Morgunblaðið - 31.12.2005, Síða 20

Morgunblaðið - 31.12.2005, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FRÉTTIR ársins snerust, eðli málsins samkvæmt, eink- um um það sem úrskeiðis fór; náttúruhamfarir, slys, og auð- vitað stríð og annað það sem maðurinn afrekar að hugsa upp í því skyni að gera sér jarðvistina enn erfiðari. Í Táradalnum ber því að þakka fyrir undarlegu fréttirnar, bjánalega atburði, heimskuleg viðbrögð og furður veraldar. Hér koma nokkrar furðufrétt- ir ársins úr dýraríkinu:  Skjöl sem opinberuð voru í Bretlandi leiddu í ljós að gífurleg vinna, með tilheyr- andi pappírsflóði, var lögð í að ráða „hæfan skrifstofu- kött“ hjá hinu opinbera árið 1929. Kettan var ráðin til þeirra starfa að veiða mýs. Þetta merka embætti var lagt niður árið 1946 – sökum verkefnaskorts.  Fílahirðar í Taílandi upp- lýstu að þeir væru að þjálfa fíla sína í að nota sérstök „klósett“, vitanlega risastór. Þetta töldu þeir nauðsynlegt, túristunum líkaði ekki að rek- ast á það sem fílarnir skila frá sér alveg eins og mannfólkið.  Breskur lestarstjóri fékk 35.000 pund, tæpar fjórar milljónir króna, í bætur vegna þess áfalls sem hann varð fyrir þegar hann ók yfir geit.  Slökkviliðsmaður í Flórída var ákærður fyrir að bíta höf- uðið af páfagauk í samkvæmi. Vinnufélagar mannsins sögðu að hann hefði verið fullur.  Tvær konur voru reknar úr starfi við dýrgarð einn í Kaliforníu vegna þess að þær neituðu að bera brjóst sín frammi fyrir kvengórillu einni. Þeim hafði verið skip- að að „mynda tengsl við dýr- ið“ með þessum hætti. Þær fóru í mál við vinnuveitand- ann.  Í Myanmar, sem einnig er þekkt sem Búrma, nærði kona ein tvo munaðarlausa tígris- hvolpa á brjóstamjólk sinni. Hugurinn skiptir mestu máli eins og alkunna er, því miður dóu hvolparnir.  Yfirvöld í Peking komust að þeirri niðurstöðu að hátal- arar sem komið hafði verið upp við flugvöllinn til að fæla burt fugla væru gagnslausir. Hátalararnir dældu út fugla- gargi sem tekið hafði verið upp á band en niðurstaðan varð sú að þetta kæmi að engum notum þar sem fugla- hljóðin væru útlend. Kín- versku fuglarnir skildu ekki þá bandarísku.  Vísindamenn greindu frá því að afrískir fílar hefðu af því verulega skemmtan að líkja eftir hljóðum í umhverfi sínu. Þessu til sanninda- merkis nefndu þeir að tíu ára gamall fíll í Kenýa líkti eftir þungum og stöðugum umferð- arnið á þjóðveginum.  Japanskir kollegar þeirra birtu niðurstöðu rannsóknar sinnar á „apamáli“. Þeir komust að því að „hreimur“ apanna mótaðist af því hvar þeir „byggju“.  Töframaður einn í Bret- landi varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að í miðju atriði stökk maður upp á sviðið og stal ekki bara pípu- hattinum heldur líka kanín- unni, sem töframaðurinn ætl- aði að draga upp úr honum. Líklega dýraverndunarsinni, var niðurstaða lögreglunnar.  Dýravinir í Þýskalandi greindu frá því að froskar væru unnvörpum teknir upp á því að springa bókstaflega í tætlur. Þetta þótti vísinda- mönnum fréttnæmt. Rann- sókn leiddi í ljós að hér var um náttúrulegt ferli að ræða, illskeyttar krákur höfðu fengið augastað á froskunum sem vörðust með því að þenja sig og tútna.  Tík ein í Kenýa sem var nýbúin að eignast hvolpa tók að sér nýfætt barn sem móð- irin hafði skilið eftir á ver- gangi. Hún fór með barnið í bæli sitt þar sem það fannst. Það reyndist við hina bestu heilsu.  Póstmaður einn á Eng- landi sem var að tæma póst- kassann tók eftir því að eitt bréfið hreyfðist. Það reyndist innihalda lifandi hamstur.  Vísindamenn í Ástralíu sem reyndu að útrýma kört- um sem gera bændum lífið leitt þar syðra fundu loks pottþétta aðferð. Einhvern veginn – það fylgir ekki sög- unni hvernig – komust þeir að því að körturnar eru sérlega áhugasamar um blikkandi diskóljós. Ljósin eru kveikt og körtu-breiðurnar streyma fram þar sem þeirra bíða eitr- uð endalok.  Kristnir menn í Banda- ríkjunum tóku franskri heim- ildarmynd um kóngamör- gæsir fagnandi. Mörgæsirnar eru trúar maka sínum allt sitt líf og hafa sýnt aðdáunar- verða staðfestu við þær erf- iðu aðstæður sem þeim eru búnar. Alveg til fyrirmyndar fyrir mannfólkið sögðu boð- berar trúarinnar.  Sama mynd var talin hafa orðið til þess að óþekktir „að- ilar“ eins og það heitir á nú- tímamáli stálu kóngamörgæs- arunganum Toga í dýragarði á Wight-eyju undan strönd Englands. Því miður fannst Toga aldrei og líklegt er talið að þetta illvirki hafi kostað hann lífið.  Annar atburður var eins og klipptur út úr bíómynd og þá kannski helst hákarla- myndinni frægu „Jaws“. Maður einn var á brimbretti undan strönd Oregon-ríkis í Bandaríkjunum þegar hákarl réðst á hann og læsti kjaft- inum um fót hans. Maðurinn bjargaði sér með því að heilsa kvikindinu að sjómannasið, gaf honum sumsé einn kröft- ugan beint á lúðurinn. Há- karlinn lagði á flótta. „Þetta var eðlisávísun“ sagði mað- urinn þegar rætt var við hann á spítalanum.  Danski flugherinn greiddi atvinnu-jólasveini bætur eftir að æðisgenginn hávaði úr þotu einni í lágflugi hafði orðið hreindýri hans að fjörtjóni. Furðufréttir ársins úr dýraríkinu Pípuhattinum stolið – og kanínunni líka Reuters Fílar eru liðugri en margir ætla. Hér er fíll í jólasveinabún- ingi að sýna listir sínar á hátíð fyrir nemendur í Jirasart- skólanum í Ayutthaya-héraði í Taílandi fyrir skömmu. „TÚRKMENBASHI“, Saparmurat Niyazov, forseti gamla sovétlýðveld- isins Túrkmenistans, hefur löngum verið í uppáhaldi á erlendri frétta- deild Morgunblaðsins. „Faðir allra Túrkmena“ og „merkasti maður sögunnar“ er auðvitað skelfilegur einræðis- herra en því verður vart á móti mælt að fréttir af undarlegheit- um hans og þeirri geggjuðu persónu- dýrkun sem hann hefur innleitt eru kærkomn- ar á tímum mannvíga, hungurs, hryðjuverka og hryllings. Hér koma valdar fréttir af Túrk- menbasha sem birtust á árinu: Í hóp geimveldanna Stjórnvöld í Túrk- menistan greindu frá því á árinu að landið hefði komist í hóp „geimveldanna“ með því að senda bók Túrkmen- basha út í geiminn. „Bókin sem vann hjörtu milljóna manna á jörðinni er nú að sigra geiminn,“ sagði í tilkynn- ingu stjórnvalda. Bókinni, sem nefnist Rukhnama, var komið fyrir í gámi sem fluttur var í geiminn með rússneskri eld- flaug frá geimferðastöðinni í Bai- konur í Kasakstan. „Hinn helgi texti Rukhnama var valinn vegna þess að í honum er öll viska túrkmensku þjóðarinnar, þökk sé höfundinum, Túrkmenbasha. Þetta staðfestir að Túrkmenistan er nú í hópi geimveld- anna,“ sagði þar einnig. Rukhmana, eða „Bók andlegrar göfgi“, var fyrst gefin út í september 2001 og er lýst sem andlegri stjórn- arskrá landsins. Árlega er haldið upp á afmæli fyrstu útgáfunnar með mikilli viðhöfn í Túrkmenistan. Mörgæsir í eyðimörkinni Á dögunum var skýrt frá því að Túrkmenbashi hygðist verja sem samsvarar hundruðum milljóna króna til að koma upp dýragarði í Karakorum-eyðimörkinni. Hann krefst þess að í nýja garðinum verði mörgæsir þar sem bjarga þurfi fugl- unum frá hungri sem sverfi að þeim vegna loftslagsbreytinga. Megi líf þitt verða melónusætt Í ágústmánuði var „melónudagurinn“ haldinn hátíðlegur í fyrsta skipti í ríki Túrkmenbasha. For- setinn stofnaði til dags- ins í virðingarskyni við þennan eftirlætisávöxt landsmanna. Í tilkynningu frá landbúnaðarráðuneyt- inu sagði að í Túrk- menistan væru ræktuð 500 afbrigði af melón- um, þar á meðal Keisaramelónan til heiðurs Niyazov og önnur, sem köll- uð er Gullöldin. „Megi ævi hvers einasta Túrk- mena verða jafnyndisleg og melón- urnar okkar,“ sagði í yfirlýsingu frá Niyazov og í forsíðufyrirsögn í dag- blaði stjórnarinnar sagði, að engar melónur í heimi jöfnuðust á við þær túrkmensku. Beint á hraðnámskeið Nýlega skipaði Túrkmenbashi ol- íumálaráðherra landsins að læra ensku á hálfu ári, ella verði hann rekinn. Niyazov sagði nýja ráðherranum að enskukunnátta væri nauðsynleg í embættinu vegna margra erlendra gesta sem hafa hug á að fjárfesta í olíu- og gasvinnslu í Túrkmenistan. Ekki kom fram hvort Túrkmen- bashi kann sjálfur ensku. Atvinnuöryggi er ekki mikið þeg- ar menn starfa fyrir Túrkmenbasha. Árið 2003 rak hann varnarmálaráð- herra landsins úr embætti fyrir að vera of þögull og fyrir að hafa ekki nægilega gaman af vinnunni sinni. „Ofboðsleg bjartsýni“ Bænir voru sagðar í moskum Túrkmenistans í febrúarmánuði og lömbum slátrað í þakkarskyni fyrir vel heppnaða augnaðgerð sem Túrk- menbashi gekkst undir. Fluttu fjöl- miðlar í Túrkmenistan, sem allir eru í eigu ríkisins, stöðugar fréttir af því hvernig landsmenn fögnuðu fréttum af því að allt hefði farið á besta veg. Það var þýskur augnlæknir sem framkvæmdi aðgerðina. Ekki fylgdi sögunni hvað nákvæmlega amaði að augum forsetans en í yfirlýsingu ut- anríkisráðuneytisins sagði að þakka mætti góða útkomu úr aðgerðinni „hinni ótrúlegu orku og ofboðslegri bjartsýni“ sjúklingsins. Læknirinn kom málinu ekkert við. Sjúkrahúsin algjör óþarfi Í marsmánuði skipaði Túrkmen- bashi svo fyrir, að öllum sjúkrahús- um í landinu skyldi lokað nema þeim, sem eru í höfuðborginni, Ashgabat. Kom þetta fram hjá talsmanni for- setans, sem sagði að lokunin væri hluti af mjög róttækri stefnu forset- ans í heilbrigðismálum. „Til hvers þurfum við öll þessi sjúkrahús?“ spurði Túrkmenbashi á fundi með undirsátum sínum. „Ef fólk er sjúkt getur það komið til Ashgabat.“ Fyrir landsmenn þýðir þetta í raun endalok heilbrigðiskerfisins, sem var afar bágborið fyrir, en í fyrra rak Niyazov 15.000 starfsmenn heilsugæslunnar úr starfi og lét her- menn koma í þeirra stað. Raunar lét Túrkmenbashi ekki nægja að loka sjúkrahúsunum, held- ur lokaði hann líka öllum bókasöfn- um utan höfuðborgarinnar. Sagði hann, að þau væru ekki til neins þar sem sveitafólkið kynni hvort eð er ekki að lesa. „Faðir allra Túrkmena“ enn í fínu formi Túrkmenbashi hlýðir á þjóðsönginn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.