Morgunblaðið - 31.12.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 354. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
GAMLÁRSDAGUR 2005 | 148 SÍÐUR
Fólk og fréttir ársins Hvað segja þau um áramót? Áramótagetraunir Stjörnuspá 2006 Áramótabrennur Íslensk menning í
Lesbók Kvikmyndir og plötur ársins Ávörp formanna stjórnmálaflokkanna Börn Fréttamyndir ársins Krossgáta Íþróttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleðilegt nýár!
LAUN embættismanna og þjóðkjör-
inna fulltrúa hækka um 2,5% hinn 1.
febrúar nk. nái boðað frumvarp rík-
isstjórnarinnar, þar um, fram að
ganga. Það verður lagt fram er Al-
þingi kemur saman að nýju hinn 17.
janúar nk. Á sama tíma stendur til að
fella úr gildi úrskurð Kjaradóms frá
19. desember sl. um að hækka þessi
laun um u.þ.b. 8%.
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra greindi frá þessari ákvörðun
um hádegisbil í gær, eftir fund hans
og Geirs H. Haarde utanríkisráð-
herra með formönnum stjórnarand-
stöðuflokkanna. Stjórnarandstaðan
var ósátt við þessa niðurstöðu. Hún
vildi að þing kæmi saman fyrir ára-
mót svo hægt yrði að fresta gildistöku
úrskurðar Kjaradóms.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar þýðir
að úrskurður Kjaradóms gildir í einn
mánuð, þ.e. launahækkanir dómsins
verða greiddar út fyrir þann mánuð.
Ekki stendur til að draga þær til baka
skv. upplýsingum blaðamanns.
Nái fyrrgreint frumvarp fram að
ganga og nýjar launahækkanir taka
gildi hinn 1. febrúar nk. hækka laun
forseta Íslands um rúm 38 þúsund á
mánuði í stað þess að hækka um tæp
93 þúsund, eins og úrskurður Kjara-
dóms gerir ráð fyrir. Laun forsætis-
ráðherra hækka um tæplega 23 þús-
und í stað þess að hækka um tæpar 75
þúsund kr. og laun alþingismanna
hækka um 11.500 kr. í stað þess að
hækka um 37.500 kr.
Ákvörðunin viðunandi
Grétar Þorsteinsson, forseti Al-
þýðusambands Íslands, segir ákvörð-
un ríkisstjórnarinnar viðunandi „á
sinn hátt“ eins og hann orðar það.
Betra hefði verið að ljúka málinu fyrir
áramót. Hann segir að afstaða ASÍ
hafi verið skýr frá því Kjaradómur
kvað upp sinn úrskurð; úrskurðurinn
hafi þótt óviðunandi og sömuleiðis að
hann skyldi taka gildi strax eftir ára-
mót. „Ég spyr hvers vegna ekki hafi
verið hægt að klára málið fyrir ára-
mót fyrst ríkisstjórnin er komin með
málið í þennan farveg,“ segir hann.
Ingimundur Sigurpálsson, formað-
ur Samtaka atvinnulífsins, segist
fagna því að ríkisstjórnin skuli mark-
visst fylgja eftir þeirri afstöðu sinni að
það verði að bregðast við þeirri keðju-
verkun launahækkana sem hafi verið
að byggjast upp undanfarnar vikur.
„Stöðugleikinn og trygging kaup-
máttar launþega eru í húfi og kaup-
mátturinn skiptir meira máli en pró-
sentuhækkanir launa sem ekki er
innistæða fyrir.“ Hann bætir því við
að framganga ríkisstjórnarinnar í
þessu máli sé skýr. Hún ráði þó ekki
úrslitum ein og sér. „Fleiri verða að
fylgja á eftir á sömu nótum og því
verður fróðlegt að fylgjast með því
hver framvindan verður á vettvangi
sveitarfélaga í næsta mánuði.“
Úrskurðinum hnekkt –
launin hækka um 2,5%
Morgunblaðið/Golli
Formenn stjórnarandstöðunnar,
Steingrímur J. Sigfússon, Guðjón
A. Kristjánsson og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir í Ráðherrabústaðnum.
Ekki stendur til að draga hækkanir í janúar til baka
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
Ríkisstjórnin | 4
Washington. AP. | Dómsmálaráðu-
neyti Bandaríkjanna hefur hafið
rannsókn á því hvernig dagblaðið
The New York Times fékk upplýs-
ingar um að George W. Bush for-
seti hefði heimilað símahleranir og
aðrar njósnir innanlands án lög-
formlegrar heimildar dómstóls.
Heimildarmenn í ráðuneytinu,
sem vildu ekki láta nafns síns get-
ið, sögðu að rannsóknin beindist að
því hver eða hverjir láku þessum
upplýsingum í The New York Tim-
es.
Hörð viðbrögð urðu við frétt
blaðsins. Forsetinn var sakaður um
að hafa brotið landslög með því að
leyfa njósnirnar án heimildar eða
eftirlits leynilegs dómstóls sem
stofnaður var fyrir 30 árum til að
fjalla um beiðnir leyniþjónustu-
stofnana um að fá að hafa eftirlit
með mönnum sem grunaðir eru um
hryðjuverkastarfsemi eða njósnir.
Stjórn Bush segir aftur á móti
að ákvörðun forsetans samræmist
stjórnarskrárákvæði um völd og
skyldur forsetans á stríðstímum.
Stjórnin heldur því einnig fram að
þingið hafi veitt forsetanum vald til
að leyfa slíkar njósnir þegar það
heimilaði honum með sérstakri
ályktun að beita öllum ráðum, með-
al annars hervaldi, í baráttunni
gegn hryðjuverkamönnum skömmu
eftir hryðjuverkin í Bandaríkjun-
um 11. september 2001.
Bush-
stjórnin
rannsakar
fréttaleka
VÍSIR að taílenskri verslanamið-
stöð, sem kölluð er Thai City, er að
verða til við Engihjalla í Kópavogi.
Þrjár taílenskar athafnakonur
hafa nú þegar komið sér fyrir í mið-
stöðinni með fimm verslanir, en
þær stefna að því að laða fleiri að
auk þess sem áform eru uppi um
taílenskan matsölustað.
Taílenskur tónlistarkennari hef-
ur aðstöðu í húsnæðinu til að kenna
börnum á ýmis hljóðfæri. Búddista-
félaginu verður boðin aðstaða og
hugmyndir eru uppi um nám-
skeiðahald í taílenskri matargerð.
Athafnakonan Prapasiri Sareek-
had, sem keypt hefur stærstan
hluta húsnæðisins af fasteigna-
félaginu Fófni ehf., segir drauminn
vera þann að skapa þarna samfélag
með austurlenska stemningu og
menningu sem höfði til Asíubúa
jafnt sem Íslendinga. | 30
Thai City
verður til í
Kópavogi