Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 49 MINNINGAR ✝ Hermann Guð-mundsson, fyrr- verandi stöðvar- stjóri Pósts og síma, fæddist í Botni í Súgandafirði 12. júní 1917. Hann lést mánudaginn 12. des- ember síðastliðinn, 88 ára að aldri. For- eldrar hans voru Guðmundur Ágúst Halldórsson bóndi í Botni og kona hans Sveinbjörg Her- mannsdóttir hús- freyja. Ólst hann þar upp til tíu ára aldurs og á Suðureyri til fullorðins- ára. Hermann átti tvö systkini, auk þess einn bróður samfeðra og eina uppeldissystur. Þau eru öll látin. Hermann stundaði nám í Hér- aðsskólanum á Núpi í Dýrafirði 1934-1936 og við Samvinnuskólann í Reykjavík 1939- 1940. Hinn 2. febrúar 1946 kvæntist Hermann Þórdísi Ólafsdóttur, f. 2.5. 1922, d. 2.7. 1982, húsmóður. Foreldrar hennar voru Ólafur Þ. Jónsson, vélstjóri og formaður, og Jóna M. Guðnadóttir húsfreyja. Þau bjuggu lengst af í Súg- andafirði. Börn Hermanns og Þór- dísar eru: 1) Sólrún, f. 7.10. 1945, búsett í Reykjavík, á eina dóttir og tvö barnabörn. 2) Sveinbjörg, f. 25.12. 1946, d. 14.12. 2001, hjúkr- unarfræðingur, var búsett í Hafn- arfirði, gift Hlöðver Kjartanssyni hrl. og eru börn þeirra fjögur og þrjú barnabörn. 3) Herdís Jóna, f. 24.6. 1949, búsett í Þorláks- höfn, gift Gísla Vil- hjálmi Jónssyni skip- stjóra og eru börn þeirra þrjú og eitt barnabarn. 4) Guð- mundur Óskar, f. 25.5. 1950, búsettur á Pat- reksfirði, kvæntur Bryndísi Einarsdóttur og eru börn þeirra þrjú og fjögur barna- börn. 5) Halldór Karl, f. 6.12. 1958, búsettur á Bíldudal og á hann einn son. Hermann var starfsmaður hjá Kaupfélagi Súgfirðinga á Suður- eyri 1941 til 1946, stöðvarstjóri Pósts og síma á Suðureyri 1946– 1973 og stöðvarstjóri sömu stofn- unar á Akranesi 1973–1988 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Hermann var oddviti í hrepps- nefnd Suðureyrarhrepps í átta ár en í nefndinni sat hann í tvo ára- tugi. Hann var formaður Sjúkra- samlags Suðureyrar í þrjátíu ár og formaður deildar stöðvarstjóra í Félagi símamanna um skeið. Her- mann hefur starfað í Oddfellow- reglunni, var stofnandi Lions- klúbbsins Súganda á Suðureyri og starfaði með Lionsklúbbi á Akra- nesi. Útför Hermanns verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Í dag er kvaddur hinstu kveðju Hermann Guðmundsson. Hann fæddist í Botni í Súgandafirði og lést í Reykjavík meira en áttatíu og átta árum síðar. Á Suðureyri stóð Hermann lengi í fylkingarbrjósti og vann þar að mörgum mikilvægum framfaramál- um. Hann var þátttakandi í útgerð, rak verslun og hafði margt fleira á sinni könnu. Hann tók virkan þátt í félagsmálum. Margir minnast hans með mikilli hrifningu þegar hann lék í leiksýningum leikfélagsins. Allt þetta rækti Hermann af alúð meðfram starfi sínu sem stöðvar- stjóri Pósts & síma. Fyrstu kynni mín af Hermanni voru þegar ég sem drengur var í sveit á Norðureyri og heyrði í hon- um í talstöðinni. Þá er ég stundaði ungur sumarvinnu á Suðureyri. Fyrir alvöru hófust kynni okkar þó fyrir þrjátíu og þremur árum, þeg- ar við Svenný mín festum ráð okkar á heimili hans og Dísu, kærrar tengdamóður minnar, sem ég minn- ist með virðingu. Engan skugga hefur borið á trausta vináttu okkar síðan. Hermann var hraustmenni bæði á sál og líkama. Dugnaðarmaður í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Yfir öllu hans fasi var reisn og virð- ing. Hann var skapfestumaður og lét ekki hlut sinn fyrir neinum. Hann var rammur að afli. Á Suður- eyri mun enginn hafa lagt hann í sjómann. Hann var gamansamur og skemmtilegur maður. Hann var ræðumaður góður og hafði yndi af kveðskap. Góð vísa eða saga veitti honum ómælda ánægju. Hann stundaði laxveiði áður fyrr með góðum vinum. Samneytið við þá var honum ekki minna yndi. Hann var traustur vinur vina sinna, en lá ekki á því sem honum kunni að mislíka. Hann var hreinskiptinn svo ekki líkaði öllum. Hann kunni sannar- lega að gleðjast í góðra vina hópi. Hann naut lífsins meðan heilsan leyfði sem var nær allt hans líf. Að leiðarlokum minnist ég tengdaföður míns og vinar með söknuði. Þakka ber að hann átti langt og gott líf, þrátt fyrir sorgir eins og aðrir menn. Er hann nú kært kvaddur. Bless- uð veri minning Hermanns Guð- mundssonar. Hlöðver Kjartansson. Þegar maður sest niður og setur á blað hugleiðingu í minningu vinar renna minningarnar í gegn um hug- ann. Ég kynntist verðandi tengda- foreldrum mínum, þeim Hermanni og Dísu, veturinn 1975 á árshátíð Súgfirðingafélagsins sem haldin var á Hótel Sögu. Ég var að sjálf- sögðu búinn að kvíða fyrir en það var auðvitað óþarfi eins og hjá flest- um á slíkum stundum. Ég hafði kynnst Heddu, dóttur þeirra, fáum mánuðum áður og var nú komið að því að sýna piltinn hennar foreldr- um, ættingjum og vinum. Mér er minnisstætt hvað þau Hermann og Dísa voru glæsileg hjón og tóku mér afar vel strax í upphafi. Síðan þróaðist með okkur vinátta sem engan skugga bar á meðan þau lifðu, en Dísa lést úr krabbameini 1982 rétt sextug. Hermann saknaði hennar mjög og minntist hennar oft og síðast hafði hann orð á því við mig fyrr á þessu ári hvað hann vildi hafa notið samvista við hana lengur en varð. Hermann var stöðvarstjóri Pósts og síma nánast allan sinn starfsald- ur, fyrst á Suðureyri 1946–1973 og á Akranesi 1973–1988. Á Suðureyri gegndi hann ýmsum trúnaðarstörf- um fyrir byggðarlagið, var í hreppsnefnd í rúma tvo áratugi, þar af oddviti í átta ár. Hermann var talnaglöggur með besta móti, heið- arlegur og vandvirkur með allt sem hann tók sér fyrir hendur. Þau hjón ráku saman bókabúð í fjölda ára á Suðureyri og síðan verslunina Val- fell á Akranesi þar til Dísa missti heilsuna. Hann var virkur í fé- lagsmálum alla tíð, var m.a. öflugur í leikfélaginu á Suðureyri og fór gjarnan með aðalhlutverk eins og t.d. Skugga-Svein í Útilegumönnum Matthíasar Jochumssonar og mörg- um fleiri . Hann var vinsæll þar sem fólk kom saman og flutti þá gjarnan ræður við ýmis tækifæri, svo sem þegar vinir fögnuðu áfanga, stóraf- mælum, við brúðkaup eða á öðrum sambærilegum stundum. Tækifær- isræðurnar hans Hermanns voru jafnan blandaðar léttum húmor og sagði þá gjarnan gamansögur sem fáum tókst betur. Hermann var mjög lengi félagi í Oddfellowreglunni, allt til dauða- dags, og lengst af virkur. Einnig starfaði hann um árabil í Lions, fyrst á Suðureyri og síðan á Akra- nesi. Hermann átti góð ár á Akra- nesi og eignaðist þar fjölda góðra vina sem hann bar mikla virðingu fyrir. Eftir að hafa búið nokkur ár á Höfðagrund 10 á Akranesi flutti Hermann til Reykjavíkur og settist að í fjölbýli ætlað eldriborgurum í Hraunbæ 103. Það sem ýtti undir að hann flytti sig um set var að fólk- ið hans bjó flest á svæðinu og ekki síst að hans góði vinur, Trausti Friðbertsson, bjó í þessu sama húsi. Ekki er hægt að minnast Her- manns öðruvísi en geta þeirra fé- laga hans og vina, þeirra Trausta og Jóhannesar Jónssonar, en þeir þrír voru bundnir órjúfanlegum vináttu- böndum. Þær voru margar ferðirn- ar sem þeir félagar fóru bæði inn- anlands og utan, ásamt eiginkonum sínum. Þeir voru líka góðir vinir Hermann og Óskar Kristjánsson, en Óskar var nokkru yngri en hinir. Nú eru þeir allir búnir að kveðja, Trausti árið 2002 og hinir þrír á þessu ári. Hermann var góður bridgespilari og spilaði lengi vel tvo daga í viku en síðasta ár einu sinni í viku þegar heilsa hans og spilafélaganna leyfði. Hann hafði mikla ánægju af hvers- konar spilamennsku og þegar eng- an var að fá til að spila við þá lagði hann kapal sér til ánægju. Hermann bar mikla umhyggju fyrir börnum sínum, bar velferð þeirra og fjölskyldna þeirra mjög fyrir brjósti. Ekki leið sá dagur þegar ég var á sjó að hann leitaði ekki frétta af veðri og veiðum. Þeg- ar aldurinn færðist yfir, sjón og heyrn fóru að gefa sig, seldi hann bílinn sinn og treysti á okkur ætt- ingjana að hjálpa sér með smá við- vik tengt daglegum rekstri heimilis. Það voru margar ferðir sem við fór- um saman í Bónus, bankann og stundum var stefnan tekin á Múla- kaffi og borðaður hádegismatur. Ekki spillti fyrir ef á matseðlinum var saltkjöt og baunasúpa en slíkar kræsingar voru í uppáhaldi hjá báð- um. Við höfðum skipulagt eina slíka ferð þegar ég kæmi í jólafrí. Sú ferð verður ekki farin, í bili að minnsta kosti. Sveinbjörg dóttir Hermanns lést frá fjölskyldu sinni, eiginmanni og fjórum börnum fyrir fjórum árum og syrgði hann dóttur sína mjög. Hún mamma mín sagði gjarnan þegar hún frétti lát eldra fólks: „Mikið var það dýrmætt.“ Þetta skildi ég ekki, að það væri gott að einhver dæi. Þetta var nokkuð sem ég fékk betri skilning á þegar ég kynntist lífinu betur. Ég þakka Hermanni samfylgdina og veit að hann hefur auðgað líf mitt. Aðstandendum öllum sendi ég samúðarkveðjur. Gísli V. Jónsson. Látinn er Hermann Guðmunds- son, fyrrv. póstmeistari á Súganda- firði og Akranesi, en hann hafði átt við talsverða vanheilsu að stríða undanfarin misseri. Okkar fyrstu kynni af Hermanni og fjölskyldu urðu þegar hann gerðist póstmeistari á Akranesi í byrjun árs 1974, en áður hafði hann gegnt sams konar starfi á Súganda- firði. Kona hans var Þórdís Ólafsdóttir og áttu þau fimm börn, þrjár stúlk- ur og tvo drengi. Þórdís lést langt um aldur fram árið 1982, aðeins sextug að aldri, en þá var Hermann 65 ára. Heimili þeirra Þórdísar og Hermanns var ætíð opið okkur, gestrisni var þar í hávegum höfð eins og best verður á kosið og fyrir það viljum við færa kærar þakkir. Hermann gekk í Oddfellowregl- una 1955 á Ísafirði, en við komuna til Akraness gekk hann til liðs við stúkuna Egil hér á Akranesi. Hann varð strax mjög ötull félagi og gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir regluna. Hermann var mikill gleðigjafi, átti mjög auðvelt með að segja frá og ætíð var mikil gleði og léttleiki í kringum hann. Við ásamt nokkrum bræðrum úr stúkunni stofnuðum ferðaklúbb sem við nefndum Apa- vatnshópinn, fyrstu ferðirnar voru farnar að Apavatni þar sem síma- menn áttu stóran og góðan bústað en Hermann hafði forystu um að fá hann leigðan. Frá 1984 hefur þessi hópur ferðast saman, fyrst að Apa- vatni og síðan vítt og breitt um landið, nær óslitið í öll þessi ár. Hermann var óborganlegur og reif- ur og hafði ávallt eitthvað til mál- anna að leggja. Viljum við því fyrir hönd Apavatnshópsins og Oddfell- owreglunnar á Akranesi þakka Hermanni frábær störf og kynni. Að lokum vottum við aðstandend- um okkar dýpstu samúð. Minningin um góðan vin gleymist ekki. Hörður Pálsson, Sigurður Ólafsson. HERMANN GUÐMUNDSSON Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, umhyggju og einstakt vinarþel við andlát og útför okkar ástkæra KARLS MARKÚSAR BENDERS verkfræðings, Freyjugötu 34, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda, Hrafnhildur Ástþórsdóttir, Elín Sigríður Markúsdóttir. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför GUÐRÚNAR METHÚSALEMSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hlíðar fyrir umönnun Guðrúnar á liðnum árum. Ragna Magnúsdóttir, Magnús Aðalbjörnsson, Finnur Magnússon, Guðrún Stefánsdóttir, Jóhanna Magnúsdóttir, Arngrímur Brynjólfsson, barnabörn og langömmubörn. Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, MAGNÚSAR VALS ÞORSTEINSSONAR, Gaukshólum 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks líknardeildar Landspítala og Karitasar fyrir hlýhug og góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Súsanna Pálsdóttir og synir. Við sendum hugheilar þakkir öllum þeim sem sýndu okkur samúð og stuðning við fráfall og út- för elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, SÓLEYJAR ÞÓRARINSDÓTTUR frá Suðureyri við Tálknafjörð. Einnig sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynn- ingar Krabbameinsfélagsins. Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gleðileg jól og farsæld á komandi ári. Alúðarþakkir fyrir allt. Ólafur Magnússon og fjölskylda. Hjartans þakkir fyrir samúð, hlýhug og vinsemd okkur sýnda vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, BJÖRNS VIGNIS SÆMUNDSSONAR, Ránarbraut 9, Vík í Mýrdal. Kolbrún Matthíasdóttir, Matthías Jón Björnsson, Hafdís Þorvaldsdóttir, Ingi Már Björnsson, Hjördís Rut Jónsdóttir, Kristín G. Ólafsdóttir og barnabörn. Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.350 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.