Morgunblaðið - 04.12.2005, Side 25

Morgunblaðið - 04.12.2005, Side 25
Hermann: Það er mikill aldursmunur á okkur bræðrum, níu ár, og þess vegna á ég engar minningar um einelti og kvalræði af hans hálfu eins og margir sem eiga lítið eldri bróður. Við vorum þrjú systkinin, á milli okkar systir sem dó úr hjartasjúkdómi tíu ára gömul, og Jón Hallur var duglegur að passa okkur hin. Svo fyrir mér var hann eiginlega eins og fullorðinn maður þegar ég var lítill. Fullorðinn maður sem hlustaði á mikið af skrýtinni tónlist sem ég gerði síðan líka. En sem barn var ég í svolítið öðrum heimi með mín- um vinum í aksjónleikjum og ég man að sumum þeirra fannst Jón Hallur dá- lítið skrýtinn, ekki síst í klæðaburði. Ég fór þó semsagt snemma að hlusta á alls kyns tónlist fyrir tilverknað hans, var til dæmis orðinn mikill aðdáandi þungarokksveitarinnar Deep Purple fimm ára gamall og síðar fór ég að lesa mikið af bókum. Eftir menntaskóla og háskólanám fór Jón Hallur til Spánar í nám og skildi eftir í minni umsjá gríðarlegt plötusafn og bækur. Ég er af kynslóð sem náði í skottið á pönkinu, en var af þessum sökum vel heima í tónlistinni sem kom á undan því. Við byrjuðum snemma að spila saman. Ég var fjórtán ára þegar hann gaf út hljóðsnældu með eigin lögum og textum og nokkru síðar aðra, og ég var mjög hrifinn af þeim. Sjálfur var ég þá farinn að vera í hljómsveitum og þegar ég var rúmlega tvítugur gerðum við plötu með Jóni Halli, Þrettán tímar og fleiri lög hét hún. Við bræður erum mjög ólíkir um margt, í útliti erum við svart og hvítt. Og hvað varðar hljóðfæraleik, þá hefur hann meiri hæfileika til að smíða tónlist og texta en beinlínis að vera flinkur spilari. Og ég er tiltölulega flinkur hljóð- færaleikari og hlakka til að taka upp lög Jóns nú um helgina. Ég samdi tals- vert af tónlist hér áður fyrr, en geri minna af því núna. Ég hef verið að spila í hljómsveit að undanförnu, og finnst þægilegt að spila lög eftir aðra. Það er tímafrekt að semja lög og texta, ég hef alltaf verið fremur lengi að því. Það eru einnig einhverjir þræðir finnst mér á milli tónlistar og bóka, og ég á auð- veldara með að skrifa þegar ég er eitthvað að glamra í tónlist meðfram því. Ef ég ætti að lýsa Jóni Halli þá er hann fyrst og fremst góður og einlægur maður og auk þess mikill húmoristi. Hann getur verið mjög flippaður og stríðinn, það er í ættinni. Samband okkar hefur alla tíð verið mjög náið. Við lesum yfir hvor hjá öðrum og hann er einn af mínum uppáhalds- lesendum. Ég þekki mjög vel hans bókmenntasmekk, hann vill gjarnan hafa plottið þétt og fléttuna klára, ein- mitt það sem glæpasögur ganga mikið út á, og svo vill hann hafa vel skrifaðan texta og er opinn fyrir alls kyns tegund bókmennta. Hann segir skoðun sína umbúðalaust og þess vegna tek ég mikið mark á gagnrýni hans. Mér finnst alltaf mjög gaman að lesa það sem hann skrifar og nýja glæpasagan hans er verulega góð að mínum dómi. Hann gaf hér á árum áður út nokkrar ljóða- bækur, þýddi ljóðabók eftir Lorca og gaf út ljóðatímaritið Ský. Nokkrum ár- um seinna kom út flugtímarit með sama nafni í staðinn fyrir það sem hét Við sem fljúgum og ég hef verið að undirbúa útgáfu bókmenntatímarits með því nafni, svona til að halda tengingunni á milli flugtímarita og bókmennta- tímarita og okkar ágæta bræðraþeli. Jón Hallur er mjög afkastamikill lagahöfundur, hann beinlínis dælir frá sér lögunum. Á meðan hann var að skrifa Krosstré hvíldi hann sig með því að semja jólalög. Þau eru orðin svo mörg að við ætlum að taka þau upp og gefa út á geisladisk núna fyrir jólin, þótt við séum orðnir það seinir að þetta verð- ur meira eins og jólakort til vina og vandamanna en formleg útgáfa. Hér áður fyrr gat Jón Hallur verið geysilega utan við sig. Ég er reyndar miklu verri en hann hvað það varðar. En ég man eftir því þegar hann kom heim frá Spáni og var að búa sig undir próf að ég kom að honum þar sem hann var á kafi í bóklestri. Hann reykti pípu á þeim tíma og þegar ég heilsaði honum leit hann upp og það skíðlogaði í hárinu á honum. Hann tók ekkert eftir því sjálfur og ég sagði: Hei, það logar í hárinu á þér! Og hann sagði bara: Ha? – og það tók hann nokkra stund að átta sig á þessu. Það hefur alltaf verið mikið fjör í kringum Jón Hall. Ég var mun alvarlegra barn en hann og fíflalætin í bókunum okkar eru ólík. Hann er líka maður sem ekki er beinlínis hægt að rífast við. Vissulega deilum við um margt en það er alltaf á jákvæðum nótum. Mér er reyndar sagt að Jón hafi verið mjög erfitt barn. Hann bjó fyrstu æviárin í Danmörku þar sem foreldrar okkar voru við nám og sagan segir að hann hafi verið svo mikill ærslabelgur að vinir foreldra okkar gáfu upp á bátinn allar fyrirætlanir um að eignast börn þegar þeir sáu til hans. Einhverju sinni sátu foreldrar okkar í eldhúsinu og ægilegir skruðningar og læti bárust innan úr stofu. Síðan kom nokkur þögn og svo heyrðist hann segja: Góur og dullegur! Hann snarróaðist síðan þegar hann lærði að lesa, er mér sagt, varð strax mikill lestrarhestur. Hann fór líka snemma í sveit á sumrin og lærði að vinna, eins og ég löngu síðar. Við áttum afa og ömmu norður á Akureyri sem við heimsóttum á sumrin og eigum það- an afar ljúfar minningar. Rerum til fiskjar á Pollinum, áttum vini nyrðra, fór- um í lystigarðinn og sundlaugina. Ég man að við veiddum talsvert af fiski á Pollinum en þegar ég reyndi það aftur fullorðinn með ömmu okkar háaldr- aðri fékk ég bara einn fisk sem reyndist mengaður og ógeðslegur þegar ég reyndi að elda hann. Það óhætt að segja að við Jón Hallur séum mjög góðir vinir og það líða aldrei margir dagar án þess að við séum í sambandi. Þótt við séum ólíkir um margt eigum við einnig mjög margt sameiginlegt. Almennt séð höfum við svipaðan smekk á bókmenntum og tónlist, þótt iðulega komi fyrir að ég hríf- ist af einhverju sem hann þolir ekki og öfugt. Við bætum hvor annan upp og til samans erum við fullkomnir. GETUR VERIÐ MJÖG FLIPPAÐUR OG STRÍÐINN L jó sm yn d: K ri st in n In gv ar ss on „Það eru til myndir af honum pínulitlum að nota ljósakrónu fyrir boxpúða.“ 4.12.2005 | 25

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.