Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 345. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Íslenskhönnun ogframleiðsla -já takk! Hvað er Silvía Nótt? Birta Björnsdóttir ræddi við Gauk Úlfarsson annan skapara Silvíu Nætur | 60 Bækur og Íþróttir í dag Bækur | Halldór Laxness  Hannes Hafstein  Thorsararnir  Leyndarmál  Áferð  Landið í brjóstinu Íþróttir | Prinz og Ronaldinho í sérflokki Blakmenn ársins  Bo Henriksen til ÍBV ELSTU börn allra leikskóla í Seljahverfi voru saman komin í Seljakirkju í gærmorgun þar sem börnin á Jöklaborg fluttu helgileik og börn á leikskól- unum Hálsaborg, Hálsakoti, Seljaborg og Seljakoti sungu saman í kór. Morgunblaðið/Golli Fluttu helgileik Teheran. AP, AFP. | Lög með George Michael, Eric Clapton, The Eagles og Kenny G. hafa verið vinsæl í írönskum ljósvakamiðlum en verða framvegis bönnuð, að sögn ríkisdag- blaðsins IRAN í gær. Sagði blaðið „nauðsynlegt að banna flutning ósæmilegrar og vestrænnar tónlist- ar“ í ljósvakamiðlunum. Forseti Írans, Mahmoud Ahmad- inejad, hefur endurvakið tilskipun gegn vestrænum menningaráhrifum sem gefin var út á fyrstu árum ísl- ömsku byltingarinnar 1979. Eftir því sem dró úr byltingarofsanum fór að heyrast léttklassísk tónlist í útvarpi og sjónvarpi, m.a. með franska píanóleikaranum Richard Clayder- man. Vestræn tónlist, kvikmyndir og klæðnaður fást nú hvarvetna í Ír- an og á götum Teheran má heyra hip-hop úr bílgræjum og hátölurum verslana. Sjóræningjaútgáfur af bönnuðum kvikmyndum fást víða á svarta markaðnum. Banna Clapton DANSKI þingmaðurinn Kamal Qureshi segir að ríkisstjórnin verði að setja ofan í við Lögþing Færeyja fyrir að setja jafnréttislög þar sem réttindi samkynhneigðra séu huns- uð, að því er segir á fréttavef danska ríkisútvarpsins. Mikill meirihluti fulltrúa á Lög- þinginu hefur samþykkt að ákvæði jafnréttislaga, sem meðal annars banna misrétti vegna kynþáttar eða trúar við ráðningar í störf, skuli ekki eiga við um samkynhneigða. Könnun Gallup í Færeyjum gefur til kynna að 58% kjósenda séu sammála þing- meirihlutanum í málinu. Qureshi sagðist vona að stjórn- völd ræddu málið við færeyska ráða- menn. „Það er hrikalegt að við skul- um vinna að því þróunarlönd sem fá fjárhagsaðstoð skuli fara að kröfum um jafnrétti en gera ekki sömu kröf- ur til þeirra sem eiga aðild að okkar eigin ríkjasambandi,“ sagði hann. Samkynhneigðir illa séðir í Færeyjum LÖGREGLA og tollgæsla á Íslandi hefur lagt hald á minna af fíkniefnum það sem af er þessu ári en á því síðasta en þó hefur skráðum fíkniefna- brotum fjölgað um 8,5%. Lagt hefur verið hald á um 3.200 kannabisplöntur í ár sem eru næstum jafnmargar og síðustu fjögur árin þar á undan. Ás- geir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögregl- unnar í Reykjavík, segir að innlend kannabisrækt- un hafi færst í vöxt á síðustu árum og nú sé svo komið að nánast allt marijúana sem neytt sé hér á landi sé innlend framleiðsla. Lögreglu hafi jafnvel borist upplýsingar um að íslenskt marijúana hafi verið boðið til sölu í Kaupmannahöfn. Hann segir að skýr merki séu um að neysla fíkniefna aukist jafnt og þétt. Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra höfðu 1.754 fíkniefnabrot verið skráð 13. desem- ber sl. en þau voru 1.617 árið 2004. Á þessu ári hef- ur verið lagt hald á um 12,7 kíló af amfetamíni og um 4 kíló af metamfetamíni sem er töluvert meira magn amfetamíns en lagt var hald á í fyrra, sem þó var metár í þessu tilliti. Þá hefur svipað náðst af marijúana. Minna hefur hins vegar náðst af öðrum efnum, s.s. hassi, e-töflum og kókaíni en í fyrra. Þannig hefur verið lagt hald á um 11,7 kíló af hassi, 1 kíló af kókaíni og 1.300 e-töflur en í fyrra náðust um 37 kíló af hassi, 6,2 kíló af kókaíni og 7.500 e-töflur. Fíkniefnabrotum fjölgar en minna efni haldlagt  Upplýsingar um að íslenskt marijúana hafi verið selt í Kaupmannahöfn  Fleiri fíkniefnabrot | 34 Eftir Rúnar Pálmason rúnarp@mbl.is ÞÝSKA knattspyrnukonan Birgit Prinz var í gær kjörin knatt- spyrnukona ársins í kjöri Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, og er þetta þriðja árið í röð sem fram- herjinn fær þessa viðurkenningu. Brasilíumaðurinn Ronaldinho var efstur í kjörinu í karlaflokki, annað árið í röð, en hann var með fáheyrða yfirburði og fékk 965 stig, en enski landsliðsmaðurinn Frank Lampard frá Chelsea varð annar með 306 stig en Samuel Eto’o, landsliðsmaður Kamerún og framherji Barcelona varð þriðji með 190 stig. | C1 Birgit Prinz í sögubækur AP 2004 sem ekki var hrint í fram- kvæmd fyrr en nú eftir kosningar í von um að minnka þannig pólitískan þrýsting í landinu,“ sagði Aref. Sjítabandalag öflugast Fyrstu tölur um niðurstöður þing- kosninganna nýverið í 11 af 18 hér- uðum benda til þess að fylgi flokk- anna fari mjög eftir skiptingu Íraka í trúflokka og þjóðerni. Þegar búið var að telja nær 90% atkvæða í Bagdad-héraði var öflugasta banda- lag sjía-múslíma, Íraska bandalagið, sem nú fer fyrir ríkisstjórninni, með um 58% stuðning þar. Helsta banda- lag súnni-múslíma var með 19% en í þriðja sæti var fylking Iyads Allawis, fyrrverandi forsætisráðherra, sem er veraldlega sinnaður sjíti. ÍRASKUR lögfræðingur, Badee Izz- at Aref, fullyrti í gær að 24 eða 25 fyrrverandi embættismenn úr Baath-flokki Saddams Husseins, sem sátu í fangelsum Bandaríkja- manna, hefðu verið látnir lausir án ákæru. Talsmaður Bandaríkjahers í Bagdad, Barry Johnson undir- ofursti, vildi þó aðeins staðfesta að átta manns hefðu verið látnir lausir. Annar heimildarmaður sagði að meðal þeirra sem fengið hefðu frelsi væru vísindamennirnir Rihab Taha, sem í Írak gekk undir heitinu „dr. Sýkill“ og Huda Salih Mahdi Amm- ash en hún var uppnefnd „frú Milt- isbrandur“. Þær voru einu konurnar sem Bandaríkjamenn handtóku og komu þær við sögu sýklavopnatil- rauna Íraka á níunda áratugnum. Var Ammash „hjartafimman“, nr. 39 í spilastokki Bandaríkjamanna með nöfnum og andlitsmyndum 53 hátt- settra embættismanna sem hand- taka átti. Taha var nr. 53. „Um var að ræða sameiginlega ákvörðun Íraka og Bandaríkja- manna og í samræmi við ákvörðun írösku stjórnarinnar í desember Samverkamenn Saddams látnir lausir án ákæru Huda Ammash Rihab Taha Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.