Tíminn - 24.09.1970, Qupperneq 12
ÍÞRÓTTIR
12
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 24. september 1970.
SPARTA SKAUT ÍA í KA
Þrátt fyrir 10 manna vörn urðu Akurnesingar að sækja knöttinn 6 sinnum í netið, í sínum
1. leik í Evrópukeppninni
klp—Reykjavík.
Hinn stórglæsilegi knattspyrnu-
völlur Feyjenoord í Rotterdam í
Hollandi þar sem nýlega var háð
ur úrslitaleikurinn í lieimsmeist-
arakeppni félagsliða milli Feyjen-
oord og Estudiantes frá Argen-
tínu, liefur ekki verið nein para-
dís fyrir islenzka knattspyniu-
menn til þess.
Fyrir rétt einu ári síðan mátti
KR þola þar eitt mesta tap, sem
félagið hefur orðið fyrir í keppni
við erlent lið á erlendri grund,
er það tapaði fyrir Feyjenoorö í
Evrópukeppni meistairaliða 12:2,
og í gærkvöldi fékk Akranes þá
verstu útreið, sem það hefur orð
ið fyrir í mörg ár, er það tapaði
fyrir Sparta 6:0 í Borgakeppni
Evrópu.
Það er ekki hægt að segja að
útkoma íslenzku liðanna í Evr-
ópukeppninni að þessu sinni, sé
glæsileg, því eftir 4 leiki er marka
talan 26:3 hinuim erlendu keppi-
nautum í vil.
Leikurinn í gær var dæmigerð-
ur leikur áhugamanna við at-
vinnumenn.
Skagatnenn léku hreinan varn-
ai'leik, með allt að 10 mönnum 1
vörn, og að sögn blaðamanns hjá
Niewe Rolterdamse í Rotterdam,
sem við, töluðum við í gærkvöldi,
hefðu Íslendingarnir lítið getað
sýnt vegna þess og tækifæri þeirra
verið sárafá og heldur léleg.
Þeir hefðu leikið tneð 10 manna
vörn, en þrátt fyrir það þurfti að
sækja kaöttinn þrisvar sinnum í
hvorum hálfleik í netið. Mark-
vörðurinn Einar Guðleifsson
hefði verið langbezti maður liðs-
ins og oft varið stórglæsilega.
Hann hefði líka haft nóg að gera
ásamt Þresti Stefánssyni, en sá síð
arenfndi þó aðallega við að spyrna
frá marki, því Spörtumenn hefðu
verið óhittnir í meira lagi, enda
óvanir því að standa allir fyrir
utan vjtateig og geta skotið að
vild.
Þcgar á 2. mín leiksins skoraði
annar bakvörður Spörtu með skoti
af löngu færi, og síðan kom annað
markið á 11. min. einnig með föstu
skoti og iþað þriðja á 36.- mín. og
auðvitað með þrumuskoti.
f síðari hálfleik kom ekkert
mark fyrr en á 25 mín. er- Daninn
Jörgen Ohristiansen skoi-aði eftir
einleik í gegnum vörnina, og 5
mín. síðar lék hann aftur eins í
gegnum vörina en þá var honum
brugðið innan vjtateigs og víta-
spyrna dæmd, sem skorað, var úr,
og þar með var staðan 5:0. Rétt
fyrir leikslo'k skoi-uðu svo Spörtu-
menn sjötta markið, og varð það
jafnframt síðasta mark þeirra í
lei'knum.
Blaðamaðurinn, sem við töluð-
um við vildi litið ræða um Afcur-
nesingana — sagði að ekkert væri
hægt að segja um lið, sem léki
með 10 manna vörn, því enginn
gæti hreyft sig í þeirri mann-
mergð, og því ekkert hægt að
dæma um getu einstakra leik-
manna, en markvörðurinn hefði
þó verið ábei-andi beztur.
Á þriðjudaginn í næstu viku
mætast Sparta og Akranes aftur,
og þá á leikvelli ADO í Haag, en
ADO oa Sparta hafa nú forystu
í 1. deildarkeppninni í Hollandi,
hafa bæði hlotið 10 stig eftir 5
leiki, en Feyjenooi'd 9 stig.
NGREGUR
SIGRAÐI
Noregur sigráði Danmörku í
landsleik í knattspyrnu, sem frdm
fór á Idrætsparken í Kaupmanna-
höfn í gærkvöldi með einu marki
gegn engu.
Sigurmarkið var skoráð á 1.
mín. fyrri hálfleiks, og var það
Odd Iversen, seni er nú atvinnu-
maður með belgísku liði, sem
skoraði markið.
Handknattleiksvertíðin 1971 hafin:
A og B landslið karla leika fyrsta leikinn
klp—Rey kj av ík.
f kvöld fer fram í íþróttahús-
inu á Seltjarnarnesi fyrstu stór-
leikir handknattleiksársins 1971,
sem nú er að hefjast.
Er það fyrst úrslitaleikur
Gróttumótsins í handknattleik
kvenna milli aVls og Fram, en
þessi -sömu lið léku einnig til
úrslita í því móti í fyrra, og þá
sigi'áði .Fram, en síðan fer fram
leikur cnilli A og B landsliðs
karla.
Landsliðsnefnd HSÍ valdi A lið-
ið, en þeir Reynir Ólafsson og
Pétur Bjarnason B liðið, og eru
þau þannig skipuð:
A liðið:
Emil Karlsson, KR ;
Birgir Finnbogason, FH
Axel Axelsson, Fram
Éinar Magnússon, Víking
Bjarni Jónsson, Val
Ólafur Jónsson, Val
Páll Bjöx-gvinsson, Víking
Viðar Símonai’son, Haukum
Stefán Jónsson, Haukum
Geir Hallsteinsson, FH
Auðunn Óskarsson, FH
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram.
B-lið.
Guðjón Erlendsson, Fram
Pétur Jóakimsson, Haukum
Bergur Guðnason, Val
Örn Hallsteinsson, FH
Þórarinn Tyrfingsson, ÍR
Ágúst Svavarsson. ÍR
Björgvin Björgvinsson. Fram j
Ólafur Ólafsson, Taukum
Gunnsteinn Skúlason, Val
Sigurður Jóakimsson, Haukum
Guðjón Magnússon, Víking
Hörður Kristinsson. Ármanni
Af þeim leikmönnum íslenzka
laijdsliðsins, sem léku í HM-keppn
inni í Frakklandi s. 1. vetur eru
5 menn, sem eru með hvorugu
þessara liða. þeir Þorsteinn
Björnsson, Hjalti Einarsson. Ing
ólfur Óskarsson, Sigurður Ein-
ai'sson, sem var valinn en gat
ekki leikið og Jón Hjaltalín, sem
er erlendis.
Það sem mesta athygli vekur
í sambandi við valið á liðunum,
er að Ingólfur Óskarsson skuli
ekki vera valinn í hvorugt þeirra,
og einnig að Hörður Kristíns
son skuli vera valinn í B-liðið, en
hann hefur ekkert leikið með
íslenzkum liðum í mörg ár, en
er nú sagður í mjög góðri æfingu.
Búast má við skemmtilegum
leikjum j kvöld, en fyrri leikur
inn hefst kl. 20,00.
Ársþing
Ársþing Frjálsíþróttasam
bands íslands 1970 fer fram í
Reykjavík dagana 14. og 15. nóv.
n. k.
Þau mál og tillögur, sem sam
bandsaðilar ætla að leggja fyrir
þingið þurfa að berast tveimur
vikum fyrir þing.
Stjórn F.R.Í.
Hörður Kristinsson, Ármanni leik
ur með B-landsliðinu í kvöld.
Handalögmál á götum úti
milli Arsenal og Lazio
Kjærbo & Co. í eldlínunni
Keppa í HM í golfi, sem hefst í Madrid á Spáni í dag
Eftir leik miili ítalska knatt-
spyrnuliðsins Lazio og enska liðs
ins Arsenal í Borgarkeppni Evr-
FH Þróttur 0:4
klp—Reykjavík.
Einn leikur fór fram í 2. deild
i knaltspyrnu í gærkkvöldi. FH
lék við Þrótt í Hafnarfirði og
lauk leiknuni með sigri Þróttar
4:0.
I hálfleik var staðan 2::0. Mörk
Þróttar skoruðu Kjartan Kjartans
son 1 og Helgi Þorvaldsson 3.
Tveir leikir eru enn eftir í 2.
deild. Selfoss—FH og IBÍ— Breiða
blik og munu þeir fara fram ein-
hverja næstu daga.
rópu, sem frain fór í síðustu viku
í Róm, endaði með jafntefli 2:2
En eftir veizlu, sem Lazio hélt
leikmöunum Arsenal gerðist það,
að leikmöunum beggja liða lenti
saman í slagsmálum á götu úti,
og þurfti að kalla út lögreglu til
að skilja þá.
ítalarnir hafa nú hótað að
mæta ekki í síðari leikinn, ef
Arsenal leikmennirnir biðji ekki
opinbei’lega afsökunar á fi'am-
ferði sínu, og þeim ummælum,
sem þeir létu falla um liðið. leik
menn þess og ítalska knattspyrnu.
Ritari Arsenal, Bob Wall, seg
ir að Lazio mæti til leiksins, en
ekkert verði af bví að Arsenal
leikmennirnir biðjist afsökunar,
því þessi slagsmál hafi alveg eins
verið leikmönnum Lazio að kenna.
f dag hefst í Madrid á Spáni
heimsmeistarakeppnin í golfi, eða
„Eisenhowerkeppnin“ eins og hún
hefur verið nefnd frá uppliafi. og
mun hún standa yfir í fjóra daga.
í keppninni taka þátt að þessu
sinni 39 þjóðir, og sendir hver
þjóð fjögurra manna sveit og er
ísland meðal þeirra. Fyrirkomu-
lag hennar er þannig áð bezta
skor (eða fæst liögg) þriggja
manna í hvei-ju liði er lagt sam-
an eftir hvern dag, en leiknar eru
18 holur á dag, og það lið sigr-
ar, sem fer á fæstum höggum.
Keppnin fer fram á Puei'to de
Hirro go.'fvellinum i Madrid, sem
er 18 ho!u völlur 6340 metra lang
ur, og er gefinn upp, sem par 72,
en með þvj er átt við að góður
golfleikari geti leikið hann á 72
höggum
Þcssi keppni hefur verið haldin
annað hvert ár, o.g.hafa úrslit orð-
ið þau í siðustu keppnum ,að
blandað lið £rá Eng.'andi og Ir-
landi sigraði 1964 á Spáni, Astr-
alía vann 1966 í Mexícó og Banda-
í’íkin 1968 í Ástralíu.
Mai-gir heimsfrægir golfleikarar
hafa hafið sinn atvinnumannsfer-
il eftir þessa keppni og einn þeii'ra
er Jack Nicoklaus, sem árið 1960
bar af öllum öðrum keppendum,
og ,'ék þá 72 holur á 20 höggum
undir pari.
í keppninni í ár eru Banr.aríkja
menn taldir sigurstranglegastir,
en ensk-írska liðið er talið geta
veitt þeim harða keppni.
Varla er hægt að búast við góð-
um árangri hjá íslenzka liðinu í
þessari keppni, en það er að þessu
sinni skipað þeir Þorbirni Kjær
bo, GS, Jóhanni Benediktssyni,
GS, Gunnlaugi Ragnarssym, GR og
Þórarni B. Jónssyni GA. Lsland
hefur nokkruni sinnurn tekið þátt
í þessari HM-keppni en xetíð ver
•* meðal öftustu liðanna. og a þvi
verður ,'iklega engin breyting hjá
Kjæi'bo & Co. í þetta sinn. Verði
liðið ekki aftar en í 30. sæti má
teija árangur þess góðan.
Svíþjóð er talin fremsta golf-
þjóið á Norðuriöndum og hefur
sent n:jög gott lið . þessa keppni,
en Sviar teija sig samt góða ef
þeir komast framar en í 15. -æti.
Þeir hafa unnið narkvisst að
uppbyggingu golfíþrottarinnar í
landinu, og um leið hafið víðtæka
unglingastai'fsemi með það fyrir
augum að eiga gott ,’andslið í
fi-amtí'ðinni, enda hafa Svíar nú
tvívegis oi'ðið Evrópumeistarar
unglinga, og er einn unglinganna
með liðinu í þessari keppni Fræg-
astur Svíanna er Sven TÚmba,
sem jafnfratnt ei einn bezti ts-
knatt’.eiksmaður Svíþjóðar riann
hóf að leika golf fyrir 5 árum,
og náði þá strax mjög góðum töa-
um á þessari íþrótt eins og „hokk
íinu” og varð Norðurlandameist-
ari nú 1970. — Klp—
ÍÞRÓTTAFÓLK!
Nýkomnir innlendir og erlendir félagsbúningar
í miklu úrvali.
Útvegum félögum, skólum og starfshópum bún-
inga. — Póstsendum.
Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar,
Klapparstíg 44. — Sími 11783.