Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 19
ÚR VERINU
Nýherji hf. · Borgartúni 37 · 105 Reykjavík
Sími 569 7700 · www.nyherji.is
Gefðu ómótstæðilegar myndavélar og hagkvæma prentara í jólagjöf
Ógleymanlegar
stundir með Canon
Canon jólapakki
Einstök Ixus myndavél og þráðlaus prentari á
ótrúlegu jólaverði
Ixus 55
• 5 milljón pixla myndflaga.
• 3x aðdráttur á linsu.
• DIGIC II örgjörvi og iSAPS tækni
sem eykur hraða og gæði.
• 15 tökustillingar.
• USB 2.0.
iP5200R
• Upplausn: Allt að 9600x1200 dpi.
• Svarthvít prentun: Allt að 30 bls. á mín.
• Litaprentun: Allt að 24 bls. á mín.
• Ljósmyndaprentun: 10x15 myndir á 36 sek.
• Styður Wi-Fi og Ethernet fyrir þráðlausa
og netprentun.
• Single Ink blekhylkjakerfi sem stuðlar að
lægri rekstrarkostnaði.
Tilboðsverð 59.800 kr.
Verð 79.800 kr.
Ixus i zoom stafræn myndavél
Glæsilega hönnuð með fimm milljón pixlum
• 2.4x aðdráttur á linsu.
• DIGIC II örgjörvi og iSAPS tækni sem
eykur hraða og gæði.
• 16 tökustillingar.
• VGA kvikmyndir í allt að 60 mín.
• USB 2.0.
• Fæst í fjórum litum.
Tilboðsverð 29.900 kr.
Verð 44.900 kr.
15.000 kr.
Þú
sparar
Canon A410 stafræn myndavél
Auðveld í notkun á frábæru verði
• 3.2 milljón pixla myndflaga.
• 3.2x aðdráttur á linsu.
• Þyngd aðeins 150 gr. án rafhlöðu.
• DIGIC II örgjörvi og iSAPS tækni sem
eykur hraða og gæði.
• 14 tökustillingar.
• VGA kvikmyndir í allt að þrjár mín.
• USB 1.0.
Tilboðsverð 14.900 kr.
Verð 19.900 kr.
5.000 kr.
Þú
sparar
Canon A520 stafræn myndavél
Einföld í notkun fyrir fjölskylduna
• 4.0 milljón pixla myndflaga.
• 4x aðdráttur á linsu.
• DIGIC II örgjörvi og iSAPS tækni
sem eykur hraða og gæði.
• 20 tökustillingar.
• VGA kvikmyndir í allt að þrjár mín.
Tilboðsverð 21.900 kr.
Verð 29.900 kr.
8.000 kr.
Þú
sparar
Canon MP500 fjölnotatæki
Þín eigin framköllunarstofa
• Upplausn prentunar: 9600x2400 dpi
í ljósmyndagæðum.
• Svarthvít prentun: 29 bls. á mín. í svörtu.
• Litaprentun: 19 bls. á mín. með texta og grafík.
• Ljósmyndaprentun: 10x15 myndir á 51 sek.
• ChromaLife100 kerfi sem eykur endingu
ljósmynda.
• DVD og CD prentun. Sjálfvirk prentun
á báðar hliðar (duplex).
Tilboðsverð 23.900 kr.
Verð 29.900 kr.
6.000
kr.Þú
sparar
20.000 kr.
Þú
sparar
SIGLINGASTOFNUN Íslands
hefur verið afhent vottorð frá
Vottun hf. sem staðfestingu þess
að stofnunin starfrækir gæðakerfi
sem samræmist kröfum ÍST EN
ISO 9001:2000-staðalsins um út-
gáfu áritunar og endurnýjunar al-
þjóðlegra atvinnuskírteina fyrir
sjómenn samkvæmt alþjóðasam-
þykktinni um menntun, þjálfun,
skírteini og vaktstöður sjómanna
(STCW-samþykktinni).
Skírteinin veita réttindi til
og reglugerð um sama efni nr. 416/
2003. Þar er miðað við að nám og
kennsla í sjómannaskólum og út-
gáfa alþjóðlegra skírteina og árit-
ana hjá Siglingastofnun Íslands
skuli vera samkvæmt viðurkenndu
gæðastjórnunarkerfi.
Í byrjun þessa árs fékk Fjöl-
tækniskóli Íslands og Slysavarna-
skóli sjómanna vottorð frá Vottun
hf. sem staðfestingu þess að skól-
arnir uppfylltu kröfur ISO-9001
um gæðastjórnunarkerfi.
starfa á farþega- og flutningaskip-
um sem eru í alþjóðasiglingum og
eru skráð í ríkjum sem hafa að
mati Alþjóðasiglingamálastofnun-
arinnar uppfyllt ákvæði alþjóða-
samþykktarinnar um menntun og
þjálfun, skírteini og vaktstöður
sjómanna (STCW) frá 1978, með
síðari breytingum.
Þessi samþykkt hefur verið tek-
in upp í íslenska löggjöf með lög-
um um áhafnir íslenskra farþega-
skipa og flutningaskipa nr. 76/2001
Siglingastofnun
vottar sjómennsku
● EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur lagt
fram áætlun sem felst í því að sníða
af agnúa og bæta löggjöfina um sjáv-
arútveginn á árunum 2006 til 2008.
Áætlunin er hluti stærri heildar um
að bæta fiskveiðistjórnunina. Til-
lögur í smáatriðum hafa verið lagðar
fram, byggðar á ákvörðun ráðherra-
ráðsins um einföldun hinnar sameig-
inlegu fiskveiðistefnu og aukið sam-
ráð við aðildarþjóðirnar og sjávar-
útveginn sjálfan.
Áætlunin felur í sér fjölda for-
gangsatriða á næstu þremur árum,
sem miða að tveimur meginþáttum,
það er fiskvernd og eftirliti. Þetta er
fyrsta áætlunin af þessu tagi og mun
hún ryðja brautina í einföldun laga og
reglugerða, ekki aðeins innan sjáv-
arútvegsins, heldur einnig í lagasetn-
ingu Sambandsins í heild.
Joe Borg, framkvæmdastjóri sjáv-
arútvegsmála ESB, segir að þessi
áætlun njóti góðs af framlagi allra
þeirra sem vilji skýrari og einfaldari
fiskveiðistjórnun. Séu reglurnar ein-
faldari, sé auðveldara að framfylgja
þeim og þannig verði vinna allra við-
komandi auðvelduð. Þessi áætlun
sé skýrt dæmi um einbeittan vilja
ESB til að bæta lög og reglugerðir.
Markmiðið með einföldun hinnar
sameiginlegu fiskveiðistefnu er að
tryggja að lög og reglugerðir verði
skýrar og einfaldar, að tryggja það að
bæði sjómenn og embættismenn í
hverju landi hafi greiðan aðgang að
þeim upplýsingum sem þeir þurfi á
skýru og auðskildu formi, til að draga
úr því álagi sem hvílir á þessum að-
ilum nú vegna flókinnar lagasmíði.
Auk þessarar áætlunar eru fjöl-
mörg atriði í endurskoðun svo sem
ákvörðun leyfilegs heildarafla og
kvóta, veiðigeta, tæknilegar aðgerðir
til verndar smáfiski, söfnun og með-
ferð upplýsinga, tölvustýrt eftirlit, til-
kynningaskylda og leyfi til veiða utan
lögsögu ESB. Með því að leggja
áherzlu á verndun og eftirlit telur
Sambandið að bæta megi vinnuskil-
yrði bæði sjómanna og embættis-
manna og að fiskveiðistjórnunin öll
verða gagnsæ og skilvirkari en áður.
ESB sníður agnúa af
fiskveiðistefnunni
ÞEIR félagar Einar
Knútsson og Margeir
Lárusson vinna hörð-
um höndum í Klumbu
í Ólafsvík við að raða
þorskhryggjum á
bretti sem fer svo í
þurrkun. Er varan
síðan send á markað
á Nígeríu. Alls er
framleiðslugeta
Klumbu um 10 þús-
und tonn af hausum
og hryggjum á ári og
er eftirspurn meiri en
framboð, að sögn
Leifs Halldórssonar,
eins af eigendum
Klumbu. Morgunblaðið/Alfons
Hryggirnir þurrkaðir
● FACTUM fyrirtækjamiðlun og ráð-
gjöf hefur tekið yfir rekstur Kvóta-
netsins af Útvegshúsinu ehf. Kvóta-
net er rótgróið fyrirtæki í miðlun
aflaheimilda og aflahlutdeilda og
hefur verið starfandi í Reykjavík und-
anfarin ár. Kvótanet mun nú taka til
starfa á Akureyri og mun hér eftir
sem hingað til veita heildarþjónustu í
kvótamálum fyrir útgerðir.
Af þjónustu Kvótanetsins má m.a.
nefna kaup og sölu aflamarks og
aflahlutdeilda, kaup og sölu báta og
skipa ásamt því að bjóða útgerðum
upp á heildarumsjón með öllum
kvótamálum.
Kvótanet er eina fyrirtækið á Norð-
urlandi sem sérhæfir sig í miðlun
fiskveiðikvóta en markaðssvæði fyr-
irtækisins er landið allt.
Þá hefur Factum ehf. gert samning
við norska skipamiðlunarfyrirtækið
Stormbrokers AS um aðkomu að
kaupum, sölu skipa á milli landa,
leigu á skipum, útvegun olíu á alþjóð-
legum hafsvæðum og fleiri þáttum er
snúa að alþjóðlegum skipamálum.
Factum yfirtekur
Kvótanetið