Morgunblaðið - 20.12.2005, Qupperneq 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára Sýnd kl. 5.20 B.i. 12Sýnd kl. 5.20
-M.M.J. Kvikmyndir.com
-H.J. Mbl.
-L.I.B. Topp5.is
Sýnd kl. 8 og 10.10 B.i. 16 ára
FRÁ LEIKSTJÓRA GROUND-
HOG DAY OG ANALYZE THIS
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Yndisleg jólamynd fyrir
alla fjölskylduna
kl. 5.40, 8 og 10.20
400 KR Í BÍÓ*
Alls ekki fyrir viðkvæma
Áætlunin er margbrotnari, útfærslan
er flóknari og leikurinn skelfilegri en
nokkru sinni fyrr
hversu langt myndir þú
ganga til að halda lífihversu langt myndir þúganga til að halda lífi
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
KOLSVARTUR HÚMOR!
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI!
...ÞAÐ GERÐIST
Á AÐFANGA-
DAGSKVÖLD
HÆTTULEGIR
ÞJÓFAR Á
HÁLUM ÍS!
BAD SANTA
JÓLAMYND Í ANDA
Ó.Ö.H / DV
Sími 564 0000Miða sala opn ar kl. 15.30
Jólamyndin 2005
Upplifðu ástina og kærleikann
Hún er að fara að hitta foreldra hans
…hitta bróður hans
…og hitta jafnoka sinn
Jólamyndin 2005
Upplifðu ástina og kærleikann
Hún er að fara að hitta foreldra hans
…hitta bróður hans
…og hitta jafnoka sinn
Alls ekki fyrir viðkvæma
Sara Jessica Parker
tilnefnd til Golden
Globe verðlaunanna
Sara
Jessica
Parker
tilnefnd til
Golden Globe
verðlaunanna
Sýnd kl. 10 B.i. 16 ára
S.K. DV
Topp5.is
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 8 og 10 Sýnd kl. 6 og 8 B.i. 16 ára
KOLSVARTUR HÚMOR!
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI!
HÆTTULEGIR
ÞJÓFAR Á
HÁLUM ÍS!
...ÞAÐ GERÐIST
Á AÐFANGA-
DAGSKVÖLD
BAD SANTA
JÓLAMYND Í ANDA
Ó.Ö.H / DV
Sýnd kl. 6 B.i. 16 ára
M.M.J. / Kvikmyndir.com
„The Family Stone er bráðfyndin
en ljúfsár gamanmynd“
M.M.J. / Kvikmyndir.com
TÓNLIST
Geisladiskur
My Delusions – Ampop
My Delusions, þriðja geislaplata Ampop.
Meðlimir eru Birgir Hilmarsson, Kjartan
F. Ólafsson og Jón Geir Jóhannsson. Lög
og textar eru eftir Ampop. Sena gefur út
og dreifir.
AMPOP vakti fyrst athygli fyrir
sveimkennda raftónlist og gaf út
tvær geislaplötur sem þannig sveit.
Nú er nokkuð síðan sú síðasta kom
út og greinilegt að miklar pælingar,
og breytingar hafa átt sér stað. Tón-
listin er nú framleidd með „alvöru“
hljóðfærum, þ.e. ekki hljóðgervlum
og trommuheilum. Þarna er auðvit-
að talsverð breyting, því þótt tónlist-
in sé lágstemmd
þá er hér á ferð-
inni popp í stað
rafpopps.
Poppið sem
Ampop fram-
leiðir þessa dag-
ana er rólegt og
þynnkulegt, mjög breskt, minnir
stundum á David Gray eða Coldplay,
metnaðarfullt og hugsað. Lögin eru
melódísk og Birgir Hilmarsson hef-
ur góða rödd sem hæfir vel ljúfsár-
um stemningunum. Meðlimirnir eru
aðeins þrír en My Delusions er
hljóðversplata og vel unnin þannig
að hljóm skortir ekki fyllingu.
Það er svo ekki að heyra að sveit-
armenn hafi nýverið skipt um hljóð-
færi og stíl, enda hafa þeir haft dá-
góðan tíma til að þróa stefnuna, þrjú
ár eru langur tími milli platna.
Trommuleikur Jóns Geirs er einkum
prýðilegur, en annars er tónlistin
kannski ekki þess eðlis að svigrúm
sé fyrir mikla fimleika í hljóðfæra-
leik.
Platan hljómar reyndar best þeg-
ar liðsmenn blanda raftónlistinni við
þá hefðbundnari, líkt og t.d. í laginu
„Don’t let me down“, þar tekst
Ampopmönnum hvað best upp og
mættu gera meira af. Önnur lög eru
mörg hver góð, t.d. smáskífulagið
„Youth“, sem hljómar einhvern veg-
in íslenskt (ólíkt mörgum öðrum lög-
um á disknum), svo og lagið „Etern-
al Bliss“, skrítið lag með sömuleiðis
undarlegum texta; „Eternal bliss is
an eye blink away / Pick up the
phone and do as we say / Please
listen to my hypnotic words“. Allir
textar eru á ensku, oftast ágætri.
Annars verður að segjast eins og
er, að undirritaður var hrifnari af
fyrri verkum Ampop, platan er
vönduð og metnaðarfull en sum lög
skilja lítið eftir sig, einkum við end-
urtekna hlustun. Skrifast hugs-
anlega á takmarkaðan áhuga á lág-
stemmdu poppi, enda smekksatriði.
Þeir gera þó allt vel sem þeir leggja
fyrir sig, gera engin mistök, en
mættu kannski taka stöku áhættu.
Gísli Árnason
Lágstemmt
Í GÆR voru gerð kunnug úrslit jóla-
lagakeppni Rásar 2. Lag Magnúsar
Inga Sveinbjörnssonar „Jólanótt“
sigraði með miklum yfirburðum en
lagið hlaut rösk 6.300 atkvæði eða
rúm 55% greiddra atkvæða. Næst á
eftir fylgdi Jólalag Köngulóarbands-
ins með 3.300 atkvæði.
Magnús Ingi, kallaður Maggi
trymbill, er aðeins 19 ára og sagðist
enn ekki að fullu búinn að gera sér
grein fyrir sigrinum þegar blaðamað-
ur náði af honum tali skömmu eftir
verðlaunaafhendingu í Útvarpshús-
inu: „Lagið varð til á píanóinu inni í
stofu hjá mér,“ útskýrir Magnús
uppruna lagsins. „Grunnurinn að lag-
inu kom frá hugmynd sem ég hafði
um samba-lag. Þá heyrði ég af jóla-
lagakeppninni og lagið fór að þróast
út í stóra hljóma og meiri jólagleði og
ég vissi ekki fyrr en ég var kominn
með lagið í hendurnar.“
Magnús fékk vini sína Unni Jóns-
dóttur og Egil Halldórsson til að
leika á selló og bassa og skeytti sam-
an við eigin píanó- og trommuleik.
Hann notaði söng móður sinnar og
sjálfs sín til að búa til í tölvu bak-
raddakór og varð útkoman helj-
arinnar jólalag.
Lánað úr ljóði eftir ömmu
„Textinn kom út frá þessu venju-
lega stelpuveseni 19 ára unglings,“
útskýrir Magnús. „Einhvernveginn
náði ég að nýta mér hugaróra og vit-
leysisgang vinkvenna minna og út-
koman varð þessi texti. Hann á að
vera, svona, nett-rómantískur, og
hálf væminn – og má alveg vera það.
Síðasta versið tók ég síðan úr ljóði
eftir ömmu mína, Guðrúnu Jóhanns-
dóttur frá Brautarholti. Fyrir hálfu
ári gaf hún út ljóðabók með öllum
sínum bestu ljóðum. Þar á meðal
voru nokkur jólaljóð og þetta passaði
svona vel inn í lagið.“
Magnús er að stíga sín fyrstu skref
í tónlistarbransanum en starfar ann-
ars sem forritari og lærir trommuleik
við tónlistarskóla FÍH. „Ég er að-
allega að spila djass og er alveg horf-
inn úr rokkinu,“ segir Magnús sem
spreytti sig með misjöfnum árangri í
Músíktilraunum 2003 með hljóm-
sveitinni Hljóðlæti en hann leikur nú
með bandinu 6íJazz og segist hafa í
nógu að snúast við að leika á árshá-
tíðum og samkomum með því bandi.
Magnús á erfitt með að lýsa
ánægju sinni að hafa unnið keppnina
og segir hvetjandi til frekari dáða:
„Áætlanir mínar liggja héðan í frá
mikið í átt að tónlistinni, en það er
erfitt að lifa af henni á Íslandi og ég
held það sé gott fyrir mig að hafa
tölvuvinnuna til taks. En mig langar
miklu frekar að verða tónlistarmaður
en tölvunarfræðingur – það er alveg
á hreinu.“
Magnús var leystur út með fjölda
vinninga, þar á meðal hljóðvers-
tímum sem hann hefur góða hug-
mynd um hvernig hann vill nýta:
„Mig langar að setja saman „cover“-
disk þar sem ég tæki fræg og þekkt
rokklög, jafnvel hörðu lögin líka, og
færi þau yfir í píanóstíl með og án
söngs. Ég er búin að gera þetta við
nokkur lög og þeir sem hafa fengið að
heyra kunna vel að meta.“
Stelpuvesen á jólunum
Morgunblaðið/Golli
Magnús Ingi Sveinbjörnsson er sigurvegari í Jólalagakeppni Rásar 2.
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
maggi.trymbill.is
NÝJASTA kvikmynd Íslandsvin-
arins Elis Roth, Hostel, var forsýnd
með pomp og prakt fyrir tveimur
vikum í Los Angeles en eins og
frægt er orðið var myndin forsýnd
hér á landi um miðjan nóvember.
Af því tilefni mætti Quentin Tar-
antino, framleiðandi myndarinnar,
hingað til lands og átti eins og les-
endur dagblaðanna gátu glögglega
fylgst með, ánægjulega og viðburð-
arríka dvöl.
Íslendingurinn Eyþór Guð-
jónsson leikur stórt hlutverk í kvik-
mynd Roths en hann var við-
staddur forsýninguna vestur í
Hollywood.
„Það var mjög skemmtilegt að
vera viðstaddur sýninguna og gam-
an að koma þangað út svona stuttu
eftir vel heppnaða heimsókn þeirra
til mín um daginn,“ segir Eyþór
sem nú er kominn aftur til landsins.
Breiðir út íslenska
sagnaarfleifð
Eyþór segir að það hafi tekið
hann rúmar þrjár vikur að skipu-
leggja komu Eli, Tarantino og fé-
laga, til Íslands í nóvember. Það
hafi svo endað með því að þeir bók-
staflega „elski“ allt sem viðkemur
landinu.
„Ég kynnti þá fyrir lykilfólki í
stjórnmálum og viðskiptum en
einnig fyrir ýmiss konar mögu-
leikum í sambandi við kvikmynda-
gerð og tengda hluti heima á Ís-
landi. Svo lagði ég sérstaka áherslu
á að kynna þá fyrir sögunni okkar,
víkingunum og menningu ásamt
þeirri frábæru náttúru sem við eig-
um, enda vissi ég að slíkt efni og
sögur myndu höfða til þeirra. Ég
tók svo með mér, eins og sönnum
víkingi sæmir, sérvaldar gjafir út
til L.A., þar á meðal upplýs-
ingabækur um víkingana og tíma
þeirra, nokkrar vel valdar Íslend-
ingasögur ásamt ljósmyndabókum
af Íslandi. Þeir halda því áfram
þessa dagana að sjúga í sig sögu
okkar og menningu. Hvað kemur
út úr þessu öllu kemur í ljós en það
verður örugglega eitthvað
skemmtilegt sem á eftir að koma
mörgum á óvart.“
Eli Roth, Eyþór Guðjónsson og Barbara Nedeljakova á
forsýningunni í Los Angeles.
Eyþór Guðjónsson með Hollywood í hendi sér.
Fólk | Eyþór viðstaddur forsýningu á Hostel í Hollywood
Vekur
áhuga á
öllu ís-
lensku