Morgunblaðið - 31.12.2005, Side 42

Morgunblaðið - 31.12.2005, Side 42
42 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ er svo gaman að fylgjast með frábærum einstaklingum sem standa sig vel, hver á sinn hátt. Það er líka gaman að gleðjast yfir velgengni einstaklinga sem hafa lagt sig fram, staðið sig vel, náð tak- marki sínu og glatt marga. Stundum gleðst þjóðin öll með þeim sem kemst á toppinn, hver svo sem toppurinn er í það skiptið. Frábær Unnur Birna Mikið gladdi það marga þegar Unnur Birna var kjörin Ungfrú heimur. Það var unun að sjá einlæga gleði ungu stúlkunnar sem hafði lagt sig alla fram í undirbúningi fyrir þessa keppni. Keppni um það hver fengi að leika lykilhlutverk við að safna fé fyrir góðan málstað. Keppni þar sem svokölluð innri feg- urð skiptir miklu máli og þar sem örugg og hlýleg framkoma leikur lyk- ilhlutverk. Ég er viss um að einlæg og fagmannleg framkoma Unnar Birnu í vitali í Kastljósi hefur hlýjað fleirum en undirrituðum um hjarta- ræturnar. Þótt sumum finnist fegurðar- samkeppni ekki merkilegt fyrirbæri eða áhugavert, trúi ég ekki öðru en að langflestir samgleðjist Unni Birnu og séu stoltir af henni. Frábær sinfóníuhljómsveit Mikið hefur sinfóníuhljómsveitin glatt marga á undanförnum árum. Að vísu er það ekki stór hluti íslensku þjóðarinnar sem sækir sinfón- íuhljómleika en fyrir þann hóp sem elskar klassíska tónlist er þessi hljómsveit mjög mikilvæg. Þeir sem vit hafa á, virðast sannfærðir um að íslenska sinfóníuhljómsveitin sé mjög góð, kannski ekki best í heimi, en verulega góð miðað við fámenni þjóð- arinnar. Um daginn stóð hljómsveitin fyrir frábærum tónleikum með stórsöngvara sem virtist útilokað að fá til Íslands, en með góðum stuðningi forseta Ís- lands og KB banka tókst að láta þennan draum rætast. Það er frábært hvað stóru ís- lensku fyrirtækin eru dugleg við að skapa verðmæti og styrkja menningu og góð mál- efni! Þótt sumum finnist sinfóníutónlist leiðinleg reikna ég með að flestir samgleðjist hljómsveitinni og þeim sem fengu að njóta hins frábæra Bryn Terfel. Frábær Jakobínarína Hljómsveitin Jakobínarína spilaði í Kastljósi 16. desember síðastliðinn. Í henni eru ungir strákar sem lögðu sig alla fram um að skapa spennandi tón- list og náðu því að sigra á Músiktil- raunum 2005. Tónlistin höfðar ekki til mín og ég efast um að flutning- urinn uppfylli allar kröfur atvinnu- tónlistarmanna, en mikið samgladd- ist ég þeim. Miðað við forsendur sínar stóðu þeir sig frábærlega vel. Sirrý og Silvía Fátt er líkt með sjónvarpskon- unum Sirrý og Silvíu Nótt, nema að þær hafa báðar á hreinu hver mark- miðin með þáttum sínum eru. Báðar leggja þær sig fram um að ná góðum árangri og báðum hefur tekist það. Sjálfur horfi ég ekki oft á þættina og er ekki sérfræðingur í að meta gæði sjónvarpskvenna. Af vinsældum þeirra og umsögnum um þættina má þó draga þá ályktun að þær hafi náð mjög góðum árangri. Ég held að það sé óhætt að fullyrða að þær séu frá- bærar sjónvarpskonur. Ætli frammistaða þeirra sé sjálf- skipuðum siðapostulum landsins þóknanleg? Hafa femínistar lagt blessun sína yfir það sem þessar sjónvarpskonur eru að gera? Ættu heittrúaðir einstaklingar að upplýsa þær og okkur hin um hvað sé í lagi að ræða í sjónvarpi og hvað ekki? Ætli það sé kannski bara best að þessir einstaklingar og hópar hafi sínar skoðanir fyrir sig? Fordæma, öfundast eða samgleðjast? Ég verð svolítið hissa þegar fólk bregst við góðri frammistöðu ein- staklinga með því að fordæma eða öf- undast, í stað þess að samgleðjast. Vissulega er það hluti af mannlegu eðli að þykja sinn fugl fegurstur. Vissulega getur verið erfitt að finna til einlægrar gleði með öðrum þegar þeir ná árangri í einhverju sem manni þykir sjálfum frekar ómerki- legt eða leiðinlegt. En maður getur alla vega reynt að sjá veröldina með augum viðkomandi og samgleðjast. Mikið væri leiðinlegt ef allir hefðu sama smekk! Ef allir vildu spila golf þá færi ansi mikið land undir golf- velli. Mikið væri skrítið ef allir vildu helst hlusta á jass, enginn á óperur, rapp eða kórsöng. Mikið er hún frá- bær öll fjölbreytnin í þjóðlífinu, at- vinnulífinu og íslenskri menningu. Kraftlyftingar, fótbolti, fjallaklifur, kórsöngur, fegurðarsamkeppni og ræðukeppni eru aðeins fáein dæmi um það. Ekki er það mitt að dæma hvort eitthvað af þessu er merkilegra en annað. Þegar einstaklingur eða hópur stendur sig vel í því sem hann hefur lagt sig fram um að gera, að sjálfsögðu einhverju sem bitnar ekki á öðrum, þá er tími til að samgleðjast. Þið eruð frábær! Snjólfur Ólafsson fjallar um frábært fólk ’Ég verð svolítið hissaþegar fólk bregst við góðri frammistöðu einstaklinga með því að fordæma eða öfund- ast, í stað þess að samgleðjast.‘ Snjólfur Ólafsson Höfundur er prófessor í Háskóla Íslands. EINS og velflestum Reykvík- ingum er núorðið ljóst var lagning nýju Hryllings- Hringbrautarinnar herfileg mistök. Hrað- brautin nýja sem skil- ur Vatnsmýrina frá miðborginni átti auð- vitað að fara í stokk, í það minnsta frá Njarðargötu og út að brúnni við Bústaða- veg. Á þetta bentu margir á meðan óskapnaðurinn var í undirbúningi. Og þótt mistökin blasi nú við hverjum þeim sem fer um svæðið virðast hvorki samgönguyfirvöld né borg- aryfirvöld hafa nokkra döngun í sér til að leiðrétta þau. Verkefnið framundan er því að lágmarka þann skaða sem þegar er orðinn. Ein leið til þess væri að reisa fallega íbúðarbyggð á öllu svæðinu sem afmarkast af gömlu Hring- brautinni í norðri, þeirri nýju í suðri, Njarðargötu í vestri og Bú- staðavegi í austri. Í þessu skipu- lagi yrði gamla Hringbrautin að innanhverfisgötu, í beinu fram- haldi af Bergstaðastræti og Lauf- ásvegi. Til að þetta megi verða þarf að endurskipuleggja svæðið. Sam- kvæmt núverandi skipulagi er, að mér skilst, gert ráð fyrir að Land- spítalanum verði dreift um þetta svæði og hefur Alfreð Þor- steinsson verið ráðinn til að sjá um verkið, en það er sami maður og ber ábyrgð á húsi Orkuveitunnar á Ár- túnshöfða. Hér er slys í uppsiglingu, sem við höfum þó enn ráðrúm til að forðast ef vilji er fyrir hendi. Starfsemi Landspít- alans fer nú fram á tveimur stöðum í Reykjavík, við Hring- braut og í Fossvogi. Það blasir við að miklu skynsamlegra væri að reisa nýtt hátæknisjúkrahús í grennd við spítalann í Fossvogi heldur en ofan í Vatnsmýrinni. Í Fossvogi er ekki aðeins nóg pláss fyrir alla starfsemina, heldur er Fossvogurinn mun nær miðju höf- uðborgarsvæðisins. Það er því ekki aðeins óþarfi að fletja starf- semi Landspítalans út yfir dýr- mætasta byggingarsvæði borg- arinnar í Vatnsmýri heldur er það einnig óhagkvæmt, bæði út frá fjárhagslegu sem og læknis- fræðilegu sjónarmiði. Með þessu móti sláum við tvær flugur í einu höggi, Landspítalinn fær mun hentugra byggingarsvæði fyrir framtíðarstarfsemi sína og við Reykvíkingar endurheimtum dýrmætt byggingarland, – hluta þess lands sem Bretar tóku á sín- um tíma frá okkur undir herflug- völl. Eftir færslu Hringbraut- arinnar er ekkert eftir á ofangreindu svæði nema tvær ein- mana byggingar, BSÍ og Tann- garður. Þær má rífa og reisa í staðinn fallegt íbúðarhverfi sem tengist Þingholtunum, Hljóm- skálagarði og miðbænum öllum með beinum hætti.. Nú er bara spurning hvort ein- hverjir þeirra frambjóðenda sem þessa dagana spretta fram í öllum flokkum séu ekki tilbúnir að vinna þessari litlu hugmynd braut- argengi. Íbúðarbyggð – ekki spítala Eiríkur Bergmann Einarsson fjallar um skipulagsmál í Reykjavík ’Verkefnið framundaner því að lágmarka þann skaða sem þegar er orðinn.‘ Eiríkur Bergmann Einarsson Höfundur er stjórnmálafræðingur. ÞETTA er ekki grein um slæma menn eða illa fenginn gróða. Það er ekki málið. Málið snýst, í mín- um huga, um þá aðstöðu sem menn komast í vegna slæmra reglna. Að- stöðu sem enginn maður á að þurfa að upplifa. Vanhugsun eða engin hugsun er það sem mér dettur helst í hug um þá stjórnmálamenn sem hér geta skipt máli og gert eitthvað. Nema eitthvað allt annað komi til, sé undirrót og ástæða þess að lítið er gert. Allavega skil ég ekki hvernig nokkur hugs- andi maður eða kona getur staðið og varið það að einn aðili hafi yfirgnæfandi stöðu á einhverjum markaði og að það sé almenn- ingi fyrir bestu. Eitt fyrirtæki með um eða yfir 60% markaðshlutdeild á matvörumarkaði! „Það er ekki ólöglegt að vera með markaðs- ráðandi stöðu, aðeins að misnota hana.“ Eitthvað þessu líkt sagði viðskiptaráðherra í umræðu á alþingi um daginn. Í hvaða veruleika býr við- skiptaráðherra? Áttar við- skiptaráðherra sig ekki á því að þegar einn aðili er kominn með svo sterka stöðu á einum markaði þarf hann í raun ekki að gera neitt nema að taka ekki vöru til sölu, til að fá sínu fram. Hann þarf aldrei að beita sér sérstaklega. Hann þarf ekki vísvitandi að misnota að- stöðu sína. Áttar viðskiptaráðherra sig ekki á því að ef markaðs- ráðandi fyrirtæki fær ekki sitt fram, og hættir viðskiptum við lít- inn framleiðanda eða innflytjanda, þá er um leið búið að útiloka þenn- an sama aðila frá um 60% af mark- aðnum. Hvað þýðir það fyrir litla framleiðandann eða innflytjand- ann? Ekki er hægt að skylda mark- aðsráðandi aðila til að eiga við- skipti við alla sem þess óska á þeim kjörum sem þeir óska. Það segir sig sjálft. Hann hlýtur að geta ráðið því sjálfur við hvern hann verslar. Ekki er hægt að segja að það sé misnotkun á mark- aðsráðandi stöðu að vilja ekki versla við Pétur eða Sigga, Dodda eða Jón. Misnotkunin í þessu tilfelli felst í stærðinni því stærðin ein valtar yfir allt og alla. Stærðin ein kallar á alveg sérstaklega meðvitaðar að- gerðir til að valta ekki yfir allt og alla. Slíkar aðgerðir eru ekki í gangi svo vitað sé. Við höfum jú hér á Íslandi þann ósýnilega og hægfara her sem nefnist samkeppnisyfirvöld. En virka þau? Eru þau nógu hraðvirk? Hvað finnst þér? Hvað er hægt að gera í málinu? Ekkert. Það er ekk- ert hægt að gera annað en að þola, þrauka og vona. Þola núverandi ofríki markaðsráðandi aðila og aðlaga okkur aðstæðum. Þrauka og telja okkur trú um hér- eftir sem hingað til að við séum að fá besta verðið. Vona að einhver annar komi og brjóti þessi markaðsyfirráð á bug þannig að mark- aðurinn skiptist á milli fleiri og vald hvers og eins minnki. Vald sem fæst með stærðinni. Vald sem enginn á að þurfa að upplifa. Sá stóri hefur oft haft yfirburði á meðal barnanna á leikvell- inum. Ekki alltaf vegna yfirburða gáfna eða leikgleði. Hvers vegna ætti annað að gilda í viðskiptalífinu eða annars staðar í líf- inu. Við lifum jú öll í sama landinu og fylgj- um sömu lífslögmálunum. Sagt hefur verið að meiri sársauki dragi athyglina frá minni sársauka. Á það við hér? Það er ástæða fyrir því að í flestum löndum eru stærðarmörk sem skipta máli sett á hvað fyr- irtæki geta ráðið stórum hluta markaðar. Prósentuhlutfallið er breytilegt eftir aðstæðum og mörkuðum. Það sem skiptir máli hér er að komið er í veg fyrir að einn aðili lendi í markaðsráðandi stöðu, ekki það að hann muni vilj- andi nota eða misnota aðstöðuna, heldur er það stærðin sjálf sem gefur valdið, vonina og vopnið. Valdið sem fæst með aðgangi að stærstum hluta markaðarins yfir þeim sem inn á hann vilja komast eða á honum eru, vonin sem að- gangur að stærstum hluta mark- aðarins veitir um framlegð og vopnið sem aðgangur að stærstum hluta markaðarins er því hversu hryllileg er sú hugsun hverjum innflytjanda eða framleiðanda að dyr markaðarins lokist á hann, þó ekki sé nema hallist í hálfa gátt. Hvað gæti litli maðurinn gert sjálf- um sér til bjargar? Hvað getur þú gert í þessum aðstæðum? Hvert getur þú farið ef þú ert óánægður? Hvenær er notkun misnotkun? Ásmundur R. Richardsson fjallar um íslenskt viðskiptalíf og markaðsráðandi stöðu fyrirtækja Ásmundur R. Richard ’Það er ástæðafyrir því að í flestum löndum eru stærðar- mörk sem skipta máli sett á hvað fyrirtæki geta ráðið stórum hluta markaðar.‘ Höfundur er iðnrekstrarfræðingur. Föt fyrir allar konur á öllum aldri Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16 Hulda Guðmundsdóttir: „Ég tel að það liggi ekki nægilega ljóst fyrir hvernig eða hvort hinn evangelísk-lútherski vígslu- skilningur fari í bága við það að gefa saman fólk af sama kyni …“ Birgir Ásgeirsson: Opið bréf til vígslubiskups Skálholtsstiftis, biskups Íslands, kirkjuráðs og kirkjuþings. Jakob Björnsson: Útmálun hel- vítis. „Álvinnsla á Íslandi dregur úr losun koltvísýrings í heim- inum borið saman við að álið væri alls ekki framleitt og þyngri efni notuð í farartæki í þess stað, og enn meira borið saman við að álið væri ella fram- leitt með raforku úr eldsneyti.“ Þorsteinn H. Gunnarsson fjallar um rjúpnaveiðina og aug- lýsingu um hana, sem hann tel- ur annmarka á. Eggert B. Ólafsson: Vegagerð- in hafnar hagstæðasta tilboði í flugvallarrútuna. Örn Sigurðsson: Bornir eru saman fjórir valkostir fyrir nýj- an innanlandsflugvöll. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.