Morgunblaðið - 15.10.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 15.10.2005, Qupperneq 10
10 m tvennt renni svolítið saman fyrir sér, matur og tónlist passi svo vel saman. „Ég vil hafa mat frekar einfaldan, er ekki mikill myndlistarmaður í mér og finnst ég ekki hafa auga fyrir skúlptúrum í mat eins og margir gera og ég öfunda þá reyndar aðeins af. Ef maður er með gott hráefni, eldar matinn á heiðarlegan hátt og leggur sálina í það sem maður er að gera er útkoman góð. Mér finnst bragðið vera númer eitt tvö og þrjú og oft er ljótur góður matur spennandi, mörg- um finnst grófur matur girnilegur. Oft þurfa réttir líka að vera fal- legir, til dæmis smáréttir og þá skipta litlu atriðin ásamt litasamsetn- ingu miklu máli. Fólk borðar nefnilega líka með augunum.“ Jón Elvar er í vinnu á veitingahúsi þar sem matseðillinn er fastmót- aður, en segist fá tækifæri til að spreyta sig þegar hann tekur að sér aukaverkefni, brúðkaupsveislur og álíka. Þá er ítalskt oft í háveg- um, en hann segir að hráefnið hafið eðlilega mikið að segja, ís- lenskt lambakjöt og ferskur fiskur. „Þó ég noti áhrif frá Miðjarð- arhafslöndunum þá er ég að blanda því saman við íslensk áhrif sem skapast af hráefninu,“ segir Jón Elvar og bætir við að hann geti ekki sagt til um hvert uppáhalds hráefni hans er, það sé allt svo áhugavert og líka skemmtilegt að blanda hlutum saman. „Það er bara allur matur spennandi,“ segir hann og greinilegt að áhuginn sem kviknaði í París fyrir átta árum er ekkert að minnka. Jón segir að í Perlunni séu örar breytingar, reglulega verið að skipta inn nýj- um matseðlum og fyrir vikið segist hann fá mjög breiðan grunn. „Það er mjög margt spennandi að gerast og maður lærir gríðarlega mikið. Undirliggjandi er frönsk klassík þannig að maður lærir mjög góðan grunn sem er gríðarlega mikilvægt, því þegar maður er bú- inn að tileinka sér hann er hægt að byrja að leika sér.“ Þótt Jón Elvar Hafsteinsson sé nýútskrifaður kokkur er hann enginn unglingur og fór reyndar óvenjulega leið inn í fagið. Hann starfaði sem tónlistarmaður, lék á gítar í ýmsum hljómsveitum, meðal ann- ars í Stjórninni um tíma, og undi glaður við sitt í átján ár. Þá bar það við að hann fór til Parísar með konunni sinni fyrir átta árum og fékk þá svo mikinn áhuga á rauðvíni og mat að annað komst ekki að og ekki bætti úr skák að hann fór aftur út fyrir fimm árum og jókst áhug- inn þá um allan helming. „Þetta var orðið svo krefjandi heima fyrir, ég var farinn að eyða svo miklum tíma í eldhúsinu, að mér fannst ég verða að fara alla leið, koma mér út úr eldhúsinu og í alvöruna.“ Jón segist hafa rætt málið við frænda sinn, Ingvar Sigurðsson, mat- reiðslumeistara á Argentínu, og spurt hann hvort það væri nokkurt vit í því að svo gamall karl væri að skella sér út í nám, enda segist hann hafa heyrt að menn endist ekki allir lengi í faginu og margir séu að spá í að hætta þegar þeir séu komnir á hans aldur. „Ég ræddi við hann og fleiri og kom svo á endanum hingað í Perluna og ræddi við Sturlu Birgisson. Mér leist afskaplega vel á Perluna og sótti það fast að fá að komast að, held ég hafi angrað hann í átta mánuði,“ segir Jón og kímir, en hann hafði sitt fram. Námið segir Jón að hafi verið mjög skemmtilegt, enda gekk honum mjög vel, dúxaði í sínum bekk, en hann útskrifaðist í vor. Honum þykir ekki síður skemmtilegt að vinna við fagið, áhuginn er ekkert að minnka. Eins og getið er hér að framan hreifst Jón Elvar af franskri mat- argerð í ferð til Parísar og frönsk áhrif eru sterk í honum að því hann segir, en líka ítölsk – hann er áhugamaður um ítalska tónlist, spilar hana gjarnan, og líka áhugamaður um ítalskan mat, segir að þetta kokkurinn Jón Elvar segir bragðið vera núm- er eitt, tvö og þrjú. Hann fór úr tónlistinni í matargerðina eftir að Parísarheimsókn kveikti hjá honum áhuga á víni og mat og eftir það kom ekki annað til greina hjá Jóni Elvari Hafsteinssyni en að fara að læra kokkinn. Texti Árni Matthíasson. Ljósmynd Arnaldur Halldórsson. allur matur er spennandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.