Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 37 MENNING Meðlagsgreiðendur! Meðlagsgreiðendur, vinsamlega gerið skil hið fyrsta og forðist vexti og kostnað. INNHEIMTUSTOFNUN SVEITARFÉLAGA Lágmúla 9 - 108 Reykjavík - Kt. 530372 0229 - www.medlag.is Banki 0111-26-504700 - Sími 590 7100 - Fax 590 7101 JÓLATÓNLEIKAR Sinfóníu- hljómsveitar Íslands voru hefð- bundnir; syrpa af jólalögum og efni- legur einleikari af yngri kynslóðinni fékk að spreyta sig með hljómsveit- inni. Í þetta sinn var það Arngunnur Árnadóttir klarinettuleikari og spil- aði hún fyrsta kaflann úr konsert í B-dúr eftir Stamitz. Arngunnur er átján ára gömul og er nemandi í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Greinilegt er að hún er bráðefnileg, hún lék konsertinn af öryggi og músíkölsku innsæi og var ákaft fagnað í lokin. Jólahátíðarforleikur eftir Leroy Anderson var sömuleiðis prýðilega leikinn undir fjörlegri stjórn Bern- harðs Wilkinsonar og þættir úr Svanavatninu eftir Tchaikovsky voru stórskemmtilegir, en þar stigu dansarar úr Listdansskóla Íslands nokkur nett dansspor á sviðinu. Þá glaðnaði yfir ungum ballerínum meðal áhorfenda, enda Svanavatnið til í Barbíútgáfu á næstu vídeóleigu. Sjö ára dóttir mín, sem var með mér, þekkti greinilega söguna í smáat- riðum og gat útskýrt fyrir mér hvað var að gerast í ballettinum hverju sinni. Það var eins gott, því annars hefði ég ekki skilið bofs. Halldór Gylfason var kynnir og var verulega fyndinn. Jólasaga sem hann sagði um kraftaverk í lífi trúðs meðal munka var svo kostuleg að áheyrendur vein- uðu af hlátri. Barnakórar frá Flúðum og Sel- fossi undir stjórn Edit Molnar og Glúms Gylfason- ar hefðu hins veg- ar mátt vera líf- legri; syrpa af jólalögum frá Póllandi, Tékklandi og Ungverjalandi var á köflum allt að því dapurleg og saknaði ég hins skæra hljóms sem venjulega ein- kennir íslenska barnakóra. Kannski var ofuráhersla lögð á tæknilega ná- kvæmni í flutningi; vissulega var söngurinn hreinni en títt er um slíka kóra. Eða þá að hljómburðurinn í Háskólabíói skyggði á glansinn í söngnum. Kórarnir tóku líka undir í hinu þekkta lagi Litli trommuleikarinn, en þar var einleikari hinn níu ára gamli Ingólfur Gylfason og var hann pottþéttur í hlutverki sínu. Lokaatriðið var svipað og í fyrra; einhver undarlegur náungi birtist óvænt sem hélt að það ætti að vera bíósýning. Bjánagangurinn var skondinn og ólíkt uppákomunni fyrir ári síðan var manni hlíft við klám- bröndurum. En hverjum datt í hug að hafa kafla úr Eldfuglinum eftir Strav- insky á dagskránni? Hann var eins og skrattinn úr sauðarleggnum og gerði ekkert fyrir tónleikana nema að lengja þá óþarflega mikið. Eld- fuglinn er ballett eins og Svanavatn- ið; af hverju var ekki að minnsta kosti dansað við hann? Jónas Sen Dansað á Sinfóníu- tónleikum TÓNLIST Háskólabíó Tónlist eftir Anderson, Stamitz, Tchai- kovsky, Stravinsky, o.fl. Einleikari: Arn- gunnur Árnadóttir. Stjórnandi: Bern- harður Wilkinson. Kynnir: Halldór Gylfason. Fram komu dansarar úr List- dansskóla Íslands og barnakórar frá Flúðum og Selfossi. Laugardagur 17. desember. Sinfóníutónleikar Bernharður Wilkinson KARLAKÓR Reykjavíkur verður stöðugt betri; söngur hans um helgina í Hallgrímskirkju var tals- vert fágaðri en í fyrra. Í rauninni gat ég aðeins fundið að tveimur lögum; Heilig, heilig eftir Schubert var allt of hægt og flæðið í tónlistinni eftir því takmarkað, ef nokkuð. Og Lof- söngur Beethovens var svo remb- ingslegur að auðheyrt var að kórinn hafði meiri áhuga á að sýna hversu sterkt hann gæti sungið en hvað byggi í tónlistinni. Annað var hins vegar frábært; Ave María eftir Bruckner, Slá þú hjart- ans hörpustrengi eftir Bach, Það ald- in út er sprungið eftir Prätorius og margt fleira var fallega mótað og gætt alls konar blæbrigðum, og var unaður á að hlýða. Mismunandi raddir voru í prýðilegu jafnvægi og heildarhljómurinn var sérlega þéttur og fókuseraður, hvort sem söngurinn var sterkur eða veikur. Sérstaklega verður að nefna Mars konunganna, franskan jólasöng sem var ótrúlega skemmtilegur undir dynjandi trumbuslætti Gísla Páls Karlssonar. Einsöngvari var drengjasópraninn Ísak Ríkharðsson, sem var stórkost- legur í Panis Angelicus eftir Franck. Annar drengjasópran, Árni Þór Lár- usson, ásamt Þóru Sif Friðriksdóttur sópran kom við sögu í Pie Jesu eftir Andrew Lloyd Webber. Söngur þeirra beggja var að mörgu leyti ágætur; auðheyrt var að þau eru efnilegir tónlist- armenn. Þóra Sif hefur afar fallega, skæra rödd og þótt tauga- óstyrkur hafi komið í veg fyrir að hún nyti sín til fulls á tónleik- unum var greini- legt að hún á framtíðina fyrir sér sem söngkona. Drengjakór Reykjavíkur var áber- andi á dagskránni, kannski fullmikið miðað við getu, því fremur þreytandi var að hlusta á loðinn, ómarkvissan flutning á hverju laginu á fætur öðru. Á sama tíma var afburða karlakórinn nánast hafður útundan á tónleik- unum eftir hlé og fékk ekki að taka lagið fyrr en undir lokin. Það var ein- kennilegt. Nóg hefði verið að hafa drengjakórinn í einu eða tveimur at- riðum. Hljóðfæraleikarar voru m.a. Eirík- ur Örn Pálsson og Ásgeir Stein- grímsson sem spiluðu á trompet. Frammistaða þeirra var glæsileg og Forleikurinn að Te Deum eftir Charpentier, betur þekktur sem Evrópulagið, var stórfenglegur í ríkulegri endurómun kirkjunnar. Flautuleikur Guðrúnar Birg- isdóttur var sömuleiðis vandaður en dálítið feimnislegur á köflum. Og orgelleikur Lenku Mateovu var pott- þéttur, en stundum heldur bjartur fyrir minn smekk. Nauðsynlega dýpt skorti hér og þar í heildarhljóminn. Friðrik S. Kristinsson stjórnaði kórunum og gerði það af nákvæmni. Greinilegt er að hann hefur unnið frábært starf með karlakórnum. Drengirnir hins vegar þurfa mun meiri þjálfun ef þeir eiga að teljast frambærilegir á tónleikum sem þess- um. Fimir karlar, þreyt- andi drengir TÓNLIST Hallgrímskirkja Karlakór Reykjavíkur og Drengjakór Reykjavíkur fluttu ýmis lög. Hljóðfæra- leikarar: Lenka Mateova, Guðrún Birg- isdóttir, Gísli Páll Karlsson, Ásgeir Stein- grímsson og Eiríkur Örn Pálsson. Einsöngvarar: Ísak Ríkharðsson, Árni Þór Lárusson og Þóra Sif Friðriksdóttir. Stjórnandi: Friðrik S. Kristinsson. Laug- ardagur 17. desember. Kórtónleikar Jónas Sen Friðrik S. Kristinsson ÁRIÐ 2002 eignuðust Íslendingar í fyrsta skipti verk úr einni stærstu kórgrein vest- rænnar tónlist- arsögu með Jóla- óratóríu Johns Speight. Öllu má að vísu nafn gefa núorðið, en þó að Barn sé oss fætt [„Unto Us“] sé aðeins hálfdrætt- ingur samnefnds risaverks eftir Bach að einskærri lengd (og m.a.s. fúgulaus), þá ætti 67 mínútna flutn- ingstími vel að duga til að ná við- unandi lágmarksumfangi. Hitt má til sanns vegar færa, sem bæklingsskrifari bendir raunar á, að jólaóratóríur eru furðufáar á heims- vísu og teljandi á fingrum, þrátt fyr- ir þessa mestu gleðitíð kirkjuársins. Og nánast engar með því fornafni frá nútíma. Svo hefur verið haldið fram að gleðileg tilefni henti síður streituhlöðnu tónmáli 20. aldar en kvöl og pín. Hvort það hafi örvað smíði passía og annarra verka tengdum páskum á kostnað jóla- verka skal hins vegar ósagt látið, þó ekki kæmi það manni svosem á óvart. Það er því merkilegt hvað tón- skáldinu tekst að laða mikla fegurð – og gleði – fram úr tiltölulega fram- sæknum stíl, jafnvel þótt jaðri á köflum við dúr og moll. En sem bet- ur fer eru þeir dagar taldir þá eng- inn þótti maður með mönnum í aka- demískri tónsköpun nema allt væri á hvínandi framúrstefnunótum. Hreinræktarárátta hefur oftar en ekki leitt til einnota verka er deyja fljótt drottni sínum. Enda yrði erfitt að heyra fyrir sér varanlegt fagn- aðarerindi Nýja testamentisins und- ir þvílíkum formerkjum. Enn lengra er síðan að menn gengu raulandi út af tónleikum eftir nýtt verk. Hér finnst varla (frekar en í flestri annarri nútímamúsík) aukatekið eftirminnilegt stef er grípur eyrað við fyrstu heyrn. Aftur á móti má upplifa Barn er oss fætt sem stóra mósaíkmynd í tónum, þar sem litríkt andrúm og fjölbreytt hljómferli skiptir meira máli en stakar laglínur. Þar tekst John Speight með ólíkindum vel upp og verkar jafnvel innblásinn á stundum. Alltjent hvetur verkið til end- urhlustunar umfram mörg önnur nútímaverk af sömu stærðargráðu. Það er ekki sízt að þakka frábær- um flutningi Hallgrímskirkjukór- anna tveggja, sem ásamt þjálum ein- söngvurum og fagmannlegum leik félaganna úr SÍ hleypa hvað eftir annað verkinu á flug. Auðheyrt er að stjórnanda er fullkunnugt um hvað ber sérstaklega að framhefja í þessu margslungna verki. Heildarútkoman er eftir því áhrifamikil, enda sam- stilling, jafnvægi og innlifun flytj- enda með því flottasta sem ég hef heyrt í sambærilegum verkum af svipaðri stærð. Eflaust á diskurinn eftir að verða talinn meðal hátinda á ferli Scholae cantorum, Mótettu- kórsins og Harðar Áskelssonar – og meðal höfuðdjásna í nýrri íslenzkri kórtónlist yfirleitt. Fyrsta ís- lenzka jóla- óratórían TÓNLIST Íslensk geislaplata John A. Speight: Jólaóratorían Barn er oss fætt. Elín Ósk Óskarsdóttir S, Guð- rún Jóhanna Ólafsdóttir MS, Garðar Thór Cortes B og Benedikt Ingólfsson B. ásamt Schola cantorum, Mótettukór Hallgrímskirkju og strengjum, 2 óbóum, ensku horni og slagverki úr Sinfón- íuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Hörður Áskelsson. Upptaka í Hallgrímskirkju 12/2002. Hljóðmeistari: Páll Sveinn Guðmundsson. Tónmeistari: Bjarni Rúnar Bjarnason. Bæklingsskrif: Valdemar Pálsson. Lengd: 67:12. Útgáfa og dreif- ing: Smekkleysa, í samvinnu við ÍTM, RÚV og SÍ. SMK 41. Jólaóratóría John A. Speight Ríkarður Ö. Pálsson AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.