Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
„JÓLAHÁTÍÐIN hjá mér hefst
fyrsta sunnudag í aðventu,“ segir
Sunna Ólafsdóttir, sem með réttu
má titla sem jólastelpu. „Þá vil ég
vera búin að gera sem mest, baka,
kaupa gjafirnar, skrifa kortin og
skreyta. Þannig að við getum bara
notið aðventunnar. Mér finnst það
skipta mjög miklu máli.“ Sunna vill
alls ekki lenda í því að vera á síðustu
stundu með nokkurn hlut eða eiga
eitthvað eftir þegar nær dregur jól-
um. „Ég vil ekki vera í einhverju
stressi að kaupa jólagjafir síðustu
daga fyrir jól eða skreyta. Ég vil
bara vera búin að þessu svo að að-
ventan geti snúist um að hafa það
huggulegt og njóta lífsins.“
Innsiglar ekki kökubaukana
Sunna notar þó aðventuna til að
baka með fjölskyldunni. „Við bökum
með krökkunum og kökurnar eru
borðaðar á aðventunni,“ segir
Sunna. „Ég innsigla ekki baukana
með límbandi eins og mamma
gerði,“ bætir hún við og hlær.
„Tvær sortir eru alltaf bakaðar á
þessu heimili, það eru amerískar
súkkulaðibitakökur og spesíur. Við
klöstrum líka saman piparkökuhúsi.
Það endar alltaf með því að verða
eins og illa veðraður kofi, en það er
gaman að búa það til og við leyfum
krökkunum að spreyta sig á því.“
Forskot á jólabækurnar
Eiginmaður Sunnu heitir Snorri
Már Skúlason. Þegar hún er spurð
hvort þau hjónin séu saman í jóla-
undirbúningnum svarar hún: „Ég er
ýktust í þessu jólastússi. Það hefur
löngum verið gert grín að mér fyrir
að vera svona mikil jólastelpa, en ég
hef einhvern veginn náð að smita
hina fjölskyldumeðlimina. Það eru
allir voða spenntir og ég held að
mér hafi meira að segja tekist að
smita Snorra líka.“
Sunna og eiginmaður hennar taka
líka forskot á jólasæluna á annan
hátt. „Við kaupum okkur oft jóla-
bækur á aðventunni og byrjum að
lesa fyrir jól. Nú erum við t.d. búin
að kaupa þrjár bækur.“
Þessi árstími er í miklu uppáhaldi
hjá Sunnu. „Þetta er minn uppá-
haldstími og við leggjum áherslu á
það að borða góðan mat, förum
stundum út að borða. Smáréttir eru
vinsælir hjá okkur, bara við sjón-
varpið eða þegar gestir koma. Ég er
líka dugleg við að bjóða heim, býð
vinkonum mínum í kakó eða eitt-
hvað slíkt.“
Sunna starfar sem flugfreyja hjá
Icelandair. Ætla mætti að það gæti
verið erfitt fyrir flugfreyju með
óreglulegan vinnutíma að koma
þessu heim og saman en svo er ekki
hjá henni. „Mér finnst líka gaman
að sjá jólastemningu í öðrum lönd-
um, alveg frábært. Í Bandaríkj-
unum er t.d. mjög mikið skreytt
strax í byrjun nóvember og það
hjálpar mér að detta inn í rétta gír-
inn.“
Hvítt þema í ár
„Ég er búin að fara nokkra hringi
með skreytingarnar,“ segir Sunna.
„Nú er það hvítt, eða hvítt og silfur.
Það finnst mér mjög fallegt.“ Hún
hefur áður verið með ákveðna liti,
segist nota sömu liti kannski í tvö til
þrjú ár. „Ég hef verið með gyllt
þema og rautt líka.“
Að endingu tekur Sunna það fram
að í janúar hefjist nýr tími hjá fjöl-
skyldunni. „Þá snýr maður við
blaðinu og fer í meinlætalifnað. Við
bætum alltaf svolítið á okkur um jól-
in, þetta er bara ein stór matar-
veisla í desember og þá er ferð í
ræktina ekki efst á blaði. Í janúar er
þetta svo tekið með trompi.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sunna Ólafsdóttir er mikil jólastelpa og í ár er hún með hvítt þema í jólaskreytingunum.
Smitandi jólastelpa
með allt á hreinu
AÐVENTAN | Tími til að njóta samveru við fjölskylduna
Eftir Sigrúnu Ásmundar
sia@mbl.is
DAGLEGT LÍF
Humarsnitta
Snittubrauð
salatblað
hvítlaukssósa, tilbúin eða heima-
gerð (box sýrður rjómi, 3 hvítlauks-
rif, 1 tsk. dijon-sinnep, sletta af
sítrónusafa, 2 tsk. hunang, fersk
steinselja)
soðinn humar
ferskur kóríander
Brauðið sneitt, salatblað, sósa og
soðinn humarhali sett á, skreytt með
ferskum kóríander.
Hvítlauksristaðir sniglar
Tilbúnar brauðskeljar (fæst m.a. í
Hagkaupum)
ein dós sniglar
2 msk. dijon-sinnep
ca 5 hvítlauksrif
sletta af rjóma
steinselja
rifinn ostur
Sniglar steiktir í ólífuolíu og hvít-
lauk, sinnepi og rjóma bætt við. Sett
í skeljar og rifinn ostur yfir. Í ofn ca
10 mín., skreytt með steinselju.
Hrátt hangikjöt og melóna
Kjötið skorið í bita, borið fram með
ferskri melónu sem skorin er í bita.
Gráðostadöðlur
Döðlur
gráðostur
beikon
Setjið ca eina tsk. af gráðosti á
hverja döðlu og vefjið henni inn í
beikonsneið. Inn í ofn í ca 8 mín.
Kryddlegnar ólífur
Slatti af góðri olíu
tvær krukkur ólífur, í mismunandi
litum,
ferskt timian
Gráðostadöðlur.
Smáréttir og
smákökur Sunnu