Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Antony Horowitz
„Spennandi
frá upphafi
til enda…
bráðskemmtileg…
hrífur lesendur
með sér hvort sem
þeir eru níu ára
eða níræðir.“
Hildur Heimisdóttir / DV
„Illyrmislega snjöll.“
Independent
„Hröð, fyndin
ogmjög spennandi.“
Daily Mail
„Stórkostlegt
sköpunarverk!“
www.jpv. is
ÞINGFUNDUR Í KABÚL
Fyrsti þingfundur sem haldinn
hefur verið í Afganistan í þrjá ára-
tugi fór fram í Kabúl í gær. Hamid
Karzai forseti sagði að fundurinn
væri mikilvægt skref í þá átt að
tryggja framtíð þjóðarinnar sem
væri að rísa „úr öskustó innrásar“.
Sleppt úr haldi
Allt að 25 fyrrverandi embætt-
ismönnum stjórnar Saddams Huss-
eins, fyrrverandi einræðisherra í
Írak, hefur verið sleppt úr haldi án
ákæru. Hafa þeir fengið að fara úr
landi enda óttuðust þeir um líf sitt,
að sögn heimildarmanna. Í hópnum
voru einu konurnar í haldi Banda-
ríkjamanna, vísindamennirnir Huda
Ammash og Rihab Taha. Þær unnu
á sínum tíma við sýklavopnaáætlun
Íraka á níunda áratugnum.
Mun vanta í 25 stöðugildi
Um áramót mun vanta í 25 stöðu-
gildi á leikskólum í Kópavogi náist
ekki að fá nýtt starfsfólk. Mun þá
koma til lokunar á að minnsta kosti
einni deild á einum leikskóla bæj-
arins. Nýgerðir kjarasamningar
Reykjavíkurborgar hafa gert það að
verkum að starfsfólk í Kópavogi seg-
ir upp og sækir um á leikskólum í
borginni.
Fleiri mál en minna magn
Lögregla og tollgæsla hafa lagt
hald á minna af fíkniefnum það sem
af er árinu en í fyrra en þó hefur
skráðum fíkniefnabrotum fjölgað
um 8,5%. Lagt hefur verið hald á um
3.200 kannabisplöntur í ár sem er
næstum jafnmargar og síðustu
fjögur árin á undan. Nánast allt
marijúana sem neytt er hér á landi
er innlend framleiðsla. Lögreglu
hafa borist upplýsingar um að ís-
lenskt marijúana hafi verið boðið til
sölu í Kaupmannahöfn.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Af listum 38
Viðskipti 18 Umræðan 39/44
Úr verinu 19 Bréf 42
Erlent 22/23 Minningar 46/49
Minn staður 24 Dagbók 54/57
Landið 25 Víkverji 54
Akureyri 26 Myndasögur 54
Suðurnes 26/27 Velvakandi 55
Austurland 27 Staður&stund 55/56
Daglegt líf 28/33 Bíó 62/65
Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 66
Viðhorf 36 Veður 67
Menning36/38, 58/65 Staksteinar 67
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga
Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
FULLTRÚAR Launanefndar sveitarfélaga (LN)
í samstarfsnefnd höfnuðu því í gær að hefja nú
þegar viðræður við Félag leikskólakennara (FL)
um breytingu á launum félagsmanna, að sögn
Bjargar Bjarnadóttur, formanns FL. Fulltrúar
LN í nefndinni sögðust á fundi í gær ekki hafa
umboð til að taka kjarasamninginn upp án sér-
staks samþykkis stjórnar LN, segir í frétt FL
vegna fundarins. Fulltrúar Félags leikskólakenn-
ara áttu í gær einnig fund með borgarstjóra þar
sem gerð var grein fyrir viðhorfum félagsins
vegna samninga sem Reykjavíkurborg hefur
gert við aðra starfsmenn leikskóla. Björg segir
að á fundinum hafi komið fram að borgarstjóri
vildi ekki tjá sig efnislega um málið fyrr en eftir
fund samstarfsnefndar en aðilar yrðu boðaðir til
nýs fundar fljótlega. „Við fórum yfir málið, en
umboðið er hjá launanefndinni, það er hún sem
semur,“ segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri um niðurstöður fundarins. „Við
ákváðum að vera í sambandi og funda jafnvel
aftur fyrir áramót með tilliti til þess sem kæmi
út úr fundinum með samstarfsnefndinni.“
Afstaða FL ekki breyst
Björg segir afstöðu FL ekki hafa breyst eftir
fundi með borgarstjóra og fulltrúum LN í gær.
Ekki komi til greina að bíða til haustsins með
kjarabætur til félagsmanna, en þá verða samn-
ingar lausir. „En það var lítill árangur af fundum
dagsins, það er óhætt að segja það,“ sagði Björg.
Á fundi samstarfsnefndarinnar var tekið fyrir
erindi FL frá 7. desember sl. þar sem óskað var
eftir viðræðum um breytingar á kjarasamningi
leikskólakennara. Ítrekuðu fulltrúar FL nauðsyn
þess að taka upp gildandi kjarasamning strax.
Fulltrúar LN lýstu því hins vegar yfir að sögn
Bjargar að þeir gætu ekki tekið ákvörðun um að
taka upp gildandi kjarasamning án sérstaks
samþykkis stjórnar LN og þeirra sveitarfélaga
sem veitt hafa nefndinni umboð sitt. Fram kom
að fyrirhugað er að halda launaráðstefnu sveitar-
félaga 20. janúar 2006 nk. þar sem núverandi
staða í kjaramálum verður rædd. Ákveðin bið-
staða hefur því skapast að sögn Bjargar. „Ég
veit ekki hvernig leikskólakennarar í Reykjavík
munu bregðast við þessum fréttum, það verður
tíminn að leiða í ljós.“
Borgarstjóri sagði í Morgunblaðinu nýverið að
ekki kæmi til greina að breyta núgildandi samn-
ingum við leikskólakennara en þeir verða lausir í
október á næsta ári. Aðspurð hvort afstaða
hennar hefði breyst eftir fundinn með fulltrúum
FL í gærmorgun og hvort hún muni beita sér
fyrir endurskoðun samninga leikskólakennara
segir Steinunn Valdís: „Umboðið er hjá launa-
nefndinni, umboðið er náttúrlega ekki hjá
Reykjavíkurborg. Ég hins vegar stend við það
sem ég sagði í Morgunblaðsviðtali 24. október sl.
í tengslum við kvennafrídaginn, að mér fyndist
eðlilegt að setja okkur þau markmið í næstu
kjarasamningum að hækka lægstu launin og líta
sérstaklega til umönnunarstétta. Mér finnst því
ekkert óeðlilegt að leikskólakennarar horfi til
þessara samninga þegar kemur að því að semja
við þá.“
Umboð til samninga hjá launanefndinni en ekki borginni að sögn borgarstjóra
Ekki kemur til greina að
bíða til haustsins að mati FL
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
TVÖ umferðaróhöpp urðu með skömmu millibili á
Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gærdag, að því er virð-
ist bæði vegna ógætilegs ökulags, að sögn lögregl-
unnar í Hafnarfirði. Samtals voru fimm ökumenn og
farþegar fluttir á slysadeild en enginn þeirra var talinn
alvarlega slasaður.
Fyrra slysið varð um kl. 15:30 þegar ökumaður bíls
sem ekið var vestur Reykjanesbraut til móts við Ásvelli
tók u-beygju á Reykjanesbrautinni, en ökumaður bíls-
ins fyrir aftan náði ekki að stöðva bíl sinn og lenti á
fremri bílnum, sem valt tvær veltur við höggið. Öku-
menn voru einir í bílunum og sluppu án mikilla meiðsla.
Síðara óhappið varð tæplega tveimur klukkustund-
um síðar, þegar ökumaður bíls beygði þvert í veg fyrir
umferð inn á afleggjara að Rauðhellu, og bíll sem kom
úr gagnstæðri átt lenti á bílnum. Alls voru sex í bíl-
unum tveimur, og voru þrír fluttir á slysadeild. Þeir
voru ekki taldir alvarlega slasaðir.
Ljósmynd/Guðmundur Ari Arason
Einn bílanna valt þegar hann reyndi að taka u-beygju á Reykjanesbrautinni, en ökumaður slapp lítið slasaður.
Fimm á slysadeild eftir tvö óhöpp
TVEIR menn eru í gæsluvarðhaldi
vegna rannsóknar fíkniefnadeildar
lögreglunnar í Reykjavík á smygli á
töluverðu magni af fíkniefnum.
Efnin voru falin í í bíl sem kom með
ferjunni Norrænu frá Danmörku,
skv. upplýsingum frá lögreglu.
Annar maðurinn var handtekinn
á fimmtudag en hinn var handtek-
inn á laugardag. Báðir hafa verið
úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram
til 23. desember nk. Mennirnir eru
á fimmtugs- og sextugsaldri og eru
þeir grunaðir um að hafa flutt
fíkniefnin til landsins til dreifingar
og sölu. Lögregla vildi í gær ekki
veita frekari upplýsingar.
Fíkniefnin voru
í bíl úr Norrænu
ICELANDAIR hyggst láta setja
svonefnda vænglinga (winglet) á
vængenda sjö Boeing 757-þotna
sinna í vetur. Fyrsta þota félagsins er
komin úr breytingu og hóf áætlunar-
flug í gær.
Að sögn Guðjóns Arngrímssonar,
upplýsingafulltrúa Icelandair, þarf að
gera talsverðar breytingar á vængj-
um flugvélanna til að koma vængling-
unum fyrir. Tekur breyting hverrar
flugvélar 3–4 vikur og fer hún fram í
Bandaríkjunum í samvinnu við
Boeing, framleiðanda flugvélanna.
Vænglingarnir draga úr eldsneyt-
iseyðslu flugvélanna svo nemur um
5%. Mörg flugfélög eru að láta setja
vænglinga á flugvélar sínar um þess-
ar mundir og má rekja það til síhækk-
andi eldsneytisverðs. Ráðgert er að
ljúka þessum breytingum á stærsta
hluta áætlunarflugflota Icelandair
fyrir næsta sumar.
Vænglingar draga
úr eldsneytiseyðslu
Ljósmynd/Hilmar Bragi
HARÐUR árekstur varð við gatna-
mót Glerárgötu og Hörgárbrautar
á Akureyri í gærkvöldi. Tveir
bílar skullu saman og slasaðist
ökumaður annars bílsins nokkuð
og var fluttur á Fjórðungssjúkra-
húsið. Ökumaður hins bílsins og
farþegi hlutu minniháttar meiðsl.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri
voru báðir bílarnir mikið skemmd-
ir og fluttir af vettvangi með
kranabíl.
Árekstur
á Akureyri