Morgunblaðið - 16.06.2005, Qupperneq 8
8
HEILSA
SUMARIÐ ER TÍMI...
VATNSMELÓNUNNAR
Texti
Svanbjörg Helena
Jónsdóttir
Myndir
Getty Images
HOLL RÁÐ
Möguleikar við matreiðslu á vatnsmel-
ónum eru óþrjótandi og takmarkast
sennilega einungis við okkar eigið ímynd-
unarafl.
Í sumum löndum eru vatnsmelónufræin
ristuð, krydduð og borðuð sem snakk eða
mulin niður og notuð í bakstur.
Amma var vön að skera melónuna í litla
geira og frysta. Síðan fengum við okkur
ferska, holla og óviðjafnanlega ömmu-
melónu sem sló allt annað sælgæti út.
Fyrir þá sem eiga það til að fá bjúg getur
vatnsmelónan haft vatnslosandi áhrif.
Sneiðið melónuna niður og hafið hana
ávallt við höndina þegar hungrið steðjar
að. Einnig er mikilvægt að drekka nóg af
vatni. Forðist unnar og mikið saltaðar
matvörur og stundið hreyfingu af ein-
hverju tagi.
VATNSMELÓNU GRANITA (fyrir 4)
3 bollar vatnsmelónu puré (maukuð
melóna í matvinnsluvél)
1/3 bolli hrásykur
¼ bolli sítrónusafi
Hreinsið fræin/steinana úr melónunni
og setjið hana í matvinnsluvél. Gott er að
gera þetta í smáskömmtun þar til fengist
hafa þrír bollar.
Hitið sítrónusafann og hrásykurinn
saman í potti og hrærið vel þar til syk-
urinn leysist upp.
Hrærið öllu saman og setjið í fremur
grunnt mót eða skál. Setjið mótið í frysti
og hrærið í blöndunni á 20 mínútna fresti
í 2 klst. Skafið blönduna með ísskeið eða
hvaða áhaldi sem þið hafið við höndina
og berið fram með ferskum ávöxtum og
berjum.
Í hverjum skammti eru 116 kcal, 28 g kol-
vetni, 1 g prótein, 0,7 g fita, 1 g trefjar, 6
mg sodium.
Á sumrin eru vatnsmelónur hvað sætastar,
ferskastar og jafnframt ótrúlega góðar.
Segja má að vatnsmelónan beri nafn með
rentu því um 90% melónunnar er vatn. Þær
eru yfirfullar af mikilvægum næringarefnum
og vítamínum á borð við A-, C-, B6-, B1-
vítamín, potassium, magnesíum og því stór-
kostlega efni lycopene (leggið það á minnið).
LYCOPENE
Er afar öflugt og virkt andoxunarefni sem
talið er geta unnið gegn myndun krabba-
meinsfrumna. Vatnsmelónur innihalda hvað
mest lycopene af allri ávaxta- og grænmet-
isflórunni. Lycopene er einnig að finna í þó-
nokkrum mæli í rauðum tómötum, en t.d.
ekki í gulum (þess ber að geta að tómat- og
vatnsmelónuframleiðendum ber ekki saman
um hvor afurðin inniheldur meira af
Lycopene). Lycopene er einnig að finna í
tómatsósum, tómatsafa, guava-ávextinum og
bleiku greipaldini.
Meðfylgjandi er uppskrift að einstaklega
léttum og góðum eftirrétti sem Ítalir kalla
„granita“ en Frakkar kalla „granite“. Útkom-
an er í ætt við það sem við þekkjum sem
„sorbet“. Hægt er að setja hvaða ávexti sem
er í stað melónunnar, hugsið þó vandlega
um kosti Lycopene áður en þið ákveðið að
setja annan ávöxt í stað vatnsmelónunnar.
Verum dugleg að borða vatnsmelónur í sum-
ar og sjáum líkamanum fyrir nægilega miklu
af hinu góða efni lycopene, auk vítamína og
steinefna.
Segja má að vatnsmelónan beri nafn með rentu
því um 90% melónunnar er vatn