Morgunblaðið - 15.10.2005, Síða 18

Morgunblaðið - 15.10.2005, Síða 18
18 m und hektarar lands verið þaktir vínvið í Franken. Ófriður og kólnandi loftslag leiddu hins vegar til þess að smám saman skrapp vínræktin saman – að ekki sé minnst á breyttar neysluvenjur. Á miðöldum drukku Franken-búar marga lítra af víni á dag enda vatn oftar en ekki ódrekkandi sökum mengunar. Neyslan minnkaði, ekki síst á nítjándu öld, þegar álögur voru lagðar á vínið og samkeppnin frá bjór og kaffi harðnaði. Nú er vín einungis ræktað á um 6.200 hekturum í Franken sem skýrir hvers vegna vínin eru jafnsjaldséð og raun ber vitni. Vínbændur eru rúmlega 7.000 og flestir því mjög umsvifalitlir. Er vínrækt aukabúgrein hjá um þremur fjórðu þeirra. Einungis um 150 ráða yfir meira en fimm hekturum lands. Þessar tölur sýna vel hversu lítið vínhérað Franken er á þýska vísu og eru Franken-vín einungis um 5–6% heildarvínframleiðslu Þjóðverja. Meginlandsloftslag Þar með er ekki sagt að það beri ekki að gefa Franken-vínum gaum því margur er knár þótt hann sé smár. Franken-vínin eru þegar vel lætur með betri vínum Þýskalands og sum þeirra hreint afbragð. Loftslagið er frábrugðið öðrum víngerðarsvæðum og líkist meira meginlandsloftslagi, með mjög heitum sumrum og mjög köldum vetr- um. Tæpur helmingur allra vína sem framleiddur er í Franken er úr þrúg- unni Müller-Thurgau en einungis um 4% úr Riesling-þrúgunni sem alla jafna er besta þrúga Þýskalands. Það ætti svo sem ekki að koma á óvart því Müller-Thurgau er algengasta þrúga Þýskalands en það var vísindamaður við háskólann í Geisenheim að nafni Müller sem ræktaði hana fram árið 1882 á grunni þrúgna frá svissnesku kant- ónunni Thurgau. Einnig er töluvert ræktað af Silvaner og Kerner í Franken auk þrúgunnar Bacchus. Langbestu vín Franken eru úr unnin úr Riesling og kannski fyrst og fremst Silvaner. Þau eru nær undantekningarlaust þurr og almennt þurrari en gengur og gerist í Þýskalandi. Hið hlýja loftslag gerir jafn- framt að verkum að ávöxturinn nær meiri þroska og því eru þau gjarnan kraftmeiri, áfengismeiri og kryddaðri en t.d. vínin frá Mósel og Rín. Munkaflöskurnar sérkennilegu Þekktasta einkenni Franken-vínanna er hins vegar eflaust hin sér- stæða flaska sem þau eru töppuð á. Hún nefnist bocksbeutel og er lítil og breið, ekki ósvipuð flöskunni sem t.d. vín á borð við hið portúgalska Mateus eru seld í. Segir sagan að það hafi verið munkar sem tóku upp þann sið að setja vínin á slíkar flöskur þar sem þær pössuðu bet- ur í pokann hjá þeim. Meginræktunarsvæði Franken er í kringum borgina Wursburg sem liggur við Main þar sem hún teygir sig í suður og þar er einnig að finna marga af bestu framleiðendum svæðisins (t.d. Juliusspital) og þekktustu ekru Franken. Hún heitir Stein og eru Franken-vín jafnvel á stundum kölluð Steinwein. Juliusspital er þriðja stærsta vínfyrirtæki Þýskalands en vínframleiðslan hefur staðið undir kostnaði við spít- alareksturinn frá sextándu öld. Það er stórfenglegt að ganga um hina gömlu kjallaraganga og þar má bragða á margvíslegu góðgæti. Fyrir þá sem vilja kynnast Franken-vínum betur er því miður helst hægt að benda á það að skella sér til Wursburg, en ferð þangað tekur ekki langa stund með IC-hraðlest frá Frankfurt. Nær öll betri fram- leiðsla Franken er seld í Þýskalandi og til að næla sér í flöskur frá bestu framleiðendunum þarf maður eiginlega að fara til héraðsins. En það er hægt að gera margt vitlausara enda héraðið fagurt og borgir á við Wursburg fullar af sögu og þokka. Flestir vínbændanna í Franken eru mjög umsvifalitlir. Á miðöldum drukku Franken-búar marga lítra af víni á dag. Í dag er vín ein- ungis ræktað á um 6.200 hekturum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.