu umræður og afgreiðsla
mála fram að miðnætti.
Á síðd-egisfundiuum á sunnu-
daginn flutti Þorsteinn Sigurðs-
son, formaður Búnaaðrfélags ís-
lands, athyglisverða ræðu, þar sem
hann ræddi starf félagssamtaka
bændanna og lauk miklu loftorði
á störf Stóttarsambands bænda frá
fyrstu tíð og samstarf við Bún-
ÞAKKARÁVÖRP
Hjartans þakkir til allra vina og vandamanna, nær
og fjær, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum
og kveðjum á níræðisafmæli mínu. Guð blessi ykkur
öll. r-
Ingibjörg Finrisdóttir.
Sonur minn og bróSir okkar,
Gunnar Friðgeir Þorsteinsson
frá Akureyri
lézt i Borgarspítalanum 20. ágúst. Útförin hefur farið fram.
Jakobína Björnsdóttir
og systkini hins látna.
aa—a—————B»a»^mB3MWHmiwiiis
Öilum, sem sýndu okkur samúð og vinsemd við fráfall
Björns Ármannssonar,
Hraunkoti,
þökkum vlð af hjarta.
Kristin Kjartansdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
nnilegar þakkir fyrlr auösýnda samúð og vinarhug við andlát og
arðarför eiginkonu minnar,
Önnu Mýrdal Helgadóttur,
Suðurgötu 94, Akranesi.
Björgvin Ólafsson
og aðstandendur.
Litia dóttir okkar og systir,
Kristín Helga
andaðist 22. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram. Þökkum hjartan-
lega auðsýnda samúð.
Guðlaug Jónsdóttir,
Guðgeir Ólason,
börn og vandamenn.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, fósturföður og afa,
Elíasar Kristinssonar,
Árvegi 4, Selfossi.
Bjarndís Jóhanna Nikuiásdótfir,
Ólafur N. Elíasson,
Jóhanna Eyþórsdóttir,
Jóhanna og Þórdís Þórðardætur
og barnabörn.
aðarfélag íslands. Hann kvað það
rétta stefnu, að sauitök þessi
væru aðskiliu en ynnu þó mikið
saman Og hlið við hlið. Færði
hann Stéttarsambandinu ámaðar-
óskir Búnaðarfélags ísiands.
í morgun hófst fundur klukkan
hálf tíu og héldu umræður og
afgreiðsla mála áfram. en fundar-
slit fóru fram um kl. 3 síðdegis,
og fulltrúar héldu heimleiði.i.
Búvísindamenn
Fratnhald af bls. 2
þó margt sameiginlegt og sam-
vinna væri líkleg til að gefa já-
kvæðan árangur. Áherzla var Ægð
á, að hvað vélvæðingu og vélanotk-
un snerti, og varnir gegn slysum
og heilsuvernd viðví-kjandi véla-
vinn-u, væri vandamálin hin sömu
og mikilvægt væri a(ð þjóðirnar
miðluðu hver annarri af sinni
reynslu.
Erlendu fuL'trúarnir sögðust
hafa trú á því að ylrækt ætti sér
mikla framtíð hér á landi. Að vísu
hamlaði skammdegið dálítið
en þar í móti kæmi, að hér væri
að fá ódýrt rafmagn að næturíagi,
sem væri dýrt á öðrum Norður-
löndum.
Þá vöktu erlendu gestirnir at-
hygli á framtíðarmöguleikum hér
á 'andi fyrir fiskirækt og loðdýra-
eldi. Ennfremur töldu þeir vert
að íhuga, hvort ekki væri rétt að
flytja inn stórgripasæði til íslands
frá öðrum Norðurlöndum. En svo
sem kunnugt er þarf lagabreytingu
til þess að svo verði. Þá kváðu
þeir íslendinga g-eta fengi® hag-
kvæma þekkingu frá þjóðum sin-
-um hyggðu þeir á mórækt í fram-
tiðinni.
Erlendu ful.trúarnir voru mjög
ánægðir með dvölina hér og þann
góða anda, sem ríkt hefði á ráð-
stefnunni, og þeir töldu mikils
virði. Það vakti athygli þeirra,
hva® landið hefur grænkað undan-
farinn hálfan annan áratug. Þeir
báru lof á íslenzkar landbúnaðar-
afurðir og þá einkum kindakjötið,
sem þeir tö.’du í sérflokki. Upp-
blásturinn virtist þeim alvarleg-
asta vandamál ísl. landbúnaðar. Er
eian blaaðmanna sagði við þá,
að ýmsir teldu rétt að leggja
niður landbúna® hér á landi, þar
sem hann væri rekinn með ha.ta,
svaraði einn erlendu landbúnaðar-
vísindamannanna — Landbúnaður
borg-ar sig hvergi, en samt er ekki
hægt að leggja hann niður.
(þróttir
Framhald af bls. 12
★ FH — iBÍ 1:1
-A Völsungur — Breiðablik 0:3
Breiðablik 11 9 2 0 29:4 20
Ármann 10 7 1 2 20:13 15
Haukar 13 6 1 6 20:23 13
Selfoss 10 4 3 3 18:18 11
Þróttur 12 4 3 5 32:18 11
ÍBÍ 11 2 6 3 13:11 10
FH 10 2 1 7 9:28 5
Völsung-ur 11 1 1 9 12:38 3
Markhæstu menn:
Guðmundur Þórðarson, Breiðab. 11
Kjartan Kjartansson, Þrótti 11
Þorkel Hjörleifsson, Ármanni 9
Haukur Þorvaldsson, Þrótti 7
Helgi Þorva-ldsson, Þrótti 6
Jóhann Larsen Haukum 6
Borgarfulltrúar
Framhald áf bls. 16.
áherzla er lögð á að brenna og
eyða sorpi.
Stjórn Helsinki kváðu fulltrú-
arnir með svipuðum hætti og
Reykjaví'kurborgar. Borgarfulltrú-
arinr eru 77 að tölu frá átta stjórn
málasamtökum, 25 þeirra era kon
ur. Auk þessara fulltrúa skipa 16
menn og tvær konur borgarráð.
Til samanburðar má geta þess að
45 af 200 þingmönnum Finna eru
konur, og eru þær tiltölulega miklu
fjölmennari, bæði á þingi og í
borgarstjórn en gerist hér á landi.
Konurnar láta hverskyns mál til
sín taka, en virðast hafa meiri
áhuga á þjóðfélagslegum umbót-
um en karlmennirnir í borgar-
stjóra, sögðu finnsku gestirnir.
Á blaðamannafundinum kom
einnig fram að litlu dagblöðin í
Finnlandi eiga í fjárhagserfiðleik
um og er mi'kið rætt um opinbera
styrki til þeirra. Eitt ríkisdagblað
Frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík
Tónlistarskólinn í Reykjavík tekur til starfa 1. okt.
Umsóknarfrestur er til 15. september og eru um-
sóknareyðublöS afhent í Hljóðfæraverzlun Poul
Bernburg, Vitastíg 10.
Nýr flokkur í söngkennaradeild byrjar í haust
og er námstími þrír vetur.
Nánari upplýsingar um námið og inntökuskilyrði
verða veittar næstu daga á skrifstofu skólans
miili kl. 11—12.
Inntökupróf verða sem hér segir: í söngkennara-
deiid, mánudaginn 21. sept. kl. 4 síðdegis.
í aðrar deildir skólans, þriðjudaginn 22. sept.
kl. 4 síðdegis.
Skólastjóri.
fÚTBOЮ
Tilboð óskast 1 skurðgröft og lagningu götuljósa-
strengs við Vesturlandsveg frá Elliðaám að Höfða-
bakka. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri
gegn 2.000,00 króna skilatryggingu-
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn
9. september kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
, < • Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
er í Helsinki, Huvudstadsbladet.
Finnar eru nú að koma á nýju
skólakerfi og verður því lokið eft-
ir 10 ár. Samkvæmt því hefst
meðal annars kennsla erlendra
mála mun fyrr en nú gerist.
Ruggystólar
Framhald af bls. 3.
Gluggar verzlunarinnar era
stórir og miklir á tvo vegn og
sést inn Um þá yfir alla verzl-
unina, ef einhver forvitinn veg-
farandi skyldi koma að lok-
uðum dyrum.
Að lokum sagði Gunnar, að
í ráði væri á næstunni að
stofna hlutafélag um verzlun-
ina og þegar það væri komið
á, yrði væntaniega farið að
athuga möguleika á að flytja
inn gömul húsgögn frá antik-
verzlunum erlendis. að líkind-
um enskum. Verðlag á antik
fer nú mjög hækkandi í ná-
grannalöndnm.
Hornbjargsviti
Framhald af bls. 16.
komið ævistarf, sagði Jóhao n
I étursson, — og er nú orðin
ærið nógu löng. Hvað ég ætlá
að gera næsta árið? Ég' er að
átta mig á málunum. Ég hef
aldrei á ævinni verið eins óráð-
inn og nú. Að fara á svona stað
er eitt af þessum ævintýrum,
sem maður st'ekkur fudskapað-
ur út í.
—-Veðrið á Hombjargi er
ósköp svipa-ð og var á Akur-eyri,
sagði Erla, — hálfger® súld og
engin vetrarm-erki ennþá. Og
við hjónin erum vel undir vet-
urinn búin, brugðum okkur í
18 daga ferðalag um Spán og
Norður-Afríku áður en við héld-
um hingað.
Pólutíksk morð
Framhald af bls. 9
i® að sér forstöðu Framfara-
stofnunar 1-andbúnaðarins, en
hún hefur ekki veitt nema 7000
bændum land til ræktunar á
átta árum. Er taUð, að hann
hafi gert þetta til að sýna, að
hann sé reiðubúinn til að snú-
ast gegn andstöðu þeirra, sem
yfir miklum landflæmnm ráða.
MEGINVANDINN, sem við
er að glíma í Dominikanska lýð-
veldin-u, er að láta fjérðung
vinnufærra manna, sem nú er
atvinn-ulaus, njóta efnahags- og
féla-gslegra framfara. Mann-
fjölgunin er um 3% á ári og
þessi hópur stækkar því stöð-
ugt. Þarn-a er að finna upp-
sprettu meginhluta þeirrar
ókyrrðar, sem hér ríkir. Sífellt
fer í vöxt, að m-enn taki sér ból-
festu í óleyfi á annarra landi.
EfnahagsHf Do-minikanska
lýðvei’disms er miklu öflugra
en það var árið 1966, þegar
B-andaríkjam-enn veittu lán til
að greiða opinberum starfs-
mönnum laun í efnahagsöng-
þveitinu í lok borgarastyrjald-
arinnar. Balaguer hefur nú tök
á að framkvæma framfaraáætl-
anir, sem var með öllu ómögu-
legt að ráðast í fyrir fáeinum
árum.
Ekki er sennL’egt, að stjórn-
málaofbeldi verði með öliu
kveðið niður í Dominikanska
lýðveldinu þó að aukin áherzla
verði lögð á endurbætur í land-
búnaði og menntamálum og
auknar byggingar íbúðarhúsa.
Taki Balag-uer tií greina sína
eigin aðvörun um byltingarflóð
ið, sem þessu valta þjóðfélagi
stafar ógn af, ætti hann að geta
aflað sér stuðnings annarra en
íhaldsmanna, meðal annars
hinna hófsamari stjórnarand-
stæðinga.