Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT T elja má víst að sósíalistinn Evo Morales, leiðtogi indíána og ákafur and- stæðingur Bandaríkja- stjórnar, verði næsti for- seti Suður-Ameríkuríkisins Bólivíu. Hér ræðir um mikil tíðindi í sögu þessa fátæka lands og líklegt er að áhrifa sigurs Morales muni gæta víða í álfunni á komandi árum. Evo Morales er indíáni af ættbálki Aymara, sem er hinn stærsti í landinu ásamt Quechua-ættbálknum. Verður hann fyrstur indíána til að gegna embætti forseta í sögu Bólivíu, sem hlaut sjálfstæði frá Spáni árið 1825. Sumir ganga svo langt að segja að 500 ára útskúfun indíána sé nú lokið í landinu. Samkvæmt útgönguspám fékk Morales 51% atkvæða í forsetakosn- ingunum í Bólivíu á sunnudag. Helsti andstæðingur hans, íhaldsmaðurinn Jorge Quiroga, fyrrum forseti og fulltrúi flokkabandalagsins „Podem- os“ („Við getum [það]“), játaði ósigur sinn á sunnudagskvöld að staðartíma. Gert er ráð fyrir að úrslit liggi fyrir í dag, þriðjudag. Í stjórnarskrá Bólivíu er kveðið á um að fái enginn frambjóðandi í for- setakosningum hreinan meirihluta at- kvæða skuli þing landsins kjósa á milli tveggja þeirra, sem flest atkvæði hlutu. Ljóst er að þingheimur getur ekki gengið gegn úrslitunum á sunnu- dag fari svo að Morales fái ekki tilskil- inn meirihluta. Því er við að bæta að þing- og héraðsstjórakosningar fóru jafnframt fram á sunnudag og virtist sem flokkur Morales hefði tryggt sér nægilegan fjölda þingsæta til að tryggja kjör leiðtogans. Að auki hafði Quiroga lýst yfir því að hann hefði ekki áhuga á að hreppa forsetaemb- ættið með stuðningi þingsins. „Við höfum sigrað“ Morales og menn hans voru ekki í vafa um úrslitin og lýstu yfir sigri strax á sunnudagkvöld. „Við höfum sigrað,“ hrópaði Morales er þúsundir stuðningsmanna hans komu saman í borginni Cochabamba, sem er helsta vígi hans. Kváðu útgönguspár þá á um að hann hefði fengið 51% at- kvæðanna en Quiroga rúm 30%. Reynist þetta rétt vanmátu skoðana- kannanir fylgi Morales um allt að 15 prósentustig. Þetta er athyglisvert og freistandi að álykta sem svo að Mor- ales hafi átt umtalsvert fylgi meðal annarra þjóðfélagshópa en þeirra, sem mynda kjarna stuðningsmanna hans. Reynist þetta rétt er það til marks um að fjölmargir íbúar Bólivíu hafa fengið sig fullsadda af pólitískri óvissu, úrræðaleysi og spillingu fyrr- um ráðamanna. „Hafið er nýtt skeið í sögu Bólivíu í átt til sanngirni, til friðar og til þeirra breytinga, sem íbúar Bólivíu vænta,“ sagði Morales m.a. í ávarpi sínu. „Evo forseti!“, hrópuðu viðstaddir í kór. Evo Morales er 46 ára gamall og á nú sæti á þingi Bólivíu. Hann hefur farið fyrir andófshreyfingu, sem nú þegar hefur knúið fram afsögn tveggja forseta Bólivíu frá árinu 2002. Feril sinn hóf hann sem leiðtogi kóka- ræktenda og baráttumaður fyrir rétt- indum bláfátækra indíána, sem löngum hafa sætt niðurlægingu og út- skúfun í samfélaginu þó svo þeir séu meirihluti íbúa landsins. Morales sameinaði hina ýmsu indíána-ætt- bálka landsins innan samtaka, sem hann stofnaði og nefnast „Hreyfing í átt til sósíalismans“. Hreyfingin nefn- ist á spænsku „Movimiento Al Social- ismo“ skammstafað MAS. Skamm- stöfun þessi er hugvitsamleg því „más“ þýðir „meira“ á spænsku. MAS er nú orðin að stjórnmálaflokki og Leiðtogi indíána byltir stjórnmálum í Bólivíu Fréttaskýring | Víst má telja að Evo Morales verði næsti forseti Bólivíu. Ásgeir Sverrisson segir frá þessum sögulegu umskiptum, sem kunna að hafa áhrif á stjórnmálin víða í Rómönsku-Ameríku. Reuters Stuðningsmenn Evo Morales í borginni Cochabamba þyrpast að honum þegar útgönguspár voru birtar. FULLTRÚAR á nýju þingi Afgan- istan komu saman í fyrsta skipti í Kabúl í gær en meira en þrjátíu ár eru nú liðin síðan kjörið þing sat síðast í landinu. Dick Cheney, vara- forseti Bandaríkjanna, var við- staddur en Hamid Karzai, forseti Afganistans, sagði við þingsetn- inguna að samkundan markaði mikilvægt skref í þá átt að tryggja framtíð þessa stríðshrjáða lands. „Ég tjái umheiminum nú í ykkar nafni að Afganistan er að rísa úr öskustó innrásar og mun vara að ei- lífu,“ sagði Karzai. Hinn aldni Mohammed Zahir Shah, sem var konungur Afganist- ans þar til honum var steypt af stóli 1973, ávarpaði einnig þingheim. Sagðist hann þakka guði fyrir að hafa fengið að upplifa þessa stund, eftir áratuga löng átök í landinu. Tilkoma þingsins væri mikilvægur þáttur í endurreisn Afganistans. Margir eiga blóðuga fortíð Þingið nýja var kosið í september en 351 fulltrúi á þar sæti, þar af um það bil þriðjungur konur, en reglur kosninganna í september tryggðu hlut kvenna á þinginu. Margir þeirra sem sitja á þinginu eiga blóð- uga fortíð að baki og sumir hafa jafnvel enn yfir að ráða eins konar einkaherjum. Þá náðu nokkrir fyrr- verandi embættismenn talibana- stjórnarinnar kjöri í þingkosning- unum í september. Er ljóst að almenningur í Afganistan er ekki allur sannfærður um að þessum mönnum standi gott eitt til. Malali Joya, ung kona sem á sæti á þinginu, lýsti m.a. reiði sinni yfir því að þurfa að sitja í þingsalnum við hlið manna sem átt hefðu þátt í því að leggja Afganistan í rúst. „Þeir geta aldrei stuðlað að bjartri framtíð Afganistans,“ sagði hún. Mikil öryggisgæsla var við upp- haf þinghalds í gær en uppreisn- armönnum hefur vaxið fiskur um hrygg að undanförnu og hafa stað- ið fyrir fjölda árása á síðustu vik- um. AP Fyrsti þingfundurinn í Kabúl í þrjá áratugi ÞÝSKA fornleifafræðingnum Sus- anne Osthoff var sleppt á sunnu- dagskvöld eftir að hafa verið í gísl- ingu mannræningja í Írak í rúmar þrjár vikur. Hún er sögð við tiltölu- lega góða heilsu. Osthoff, sem er 43 ára, hefur bú- ið í Írak í 10 ár. Henni og bílstjóra hennar var rænt í Nineveh-héraði í norðvesturhluta Íraks 25. nóvem- ber. Bílstjóra hennar var sleppt úr haldi í gær. Bandarískur gísl myrtur Osthoff var í gær í þýska sendi- ráðinu í Bagdad. Að sögn tals- manns þýska utanríkisráðuneytis- ins hyggst hún dvelja þar í nokkra daga ásamt 12 ára dóttur sinni. Hópur súnníta, sem nefnist Ísl- amski herinn í Írak, kvaðst í gær hafa tekið bandarískan gísl sinn af lífi. Hópurinn birti á Netinu mynd- band þar sem sést hvar maður er skotinn margoft í höfuðið með vél- byssu. Sagði í yfirlýsingunni að hinn myrti hefði verið Bandaríkja- maður að nafni Ronald Schulz. Honum var rænt í nóvember en Schulz starfaði að öryggismálum í Írak. Hópurinn hafði þann 8. þessa mánaðar lýst yfir því að Schulz hefði verið tekinn af lífi. Var í til- kynningunni í gær vísað til þess að hópurinn hefði þá sagt að mynd- band af aftökunni yrði birt. Osthoff sleppt í Írak Washington. AFP, AP. | George W. Bush Bandaríkjaforseti varði enn á ný í gær þá ákvörðun sína að heimila njósnir um fjölda Bandaríkjamanna og útlendinga í Bandaríkjunum án þess að fyrir lægju lögformlegar heimildir dómstóla. Sagði hann ákvörðunina „nauðsynlegan hluta þess starfs míns að verja“ Banda- ríkjamenn gegn árásum. Bush sagði um eftirlit með símtöl- um fólks og tölvuskeytum að hann myndi halda áfram að leggja blessun sína yfir slíkt eftirlit „svo lengi sem þjóðin stendur frammi fyrir þeirri ógn sem af óvini steðjar sem vill drepa bandaríska borgara“. Fullyrti hann að fyllilega væri staðinn vörð- ur um borgaraleg réttindi fólks þrátt fyrir þetta eftirlit. Bush var afar harðorður í garð þeirra sem lekið hefðu upplýsingum um eftirlitið til The New York Tim- es. „Það var skammarleg framkoma af viðkomandi að greina frá þessum mikilvægu aðgerðum á stríðstím- um,“ sagði hann. Kvaðst hann gera ráð fyrir að fram færi ítarleg rann- sókn á því hver lak upplýsingun- um til blaðsins; en fram hefur komið að The New York Times lá á upplýsingun- um í eitt ár og lögðu embættis- menn hart að blaðinu að birta þær ekki á þeim forsendum að þær gætu spillt rannsókn mála og orðið til þess að hryðjuverkamenn fengju grun um að með þeim væri fylgst. „Sú staðreynd að við erum að ræða þess- ar aðgerðir hjálpar óvininum,“ sagði Bush í gær. Bush gagnrýndi þingheim fyrir að hafa ekki enn framlengt „föður- landslögin“, sem sett voru eftir árás- ina á Bandaríkin 2001, en þau falla úr gildi um áramót. „Í stríði gegn hryðjuverkum höfum við ekki efni á því að vera án þessarar löggjafar eina einustu stund,“ sagði hann. Bush vill rann- sókn á leka George W. Bush
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.