Morgunblaðið - 04.12.2005, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 04.12.2005, Qupperneq 20
E ins og Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingurbendir á fara sumir foreldrar þá leið að halda jól- in saman barnanna vegna þrátt fyrir skilnað en að hennar sögn líður þó fæstum vel með það. Á þessu geta þó verið undantekningar eins og sannast á jólahaldi Sveins Rúnars Haukssonar læknis og konu hans Bjark- ar Vilhelmsdóttur. Í fjöldamörg ár hafa þau haldið jól með fyrrverandi eiginkonu Sveins, Evu Kaaber og fimm börnum hans af báðum samböndum. Sambýlis- maður Evu er einnig hluti af þessari óvenjulegu „stór- fjölskyldu“ sem og börn hans af fyrra hjónabandi eftir atvikum. „Fyrir okkur er þetta bara eðlilegasti hlutur því þrátt fyrir skilnað erum við áfram ein fjölskylda og þannig hefur það verið frá fyrstu tíð,“ segir Sveinn inntur eftir því hvort þetta hljóti ekki að vera nokkuð sérstakt. „Björk fór strax í mömmuhlutverk gagnvart mínum börnum og þeim Evu varð fljótt vel til vina. Svo eftir að við Björk eignuðumst okkar börn endurtók sagan sig því Eva varð þeim strax eins og önnur móðir. Til dæm- is höfum við Björk getað leyft okkur að fara í lengri og skemmri ferðalög því Eva hefur flutt heim til okkar á meðan og tekið að sér heimilið eða þá að börnin hafa farið til hennar, allt eftir því hvað hentaði betur. Það hefur jafnvel komið fyrir oftar en einu sinni að Eva hef- ur sótt foreldrafundi í skólanum hjá börnum okkar Bjarkar þegar svo hefur staðið á að hvorugt okkar hef- ur getað mætt.“ Konurnar spiluðu aðalhlutverk | Þegar Sveinn og Eva skildu voru börn þeirra á aldrinum fimm til tólf ára og samkomulag varð um að börnin yrðu hjá móður sinni á aðfangadagskvöld. Sveinn hélt því jól með móður sinni og stjúpföður fyrstu tvö árin á eftir. „Ég var ósköp bág- ur á þessum tíma þó ástæðulaust sé að útmála þessi jól sem einhverja hörmung. Ég hafði að góðu að hverfa auk þess sem samkomulag okkar Evu var alla tíð gott, þrátt fyrir skilnaðinn. Ég get því ekki sagt að ég hafi fundið fyrir togstreitu heldur miklu frekar almennum trega.“ Hann segir það því hafa verið mikla og góða lausn fyrir sig þegar sameiginlegu jólahaldi fjölskyld- unnar var komið á. „Auðvitað eru jólin miklu meira en bara aðfangadagskvöld og ég fór alltaf með börnin til mömmu á jóladag. Það var eins hjá Evu því mamma hennar var með jólaboð á jóladag svo þetta gátu orðið dálítil hlaup. Svo hafa börnin yfirleitt verið hjá mér á gamlárskvöld.“ Sameiginlegt jólahald kom fyrst til tals eftir að Sveinn og Björk hófu sambúð og hann viðurkennir fús- lega að það hafi fyrst og fremst verið gjörningur kvennanna tveggja. „Þær spila algjört aðalhlutverk í því og þá er ég ekki endilega að tala um eldamennsk- una þótt þær séu báðar ákaflega hæfar á því sviði,“ seg- ir hann og brosir. „Vinátta þeirra tveggja og sambönd þeirra við börnin öll gerir það sjálfsagt og eðlilegt að við höldum jólin saman eins og raunar svo margar aðr- ar hátíðir og tilefni. Auðvitað er það eðlilegt fyrir mig að mig langi að halda jólin með öllum börnunum mín- um fimm en kannski ekki eins sjálfsagt fyrir þær tvær og því er það fyrst og fremst þeim að þakka að þetta hefur orðið svona. Ég lenti meira að segja einu sinni í AÐ LIFA AF JÓLIN ÓVENJULEG „STÓRFJÖLSKYLDA“ Á JÓLUM „Fyrir okkur er þetta bara eðlileg- asti hlutur því þrátt fyrir skilnað er- um við áfram ein fjölskylda,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson. L jó sm yn d: S ve rr ir V ilh el m ss on Laugavegi 63 • S: 551 4422 Hágæða ítalskar kápur OPIÐ Í DAG 13:00-18:00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.