Morgunblaðið - 20.12.2005, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
KÁPUR MEÐ SKINNKRÖGUM, JAKKAR, PILS,
JAKKAPEYSUR, BOLIR OG SKINNKRAGAR.
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505
Opið virka daga 10-18
laugardag kl. 10-22
sunnudag kl. 13-17Christa
JÓLAGJÖFIN HENNAR
Sjómannafélag Eyjafjarðar
Fundarboð
Aðalfundur Sjómannafélags Eyjafjarðar verður
haldinn á Skipagötu 14, 4. hæð, fimmtudaginn
29. desember 2005 og hefst kl. 11.00 f.h.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Akureyri, 15. desember 2005
Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar
SUÐURNES
Grindavík | Dúxinn við brautskrán-
ingu stúdenta frá Fjölbrautaskóla
Suðurnesja eyðir jafn miklum tíma í
knattspyrnuiðkun og námið, að eigin
sögn. Hann heitir Páll Guðmundsson
og er Grindvíkingur, æfir og leikur
með meistaraflokki Ungmenna-
félags Grindavíkur. Hann hyggur á
verkfræðinám í háskóla næsta
haust.
Skólaslit haustannar í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja í Keflavík fóru
fram síðastliðinn laugardag. Þá
brautskráðust 52 nemendur, þar af
38 stúdentar og 13 iðnnemar.
Páll Guðmundsson var með hæstu
einkunn á stúdentsprófi og hlaut fyr-
ir það viðurkenningu sem Sparisjóð-
urinn í Keflavík veitir. Hann hlaut
einnig fjölmörg önnur verðlaun og
viðurkenningar fyrir árangur í
stærðfræði, raungreinum, íslensku,
samfélagsgreinum og tungumálum.
„Ég er mjög ánægður með árang-
urinn, ég get ekki annað,“ sagði Páll
Guðmundsson í samtali við Morg-
unblaðið. Svarið kom ekki á óvart
þegar hann var spurður um áhuga-
sviðið: Stærðfræði. Sagðist hafa
gengið best í henni alveg frá því í
grunnskóla.
„Ég ætla að fara í háskóla í haust,
sennilega í verkfræði. Það er ekki
endanlega ákveðið, slíkt getur alltaf
breyst. Ég verð að finna eitthvað
sem ég hef áhuga á og áhuginn ligg-
ur þarna,“ sagði Páll. Hann tekur
sér gott jólafrí en ætlar svo að nota
tímann til haustsins til að kynnast
smíðavinnu og ná sér í pening í leið-
inni, eins og hann orðaði það. Hefur
hann ráðið sig hjá verktaka og byrj-
ar strax eftir áramót.
Páll æfir knattspyrnu með Ung-
mennafélagi Grindavíkur og var í
meistaraflokksliði félagsins síðast-
liðið sumar. Hann lék tvo leiki í
deildinni. „Það fer eiginlega meiri
tími í fótboltann en námið,“ sagði
Páll.
Verðlaunuð fyrir
góðan árangur
Inga Lilja Eiríksdóttir fékk einnig
verðlaun fyrir góðan árangur í
stærðfræði á stúdentsprófi. Sólrún
Ólafsdóttir fékk viðurkenningu fyrir
góðan árangur í þýsku og myndlist.
Þær Katla Margrét Hjartardóttir og
Linda Ström fengu við-
urkenningu fyrir góðan
árangur í dönsku. Þá fékk
Sigrún Guðný Halldórs-
dóttir viðurkenningu fyrir
árangur í fata- og textíl-
hönnun, Rajna Todorovic
fyrir spænsku og Tinna
Björk Haraldsdóttir fyrir
þýsku.
Linda Ström hlaut við-
urkenningu fyrir góðan
árangur í iðngreinum.
Við skólaslitaathöfnina
var Gísla Torfasonar og
Öldu Jensdóttur minnst
en þau létust á árinu.
Bæði störfuðu við skólann
í áratugi. Þá afhenti ekkja
Gísla, Sumarrós Sigurð-
ardóttir, Oddnýju Harð-
ardóttur skólameistara
stofnfé Minningarsjóðs
Gísla Torfasonar til
vörslu. Stefnt er að því að
veita fé úr sjóðnum tvisv-
ar á ári til nemenda skól-
ans sem eru illa staddir að
einhverju leyti. Sjóðurinn
verður fjármagnaður með sölu minn-
ingarkorta sem verða seld á skrif-
stofu skólans og á Bókasafni Reykja-
nesbæjar. Það voru tveir kennarar
skólans sem unnu kortið; Íris Jóns-
dóttir málaði myndina „Umhyggju“
sem prýðir framhlið þess og Bragi
Einarsson hannaði útlit kortsins.
Bræðurnir Halldór, Kristinn og
Sævar Þorkell Jenssynir afhentu
skólanum bókasafn systur sinnar,
Öldu Jensdóttur íslenskukennara.
Alda lét eftir sig um 1500 bækur sem
verða nýttar á bókasafni skólans og í
íslenskudeild.
Dúxinn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja æfir og leikur með
meistaraflokki Ungmennafélags Grindavíkur
Ljósmynd/Axel Gísli Sigurbjörnsson
„Það fer eiginlega meiri
tími í fótbolta en námið“
Dúxinn Páll Guðmundsson hlaðinn verðlaun-
um við útskrift stúdenta frá FSS á haustönn.
Sandgerði | Meirihluti bæjar-
stjórnar Sandgerðisbæjar leggur
til að tekið verði upp samstarf við
Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf.
um stækkun íþróttamiðstöðv-
arinnar í Sandgerði. Hugmyndin
er að byggja þreksal og fjölnota-
sal við enda íþróttamiðstöðv-
arinnar, í samvinnu við sjálf-
stæðan rekstraraðila.
Fjárhagsáætlun Sandgerðis-
bæjar er til umfjöllunar í bæj-
arstjórn. Meðal tillagna meirihlut-
ans má nefna að gert er ráð fyrir
því að félagsmiðstöðin Skýjaborg
flytji sína daglegu starfsemi að
Skólastræti 1. Jafnframt að eldri
ungmenni, sem ekki njóta þjón-
ustu Skýjaborgar, fái aðstöðu í
Skýlinu að Tjarnargötu 4. Hug-
myndir eru uppi um að bjóða ýms-
um félagasamtökum einnig að-
stöðu þar.
Þá verður hafinn undirbúningur
fyrir byggingu 25 metra sundlaug-
ar.
Vilja byggja við íþróttahúsið
AKUREYRI
ALLS voru 65 nemendur braut-
skráðir frá Verkmenntaskólanum
á Akureyri á laugardag, af hinum
ýmsu námssviðum og brautum,
þar af 39 stúdentar, 12 af fé-
lagsfræðibraut, 5 af listnámsbraut,
1 af málabraut, 9 af nátt-
úrufræðibraut og loks 11 að loknu
starfsnámi af öllu tagi. Jafnframt
voru brautskráðir 10 sjúkraliðar, 9
rafvirkjar, 2 matartæknar, 1 húsa-
smiður og 4 iðnmeistarar.
Sandra Grettisdóttir hlaut við-
urkenningar fyrir framúrskarandi
árangur í stærðfræði, ensku og ís-
lensku. Áslaug Helga Guðnadóttir,
sjúkraliði hlaut viðurkenninguna
„hlýjustu hendur á deild“ og Sig-
fús Jóhannesson fékk viðurkenn-
ingu fyrir frábæran árangur í fag-
greinum rafiðnabrauta. Agnes
Harpa Jósavinsdóttir hlaut far-
andbikar frá Kaupmannafélagi
Akureyrar fyrir bestan árangur á
verslunarprófi. Þá fékk Bergþóra
Jónsdóttir stúdent af listnáms-
braut eftir þriggja og hálfs árs
nám sérstaka viðurkenningu frá
skólanum fyrir góðan og jafnan
námsárangur og fyrir það að vera
góður fulltrúi nemenda, góður
skólaþegn.
Hjalti Jón Sveinsson skóla-
meistari gat þess við athöfnina að
fjarnámsnemar væru konur víðs
vegar um landið, þær hefðu byrjað
nám sitt eftir að þær náðu fullorð-
insárum og jafnvel komið börn-
unum úr hreiðrinu. Góður fulltrúi
þess hóps, fólks sem sniði sér
stakk eftir vexti og færi á þeim
hraða sem best hentaði og að-
stæður leyfðu hverju sinni, væri
Svanborg Jónsdóttir frá Bjólu á
Rangárvöllum. Hún fagnaði sex-
tugsafmæli sínu í október síðast-
liðnum og brautskráðir sem stúd-
ent eftir 11 annir, með 141
einingu.
Einnig nefndi hann Ástu Hall-
dórsdóttur frá Akureyri, en hún
lauk framhaldsskólanámi eftir að
hafa stundað það með hléum frá
árinu 1985, fyrst í dagskóla, þá í
öldunardeild og loks í fjarnámi.
„Svo mikið tel ég víst, að hafi fjar-
námið ekki verið til staðar hefðu
þessar góðu konur ekki átt þess
kost að ljúka framhaldsskóla-
námi,“ sagði Hjalti Jón.
Morgunblaðið/Páll A. Pálsson
Brautskráning Nemendur Verkmenntaskólans á Akureyri sem útskrifuðust um helgina, ásamt skólameistara sín-
um, Hjalta Jóni Sveinssyni.
65 brautskrást frá VMA
SNJÓVÉLARNAR í Böggvisstað-
arfjalli við Dalvík voru gangsettar
sl. föstudag og keyrðar í um 30 klst.,
eða fram á laugardag. Að sögn Ósk-
ars Óskarssonar, formanns Skíða-
félags Dalvíkur, virkaði búnaðurinn
mjög vel og var framleiðslan á þess-
um 30 klst. rúmlega 2.000 rúmmetr-
ar af snjó en aðeins var keyrt á um
40% afköstum. Skíðasvæðið var því
opnað á ný á sunnudag og aðstæður
hinar bestu en snjó var farið að
vanta í barnabrekkuna og á svæðið í
kringum neðri lyftuna.
Sett hefur verið upp miða-
sölukerfi á skíðasvæðið og kemur
það til með að hafa töluverðar breyt-
ingar í för með sér. Hér eftir þurfa
þeir sem koma á skíði að nota kortið
sem þeir kaupa í kortalesara sem
opnar hlið sem veitir þeim síðan að-
gang að lyftunum í hvert sinn sem
farið er í þær. Þetta hefur í för með
sér að hér eftir þurfa þeir sem eru
með árskort að hafa þau meðferðis á
skíðasvæðið til þess að komast í lyft-
urnar, segir m.a. á vef Skíðafélags
Dalvíkur.
Snjóvélarnar
gangsettar
Skíðasvæði Snjóframleiðsla hófst í
Böggvisstaðarfjalli á föstudag og
var skíðasvæðið opnað á ný á
sunnudag.
SLÖKKVILIÐ Akureyrar var kall-
að út um kl. 6 í gærmorgun, en til-
kynnt var um reyk í húsi við Ham-
arstíg.
Húsráðandi hafði vaknað við að
reykur var kominn út um allt hús.
Slökkviliðið sendi þegar fjóra menn
á staðinn á dælubíl og sjúkrabíl, enn
fremur sem kallaðar voru út tvær
vaktir. Í ljós kom að kviknað hafði í
kertaskreytingu á borði sem
gleymst hafði að slökkva á kvöldið
áður. Litlu mátti muna að eldurinn
bærist út því gluggatjöld voru orðin
sviðin og byrjuð að bráðna en eld-
urinn hafði aðeins náð í það sem var
á borðinu. Þrátt fyrir lítið tjón af
völdum elds er ljóst að talsvert tjón
er af völdum reyks og sóts sem barst
víða um íbúðina. Íbúinn var fluttur á
slysadeild til skoðunar og meðhöndl-
unar vegna hugsanlegrar reykeitr-
unar.
Kviknaði
í út frá
kerta-
skreytingu
Fíkniefnavandinn | Á fundi áfeng-
is- og vímuvarnanefndar fóru fram
umræður um stöðuna í fíkniefna-
málum meðal barna og ungmenna á
Akureyri. Nefndin þakkar KEA og
Sparisjóði Norðlendinga fyrir stuðn-
ing við lögregluna með kaupum á
fíkniefnaleitarhundi. Jafnframt
fagnar nefndin árangri lögreglunnar
undanfarnar vikur við fíkniefnaleit á
Akureyri og hvetur alla íbúa til sam-
félagslegrar ábyrgðar við að upp-
ræta fíkniefnavandann.