Tíminn - 08.09.1970, Blaðsíða 2
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 8- sept. lOTð
Þessi mynd er af nýrri flugvél nýstofnaðs flugfélags í Vestmannaeyjum, Flugleiða h.f. Vélin er af gerð-
inni Piper Apache og er nýlega komin til landsins. Hún er tilbúin til leiguflugs hvert á land sem er
og þar að auki er hún sjúkraflugvél og hefur þegar farið nokkur sjúkraflug og sýnt að það er heppilegt
að hafa sjúkraflugvél í Eyjum. Eigendur Flugleiða h.f. eru nokkuð margir og þ.á.m. margir
útgerðarmenn og skipstjórar. Flugmaður á vélinni og aðalframkyæmdastjóri félagsins er Hallgrímur
Hallgrímsson. (Tímamynd HE).
192 INNKAUPASTJORAR
SÓHU KAUPSTEFNUNA
Landsþing Samb. ísl.
sveitarfél. hefst í dag
EJ-Reykjavík, mánudag.
Á morgun, þriðjudag, hefst 9.
landsþing sambands ísl. sveitar-
félaga að Hótel Sögu, og stendur
það fram á fimmtudag.
Þingfundir hefjast á þriðjudag-
inn kl. 10 með setningarávarpi for
manns satnbandsins, Páls Líndal,
en einnin flytja ávarp Emil Jóns-
son, félagsmálaráðherra og Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri. Eftir
hádegi á þriðjudag verða flutt
erindi, og umræður fara fram um
þau. M.a. mun Magnús Jónsson,
fjármálaráðherra, flytja erindi er
hann nefnir „Ný viðhorf í skatta-
málum“.
Á miðvikudaginn hefst fundur
með því að menntamálaráðherra,
Gylfi Þ. Gíslason, svarar fyrir-
spurnum þingfulltrúa um skóla-
mál. Nefndarstörf verða síðdegis
sama dag, en á fimmtudaginn
verða nefndarálit lögð fram og
afgreidd, en síðdegis þann dag
verða stjórnarkosningar. Um kvöld
ið sitja þingfulltrúar kvöldverðar
boð borgarstjórans og félagsmála-
ráðherra.
UPPELDIS- OG LÖGFRÆÐI-
HANDBÆKUR FYRIR ALÞÝÐU
Haustkaupstefnunni „fslenzkur
fatnaður“ lauk í Laugárdalshöll-
inni W. 18,00 á sunnudag og hafði
þá staðið í fjóra daga. Aðsókn að
kaupstefnunni hefur aldrei verið
meiri en nú, en samtals sóttu hana
192 innkaupastjórar, þar af 87
utan af landi. Er þetta 45% aukn
ing á fjölda innkaupastjóra frá sið-
ustu kaupstfcfnu,,,
Var þetta fimmta reglulega
kaúpstefna - „ísienzks fatnaðar“,
sem haidin hefur verið, en h°*
Félag íslenzkra iðnrekend-
gengst fyrdr þeim.
Tuttugu og f jögur fyrirtæki toku
a® þessu sinni þátt í kaupstefnunni.
Framhald ð bis 14
Námskeið fyrir verzlunar-
stjóra kaupfélaganna
SJ-Reykjavík, mánudag.
f þessum mánuðl efnir Skipulags
deild SÍS til námskeiða fyrir verzl
unarstjóra hjá kaupfélögunum. Að
alleiðbeinendur eru þeir H) Hans-
en og Kristinn Ketilsson, en á
námskeiðum þessum er fjallað um
öll helztu vandamál og vinnubrögð
í verzlun.
Fyrsta námskeiðið var á Þing-i
eyri 1. og 2. þ.m., á morgun,
þriðjudag 8. sept. og miðvikudag
9. verður námskeið á Egilsstöð-I
um, hið þriðja á Akureyri 1S. og;
16. og í Reykjavík 22. og 23. sept. j
en það námskeið verður sennilega-
endurtekið.
Guðrún Hallgrímsdóttir flytur
Melavöllur kl. 18.30.
í dag, þriðjudaginn 8. september leika:
KR
I.B.K.
Mótanefnd.
Barnaskólann aö
Varmá, Mosfellssveit
vantar kennara. Upplýsingar í sima 66-222.
erindi um kjötvörur og hreinlæti
á námskeiðunnm. en á Þingeyri
sá Jón Reynir Magnúson um þann
þátt. Þorbergur Eysteinsson, for-
stöðumaður, og Guðmundur Ólafs
son, báðir frá Birgðastöð SÍS,
ræða við þátttakendur á nám-
skeiðunum.
Námskeiðin fara fram á íslenzku
og dönsku. Þátttakendum til leið-
beiningar hefur verið gefin út
ítarleg handbók, sem hefur m.a.
inni að halda íslenzkar þýðingar
á öllum erindum, sem flutt eru
á dönsku.
Námskeiðið á Þingeyri tókst
mjög vel og þátttaka var þar
ágæt. Samtals munu á annað
hundrað manns sækja námskeið
þessi.
EB-Reykjavík, mánudag.
Bókaútgáfan Öm og Örlygur h.f.
mun f þesum mánuði senda á
markað handbók um barnauppeldi,
sem sérstaWega er ætluð foreldr-
um, þótt hún eigi einnig erindi
til kennara, fóstra og alls starfs-
fólks í skólum, dagheimilum og
'ðrum uppeldisstofnunum. Höfund
'r bókarinnar er fyrir löngu orð-
inn heimsfrægur maður fyrir skrif
sin um barnauppeldi og gjaman
nefndur Dr. Spock barnasálfræð-
innar. Hann heitir dr. Haim
Ginott. Bókin er þýdd af Birni
Jónssyni, skólastjóra Hagaskóla,
og formála ritar Jónas Pálsson,
sálfræðingur, forstöðuma'ður sál-
fræðiþjónustu skóla í Reykjavik.
Höfundur hefur þann hátt á, að
hann segir ótal sögur máli sínu
til skýringar. Á frummálinu nefn-
ist bóWn Between Parent and
Child.
Á s.l. ári sendi bókaútgáfan frá
sér Lögfræðihandibók fyrir almenn
ing, eftir dr. Gunnar G. Schram.
Bókin fjallaði á alþýðlegan hátt
um meginatriði persónu-, sif ja- og
erfðaréttar og fékk samstundis
hinar beztu móttökur almennings.
Hún er nú víðast hvar uppseld
og því hefur útgáfan sent frá sór
aðra útgáfu bókarinnar, með þeim
breytingum, sem tilheyrandi laga
breytingar hafa gert nauðsynleg-
ar. Að öðru leyti er meginmál og
efnisskipan bókarinnar í höfuð-
atriðum óbreytt- — Að þvi er
blaðinu var tjáð, þá hafa einstaka
skólar tekið bókina í notkun við
kennslu í félagsfræðum.
Stjórn Laxárvirkjunar
sendir út greinargerð
EJ-Reykjavík, mánudag.
Blaðinu barst í dag löng grein-
argerð frá stjóm Laxárvirkjunar
„vegna miðlunarmannvirkja Lax-
árvirkjunar við Mývatn“. Verður
greinargerð þessi birt i heild í
biaðinu einhvern næstu daga, en
í henni eru færð rök fyrir því,
að þessar umdeildu framkvæmdir
hafi verið fullkomlega löglegar,
og nauðsvniegar. Er greinargerðin
svar við ýmsum yfirlýsingum og
ummælum andstæðinga Laxár-
virkjunarstjórnar í þessu máli.
í greinargerðinni eru rakin sam
skipti Laxárvirkjunarstjórnar við
bændur vegna stíflugerðar í Mið-
kvisl og aðrar kvíslar á svæðinu,
og því lýst að á sumar kröfur
bænda hafi verið fallizt, og að
ekki hafi staðið á stjórn Laxár-
virkjunar að semja um önnnr at-
riði. Segir m.a. svo: „Allar bætur,
sem samið hefur verið um eða
matsmenn hafa úrskurðað vegna
mannvirkjanna við Mývatnsósa,
hefur Laxárvirkjun umsvifalaust
Framhald á bls. 14.
IB)
il
1984 laxar úr Þverá
Á hádegi í gær var búifð að veiða
1984 laxa í Þverá þetta veiðitíma-
bii'ið og kvaðst Pétiur Kristjánsson
starfsmaður við veiðihúsið þar,
ekki vita til þess að betur hafi
veiðzt í ánni eitt sumar.
Sagði Pétur að undanfarið hafi
veiðin í ánni verið dauf miðað
*við það sem á undan er gengið.
Veiddust 2 laxar í ánni fyrir há-
degi í gær. Annar var 22 punda
og veiddist hann á maðk í Litlu-
Þverá, en hinn fékkst í Lundahyl.
Einmig hann var veiddur á maðk.
Aðspurður um meðalþyngd lax-
anna sem veiðzt hafa í Þverá í sum
ar, kvað Pétiur hana líklega vera
milli 8—9 pund.
Veiðitímanum á efra svæði Þver
ár lauk nú um mánaðamótin.
Veiðitímanum á neðra svæðinu
lýkur þann 10. september, en 5
stangir eru á því svæði.
985 laxar komnir á land
úr Víðidalsá.
Síðastl. föstudagskvöld var lax-
veiðitala ánna í Húnavatnssýslu
sem hér segir:
Viðidalsá 985. Vatnsdalsá 625,
Svartá 385, Hrútafjarðará 180.
Veiðim.i í Blöndu lauk þann 20.
ágúst, og komu alls 460 laxar úr
henni á veiðitimabilinu. í Mið-
fjarðará munu alls um 630 laxar
hafa veiðzt í sumar, eins og áður
hefur verið sagt frá hér í Veiði-
hominu.
— EB