Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 40
40 | 4.12.2005
Vinna, heilsa og daglegt streð eru efst á baugi. Fréttir
eða atburðir tengdir fólki erlendis eða hinum megin
við hafið eru hugsanlegar. Kannski þarf krabbinn að
gera breytingar á áætlunum eða búa sig undir trufl-
anir á vinnu. Mars (framkvæmdaorka) er enn í bakk-
gír og beint á móti Júpíter (útþensla). Ef krabbinn er
að reyna að hleypa verkefni af stokkunum eða hugsar
sér að taka áhættu er hugsanlegt að það reynist þraut-
in þyngri. Staðfesta er svarið. Mars hættir senn göngu
sinni afturábak og Merkúr (hugsun) fer aftur í merki
bogmannsins og myndar jákvæða afstöðu við Kíron
(æðri hugsun), sem kveikir nýjar hugmyndir.
Krabbi 21. júní – 22. júlí
Sólin er í hinum óþvingaða bogmanni þessa dag-
ana og langar hrútinn helst til þess að teygja úr
löppunum, víkka hugann og hægja á púlsinum.
Reyndar er spenna milli Júpíters (útþensla) og
Mars (framkvæmdaorka), ekki fara yfir strikið
eða stóla um of á von eða heppni. Gættu að eyðsl-
unni – beittu innsæinu og hafðu hemil á fljótfærn-
inni. Fjármálin verða í brennidepli í mánuðinum
og hugsanlegt að ræða þurfi útistandandi verkefni.
Nýr vinur gæti dúkkað upp 5. desember, treystu í
það minnsta vinaböndin. Leggðu mat á mikilvægar
ákvarðanir og vertu á varðbergi gegn ósamkvæm-
um ráðleggingum.
Hrútur 21. mars – 20. apríl
Júpíter er í sporðdreka í desemberbyrjun, samvinna
og samstarf vísa veginn, en gæta þarf að jafnvæginu
milli þess að gefa og taka í samskiptum við nákomna.
Fjárhagurinn er í brennidepli eins og hjá mörgum öðr-
um, tækifæri eða ný sambönd gætu gert vart við sig.
Nautið þarf hugsanlega að laga sig að breytingum, en
það verður þess virði. Tjáskipti eða samræður breyta
stöðunni. Nýir tengiliðir gætu komið til skjalanna í
vinnunni og búast má við framförum af einhverju tagi
eftir 9. desember þegar Mars (framkvæmdaorka)
skiptir úr bakkgírnum. Tækifæri á vinnusviðinu léttir
hugsanlega fjárhagsáhyggjur eða vísar veginn.
Naut 20. apríl – 21. maí
Sambönd, samvinna og samskipti við nána samstarfs-
menn eru áberandi núna. Á hinn bóginn er Júpíter (út-
þensla) í sporðdreka og beinir athyglinni að vinnu,
heilsu og daglegu amstri. Tækifæri til menntunar eða
stöðuhækkun er hugsanlegt. Ákefð í sálarlífi tvíbur-
ans neyðir hann til þess að einbeita sér líka að sínum
eigin hugðarefnum og líklegra en ekki að hann finni
jafnvægið vegna áhrifa frá Merkúr (hugsun). Kíron
(æðri vitund) verður í vatnsbera frá og með 5. desem-
ber og ýtir jafnvel undir framandi og spennandi
tengsl. Kannski er ferðalag eða nám fyrir dyrum, eða
þá að tvíburinn hittir kennara af einhverju tagi.
Tvíburi 21. maí – 20. júní
Rómantík, lífsstíll og skapandi viðfangsefni eru ljón-
inu efst í huga. Hvert ertu að fara? Hvað langar þig til
þess að gera? Tileinkaðu þér nýtt mynstur í upphafi
síðasta mánaðar ársins og farðu varlega með pen-
ingana. Ekki láta flækja þig í leynilegt ástarsamband.
Meginverkefni ljónsins um þessar mundir eru að
tryggja jafnvægið milli vinnu og einkalífs, viðhalda
góðum tengslum, sinna skyldum sínum og passa að
vanrækja engan. Kíron (æðri hugsun) fer í merki
vatnsberans 5. desember og hleypir lífi í sambönd eða
leiðir til breytinga. Einhverjir skipta jafnvel um maka.
Vinnuálag gæti minnkað og skyldum fækkað eftir 9.
þessa mánaðar, en nýjar hugmyndir og verkefni bíða.
Ljón 23. júlí – 23. ágúst
Óvæntar fréttir eða breytingar eru hugsanlega á döf-
inni í peningamálum, en persónuleg tengsl eru mið-
punkturinn hjá sporðdrekanum þessa dagana. Ein-
beittu þér að samskiptum við maka og vinnufélaga og
gættu þess að vera stór í sniðum. Vertu rausnarlegur
og ekki láta fjölskyldulífið eða vinnuna mæta afgangi.
Nóg að gera, sem sagt. Gerðu upp við þig hvert
ábyrgðarhlutverk þitt er og á hvaða vettvangi. Ertu
kannski að eyða miklum tíma og orku í eitthvað sem
viðkemur tilfinningalífinu? Eða ertu að fórna einka-
lífinu fyrir vinnuna? Farðu vel yfir stöðuna og gerðu
breytingar þar sem þeirra er þörf.
Sporðdreki 23. október – 21. nóvember
Fiskurinn má búast við breytingum á sínum innri
veruleika, vinnudeginum, samskiptum og tjáningu á
næstunni. Aukið vinnuálag eða ábyrgð virðist á döf-
inni. Heilsufarið þarfnast athugunar og ferðalög,
hugsanlega yfir hafið, koma við sögu. Þú þarft að tjá
þig með nýjum og breyttum hætti. Samskipti við yf-
irboðara og starf og starfsframi eru í brennidepli,
gættu þess að sinna skyldum. Breyttu leyndum hæfi-
leikum í nýja iðkun eða færni og gaumgæfðu þarfir
þínar á andlega sviðinu vandlega. Líklega þarftu að
taka mikilvægar ákvarðanir um stefnuna í lífinu; dag-
legt líf verður að endurspegla gildismat þitt.
Fiskar 20. febrúar – 20. mars
Bogmaðurinn á afmæli þessa dagana. Vertu í góðum
félagsskap og leyfðu öllum að njóta nærveru þinnar
(og breytinganna á elleftu stundu sem þú gerir jafnan
með tilþrifum). Mundu að nú fer í hönd tímabil þar
sem bogmaðurinn á að beina orku sinni inn á við og
leita nýs sannleika, því Júpíter (útþensla) er á ferð í
merki sporðdrekans næstu misseri. Búast má við
hvörfum á sviði vinnu, heilsu, andlegrar viðleitni, tjá-
skipta, ferðalaga eða menntunar, sem munu með tím-
anum breyta lífsleiðinni. Heildarmyndin í lífi bog-
mannsins er að taka stakkaskiptum. Eitthvað sem
ekki er mögulegt opnar dyrnar að öðru sem gengur
upp.
Bogmaður 22. nóvember – 21. desember
Mars í nauti sveimar í húsi heimilis og fjölskyldu í sól-
arkorti vatnsberans. Hann þarf líka að laga sig að
breytingum á sviði starfsframa og samvinnu við
maka. Vinir, vonir og þrár eru í brennidepli í byrjun
síðasta mánuðar ársins. Drífðu þig út og blandaðu
geði. Léttu lundina með endurnýjuðum kynnum við
gamla kunningja. Kíron (æðri vitund) snýr aftur í
vatnsberann 5. desember og framhald verður á hring-
rás sem hófst fyrr á árinu. Ný færni eða iðkun, nýir fé-
lagar og nýjar hugmyndir eru grundvöllur breytinga
innra með honum. Heilsan verður viðfangsefni með
einum eða öðrum hætti.
Vatnsberi 21. janúar – 19. febrúar
Bogmaðurinn er hress og frumkvæður og níunda merki dýrahringsins.
Sólin skín að jafnaði í stjörnu bogmannsins frá 22. nóvember til 21.
desember. Sólin táknar grunneðlið og merki bogmannsins er stjórnað af Júpíter, plánetu gæfu, og hinum goðsögulega
drottnara guðanna. Bogmaðurinn er eldsmerki og hefur dálæti á breytingum, ferðalögum og æðri þekkingu.
D e s e m b e r
RÝNT Í STJÖRNURNAR
Breytingar eru fyrir dyrum. Meyjan vill gjarnan stefna
í nýja átt en veit ekki alveg hvernig hún á að fara að
því. Heimili og tilfinningalíf þarfnast athygli því hvörf
verða ekki síst á þeim vettvangi. Kíron (æðri hugsun)
fer í vatnsbera 5. desember og kemur með nýtt fólk,
nýja færni og nýja iðju inn í líf þitt. Breytingar heima
fyrir verða ljósar þegar Merkúr (hugsun) fer aftur í
bogmann 11. desember og myndar jákvæða afstöðu
við Kíron. Júpíter (útþensla) rekst á Satúrnus (raun-
veruleiki) 12. desember og þá efast meyjan hugsan-
lega verulega og hefur áhyggjur af skrefunum sem hún
er að taka þessa dagana.
Meyja 23. ágúst – 23. september
Steingeitin fer með ströndum og fylgist álengdar með
því sem gerist. Eitthvað kraumar undir niðri, en ekki
rétti tíminn til þess að leggja spilin á borðið. Njóttu
skapandi eða andlegra viðfangsefna í bili. Júpíter (út-
þensla) er í sporðdreka og ýtir undir samskipti stein-
geitarinnar við vini, vonir og þrár. Gættu þess að fara
ekki yfir strikið á meðan Júpíter er beint á móti Mars
(framkvæmdaorka), sem aftur er í bakkgír og ruglar
framvinduna. Kíron (æðri vitund) fer í vatnsbera 5.
desember og beinir hugsuninni að meðferð peninga og
nýjum leiðum í því sambandi. Óþolinmæði hefur gert
vart við sig, en ætti að fara minnkandi.
Steingeit 22. desember – 20. janúar
Sólin er í bogmanni og ferðalög og tjáskipti því nokkuð
á döfinni. Veltu peningamálum fyrir þér á meðan Merk-
úr (hugsun) er í afturábakgír í sporðdreka. Að hafa tök
á því að láta drauma sína rætast er viðfangsefnið þegar
Mars (framkvæmdaorka), Júpíter (útþensla), Satúrn-
us (kerfið) og Neptúnus (ímyndunarafl) mynda kross,
sem er leiðin inn í framtíðina. Taktu ákvarðanir sem
tengjast vináttu, lífsskoðunum, fjárfestingum og fram-
tíðarútgjöldum svo allir armar krossins séu í jafnvægi
og þjóni hver öðrum. Ný verkefni tengd sköpun eða af-
þreyingu verða hugsanlega að veruleika þegar Kíron
(æðri hugsun) fer aftur í vatnsbera 9. desember.
Vog 23. september – 22. október