Morgunblaðið - 31.12.2005, Qupperneq 64
64 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Kínverskt máltæki segir: Vinátta við
hinn vitra mann er jafn létt og vatn.
Samband við hinn smáa er klístrað eins
og hunang. Hafðu þetta í huga í fé-
lagslífinu á næsta ári.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Líklega er ekkert sem nautið getur gert
til þess að fá einhvern til þess að skipta
um skoðun á því. Reyndar er það
ákveðið forskot í samskiptum við mann-
eskju sem elskar þig tryllingslega mik-
ið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn leiðir tískuna, sem endranær.
Fyrst nýtt ár er að byrja væri frábært
ef meðaumkun yrði í tísku á næsta.
Hrósaðu í stað þess að álasa, styddu í
stað þess að lögsækja. Fylgstu með
hversu fljótt það nær að breiðast út.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn lumar á eins árs uppsafnaðri
gremju sem hann þarf að geta losað sig
við í kvöld, rétti félagsskapurinn er lyk-
ilatriði í því sambandi. Vertu einhvers
staðar þar sem þér líður vel, svo þú get-
ir leyft þér að láta eins og villingur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ef þú horfir fram á nýja árið sérðu það
eins og árið sem er að líða, nema
kannski aðeins betra. Ef þú bara hugs-
ar að það fari batnandi skiptir ekki máli
hvað þú hugsar þar að auki.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Að reyna að standast freistingu gerir
hana bara enn meira spennandi. Löng-
un eykur bara á þrána. Partíið í kvöld
verður þitt. Ef þú vilt afneita þér um
eitthvað skaltu bara gera það, en fyrr
eða síðar færðu það sem þú vilt.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Spennan sem vogin finnur fyrir vegna
nýrra kynna við einhvern er gagn-
kvæm. Eitthvað spámannslegt gerist í
kvöld, fyrirboði þess sem verða skal ár-
ið 2006.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Meiriháttar ofdekur blasir við. Byrjaðu
á því að losa þig við þá tilfinningu að þú
eigir ekki skilið góða meðferð. Að láta
eitthvað jákvætt eftir sér gerir mann
ekki spilltan á neikvæðan hátt. Það er
alger firra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn mætir ekki bara í partí
(sama hvað á dynur í lífinu), þú ERT
partíið. Fagnaður er heilandi. Þú hjálp-
ar veröldinni með hlátri þínum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Himintunglin draga fram siðferðilegt
álitamál. Steingeitin er þekkt fyrir að
sýna mikinn styrk, þó að hún sé að fara
í gegnum kreppu. En getur hún fagnað
þegar aðrir í heiminum þjást? Það er
skylda þín.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn sýnir sjálfstraust sitt með
því sem hann á. Hentu einhverju gauð-
rifnu áður en klukkan slær tólf. Það er
ekki gott að heilsa nýju ári með þungar
byrðar í eftirdragi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fagnaðu nýju ári með því að helga þig
einni manneskju alveg upp á nýtt. Það
er göfug og persónuleg nálgun sem
mun lýsa í gegnum allt sem þú tekur
þér fyrir hendur, ekki síst þetta smáa
og hugulsama.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Merkúr (hugsun) og Plútó
(umbreyting) eru í sam-
stöðu og leiða örlögin að
þröskuldinum hjá manni, eða fram á
varirnar. Talaðu ekki um framtíðina
eins og eitthvað sem er í þann mund að
gerast, heldur eitthvað sem þegar er orðið
partur af þér. Það verður sem verður.
Ekki vegna þess sem þú gerir, heldur
vegna þess hver þú ert.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 ónytjungur, 8
tími, 9 úldna, 10 munir,
11 rás, 13 út, 15 þakin
ryki, 18 dreng, 21 storm-
ur, 22 Evrópumaður, 23
sívinnandi, 24 vitrir
menn.
Lóðrétt | 2 Ásynja, 3 stór
sakka, 4 dimm ský, 5
stallurinn, 6 regin, 7
megind, 12 spils, 14 veið-
arfæri, 15 fara greitt, 16
líkama, 17 hrekk, 18 húð,
19 vitlausa, 20 landabréf.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 frekt, 4 pukur, 7 eitil, 8 úrill, 9 góð, 11 sund, 13
saka, 14 æsast, 15 holl, 17 ótal, 20 ást, 22 kýtir, 23 jakar,
24 renna, 25 neiti.
Lóðrétt: 1 fress, 2 ertan, 3 tólg, 4 prúð, 5 keifa, 6 rella, 10
óðals, 12 dæl, 13 stó, 15 hikar, 16 lútan, 18 takki, 19
lerki, 20 árna, 21 tjón.
Tónlist
Skálholtskirkja | Jóhann I. Stefánsson
trompetleikari frá Selfossi og Hilmar
Örn Agnarsson organisti í Skálholts-
dómkirkju standa fyrir tónleikum í Skál-
holtskirkju kl. 16. Þar koma einnig fram
Halla Margrét Árnadóttir óperusöng-
kona, Egill Árni Pálsson tenór, og Hulda
Sif Ólafsdóttir sópran.
Myndlist
Kunstraum Wohnraum | Sunnudaginn 1.
janúar 2006, klukkan 11-13 opnar Jóna
Hlíf Halldórsdóttir sýninguna Gegnum -
Through í Kunstraum Wohnraum í Ása-
byggð 2 á Akureyri. Jóna Hlíf lauk námi
við Myndlistarskólann á Akureyri 2005
og stundar nú framhaldsnám við Glas-
gow School of Art.
101 gallery | Jólasýning til 6. jan.
Artótek Grófarhúsi | Sýning á verkum
Bjargar Þorsteinsdóttur til áramóta.
Aurum | Lóa Hjálmtýsdóttir sýnir fígúra-
tíva mynd sem unnin er með lakki. Til 6.
jan.
Café Babalu | Claudia Mrugowski – Even
if tomorrow is not granted, I plant my
tree – á Skólavörðustíg 22a. (www.Mo-
bileart.de) Gallerí Húnoghún | Soffía
Sæmundsdóttir til 5. jan.
GUK+ | Hartmut Stockter til 16. jan.
Hafnarborg | Jón Laxdal til 31. desem-
ber.
Hallgrímskirkja | Kristín Gunnlaugs-
dóttir og Margrét Jónsdóttir til febr-
úarloka.
Hitt húsið | Sýningin Skúlprút í gallerí
Tukt, Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3-5.
Þar sýna nemendur af listnámsbraut í
FB verk sín. Sýningarsalurinn er opinn
alla virka daga frá 9- 17 til 5. janúar
2006.
Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadótt-
ir sýnir í Menningarsal til 7. febrúar.
Iða | Sölusýning á málverkum Þóru Guð-
rúnar Benediktsdóttur til loka janúar
2006.
Kaffi Milanó | Ingvar Þorvaldsson sýnir
Vatnslitamyndir til áramóta Kaffi Sólon
| Dóra Emils – Heyr himna smiður – til
14. jan.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýn-
inguna Týnda fiðrildið til loka apríl 2006.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýn-
ing.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist
II - Um rými og frásögn. Sýning á verk-
um 13 ísl. samtímalistamanna. Til 12.
febrúar 2006.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning. Til
2006.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Bernd Koberling til 22. janúar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró
til 23. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá
fæðingu málarans. Til 19. mars.
Listasmiðjan Þórsmörk Neskaupstað |
10 listakonur frá Neskaupstað sýna á
Egilsstaðaflugvelli. Til jan.
Listhús Ófeigs | Dýrfinna Torfadóttir,
Rósa Helgadóttir, Þorbjörg Valdimars-
dóttir til ársloka.
Ráðhús Reykjavíkur | Helga Birgisdóttir
– Gegga. Málverkasýning sem stendur til
áramóta.
Skaftfell | Rúna Þorkelsdóttir – Post-
cards to Iceland. Opið mán-föst 13-16,
sun 15-18.
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða
Frægð | Jólasýning Lóu og Hulla er
myndlistasýning með jólaþema. Hér eru
tveir myndasöguhöfundar af krútt-
kynslóðinni að krota á veggi.
Yggdrasil | Tolli til 25. jan.
Þjóðarbókhlaðan | Brynjólfur Sveinsson
til áramóta.
Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís-
lenskri myndlist í Bogasal, til 28. maí.
Ljósmyndir Marco Paoluzzo í Myndasal
og ljósmyndir Péturs Thomsen í Mynda-
sal. Til 20. febrúar.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga nema mánu-
daga í vetur frá kl. 10-17. Vönduð hljóð-
leiðsögn, margmiðlunarsýning og
gönguleiðir. Velkomin. www.gljufra-
steinn.is
Þjóðmenningarhúsið | Handritin - saga
handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja-
safnið - svona var það, Fyrirheitna land-
ið - fyrstu Vesturíslendingarnir; mor-
mónar sem fluttust til Utah, Bókasalur -
bókminjasafn, Píputau, pjötlugangur og
diggadaríum - aldarminning Lárusar Ing-
ólfssonar, og fleira. Veitingastofa, safn-
búð.
Þjóðminjasafn Íslands | Boðið upp á
fjölbreytta fræðslu og þjónustu fyrir
safngesti. Þar eru nýstárlegar og vand-
aðar sýningar auk safnbúðar og kaffi-
húss. Opið alla daga nema mánudaga kl.
11-17.
Dans
Broadway | Á gamlárskvöld verður risa
áramótapartý á Broadway, dansað í
þremur sölum. Skímó og Í svörtum föt-
um, tvær af vinsælustu hljómsveitum
landsins verða á aðalsviðinu, DJ Brynjar
Már sér um stuðið í hliðarsal A og svo
Addi Exos, Óli Ofur og Jónfrí í hliðarsal
B.
Skemmtanir
Apótek bar grill | Nýársfagnaður á Apó-
tek bar grill með hljómsveitinni Buff.
Boðið er upp á 4 rétta máltíð á kr.
8.950. Borðapantanir í síma 5757 900
eða apotek@veitingar.
Búðarklettur | Hljómsveitin Þjóðviljinn
leikur fyrir áramótadansleik á Búð-
arkletti Borgarnesi, gamlárskvöld, húsið
opnað kl. 1.
Kaffi Sólon | Dj Brynjar Már stjórnar
áramótagleði frá kl. 24 - 6. Dj Andrés &
Dj Tommi White verða með nýársteiti 1.
jan. kl. 23 - 3.
Fréttir og tilkynningar
Bláa Lónið hf | Málbjörg býður til
fræðslufundar um stam í Bláa lóninu 3.
janúar kl. 19. Hjörleifur Ingason fjallar
um kenningar Johns Harrisson um Stam
sexhyrninginn. Þátttaka tilkynnist til
malbjorg@stam.is eða síma 8566440.
Nánari uppl. á www.stam.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.