Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Ofurpæjan Silvía Nótt varð landsþekkt ástuttum tíma fyrr í sumar. Foreldrarhennar eru Gaukur Úlfarsson kvik-myndagerðarmaður og Ágústa Eva Er-
lendsdóttir, sem jafnframt túlkar Silvíu sjálfa.
„Hugmyndin að persónunni kviknaði þegar við
Ágústa ætluðum að fara að vinna eitthvað saman,“
byrjar Gaukur. „Ég hef verið að vinna í þessum
bransa í sjö til átta ár og það var í fyrsta sinn lítið
að gera hjá mér. Við ákváðum því að búa eitthvað
til.“
Upphaflega átti Silvía Nótt þó að vera hluti af
stærri þætti þar sem áttu að koma við sögu fleiri
persónur. „Þetta átti upphaflega að vera þáttur
með tveimur þáttastjórnendum, Ágústu og einum
strák þar sem Silvía kæmi við sögu ásamt hinum og
þessum karakterum en við fundum bara aldrei
neinn sem okkur fannst henta. Við ákváðum þá að
veðja bara alfarið á Silvíu og kynntum hana fyrir
Helga Hermannssyni sem þá var dagskrárstjóri
Skjás Eins sem leist strax vel á hugmyndina,“ segir
Gaukur.
„Þá fórum við í það að þróa karakter Silvíu betur
og gera hann dýpri, það eina sem við vorum búin að
ákveða var að hún væri afar grunn, hugsaði bara
um peninga og frægð. Út frá því fórum við svo að
skrifa sögu hennar. Grunnhugmyndin á bakvið
hana var þó alltaf að hún er einhvers konar anti-
kristur, það er ekkert andlegt við hana. Hún er al-
veg ofurlseld efnishyggjunni, peningum, frægð og
útlitsdýrkun.“
Þau Gaukur og Ágústa sköpuðu Silvíu Nótt sam-
an frá upphafi og segir Gaukur að allt verkefnið
hafi verið tveggja manna verk frá upphafi.
„Í fyrstu þáttaröðinni sáum vð tvö um allt sem
kom að þáttagerðinni og skiluðum þáttunum full-
unnum í hús. Það var að sjálfsögðu rosalega mikil
vinna og eftir fyrstu þáttaröðina í sumar vorum við
orðin ansi lúin. Í seinni þáttaröðinni fengum við svo
liðsauka og það munaði öllu.“
Guð er 90’s!
En hver skyldi heimspekin vera á bakvið Silvíu
Nótt?
„Í fyrri þáttaröðinni voru flestir þættirnir dæmi-
sögur. Flestir þættirnir byrjuðu á gífurlegum yf-
irlýsingum hennar um einhver markmið sem hún
ætlaði sér að ná en sem enduðu öll með einhverjum
ógurlegum niðurlægingum Silvíu. Hennar hug-
myndir um hamingju eru að ná í tiltekinn strák,
eignast ákveðinn bíl eða fá samning við þetta og
hitt fyrirtækið. Hún eltir hamingjuna í þessum
hlutum og dæmisögurnar ganga útá það að lífs-
hamingjuna er að sjálfsögu ekki að finna á þessum
stöðum,“ segir Gaukur.
„Ég hef alveg sjálfur bragðað á því að það fæst
engin hamingja í þessum efnislegu hlutum en Silvíu
myndi aldrei detta í hug í að leita að hamingjunni í
því að gera eitthvað fyrir aðra en sjálfa sig. Það er
þó mín lífsskoðun að tilgangur lífsins sé að vera
öðrum innan handar og hugsa sem minnst um sjálf-
an sig. Ég er alveg ófeiminn við að segja frá því að
ég er trúaður, það er Silvía ekki en henni finnst
Guð vera 90’s!“
Gaukur segir þættina því deila talsvert á trúleysi
nútímamanna.
„Ég held að of mörgum í dag finnist trúin ekki
skipta miklu máli, hún sé eingöngu ef þú lendir í
vandræðum,“ segir hann.
„Stærsta ádeilan er kannski sú að við erum farin
að hugsa of mikið útfrá efnishyggjunni og hugsum
of lítið um Guð og trúna. Trúin er mikið feimnismál
að mínu mati, það eru fáir sem lýsa því yfir op-
inberlega að þeir séu trúaðir. Trúin er þó i mínu til-
felli það sem hefur fært mér hvað mesta hamingju í
lífinu. Ég vil þó taka það skýrt fram að það hefur
ekki með nein trúfélög að gera.“
200 tölvupóstar
Þrátt fyrir áðurnefnda lesti Silvíu Nætur segir
Gaukur það hafa verið nauðsynlegt að gefa henni
einhverja eiginleika sem fólki líkaði við.
„Hún mátti ekki vera of andstyggileg. Það verð-
ur að vera eitthvað viðkunnalegt eða mannlegt við
hana. Ef henni myndi takast öll ætlunarverk sín þá
myndi maður eflaust hata hana en þar sem hún er
mannleg líka rennur hún iðulega á rassgatið,“ segir
hann.
Silvía Nótt hefur átt miklum vinsældum að fagna
hér á landi síðan hún lét fyrst að sér kveða fyrr í
sumar. Hún var meðal annars kjörin sjón-
varpsmaður ársins á nýafstaðinni Edduverð-
launahátíð og þátturinn bestu skemmtiþátturinn.
Hverju þakkar Gaukur vinsældir hennar?
„Ég vil auðvitað trúa því að það sé vegna þess að
við lögðum mjög hart að okkur við gerð þáttanna
og vönduðum okkur mikið. Svo vorum við líka mjög
heppin, ég held að Silvía hafi verið réttur hlutur á
réttum tíma,“ segir Gaukur.
Hann segir viðbrögð fólks hafa verið mikil frá
upphafi.
„Við lögðum upp með frekar óhefðbundna kynn-
ingarherferð áður en fyrsti þátturinn var sýndur.
Ágústa var óþekkt og við unnum út frá því að Silvía
Nótt væri ósvikin persóna. Það kom mér þó á óvart
þegar fyrsti þátturinn fór í loftið hversu stór hluti
áhorfenda trúði því að hún væri raunveruleg.
Ágústa gerði þetta auðvitað mjög vel og varð í
rauninni þessi karakter. Þrátt fyrir að flestir viti nú
að hún er á bakvið Silvíu er eins og það sé einhver
hópur fólks sem vill eigna henni einhverja eig-
inleika Silvíu Nætur,“ segir Gaukur en viðurkennir
að viðbrögðin í kjölfarið hafi komið sér á óvart.
„Eftir fyrsta þáttinn fengum við hátt í 200 tölvu-
pósta en Silvía var alveg satanísk í fyrsta þættinu,
fór í Kolaportið og var að tala um útlendinga og
skítugt fólk. Það voru kannski fjórar jákvæðar
tölvupóstsendingar en restin jaðraði við morðhót-
anir. Þegar ég las fyrstu 20 bréfin var ég rosa
ánægður og sá fyrir mér gríðarlega mikið umtal en
þegar ég hélt lestrinum áfram fóru að renna á mig
tvær grímur. Ég fór að hafa áhyggjur af því að
Ágústa gæti ekki lengur farið út úr húsi.“
Hann segir það þó ekki hafa komið til greina að
hætta við.
„Auðvelda leiðin út hefði verið að stíga fram og
segja að þetta væri grín og að Silvía væri tilbún-
ingur. Þá hefðum við þó eyðilagt allt fyrir okkur,
það á ekki að útskýra efni afþessu tagi,“ segir hann.
„Við urðum þó vör við margar kjaftasögur um
Silvíu, en það sem fæstir vita er að við bjuggum
þær flestar til sjálf, einsog þá vinsælustu, um að
pabbi Silvíu eigi stóran hlut í Skjá Einum og
þarafleiðandi var skýring komin á hversvegna
Silvía fékk þáttinn sinn. Þessi saga lifir góðu lífi enn
í dag.“
Gaukur segist Skjá Einum afar þakklátur fyrir
tækifærið og traustið sem þeim Ágústu var sýnt.
„Við fengum að ráða okkur alveg sjálf,“ segir
hann.
Gaukur segir þau Ágústu vera í fríi núna frá
sköpunarverkinu enda hafi stór hluti ársins farið í
að sinna Silvíu á alla kanta. Hann sagði að lokum
allsóvíst hvort vænta væri meira frá hinni kok-
hraustu Silvíu í framtíðinni.
Silvía Nótt átti einhverja eftirminnilegustu innkomu í íslenskt sjónvarp á árinu.
Birta Björnsdóttir ræddi við Gauk Úlfarsson, annan skapara Silvíu Nætur, um hug-
myndina að baki persónunni sem allir elska að hata.
Silvía Nótt er einhvers
konar anti-kristur
birta@mbl.is
Þeir sem misstu af Silvíu Nótt í sjónvarpinu þurfa
ekki að örvænta. Fyrsta þáttaröðin er komin út á
mynddiski.
Morgunblaðið/RAX
„Við urðum þó vör við margar kjaftasögur um Silvíu, en það sem fæstir vita er að við bjuggum þær
flestar til sjálf,“ segir Gaukur Úlfarsson, annar hugmyndasmiðurinn á bak við Silvíu Nótt.
Morgunblaðið/Eggert
Ágústa Eva Erlendsdóttir sem Silvía Nótt.
Innbrotsþjófar létu greipar sópaum heimili fyrirsætunnar Claud-
iu Schiffer í Notting Hill í London.
Þeir tóku verðmæti fyrir hundruð
þúsunda á meðan fjölskyldan svaf
vært á efri hæðinni.
Þjófarnir tóku fartölvu og mynda-
vél með fjölskyldumyndunum og
þótti fyrirsætunni og eiginmanni
hennar, kvikmyndaframleiðand-
anum Matthew Vaughn, víst hræði-
legt að vita af þjófunum á kreiki á
meðan þau sváfu í húsinu.
Nýlega hefur verið hrina af inn-
brotum hjá fræga fólkinu í London,
þar á meðal Elle MacPherson og
Geri Halliwell sem búa í sama
hverfi.
Fólk folk@mbl.is
Leikkonan Lindsay Lohan tekurvið sem andlit tískuhússins
Chanel af fyrirsætunni Kate Moss.
Chanel sagði upp samningnum við
Kate Moss þegar hún var mynduð
við kókaínneyslu í upptökustúdíói í
London.
Lohan og Moss hafa nýlega
kynnst og sást til þeirra snæða sam-
an á kaffihúsi í Beverley Hills fyrr í
mánuðinum. Að sögn Lohan er Kate
Moss táknmynd tískunnar í hennar
huga.
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Lið-a-mót
FRÁ